Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 6. MARS 2000
I>V
Fréttir
Niöurstöður genarannsókna um uppruna íslendinga:
íslenskar konur frá
Bretlandseyjum
- hvaðan eru karlarnir? spyr Sigríður Dúna
í rúm tvö ár hefur íslensk erfða-
greining unnið að rannsóknum á upp-
runa íslendinga í samvinnu við Ox-
fordháskóla og Þjóðminjasafn íslands.
Þetta er stærsta og umfangsmesta
erfðarannsókn sem gerð hefur verið
þar sem rannsakaðar voru hvatbera-
arfgeröir 401 íslendings og þær bom-
ar saman við sýni úr 2500 öðrum Evr-
ópubúum. Hvatberar eru orkustöðvar
frumna og eini hluti frumunnar utan
kjarna með eigið erfðaefni. Erfðaefn-
ið þykir mjög heppilegt til rannsókna
á þróunarsögu og skyldleika mann-
hópa en DNA-hvatberar erfast ein-
ungis í kvenlegg frá móður til barns.
Nánast allar hvatberaarfgerðir í
núlifandi íslendingum eru komnar
beint frá landnámskonum en þær
eiga rætur að rekja tO Norðurlanda
og Bretlandseyja í nokkuð jöfnuð
hlutfóllum, auk smávægilegs fram-
lags frá öðrum svæðum í Evrópu.
„Fólk vill alveg fallast á þá kenn-
ingu að víkingarnir hafi komið við á
Bretlandseyjum. Þessir menn bjuggu
nokkrar kynslóðir á Bretlandi áður
en þeir komu hingað til lands,“ sagði
Sigrún Sigurðardóttir hjá íslenskri
erfðagreiningu. Sigrún var ein þeirra
sem unnu skýrsluna Erfðaefni hvat-
bera og uppruni íslendinga í sam-
vinnu við Agnar Helgason, Jeff
Gulcher, Ryk Ward og Kára Stefáns-
son.
íslendingar hafa hlutfallslega færri
arfgerðir en næstum allar Evrópu-
þjóðir en til að gefa fullnægjandi
mynd af erfðamengjum þeirra þarf
stærra úrtak en verið er að vinna að
því og má búast við fleiri niðurstöð-
um áður en langt um líður. Ekki líð-
ur á löngu þar til íslendingar geta
fengið skorið úr arfleifð sinni með
einni blóðrann-
sókn.
Uppruninn
staðfestur
„Mér þykja
þessar niðurstöð-
ur mjög athyglis-
verðar. Rann-
sóknir i líffræði-
Sigríður Dúna iegri mannfræði
Kristmundsdóttir: hafa bent m þess
Niöurstoöurnar nokkurt árabu
eru mí°g athySlls- að skyldleiki
veröar. okkar við fólk á
Bretlandseyjum
væri mun meiri en sögulegar heim-
ildir gefa til kynna,“ segir Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir mannfræð-
ingur og vísar þar í rannsóknir dr.
Jens Ó. Pálssonar en niðurstöður
Jens hafa verið þekktar í rúma tvo
áratugi. Niðurstöður Jens hafa vísað
í þessa átt en ekki verið vissa að hve
miklu leyti þær segðu til um samsetn-
ingu landnámshópsins út af stóru far-
sóttunum sem geisuðu. Þess má geta
að Agnar Helgason lauk mastersprófi
í mannfræði við Háskóla íslands.
Blóðflokkar eru misnæmir fyrir
vissum sóttum en meirihluti þjóðar-
innar er í O-blóðflokki, líkt og á Bret-
landseyjum, en A-blóðflokkur er al-
gengari á Norðurlöndum. Þau áföll
sem þjóðin hefur orðið fyrir frá því á
landnámstíð gætu hafa komið mis-
jafnlega niður á blóðflokkum og hafa
því eldri tilraunir til að rannsaka
uppruna íslendinga, sem studdust við
blóðflokka, byggst á líkindum en sam-
kvæmt þeim hefur uppruninn bent til
allt að 98% „keltnesks" uppruna til
86% norræns uppruna. „Samkvæmt
þessum niðurstöðum er verið að stað-
festa uppruna okkar með mun meira
sannfærandi og óyggjandi hætti,“ seg-
ir Sigriður.
Sigríður Dúna sagði það hafa kom-
ið sér á óvart hve faðernisskráning
virðist hafa verið nákvæm hér á
landi. „Við höfum löngum heyrt sög-
ur af því að börn væru rangfeðruð og
prestar og aðrir fyrirmenn létu
vinnumenn gangast við börnum sín-
um en hlutfallið er svo ótrúlega lágt
að það gerir þessar sagnir að þjóðsög-
um,“ sagði Sigríður og sagði að með
þessu væri hægt að leggja meira
traust á genarannsóknir þar sem
karlleggurinn væri traustari en menn
þorðu að vona. „Svo er spennandi að
sjá hvaðan karlamir koma. Ég býst
við að íslenskar konur vilji vita með
hvaða mönnum þær hafa búið síðast-
liðin 1100 ár!“ sagði Sigríður.
-hól
Byltlng í postulínshúðun
fná Villeroy & Boch
Þau voru tilnefnd:
Hjördís Þóra fyrir hönd Jökuls, Kristín Jóhannesdóttir, Jóhann Morávek, Gísli
Sverrir Árnason og Guöný Svavarsdóttir. Davorka og Haukur
voru ekki viöstödd.
Verðandi bæjarstjóri fékk
menningarverðlaun fyrir
Hornafjarðarmanna
Menningarverðlaun Hornafjarðar
fyrir árið 1999 voru tilkynnt og af-
hent í síðustu viku. Verðlaunin
hlaut að þessu sinni Albert Ey-
mundsson, skólastjóri Hafnarskóla
og verðandi bæjarstjóri, fyrir kynn-
ingu á spilinu Hornafjarðarmanna
og skaftfellsku málfari, sérstöðu
þess og framburði, sem kynnt var á
fjölmennri ráðstefnu á Hornafirði á
síðasta ári.
Menningarmálanefnd tilnefndi
sex aöila auk Alberts til verðlauna
en það voru; Davorka Basrak og
Guöný Svavarsdóttir fyrir íslensk-
serbneska, serbnesk-íslenska orða-
bók, Gísli Sverrir Árnason fyrir að
rita sögu verkalýðshreyfingarinnar
á Hornaflrði, Haukur Þorvaldsson
fyrir menningarmál, Jóhann Morá-
vek fyrir tónlistarstörf, Kristín Jó-
hannesdóttir fyrir eflingu kórstarfs
og Verkalýðsfélagiö Jökull fyrir
bókaútgáfu og stuðning við menn-
ingarstörf.
Inga Jónsdóttir er formaður
menningarmálanefndar og sagði
hún þegar hún tUkynnti hverjir
hefðu hlotið tilnefningu, að mark-
miðið með þessum verölaunaveit-
ingum væri að eUa og örva menn-
ingarlíf í sveitarfélaginu og um leið
þakka það sem gert hefur verið.
Júlía Imsland
Jólakortið
komst loks
til skila
DV, Sauöárkróki:
Það er svo sem ekki nýtt að misjafn-
lega gangi að koma jólapósti tU skUa
Dæmi um það kom upp á Sauðárkróki
nú á dögunum og varð nokkurt aðhlát-
ursefni á vinnustað í bænum.
Þannig er málum háttað að ein af
íbúðum Heilbrigðisstofunarinnar á
Sauðárkróki hefur staðið auð frá því
skömmu fyrir síðustu jól. Hún er í
raðhúsalengju i Raftahliðinni og í
næstu íbúð við hliðina býr Minny
Leósdóttir hjúkrunarkona sem lengi
hefur starfað við sjúkrastofhunina á
Sauðárkróki.
í síðustu viku var Sigmundur Páls-
son, húsvörður á sjúkrahúsinu, send-
ur til að athuga hvort allt væri ekki í
stakasta lagi í tómu íbúðinni og í leið-
inni taka póst ef hann hefði borist.
Sigmundur kom til baka með nokkum
póst og m.a. var í honum jólakort til
Minnyar sem greinilega hafði farið
inn um ranga bréfalúgu.
Þegar Minny opnaði umslagið varð
henni heldur betur skemmt því jóla-
kortið reyndist vera frá starfssystur
hennar til margra ára á deildinni og
mun þeim stöllum hafa ratað á munn
þau orð „að betra væri seint en aldrei"
en það er óneitanlega mjög sérkenni-
legt að jólakort sé tvo mánuði að ber-
ast á milli fólks sem vinnur á sömu
deild og sést nánast daglega. -ÞÁ
Kynning á Hornafjarðarmanna.
Inga Jónsdóttir, formaður menningarmálanefndar, Albert Eymundsson og
Garöar Jónsson bæjarstjóri sem afhenti Albert verölaunin.
i i METRO
Skeifan 7 * Sími S2S 0800
Hrindir óhreinindum frá sér
Opið öll kvöld til kl. 21