Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2000, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
7
I>V
Fréttir
Fáir eftir í vestustu byggð Evrópu:
Vil aðgang að
fiskimiðunum
- segir Kollsvíkurbóndi og vill að bændur fái forskot til að nýta fiskinn
Hilmar Össurarson, bóndi í Kolls-
vík i Rauðasandshreppi hinum
forna, segir blikur á lofti varðandi
kúabúskap á svæðinu. Um nokkurt
skeið hafa verið uppi vangaveltur
um að afnema flutningsstyrk á
mjólk sem gæti gert framleiðslu á
svæðinu vonlausa.
Meðan verðjöfnunarsjóður mjólk-
ur var við lýði hjá Samtökum
afurðastöðva í mjólkuriðnaði fékkst
þaðan flutningsstyrkur. Þessi sjóð-
ur er úr gildi fallinn svo þurft hefur
að leita annarra leiða. Hilmar er
með 10 kýr og um 300 fjár. Hann seg-
ist hreinlega ekki hafa þorað að
leggja út í fjármagnskostnað við
frekari uppbyggingu vegna óvissu
um framtíðina. Hilmar segist þó
enn til í slaginn á meðan honum
verði ekki gert ókleift að búa
afutanaðkomandi orsökum. Þá segir
hann að við bæjardymar séu ein-
hver gjöfulustu fiskimið landsins og
I
?
telur Hilmar að bændur á svæðinu
eigi að fá forskot á aðrar byggðir
við að nýta þau.
„Menn hafa verið allt of hógværir
til þess að hreyfa því máli. Ég held
að það séu fleiri sammála mér að
fara að gera það með nokkru meiri
þunga en verið hefur. Ef mönnum
er alvara með byggðastefnu, þá held
ég að ráðamenn verði að svara út
um það hvort þeir eru tilbúnir með
slíkar sértækar og óumflýjanlegar
aðgerðir.
Við höfum tapað framleiðendum
út úr mjólkurframleiðslu og það er
um langan veg að sækja til okkar
frá Mjólkursamlaginu í Búðardal.
Það er búið að boða það að breyting-
ar geti orðið í framtíðinni á mjólk-
urflutningunum sem auðvitað held-
ur mönnum í óvissu. Það setur í
uppnám endurnýjun á jörðum og
hugsanleg kynslóðaskipti.
Það eru ekki nema fjórir mjólk-
urframleiðendur eftir í gamla
Rauðasandshreppi, en síðan eru
eitthvað á annan tuginn á Barðar-
strönd. Ég lít á þetta svæði sem
eina heild, því mjólkurbíll þarf að
sækja til okkar mjólkina yfir
Breiðafjörð. Við höfum lagt áherslu
á að Mjólkursamlaginu verði hjálp-
að við það af samfélaginu að halda
mjólkurflutningunum gangandi.
Það hefur verið boðað í byggða-
stefnum og áæOunum að það skuli
aðstoðað til að byggðin fái að hald-
ast.“
Tveir bæir eru í byggð í Kollsvík
og þá er einnig búið í næstu tveim
víkum, Hænuvík að austan og
Breiðuvík að vestan. Hilmar sér
enn nokkra glætu þrátt fyrir erfiða
stöðu þar sem ábúendur jarðanna i
kring eru á besta aldri. Þá segir
hann t.d. mikla möguleika á upp-
byggingu ferðaþjónustu i Breiðu-
vík. -HKr.
DV-MYND HKR.
Hilmar Ossurarson, bóndi í Kollsvík
„Efmönnum er alvara meö byggöastefnu, þá held ég aö ráöamenn veröi aö
svara út um þaö hvort þeir eru tilbúnir meö sértækar og
óumflýjanlegar aögeröir. “
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Hættuleg akstursskilyrði á Hellisheiði
- mikill skafrenningur og lítið skyggni.
Þaulsætið vetrarríki
Það sem af er vetri hefur hann
verið með eindæmum snjóþungur
og kaldviðrasamur. Fyrir þá sem oft
eiga leið um Hellisheiði er skafrenn-
ingur algeng sjón kvölds og morgna.
Mikill skafrenningur var á heiðinni
í gær og byrgði oft útsýn öku-
manna.
í skafrenningnum myndast líka
oft hættuleg snjódrög og skaflar
inni á veginum sem sjást illa í
svona skyggni. Bílar hafa oft af
þessum sökum snúist, jafnvel í veg
fyrir umferð sem kemur á móti.
-NH
BGB hf.
Hagnaður 50 millj-
ónir á síðasta ári
- samrunaáætlun samþykkt
DV, DALVÍK:
Hagnaður af rekstri BGB hf. í
Dalvíkurbyggð nam 50 milljónum
króna á síðasta ári. Heildartekjur
námu alls um 907 milljónum króna
og eru þá meðtalin verðmæti eigin
afla upp á 144 milljónir króna. Er
þetta ríflega 100 milljóna króna
veltuaukning frá fyrra ári.
Þetta kom m.a. fram á aðalfundi
fyrirtækisins sem haldinn var sl.
laugardag. Þar kom einnig fram að
rekstargjöld námu alls um 627
milljónum króna. Afskriftir aukast
milli ára og nema alls um 105 millj-
ónum króna.
Að teknu tilliti til fjármagnsliða,
sem nema ríflega 9 milljónum
króna og annarra tekna sem nema
um 11 milljónum, er hagnaður fyr-
irtækisins á síðasta rekstrarári alls
50.193.773 en hagnaður á árinu 1998
var rúmlega 13 milljónir króna.
Eignir samtals eru metnar á ríf-
lega 1.337 milljónir króna. Þá nema
langtímaskuldir alls 665 milljónum
króna og skammtímaskuldir alls
163 milljónum króna. Tekjuskatts-
skuldbinding fyrirtækisins nemur
um 51 milljón króna. Veltufé frá
rekstri nam 103 milljónum króna
og hlutfall eigin fjár um siðustu.
áramót var 34% og veltufjárhlutfall
0,71.
Samþykkt var að greiða hluthöf-
um 7% arð vegna ársins 1999.
Á aðalfundinum lá fyrir kynning
á samrunaáætlun BGB hf. við Snæ-
fell hf. í Dalvíkurbyggð en eins og
kunnugt er hafa félögin átt í við-
ræðum undanfarin misseri um
samruna og var samruninn sam-
þykktur.
Ný stjóm var kjörin á fundinum
og mun hún halda um stjómar-
taumana hjá sameinuðu fyrirtæki
verði samruninn samþykktur á
aðalfundi Snæfells hf. sem haldinn
verður næstkomandi mánudag.
Stjómina skipa Eiríkur S. Jóhanns-
son, Hermann Guðmundsson, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, Valdi-
mar Snorrason og Þorsteinn Már
Baldvinsson. Til vara eru Bjöm
Friðþjófsson og Ottó Biering Ottós-
son.
Að sögn Þóris Matthíassonar,
framkvæmdastjóra BGB, eru sam-
einingarmálin nú á lokastigi. Að
því gefnu að áætlunin verði sam-
þykkt á aðalfundi Snæfells eru ein-
ungis formsatriði óafgreidd. Skipti-
hlutfall félaganna við samruna
liggur ekki fyrir fyrr en uppgjör
Snæfells fyrir síðasta ár hefur ver-
ið gert opinbert. -hiá
Loðnuveiðin:
Yfir 750 þúsund
tonn á land
DV, AKUREYRI:______________________
Loðnuaflinn var í gærmorgun
orðinn 754 þúsund tonn. Þar af hef-
ur veiðst 671 þúsund tonn frá ára-
mótum, sem er geysilega mikil
veiði, en sumar- og haustvertíðirnar
voru hins vegar mjög lélegar og
skiluðu ekki nema 83 þúsund tonn-
um.
Loðnan er nú að hefja hrygningu
og drepst að því loknu. Komi ekki
önnur ganga er vertíðinni því um
það bil að ljúka.
Vestmannaeyjar voru í gær hæsti
löndunarstaðurinn en þangaö höfðu
borist 83 þúsund tonn. Næstir í röð-
inni eru Eskifjörður með 70 þúsund
tonn, Seyðisfjörður 62 þúsund, Nes-
kaupstaður 60 þúsund, Reyðarfjörð-
ur 45 þúsund, Grindavík 43 þúsund,
Siglufjörður 443 þúsun og Fáskrúðs-
fjörður 40 þúsund. -gk
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. mars 2000 hefst innlausn á útdregnum
húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 25. útdráttur
4. flokki 1994 - 18. útdráttur
2. flokki 1995 - 16. útdráttur
1. og 2. flokki 1998 - 7. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
þriðjudaginn 14. mars.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóóum og veróbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
*
Ibúðalánasjóður
Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800