Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2000, Page 18
18
DV
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
23 **
Skoðun
Útgáfufélag: Frjðls fjölmiölun hf.
Stjórnarforma&ur og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Filmu- og plótugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Samsœri gegn ungu fólki
Byggðagildrur taka á sig ýmsar myndir. Ríki og sveit-
arfélög beita margvíslegum ráðum til að frysta liðna tima
í atvinnuháttum og búsetu. Á hverju ári er milljörðum
varið í byggðagildrur, án þess að árangur hafi verið eftir-
tektarverður. Unga fólkið lætur ekki ánetjast.
Rikið, stofnanir þess og sjóðir borga láglaunafyrirtækj-
um fyrir að starfa í byggðagildrum. Sveitarfélög byggða-
gildranna brenna sameiginlegum peningum íbúanna i
hlutafé hallærisfyrirtækja, meðan önnur sveitarfélög geta
notað sína peninga óskerta í þjónustu fyrir íbúana.
Með múgæsingu smábyggða-þjóðernis er almenningur í
þessum sveitarfélögum fenginn til að leggja hlutafé í stað-
bundið sukk og fallast á síðbúnar og lágar launagreiðslur.
íbúarnir fara því sjálfir fjárhagslega halloka í samanburði
við þá, sem ekki búa í byggðagildrum.
Staðbundnir lífeyrissjóðir bregðast trúnaði við félags-
fólk og sóa lífeyri þess í staðbundna erfiðleika atvinnulífs-
ins. Þannig er ekki bara ráðizt að nútíð íbúa byggðagildr-
anna, heldur er framtið þeirra fómað líka. Þeir geta ekki
notið áhyggjulauss ævikvölds til jafns við aðra.
Einna alvarlegast er samsærið gegn unga fólkinu. Það
er hvatt til að hafa skólagöngu stutta og koma heldur til
starfa við færibönd láglaunafyrirtækisins. Það er hvatt til
að byggja sér verðlaust íbúðarhús, borga vinnuveitandan-
um hlutafé og láta lífeyrissjóðinn sóa sparifénu.
Meðan stór hluti þjóðarinnar er kominn á fulla ferð inn
í 21. öldina, reynir byggðagildran að frysta 19. öldina á
eins konar byggðasöfnum hér og þar um landið. Stórfeng-
legasta afturhaldsemi af þessu tagi er byggðagildra Fjarð-
arbyggðar og félagsins Afl fyrir Austurland.
Ráðamenn sveitarfélagsins og hugsjónafélagsins reyna
að tromma upp múgæsingu heimamanna til stuðnings
þvi, að álver verði reist á Reyðarfirði til að koma í veg fyr-
ir, að unga fólkið afli sér menntunar til starfa 21. aldar
hvar sem er í landinu og hvar sem er í heiminum.
Þeir sjá fyrir sér trygga vaktavinnu unga fólksins við
að kraka í bræðslupottum álvers á Reyðarfirði á heldur
hærra kaupi en það hefði haft við færibönd fiskvinnslunn-
ar, en neiti sér um tækifærin, sem nútíminn veitir æsk-
unni umfram þá, sem voru ungir í gamla daga.
Það vita allir, sem vita vilja, að unga fólkið dreymir
hvorki um færibönd né bræðslupotta. Þess vegna ber
Fjarðabyggð annaðhvort að gera staðinn gildandi í at-
vinnugreinum 21. aldar eða gefa unga fólkinu frelsi til að
leita þeirrar aldar á framfarasinnaðri slóðum.
í álvers-offorsi sínu lætur Fjarðabyggð hjá líða að búa í
haginn fyrir atvinnugreinar 21. aldar, til dæmis með því
að leggja mikla áherzlu á menntun unga fólksins í hug-
búnaðargreinum og með því að bjóða hugbúnaðarfyrir-
tækjum lága húsaleigu og góðar tengingar við netið.
Svo langt gengur ruglið, að kennari fyrir austan var
sakaður um að mennta unga fólkið burt af svæðinu. Sú
ásökun sýndi byggðagildruna í sinni svæsnustu mynd.
Menn líta á unga fólkið eins og ánauðuga lénsbændur og
ráðast á þá, sem vilja veita því frelsi til að velja sjálft.
Byggðagildra er glæpur og byggðagildra Fjarðabyggðar
er mikill glæpur. Hún er glæpur gegn ungum og ófæddmn
Austfirðingum, tilraun til að draga úr vilja þeirra til að
nýta sér tækifæri nútímans. Hún er glæpur vælukjóa, sem
hafa gefizt upp á baráttunni fyrir betra lífi.
Samsærið gegn ungum Austfirðingum hefur sem betur
fer sprungið. Byggðagildrumönnum hefur ekki tekizt að
dæma þá til lífstíðar-ánauðar við bræðslupottana.
Jónas Kristjánsson
Sameign þjóöarinnar
I umræðum um stjórn
fiskveiða hefur óspart ver-
ið vitnað til þess að nytja-
stofnar á íslandsmiðum
væru sameign þjóðarinnar
án þess að menn hafi séð
ástæðu til að skýra nánar
við hvað væri átt, þótt
ærin tilefni hafi gefizt.
Þetta er nokkuð einkenn-
andi fyrir orðræðu á is-
landi þar sem menn ræöa
gjaman mál eins og í hálf-
kveðnum vísum og nota
orð í óljósri eða annarlegri
merkingu. Og þannig er auðvelt að
komast fram hjá kjama málsins.
Merkingarleysa
Á það hefur margsinnis verið
bent að orðin - sameign þjóðarinn-
ar - hafi enga merkingu I eignar-
réttarlegum skilningi þar sem þjóð-
in hafi engar þær heimildir yfir
veiðiréttinum sem eignarrétti
fylgja. Við þetta hefur aldrei verið
gerð nein athugasemd, en í þess
stað hafa menn haldið umræðunni í
óljósum farvegi.
Sameign - fullveldi
Með orðunum sameign
þjóðarinnar er í reynd átt við
fullveldisrétt. Þar sem þjóð-
inna skortir allar eignarrétt-
arlegar heimildir er aíleið-
ingin sú, að enginn á nytja-
stofnana. Þeir em hins vegar
háðir fúllveldisrétti þjóðar-
innar sem handhafar ríkis-
valds fara með í umboði
hennar. í þeim rétti felst að
löggjafarvaldið sem handhafi
fiillveldisins í umboði þjóðar-
innar hefur víðtækar heim-
ildir til að setja reglur um meðferð og
nýtingu nytjastofnanna, þar á meðal
sett atvinnuréttindum manna almenn
takmörk þar sem gætt sé jafnræðis og
verðleika, eða í einu orði réttlætis og
annarra málefnalegra sjónarmiða.
Samelgn - ríkiseign
Sameign þjóðarinnar getur merkt
ríkiseign. Rikið sem persóna að lögum
getur verið handhafi allra heimilda
sem eignarrétti fylgja innan þeirra
marka sem stjómarskrá setur um sölu
fasteigna ríkisins og sérstökum laga-
Sigur&ur Líndal
prófessor
„Á það hefur margsinnis verið bent að orðin - sameign
þjóðarinnar - hafi enga merkingu í eignarréttarlegum
skilningi þar sem þjóðin hafi engar þær heimildir yfir
veiðiréttinum sem eignarrétti fylgja. “
fyrirmælum um meöferð eigna. Hins
vegar verða eigendur útgerðarfyrir-
tækja ekki með einfaldri lagasetningu
sviptir atvinnuréttindum sínum, - þau
eru varin með áþekkum hætti og eign-
arrétturinn. Nokkra furðu vekur að
þeir sem ákafast skírskota til sameign-
ar þjóðarinnar skuli ekki sjá ástæðu
Vinstri hugvekja með slagsíðu
Samfylkingin glímir aðeins aö
litlu leyti við forystuvanda. Það er
því rangt að láta eins og formleg
stjórn með formanni sé helsta lausn
á fylgiskreppu hennar, sbr. skoðana-
kannanir. Það er líka rangt að klifa
sífellt á því að þessi eða hinn flokk-
urinn sé stærstur, næststærstur eða
minnstur í landinu og miða þá við
kjörfylgi.
Stærð og áhrif flokka mælast fyrst
og fremst í virkum fjölda liðsmanna
(kjósendafjöidi kemur í annað sæt-
ið), í útpældri stefnuskrá sem bæði
teiknar upp grunnstefnu og her-
kænsku í fjölþættri þingræöisbarátt-
unni og loks í tengslum flokksins við
fjöldasamtökin og grasrótina í þjóð-
félaginu. Hugsanlega er því stærð og
afl hins fylgisrýra en gamalgróna
Framsóknarflokks meira en unga-
bamsins Vinstri grænna með um 20
prósenta væntingar í skoðanakönn-
unum.
Vinna þarf heimavlnnuna
Mergurinn málsins er að sumu
leyti þessi: Flokkarnir tveir sem
gera tilkall til hins óljósa „vinstris"
standa ekki enn á traustum grunni.
Báðir eru fyrst og fremst byggðir
upp utan um lítinn kjama atvinnu-
stjómmálamanna. Báðir hafa lítt
unna stefnu og er þá ekki tekið tillit
til gæða eða nothæfni hennar. Síöara
atriðið hefur verið Akkillesarhæll
Kjallari
jafhaðarmanna og sósí-
alista í marga áratugi. Hug-
myndafræðin var og er
veik, götótt, á sífelldu tæki-
færisundanhaldi (kallað
þróun og nýsköpun) og full
af alvörudaðri við valta og
úrelta hugmyndafræði kap-
ítalismans.
Deilur eru sjaldan leidd-
ar til lykta: ekki í eitt
skipti fyrir öll, heldur
þannig að flokksheildir
verði starfhæfar. Og her-
kænskan nær ekki út fyrir —
þrönga flokkshagsmuni, hvað þá út
fyrir brýnustu dægurmál sem rekur
á fjörur.
Ari Trausti Gu&-
mundsson
jaröeölisfræöingur
50%
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Fylgi flokka
- miöaö við þá sem tóku afstööu ■
11[
Mf
40,1
u
13A2J
IDV 21-22/03 00
DV 28-29/12 '99
DV 20/10 '99
DV 13/09 '99
I 1 Kosningar
SKODANAKÖNNUN
DV
Soðasta könnun
m á lylgi stjórnmálaflokka
©
„Það er líka rangt að klifa
sé stærstur, nœststœrstur
Með og á móti
Tvíburar skipta um
nafn
Þetta kom berlega í
Ijós þegar VG og Sam-
fylkingin fæddust úr
frumskóginum á
vinstri vængnum.
Ágreiningur var afar
óljós og flestir höfðu
skýrt á tilfinningunni
að t.d. þingseta ein-
staklinga skipti meim
máli í framvindunni
en herkænska sem
tryggði blómstrun á
vinstri vængnum.
Stefnumið og hug-
myndafræði kann að
vera skýr í kolli ein-
stakra félaga flokk-
anna en flestum er hún
sífeílt á því að þessi eða hinn flokkurinn
Samfylkingln
eða minnstur í landinu og miða þá við
kjörfylgi. “
í andsvörum í þinginu.
Það er lítill kraftur eða
forystubragur að því
að vera fyrst og fremst and-
spymumaður með góðan
kjaft í stöku þingmálum.
Þannig lötra menn á eftir
fjöldanum en skipa sér ekki
fremst til að drífa áfram
nauðsynlegar breytingar á
þjóðfélaginu. Af þessu hefur
leitt að Samfylkingin og VG
eru í raun ný nöfh á göml-
um hreyfingum, að endur-
skipulagningu og nokkrum
mannaskiptum loknum,
hvor með kjörfylgi í kring-
um 20%. Frjó hugsun og ný
sókn krefst annars.
Það sem þurfti
Vissulega eru það nokkur tíðindi
að VG skuli nálgast skásta kjörfylgi
gamla AB. Vissulega mun nýr for-
maður Samfylkingarinnar eitthvað
geta lagað prófil hreyfmgarinnar. En
hitt er mikilvægara sem ekki var
gert. Það er þetta: Samfylkingin og
VG áttu að rugla saman reytum í
eina samstöðufylkingu, ásamt mörg-
um sem ekki eru nú þar innanborðs.
Samstaðan hefði væntanlega ekki
getað orðið nema hlutbundin. En
hún hefði verndað, kallað á og auð-
veldað mikla heimavinnu en um leið
tryggt meira kjörfylgi en VG og Sam-
fylkingin fá fyrirsjáanlega. Samstað-
an er ekki hið endanlega flokksform,
heldur herkænska. Fyrir þessu tal-
aði ég til tilvonandi félaga í báðum
flokkunum. Ekki tókst að fá það sem
til þurfti og svona hugvekja dugar
ekki heldur til. Hún gæti þó fengið
einhvem til að skilja að þaö þarf að
greina, móta og framkvæma upp á
nýtt.
Ari Trausti Guðmundsson
verja Evrópumeistaralitilinn?
Er að toppa á réttum tíma Börsungar fara alla leið
J „Ég er alveg
.JeL sannfærður um að
i\ a Man. Utd muni
veija Evrópumeist-
aratitilinn. Það hefur reyndar
ekki gerst áður svo ég muni að
sama hð hafi unnið titilinn tvö
ár í röð en það mun ekki koma í
veg fyrir að United brjóti þá
hefð. Liðið hefúr sýnt það í und-
anfómum leikjum að það er að
„toppa“ á réttum tima sbr. 7-1
úrshtin á móti West Ham um
hðnahelgi. Staðreyndin er að það
ekkert annað hð United snúning
Elvar
Gu&jónsson
s tuöningsmaöur
Man. Utd
stenst
þegar
það er í toppformi og gildir þá
einu hvort andstæðingamir
heita Barcelona, B. Múnchen
eða eitthvað annað. United
byggir á þessari svoköhuðu sig-
urhefð því það kann ekki að
tapa. Annað sem gefur hðinu
forskot á önnur hð er að á með-
an flest önnur lið byggja á 1-2
markaskorurum hefúr United
eina 6-7 leikmenn sem em mikl-
ir markaskorarar. Þetta mun
reynast United mikilvægt þeg-
ar það vinnur Evrópumeistaratitilinn
arrnað árið í röð, fyrst ahra höa.“
„Ég hef trú á að
I United komist í
undanúrslitin en
r þar með held ég að
þátttöku liðsins komi til með
að ljúka. Ef Bayem Múnchen
klárar sitt verk á móti Porto
mætir það Manchester-liðinu í
undanúrslitunum og ég er
sannfærður um að Bæjarar
hefni ófaranna frá því á síð-
ustu leiktíð þegar United stal
sigrinum í lokin. Ég sé fyrir
mér að Barcelona fari í úrslitin á móti
Bayern og fari alla leið þetta árið. Það
Hör&ur
Magnússon
knattspyrnumaöur
úrFH
eru ákveðnir veikleikar í
United-liðinu sem eiga eftir að
koma i ljós í leikjunum á móti
bestu liðunum í álfunni. Þó svo
að Bosnich hafi staðið sig vel á
móti Real Madrid tel ég hann
enn vera veikleika fyrir liðið
og ég er þá að horfa til fyrir-
gjafanna. Ferguson hefur verið
að hringla með aðra mið-
varðarstöðuna. Hann hefur
skipt leikjunum á mihi Henn-
ings Bergs og Shvestre og það
hefur skapað ákveðin vandamál í varn-
arleiknum."
8-liöa úrslitin í meistaradeild Evrópu í knattspyrnu standa nú sem hæst og fram undan er harður slagur um Evrópumeistaratitilinn. Manchester United á
titii a& verja en liðiö þarf að ry&ja á undan sér mjög erfiöum hindrunum ef þaö ætlar aö fara aila leiö. I
th að skýra nánar við hvað þeir eiga.
Stefna þeir að þjóðnýtingu?
Varanleg úthlutun kvóta ólögleg
Ef leggja á dóm Héraðsdóms Vest-
urlands til grundvahar fer það í bága
við ákvæði stjórnarskrár um jafn-
rétti fyrir lögum og atvinnufrelsi að
skipta hehdaraflamagni varanlega
mihi útvegsmanna á grundvehi afla-
reynslu.
Ef sú niðurstaða fær staðfestingu
er þessi leið ófær th að stjóma fisk-
veiðum. Aðrar leiðir eru þá meðal
annars að taka upp einhvers konar
sóknarmark, sem ekki reyndist vel,
eða tímabinda veiðiheimhdir,
þannig að þeim yrði endurúthlutað
með ákveðnu árabhi. Þar myndi rík-
ið að nokkru leyti leysa markaðinn
af hólmi, jafnvel þótt kvótinn yrði
boðinn upp.
Og þá er þeirri spumingu ósvarað
hvort ríkisíhlutun og peningaeign sé
líkleg th að tryggja það jafnræði og
atvinnufrelsi - að ekki sé minnzt á
réttlæti - sem sátt gæti náðst um.
Um það hefur aht of lítið verið fjall-
að. Sigurður Líndal
Ummæli
Forsetinn á skjön
við þjóðkirkjuna?
„Samskipti mihi
þjóða em viðkvæmt
og fiókið fyrirbæri
sem erfítt er fyrir
leikmenn að Ijaha
um. Það kæmi mér
samt verulega skringi-
lega fyrir sjónir ef for-
seti íslenska lýðveldisins heimsækti
stjómvöld Indlands á sama tíma og ís-
lenska þjóðkirkjan er í óbeinni bar-
áttuherferð gegn sömu stjómvöldum
án þess að vekja athygli á málinu."
Ari Skúlason, framkvæmdastj. ASÍ, I
Mbl. 5. apríl.
Forgangsröðun í
samgöngumálum
„Það er bara
þannig að við verðum
að athuga hve margir
búa hér á suðvestur-
horninu. Ætli það séu
ekki orðin hátt í tvö
hundruð þúsund
manns. Skattborgar-
arnir hér segja: Hvers vegna fáum við
þá ekki framkvæmdir hér í auknum
mæli? ... Ef menn ætla aö hafa eitt-
hvert vit í fjárfestingum þá verða þeir
að hugsa málið th enda.“
Gunnar I. Birgisson, alþm. í Reykjanes-
kjördæmi, í Degi 5. apríl.
Fjölmiðlaleikur
Baugsmanna
„Óðinn er orðinn úrkula vonar um
að fjölmiðlar taki forráðamenn Baugs
fóstum tökum. Því miður virðist sem
enginn hafi manndóm í sér th að tala
tæpitungulaust um þetta fyrirtæki
annar en forsætisráðherra. En nú hef-
ur Davíð Oddsson tekið fyrirtækið í
sátt og þvi hafa gagnrýnisraddir þagn-
að ... Fjármálalegir hagsmunir fjöl-
miðla eru svo miklir að þeir telja sér
ekki fært að taka upp harða gagnrýni
á fjölmiðlaleik Baugsmanna.
Óöinn, fastur dálkahöfundur í Viö-
skiptablaðinu, 5. apríl.
Íslandsbanki/FBA
„Sameiningin skil-
ar beinhörðum ávinn-
ingi í vasa almenn-
ings, m.a. í formi
lægri vaxta og betri
þjónustu. Lægri fjár-
magnskostnaður og
fjárhagslegur styrk-
leiki skila sér th almennings auk þess
sem stærri og samkeppnishæfari
banki muni th lengri tíma hafa bein
áhrif á lífskjör allra í landinu."
Ásmundur Tryggvason blm. í Degi 5.
april.
UULÍFOT-
IRINNSEM
E6 F£ BEINT
1VRSRNN
VRRWIMKK!?
OMI01H
Auglýst eftir afstöðu
Um þessar myndir á sér
stað mikið umrót og endur-
skipulagning á fjármála-
markaði. Rætt hefur verið
um að steypa bönkum og
sjóðum saman og í vikunni
runnu íslandsbanki og FBA
saman í eitt eftir að slitnaði
upp úr skammvinnu ástar-
ævintýri íslandsbanka og
Landsbanka. Reyndar voru
áhöld um að ástin hafi verið
gagnkvæm en það er önnur
saga. Margir hafa haft af því
nokkrar áhyggjur að með
samruna á fjármálamarkaði færist
peningamir og þar með völdin á fáar
hendur. Margt bendir th að einmitt
þetta sé að gerast í okkar samfélagi.
Til eru tillögur
Þegar sýnt var að ríkisstjómin var
staðráðin I því að einkavæða ríkis-
bankana báða - gera þá að hlutafélög-
um og selja þá síðan i áfóngum - flutti
undirritaður ásamt Steingrími J. Sig-
fússyni frumvarp á Alþingi um
dreifða eignaraðild að viðskiptabönk-
um og öðrum lánastofnunum. Sam-
kvæmt frumvarpinu yrði óheimht
öðrum en ríkissjóði að eiga í þeim
meira en 8% hlut. Undir markmið
frumvarpsins var tekið af hálfu odd-
vita ríkisstjómarinnar. Viðskiptaráð-
herrann var hins vegar ekki eins upp-
rifinn - það er að segja sá sem þá sat.
Valgerður Sverrisdóttir hefur nú
tekið við embætti viðskiptaráherra
og fer þar af leiðandi með bankamál.
Nú er auglýst eftir afstöðu hennar th
dreifðrar eignaraðildar að fjármála-
stofnunum. Spurt er hvort hún muni
beita sér fyrir því að fyrrgreint laga-
frumvarp fái afgreiðslu á Alþingi.
Nú er svo að sjá að eignarhlutur
einstakra aðha í hinum nýja samein-
aða íslandsbanka og Fjáifestingar-
banka atvinnulífsins sé hæstur 14%
og er þar um að ræða hinn svokah-
aða ORCA-hóp. Talsmenn hópsins
hafa lýst því yfir að þeir hyggist
sundra sambúð sinni þannig að hlut-
ur hvers um sig verði á bhinu 3-4%.
Samkvæmt fyrmefndu frumvarpi
yrði ORCA-hópurinn að stiga skref í
þessa átt en aðrir eignaraðilar svo
sem lífeyrissjóðir eru hins vegar
innan 8% markanna. Þetta þýðir að
andstæðingar frumvarpsins um
dreifða eignaraðhd geta ekki lengur
réttlætt andstöðu sína í ljósi þess að
fyrir séu eignaraöhar í bönkum og
fjármaálstofnunum sem eigi hlut
umfram umrædd mörk.
Ekki peð á
taflborðl fjármálamanna
Sameining og samnmi fjármála-
stofnana kann að hafa ýmsa kosti í
för með sér. Hins vegar er
rétt að fara gæthega í sak-
imar. í fyrsta lagi þarf að
hyggja að eignaraðhdinni
eins og hér hefur verið
nefnt. í ööru lagi þarf að
hugsa um hag þeirra sem
starfa innan þessara stofn-
ana. Starfsfólkið á ekki að
vera peð á taflborði fjár-
málamanna sem fyrst og
fremst hugsa um arðsemi
og hagsmuni íjárfesta. At-
vinnuleysi sem gæti hlotist
af vanhugsuðum skipulags-
breytingum kemur okkur öhum við.
Því er ekki að neita aö það vekur
ónotalegan hroh þegar vonglaðir
talsmenn fjárfestingargróðans reyna
að telja þjóðinni trú um að svo lengi
sem við trúum - höfum væntingar
um aukna velsæld muni aht fara vel.
Á íslandi hefur stundum verið haft á
orði að trúin flytji fjöh og ekki ætla
ég að draga úr því. En við þurfum
líka að búa yfir raunsæi. Velferð
þjóöarinnar verður ekki tryggð með
því að að sífeht stækkandi sveit
manna hafi af því atvinnu að versla
með bréf og peninga. Slík verslun,
sem því miður flokkast oftar en ekki
undir brask, er nú að leiða th auk-
innar misskiptingar á íslandi eins og
reyndar víðar í heiminum þar sem
peningahyggjan hefur fengið lausan -!
tauminn.
Hvatt tíl ábyrgðar
Þeim sem hagnast á þessari þróun
finnst skhjanlega ahir vegir færir.
Hinir sem búa við krappari kost
þekkja það af eigin raun að pening-
arnir vaxa ekki á trjánum. Það er
mikhvægt að þjóðin og þeir sem eru
í aðstöðu th að stýra fór geri þaö af
ábyrgð og yfirvegun. Nú er kahaö
eftir afstöðu ríkisstjórnarinnar og þá
sérstaklega tveggja ráðherra. Annars
vegar forsætisráðherra sem kveðst
hlynntur dreifðri eignaraðild að fjár-
málastofnunum og hins vegar við-
skiptaráherra sem falin hefur verið
yfirstjórn í fjármálalífinu.
Ögmimdur Jónasson
„Þeim sem hagnast á þessari þróun finnst skiljanlega
allir vegir fœrir. - Hinir sem búa við krappari kost
þekkja það af eigin raun að peningamir vaxa ekki á
trjánum. “
Ögmundur
Jónasson
alþirtgismaöur