Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2000, Page 5
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
r>v
5
Fréttir
Nýkjörin stjórn Hraöfrystihúss Eskifjarðar hf.
Sitjandi frá vinstri: Brynjólfur Bjarnason, Magnús Bjarnason stjórnarformaöur
og Emil Thorarensen.
Standandi frá vinstri: Þorsteinn Kristjánsson varaformaöur, Kristinn Björns-
son og Elfar Aöalsteinsson. Á myndina vantar Kristin Aöalsteinsson.
Hraðfrystihús Eskifjarðar skilaði hagnaði:
Verðhrun á mjöli og
lýsi olli verri afkomu
Indriöi segir að þegar pósturinn
hefði verið tekinn af sérleyfisbílun-
um þá hefði verið stofnaður sjóður
til aðstoðar þeim sem misstu þann
flutning. Á meðan ráðuneytið hefði
haft með þá úthlutun að gera hefði
þetta verið í lagi, en svo hefði Vega-
gerðinni verið falið að sjá um þenn-
an sjóð. Þá hefði reglum verið
breytt á þá leið að þeir sem póst-
flutninga hefðu, t.d. á norðaustur-
hluta landsins og milli Borgarfjarð-
ar og Héraðs, hefðu allt í einu feng-
ið úr þessum sjóði.
„Það er þetta sem gerir útslagið
um að ég hætti þessum rekstri alveg
og sel bifreiðarnar," sagði Indriði.
Þess má einnig geta að umboðsmað-
ur Flugfélags íslands og Flugleiða á
Fáskrúðsfirði hættir einnig sinu
starfi frá sama tíma. -ÆK
Samfok lýsir yfir áhyggjum vegna skólamála:
Leiöbeinendum fjölgar í Reykjavík
- borgaryfirvöld vilja laða til sín kennara
Skilaði inn sérleyfi
Indriöi Margeirsson viö bifreiö sína, en um mánaöamótin hætti hann akstri
um firðina og skilaöi ráöuneytinu sérleyfi sínu.
Samband foreldrafélaga og for-
eldraráða í Grunnskólum Reykja-
víkur, Samfok, hélt fund á mánu-
daginn undir yfirskriftinni: „Hvern-
ig tryggjum við börnum okkar bestu
kennara sem völ er á?“ Á fundinum
lýstu menn yfir þungum áhyggjum
af fjölgun leiðbeinenda í grunnskól-
um Reykjavíkur á undanförnum
misserum. Samkvæmt tölum frá
Hagstofunni hefur þeim fjögað lítil-
lega í höfuðborginni á sama tíma og
þeim hefur fækkað á landsbyggð-
inni. „Við viljum einfaldlega kenn-
ara með kennaramenntun til að
kenna bömunum okkar,“ sagði Ósk-
Ólafur ísfeld Sigurðsson,
formaður Samfoks
Eins og fleiri Samfoksmenn hefur
Ólafur áhyggjur af fjölgun réttinda-
lausra kennara í Grunnskólum
Reykjavíkur.
ar ísfeld Sigurðsson, formaður Sam-
foks, í samtali við DV. Hann sagðist
ekkert hafa á móti leiðbeinendum
sem einstaklingum en lög kvæðu á
um það að menn skyldu hafa rétt-
indi til að sinna kennslu. Á fundin-
um lýsti Helgi Hjörvar, forseti borg-
arstjórnar, því yfir að borgaryfir-
völd ætluðu að grípa til aðgerða i
því skyni að laða menntaða kennara
sem horfið hefðu til annarra starfa
aftur til skólanna. Verður það m.a.
gert með bættri vinnuaðstöðu og
launatengdu frammistöðumati.
-EÖJ
V.
Sérleyfisbifreiðar Suðurfjarða hætta akstri:
Alveg von
laust dæmi
- segir Indriði Margeirsson
DV, FASKRUÐSFIRDI:
Indriði Margeirsson, eigandi Sér-
leyflsbifreiða Suðurfjarða, hefur
skilað inn sérleyfi sínu og hætt
akstri frá og með 31. mars. Indriði
hefur ekið á leiðinni Breiðdalsvík,
Stöðvarfjörður, Fáskrúðsfjörður,
Egilsstaðir í níu ár. - En af hverju
að hætta núna?
„Ástæðan fyrir því að ég hætti er
að það er búið að fella niður alla
styrki eða skera þá svo mikið niður
að þetta er alveg vonlaust dæmi. Ég
sendi bréf til allra hreppsnefnda á
þessu svæði. Ég hef fengið eitt svar-
bréf og eitt símtal, aðrir hafa ekki
svarað. Ég veit því ekki hvað þeir
hugsa varðandi þetta mál. Einnig
hefur ríkið neitað að gera meira,
svo þetta leggst af,“ sagði Indriði.
PV. ESKIFIRDI:_____________________
A aðalfundi Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, sem haldinn var á fimmtu-
daginn, kom fram að 103 milljón
króna hagnaður varð á rekstri fé-
lagsins árið 1999, en rekstrartekjur
námu 2,1 milljarði króna. I skýrslu
stjómar sem Magnús Bjarnason,
stjómarformaður og framkvæmda-
stjóri, flutti kom fram að stjómend-
ur félagsins væru ekki ánægðir með
afkomuna. Sagði hann orsökina fyr-
ir þetta miklu slakari afkomu en
árin á undan vera þá að verðhran
hafi orðið á mjöli og lýsi.
Fundurinn samþykkti að greiða
5% arð til hluthafa.
Þá var einnig samþykkt að fjölga í
stjóm félagsins úr 5 í 7 og tóku 3 nýir
menn sæti í stjóm félagsins. Þeir eru
Brynjólfur Bjamason, forstjóri
Granda hf., Kristinn Bjömsson, for-
stjóri Skeljungs, og Elfar Aðalsteins-
son, forstjóri Fiskimiða. Aðrir í stjórn
Hraðfrystihúss Eskifjarðar era Þor-
steinn Kristjánsson, Kristinn Aðal-
steinsson, Magnús Bjamason og Emil
Thorarensen. Varamenn era Haukur
Björnsson, Gunnlaugur Ragnarsson
og Björk Aðalsteinsdóttir.
Nokkur breyting hefur orðið á
eignarhaldi í félaginu og á Grandi
hf. orðið um 19,5% hlutafjár í félag-
inu. Forstjóri Hraðfrystihúss Eski-
fiarðar hf. er Aðalsteinn Jónsson,
sem stýrt hefur félaginu af kunnri
snilld og öryggi undanfarin 40 ár.
-Regína.
É á r wm H|Hp# T • ' * ■ • • |Hf F fplf . | f | íJj
■Wt’- ~~ IM ** P* á 1|
DVMYNDIR TEITUR
Frá fundi Samfoks
Nokkrir fundarmanna fylgjast meö umræöum.
Ný sending af
farangursboxum
í mörgum stærðum
Barnabílstólar
Verð frá
kr. 7.470