Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Side 14
14 MÁNUDAGUR 6. MARS 2000 Skoðun i>v Er fátækt á íslandi? Eggert Jóhannesson prentsmiöur: Ekki mér vitanlega. Styrmir Kristjánsson prentsmiður: Já, þaö er fátækt á íslandi. Haraldur Guömundsson verktaki: Ekki mikil. Guörún Birna Einarsdóttir nemi: Já, hún er til innan um. Geröur Arnadóttir og Ragnheiöur Hulda: Já, sums staöar. Þaö er alltaf aö breikka biliö. Svala Ólafsdóttir húsmóöir: Nei, ég myndi ekki segja þaö. Valdimar Jóhannesson, talsmaöur Réttlátrar gjaldtöku. „Þegar Valdimar sendi landsmönnum bréf, þar sem póstburöargjaidiö eitt og sér er 7 stafa tala, þá hlýtur hagnaöarvonin aö hafa veriö allnokkur, “ segir Helga Guðrún í bréfi sínu. Ég heiti Helga Guörún Valdimar Jó- hannesson gjald- tökumaður skrifaði Kjallaragrein i DV sl. mánudag (28.2) undir fyrirsögninni „Ég heiti Valdimar, ég er ljón!“. Þar fræðir hann lesend- ur á nokkrum at- hyglisverðum „stað- reyndum". Mér er svo sem nokk sama þótt hann kalli mig ýmist „siðlega frú“ og „elskulega frú“ eða óeðlilega konu, hrakyrðing og mannorðsþjóf. En þegar maðurinn fullyrðir að ég sé karlmaður þá sé ég mig tOneydda til andsvara. Ég hef staðið frammi fyrir ýmsum vanda um ævina. Sjaldan þó jafnein- kennilegum og þessum. Að sanna að ég sé kona. Ég skrifaði bréfið undir — ég er ljón! „Nú skdl það upplýst að ég þekki ekki Kára, hef aldrei séð hann nema á myndum. Ég hef aldrei búið í Norður- mýrinni. “ fullu nafni. Varla hægt að ruglast á því og karlmannsnafni. Valdimar hringdi heim tD mín og talaði við mig. (Ég lýsi eftir þeim sem þykir röddin mín karlmannleg.) Og vegna þess að Valdimar er enn í vafa þá læt ég nú fylgja mynd með greininni. Ég skrifaði bréfið mitt úr heimilis- tölvunni minni, með mínum bréf- haus, undir minu nafni. Aldrei myndi ég lána, hvorki karlmanni né konu, nafn mitt undir skoðanir sem ég hefði ekki eða bréf sem ég hefði ekki ritað eigin hendi. Gamalt mál- tæki segir að kapp sé best með forsjá. Þegar Valdimar sendi landsmönn- um bréf, þar sem póstburðargjaldið eitt og sér er 7 stafa tala, þá hlýtur hagnaðarvonin að hafa verið allnokk- ur. Valdimar hringdi heim til mín, klökkur af bræði. Sagði að ég væri „heimsk kona“ og hótaði mér „mála- ferlum", svo endurtekin séu hans eig- in orð. Ég verð að viðurkenna að „í mér bjó fól“ þegar ég hvatti hann eindreg- ið til að leggja nú líka til atlögu við tjáningarfrelsið í landinu. Nú skal það upplýst að ég þekki ekki Kára, hef aldrei séð hann nema á myndum. Að lokum þetta: Hvað sem „konungur dýranna" tekur sér fyrir hendur í framtíðinni þá vona ég, sem foreldri, að það verði ekki stafsetningarkennsla. Heiga Guörún Eiríksdóttir skrifar: Fornbílar bíða uppgerðar „Fjöldi einstaklinga hefur á liðnum dögum haft sam- band við Fornbílaklúbbinn vegna þessa máls og lýst yfir vanþóknun sinni á þessari óvenjulegu ráðstöf- un opinberra minja. “ Örn Slgurðsson, form. Fornbílaklúbbs íslands, skrifar: Frétt DV fyrir skömmu um fom- bíla þá sem þjóðminjavörður lét einkaaðilum i té á síðasta ári virðist hafa verið tímabær ef marka má við- brögðin við henni. Fjöldi einstak- linga hefur á liðnum dögum haft samband við Fombílaklúbbinn vegna þessa máls og lýst yfir van- þóknun sinni á þessari óvenjulegu ráðstöfun opinberra minja. Persónu- lega vil ég ítreka undrun mína og stjórnar klúbbsins á þessum ráðahag en vil þó að fram komi að rangt var eftir mér haft að umræddur Hinrik Thorarensen sé ekki þekktur fyrir að koma hlutunum í verk og hvað þá að gera upp fornbíla. Hið rétta er að Hinrik hefur gert upp nokkra forn- bíla og gert það vel. Kristinn Snæland gerir þetta mál að umtalsefni í grein sinni í DV sl. miðvikudag. Það er rétt hjá honum að ég hefði mátt vita um „norsku að- ferðina" við uppgerð fornbíla. Alls ekki slæm aðferð það en samt held ég að hugmyndafræði hennar búi ekki að baki þessu máli. í niðurlagi grein- ar sinnar gerir Kristinn á ósmekkleg- an hátt lítið úr sjálfboðaliðastarfi mínu hjá Fornbílaklúbbnum. Að öðru leyti sé ég enga ástæðu til að tíunda opinberlega það sem ég geri í mínum frítíma, hvorki innan veggja mlns bílskúrs né meðal vina minna í klúbbnum. Félagar klúbbs- ins vita hins vegar betur og þeir þekkja lika sögu Kristins Snælands á þeim vettvangi. Dagfari Tekjuskatturinn fari alveg burt Egill Egilsson skrifar: Er engin leið til þess að halda þessu margnefnda góðæri? Ég sé ekki betur en að nú ríði yfir hol- skefla verðhækkana, gengisfelling, og öngþveit af völdum vaxtahækk- ana. Hvernig á að bregðast við þessu? Ég sé aðeins eina leið sem hægt er að semja um svo allir sætti sig við. Afnám tekjuskattsins úr kerfinu. Þjóðartekjurnar af tekju- skattinum vega næsta lítið þegar lit- ið er til annarra tekjuöflunarleiða ríkisins. Um annað þarf ekki að semja, laun gætu verið óbreytt ef tekjuskatturinn er lagður af. Jóhönnu til formanns Kjósandi Samb'lkingar hringdi: Ég kaus Samfylkinguna í von um að halda við jafnaðarstefnu þeirri sem við íslendingar höfum þegið svo margt gott frá, ekki síst tryggingakerfið, sem alltaf verður okkur mikilvægara ár frá ári. Ég fagnaði sameiningu hinna þriggja flokka í Samfylkinguna. Ég ótt- ast eftirköst verði ekki eining um fyrsta formann þessara samtaka. Ég vil að Jóhanna Sigurðardóttir fái víð- tækan stuðning til formannskjörs. Hún er eins konar ímynd okkar fyrir jafnaðarstefnuna og hefur átt mikinn þátt í að viðhalda henni hér. Loönubræðsla fyrir útflutninginn. Einfaldlega óþefur, ekki peningalykt. Ýldufýlan í höfuðborginni Sveinbjörn hringdi: Það er með eindæmum að við Reykvíkingar, einkum hér í mið- borginni og vestur úr, skulum þurfa að sæta því að hafa þessa ýldufýlu í vitunum þegar bræðsla loðnu hefst. I síðustu viku og allt til þessa dags hefur verið hér þvílík stybba frá loðnubræðslu að ekki er verandi ut- anhúss. Það er löngu liðin sú tíð að hægt sé að gantast með þessa fýlu og líkja við peningalykt. Þetta er ein- faldlega óþefur sem stafar af úldnu hráefni sem tekið er til vinnslu. Hugguleg útflutningsvara það! í íslenskri erfðagreiningu. Sækjum viö okkar gen aö einhverju leyti til Asíu og Austur-Evrópu? Metrasekúnduveður Talsmaður Veðurklúbbsins á Dalvík, sem spáir í veðurhorfur með þeim skiln- ingarvitum sem manninum eru ásköpuð og beitir fyrir sig ýmsum fornyrðum um veðurlag, segir að það sé nýjum aðferðum við vindmælingu Veðurstofunnar að kenna að fólk skilur ekki lengur veður- lýsingar né veðurspár. í stað kjarngóðra íslenskra hugtaka um vindhraða eins og andvara, golu, kalda, roks og hvassviðris noti veðurfræðingar nú metra á sekúndu. Sú tölfræði minnki tilfinningu fólks fyrir veðrinu. Nokkir alþingismenn taka undir þessa gagnrýni glöggskyggnra veður- manna á Dalvík og hafa flutt þingsálykt- unartillögu um að Veðurstofan taki aftur upp gömlu veðurorðin. Lengdareiningu á tímaeiningu verði kastað fyrir róða. íslendingar vita og hafa vitað að gola er gola og stormur er stormur. Og hafa stundum hagað sér samkvæmt því. En þeir tapa algjörlega átt- um þegar stormurinn sem spáð var er ekki stormur heldur 25 metrar á sekúndu. Og spyrja sig hvort það sé hraði orrustuþotu eða snigils? Veðurspár fara því fyrir ofan garð og neðan. Enginn veit hvort hann á að vera heima eða fara út í sveit, binda öskutunnurnar eða kaupa „íslendingar vita og hafa vitað að gola er gola og stormur er stormur. Og hafa stundum hagað sér samkvœmt því. En þeir tapa algjörlega áttum þegar stormurinn sem spáð var er ekki stormur heldur 25 metrar á sekúndu.“ rakettur. Málbandið og skeiðklukkan þvælast hvort fyrir öðru meðan úti rík- ir annaðhvort rjómablíða eða þá storm- ur sem skekur allt og hristir. Veðurlýs- ingar sem ganga úr á tölustafi en ekki rótgróin hugtök eru dæmdar til að vill- ast í heilabúi venjulegs fólks sem hlust- ar á veðurspár til að vita hvort það eigi að vera heima eða fara að skoða Heklu- gos, setja trefil um hálsinn eða fara út á skyrtunni. Því hefur verið haldið fram að íslendingar taki ekki mark á óveð- ursviðvörunum. En fálæti þeirra í garð veðurspánna hefur sjaldan verið meira en um þessar mundir. Eftir spár um metra eftir metra á sekúndu halda þeir í útsýnisferð, festa bílinn í Þrengslun- um og halda björgunarsveitarmönnum frá hlýju bólinu klukkustundum saman. Dagfari hallast að því að veðurfræðingarnir séu heldur ekki of fótvissir í þessum metrasekúndufræðum enda gerist annað hvort, að þjóðin tekur ekki mark á veðurspánni eða veðurspáin úr tölvunni, sem skilur ekki logn, golu, storm og rok heldur einungis metra á sekúndu, klikkar. t>A ^AfL Komin af írsk- um og norskum Álfheiður hringdi: Rokufréttirnar um að um helming- ur íslenskra kvenna sé kominn frá Bretlandseyjum en hinn helmingur- inn frá Noregi eru hlægilegar. Viss- um við þetta ekki fyrir? Er þetta ein- hver frétt? Ég hefði viljað sjá frétt staðfesta frá Islenskri erfðagreiningu eða öðrum um að mikill hiuti okkar íslendinga væri upprunninn frá Mið- Asíu, jafnvel Austur-Evrópu, sam- kvæmt rannsóknum Barða heitins Guðmundssonar. Við sækjum okkar gen að mörgu leyti til þessara land- svæða. Hitt vitum við svo, hvaðan við komum svo til landsins. DV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is. Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.