Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2000, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
Fréttir ____________DV
Kristilega sjónvarpsstöðin út fyrir landsteinana:
Omega til 77 landa
- með íslenskum texta
Forráðamenn kristilegu sjón-
varpsstöðvarinnar Omega eru að
festa kaup á jarðstöð til að geta
sjónvarpað efni stöðvarinnar í
gegnum gervihnött til 77 landa.
Áætlaður kostnaður við jarðstöð-
ina er 30 milljónir og dreifingar-
kostnaður sjónvarpsefnisins i
gegnum gervihnött er áætlaður
4-5 milljónir á ári.
„Við reynum að fjármagna þetta
með frjálsum samskotum velunn-
ara eins og við höfum gert þau 8 ár
sem Omega hefur verið í loftinu.
Og svo útilokum við alls ekki aug-
lýsingar. Með þesu móti komumst
við á svo risastóran markað að allt
getur gerst í þeim efnum ef Guð
lofar,“ sagði Eirikur Sigurbjöms-
son, sjónvarpsstjóri á Omega.
Nýja jarðstöðin mun gera
Omega kleift að senda efni sitt um
alla Evrópu, norðanverða Afríku,
Miðausturlönd, vesturhluta Kína
og um allt Rússland. íslenskt efni
stöðvarinnar verður textað á sama
Sjónvarpsstjórinn
Eiríkur Sigurbjörnsson ætlar að
vinna sálir inn í Guösríki um
heim allan meö hjálp sjónvarps-
tækninnar.
hátt og erlendar kvikmyndir sem
hér eru sýndar og telur Eiríkur
sjónvarpsstjóri það alls ekki til
vansa:
„Við ætlum að vera með kristi-
legt barnaefni, tónlist og spjall-
þætti eins og áhorfendur okkar
þekkja og markmiðið er alltaf hið
sama: að vinna sálir inn í Guðs-
ríki. Við vonumst til að þetta verði
allt orðið að veruleika fyrir árslok
og í framhaldinu stefnum við að
því að ná einnig tO Indlands og
alls Kínaveldis með samtenginu
við annan gervihnött og með Guðs
hjálp,“ sagði Eiríkur Sigurbjöms-
son. -EIR
Opnir sorpsekkir og annaó rusl
Ekki er hægt aö segja aö nánasta
umverfi Sorpu viö Sævarhöföa
sé til fyrirmyndar.
Allt í rusli
hjá Sorpu
Mikið af rusli hefúr verið losað utan
girðingar við móttökustöð Sorpu við
Sævarhöfða og dreifst með fram bökk-
um Elliðaánna. Slitnir sorpsekkir,
pappakassar og annar úrgangur liggur
þar á víð og dreif og er til lítils fegurð-
ai-auka. Að sögn starfsfólks Sorpu er
talsvert um það að fólk, sem kemur að
stöðinni eftir að lokað er skilji rusl eft-
ir við hliðið. Yfirleitt gengur starfsfólk-
ið þó sjálft frá því daginn eftir en eins
og meðfylgjandi mynd sýnir heíúr því
yfirsést ýmislegt. -EÖJ
Eldur
Eldur kom upp í sýningarglugga
verslunarinnar Faröarans viö Skóla-
vöröustíg í nótt. Um lítilsháttar eld
var aö ræöa og búiö aö slökkva þeg-
ar slökkviliöiö kom á vettvang.
Árekstur
Á þessum tíma er árvisst aö ökumenn bifreiöa auka hraöann og auka þannig slysahættu í umferöinni. Ekki skal full-
yrt neitt hvort hraöakstur eöa ógætilegur akstur olli mjög höröum árekstri á mótum Sætúns og Skúlagötu í gær, en
tjón vegna árekstursins varö mikiö eigi aö síöur.
Hans Petersen kaupir hluta Skyggnu Myndverks:
Fákeppni í framköllun
„Þeir keyptu hluta af rekstrinum,
þ.e. þann hluta sem snýr að innkaup-
um og þjónustu viö atvinnuljósmynd-
ara,“ segir Kristján Pétur Guðnason,
framkvæmdastjóri Skyggnu Mynd-
verks ehf., en Hans Petersen keypti á
fostudag hluta fyrirtækisins. Kaupverð
var ekki gefið upp og verður ekki gef-
ið upp að sögn Kristjáns. Skyggna
Myndverk mun áfram verða rekið í
eigin nafni en í öðru húsnæði því Hans
Petersen flytur í húsnæði þeirra.
„Þetta hentar Hans Petersen mjög vel,
þeir eru búnir að kaupa húsnæði við
hliðina á okkur og þetta verður bara
framlenging á þeirra fronti. Við verð-
um fyrst og fremst heOdsala, fóðrum
þennan bleksprautumarkað á pappír
áfram eins og við höfúm gert,“ segir
Kristján. Með þessum kaupum telja
margir að eftir standi tvö stór fyrir-
tæki á framköllunarmarkaðinum,
Hans Petersen og Ljósmyndavörur
sem selja m.a. Fuji-vörur. Kristján tel-
ur þó ekki að um fákeppni verði að
ræða og nefnir t.d. Bekó sem taki þátt
í samkeppninni. En var einhver þrýst-
ingur á að salan færi fram?
„Menn komust að þeirri niðurstöðu
að þetta gæti verið hagstætt fyrir báða
aðila og þetta þróaðist upp úr öðrum
umræðum sem við vorum í. Það má
eiginlega segja að við höfúm boðið
okkar eins og þeir hafi ásælst það
þannig að það var samkomulag um
þetta. Hans Petersen hefur sýnt mik-
inn vöxt að undanfömu þannig að þeir
era alveg ósmeykir við að leggja í
stóra hluti og ætla sér ábyggilega að ná
fótfestu á atvinnusviðinu með því að
kaupa okkur upp. Ég er mjög ánægður
með það að fyrst við ákváðum að selja
að það hafi verið þessi aðili sem
keypti,“ segir Kristján. -hdm
Stærsti samningur um rekstrarleigu á bílum undirritaður:
Samningur upp á 200 bíla og tæpar 300 milljónir
„Þetta var stór stund fyrir þessi
þrjú fyrirtæki, samningur upp á
rúmlega 200 bíla og vel á þriðja
hundrað milljónir króna,“ segir Júl-
lus Vífill Ingvarsson, framkvæmda-
stjóri Bílheima, en fyrirtækið gekk í
gær frá samningi við Bilaleiguna
Avis og Glitni um sölu á yfir 200
Opel-bílum til rekstrarleigu. „Þetta
er auðvitað stærsti einstaki bíla-
leigusamningur sem Bílheimar hafa
gert til þessa, þetta er stærsti samn-
ingur sem Avis hefur gert og þetta
er trúlega stærsti samningur sem
Glitnir gerir á þessu sviði. Samn-
ingurinn gengur þannig fyrir sig að
Glitnir kaupir í raun bílana af okk-
ur og leigir þá síðan áfram til Avis
og Avis skilar þeim aftur að samn-
ingstímanum liðnum.
Þetta er ein algengasta að-
ferðin í svona viðskiptum
erlendis og er mjög hag-
Samningar um sölu á 200
bílum i höfn
Aö öilum líkindum var stærsti
samningur um rekstrarieigu á
bíium undirritaöur i gær þegar
Bílheimar, Bilaleigan Avis og
Glitnirgengu frá samningi um
kaup á yfir 200 bílum til
rekstrarleigu. Þau Júlíus Vífill
Ingvarsson frá Bílheimum, Þór-
unn Reynisdóttir frá Avis og
Kristján Óskarsson frá Glitni
voru að sjálfsögðu glaðbeitt
eftir undirritunina.
kvæm fyrir bílaleigur," segir Júlíus
Vífill. Eftir því sem DV kemst næst
er þetta trúlega stærsti samningur
um rekstrarleigu sem gerður hefur
verið hérlendis. Júlíus er sannfærð-
ur um af hverju ráðist var í svona
stóran samning. „Þetta kemur í
framhaldi af þeim bílakaupum sem
Avis hefur verið að gera á undan-
fómum ámm hjá Bílheimum. Þeir
hafa undanfarin fjögur ár verið að
færa öll bílakaup sín yfir til Opel-
merkisins og við höfum náttúrlega
verið stoltir af því að Avis hefur
viljað nýta sér okkar þjónustu og
sömuleiðis að reynsla þeirra af
Opel-bílum er það góð að þeir vilja
fyrst beina sínum kaupum að þeirri
tegund.“ -hdm
Eitt sterkasta mótið
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgar-
stjóri og Bjöm
Bjamason mennta-
málaráðherra settu
19. alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótið af
stað í Ráðhúsinu í
gær. Mótið er hluti af
dagskrá Menningarborgarársins og er
líklega eitt sterkasta opna skákmótið
sem haldið er í heiminum í ár. Dagur
greindi frá.
70 þúsundum dýrara
Kostnaðurinn við að reka meðal-
stóran bíl er 70 þúsund krónum meiri
í dag en fyrir einu ári síðan. Ástæð-
umar era aðallega hærra bensínverð
og hærri tryggingar. FÍB segir nægt
svigrúm til lækkana á báðum þessum
sviðum en tryggingafélög vilja hækka
gjöld um 15-30%. Stöð 2 greindi frá.
Sýknaður af smaragðaákæru
Héraðsdómur Reykjavikur sýknaði
í gær mann af ákæru fyrir að hafa gef-
ið upp rangt kaupverð þegar hann
flutti smaragða til landsins árið 1997.
RÚV greindi frá.
Dýr vasksvik
Tekjutap ríkissjóðs vegna imdan-
skota frá virðisaukaskatti nemur ijór-
um til fimm milljörðum króna á ári.
Þetta er talið vera nokkru minna en
áður, þegar rukkaður var söluskattur.
Útsvar flyst suður
Landsbyggðasveitarfélög hafa misst
um 260 milljóna útsvarstekjur suður
árlega að undanfómu með þeim sem
fluttust á mölina. Dagur greindi frá.
Sek um undirboð
Sementverksmiðjan hf. gerði sig
seka um undirboð þegar boðin voru út
flughlöð við Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar, samkvæmt úrskurði Samkeppnis-
ráðs.
Steinunn fái styrk
Ákveðið hefúr ver-
ið að leggja til að
Steinunn Kristjáns-
dóttir fomleifafræð-
ingur hljóti styrk frá
norskum stjómvöld-
um til doktorsnáms
við Óslóarháskóla. í
heimsókn Kjell
Magne Bondevik, fv. forsætisráðhema
Noregs, í ágúst sl. kom fram á fundi
hans með Davíð Oddssyni forsætisráð-
hema aö norsk stjómvöld hefðu áhuga
á að styrkja nemanda til framhalds-
náms í fomleifafræði í Noregi þar sem
ekki væri boðið upp á nám í fomleifa-
fræði á íslandi.
Kostnaður 20 milljarðar
Kostnaður við hraðlest milli Reykja-
víkur og Suðumesja yrði liklega um 20
milljarðar króna, sagði Alfreð Þor-
steinsson, formaður Orkuveitu Reykja-
vikur, í samtah við fréttastofu RÚV.
Kattaátaki aö kenna
Dýravemdunarfélag Reykjavíkur
telur sjúkdóm sem herjað hefúr á ketti
undanfarið megi rekja til átaks Heil-
brigðisnefhdar Reykjavíkur gegn flæk-
ingsköttum.
2 milljarðar tapast
íslandsbanki og Landsbanki hafa
tapað sem nemur tveimur milljörðum
í gengismun á hlutabréfúm frá áramót-
um. Stöð 2 greindi frá.
Mjög alvarlegt
Einar Sigurðsson,
aðstoðarforstjóri
Flugleiða, segir að
það yrði mjög alvar-
legt ef til verkfalls
kæmi hjá flugvirkj-
um Flugleiða. -hdm