Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2000, Blaðsíða 32
36
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
Tilvera DV
lifið
m
W > > Jyf
I " AF
Sveifla
á Gullöld
Kvartett Steina Krupa veröur í
góöri sveiflu á veitingahúsinu
Gullöldinni í kvöld. Kvartettinn
skipa Sigurjón Árni Eyjólfsson,
saxófónn, Þorsteinn Eiríksson,
trommur, Sveinbjöm Jakobsson,
gitar og Gunnar H. Pálsson, bassi.
Tónleikamir heQast kl. 21.30 og
lýkur um hálftólf.
POPP
I BOTNLEÐJA SITRONA Þá er
komið að því. Uberdúber-rokkararnir
í Botnleðju eru aldinkjöt Sítrónunnar
að þessu sinni. Umluktir Hard Rock
Café-berki munu þeir rokka Tyson
niður í léttþungavigt og geri aðrið
betur. Allir koma, hoppa, skoppa og
y tjútta.
Krár
■ FINNSKT A GAUKNUM Þaö verít
ur finnsk stemmning á Gauk á
Stöng. Bjarki Kaikumo er mættur á
klakann á ný og í fylgd með honum
eru nokkrir vinir hans sem í allt fylla
tvær hljómsveitir. Þær nefnast
Milestones, sem spilar rokk og ról
með vísunum í helstu spámenn liö-
inna áratuga, og Nemeh’s sem
kenna má við nýrokk framreitt á sér-
finnska vísu. Tryllt tjútt og læti og
Rnlandia flæðir um öll golf. Enginn
v má missa af þessu.
■ LHJFT Á CAFÉ ROMANCE Breski
píanóleikarinn Simone Young leikur
fýrir gesti Café Romance.
■ UÚFT Á NAUSTINU Alltaf rólega-
heita stemmning á Naustinu þegar
söngkonan og pianóleikarinn Liz
Gammon leikur Ijúfa tóna.
•Kl^ssik
■ SINFONÍAN Sinfóníuhljómsveitin
flytur verk eftir Bruckner og Beet-
hoven undir stjórn Ole Kristian
Ruud. Tónleikarnir hefjast kl. 20 í
Háskólabíói.
Leikhús
■ PYRIN I HALSASKOGI - BANN-
AÐ BORNUM Leikfélag Rensborg-
arskóla sýnir Dýrin í Halsaskógi -
bannaö börnum, eftir Thorbjörn
Egner, klukkan 20.Tónlistarstjóri er
Kristján Eldjárn en ieikstjóri Stefán
Jónsson.
■ STRH) í FRH?I Leikfélag Mos-
fellsbæjar sýnir leikritiö Striö í friöi
eftir Birgl J. Sigurðsson. Verkið fjall-
ar um það þegar 10.000 menn
hertóku Mosfellssveit og gáfu
sveitalífinu allt annaö yfirbragö. Sýn-
ingin hefst klukkan 20.30 í Bæjar-
leikhúsinu og miðapantanir eru í
síma 566 7788.
Fundir
■ MALSTOFA UM FLOTTAFOLK
Málstofa haldin í Miöstöö nýbúa viö
Skeljanes kl. 19.30. Fjallaö veröur
um fólksflótta og hvernig unniö er
aö aöstoö viö flottafólk. Málstofunni
stýra Hólmfríöur Gísladóttlr og Nína
Helgadóttir.
■ fSLENSKAR MYNDLISTARKON-
UR Hrafnhildur Scram listfræöingur
verður með rabb á vegum Rann-
sóknastofu í kvennafræðum. Rabb-
iö sem ber yfirskriftina Fyrstu ís-
lensku myndlistarkonurnar hefst kl.
12 og stendur í um klukkutlma.
■ FÍKNIEFNAVANDINN
í kvöld veröur haldinn opinn fundur í
Ytri Njarðvíkurkirkju um
fikniefnavandann og afleiöingar
hans. Jón Indriöl Þórhallsson frá
Maritasamtökunum flytur ræöu og
svarar fyrirspurnum. Lofgjörðarhópur
frá Islensku Kristskirkjunni kemur
fram. Fundurinn er opinn öllum.
Sjá nánar: Líflö eftir vínnu á Vísi.is
Það hefur lengi vantað
alvöru kvikmyndaklúbb
- segir Þorbjörn Orri Ómarsson, einn aöstandenda Filmundar
Filmundur kynntur til leiks í kvöld:
í réttum stellingum
Þorbjörn Orri Ómarsson fyrir miöri mynd og Karl Óttar Geirsson og Skorri Gíslason stilla sér upp fyrir framan
piakatiö af Ghost Dog: The Way of the Samurai.
Kvikmyndaklúbburinn Filmund-
ur hefur starfsemi sína í kvöld meö
sýningu á nýjustu kvikmynd Jim
Jarmusch, Ghost Dog: The Way of
the Samurai. Áætlað er að sýna á
fimmtudagskvöldum kl. 22 og aftur
á mánudögum á sama tíma. Meðal
þeirra sem hafa tekið þátt í undir-
búningnum er Þorbjörn Orri
Ómarsson, sem er einn aðstandenda
Hreyfimyndafélagsins, kvikmynda-
félags stúdenta. Hann sagði að leit-
að hafi verið til þeirra um samstarf
um kvikmyndaklúbb: „Það hefur
vantað hér á landi kvikmynda-
klúbb, þar sem hægt er að ganga að
föstum sýningum, klúbbi sem sýndi
eitthvað annað en bíóin sýna dag-
lega. Við munum frumsýna á
fimmtudögum, og endursýna á
mánudögum. Markmiðið er að sýna
athyglisverðar kvikmyndir, bæði
myndir sem hafa listrænt gildi sem
og myndir sem hafa skemmtana-
gildi, til að mynda kvikmyndir sem
hafa verið að gera þaö gott á kvik-
myndahátíðum víða um heim og
komast ekki í almennar sýningar
hér heima vegna smæðar markaðs-
ins. Einnig munum við forsýna
myndir sem siðan verða teknar til
almennra sýninga og svo verða
sýndar klassískar kvikmyndir eftir
leikstjóra sem hafa haft áhrif á
kvikmyndasöguna.“
Þorbjöm segir klúbbinn ætla árs-
fjórðungslega að vera með þema:
„Þá tökum við fyrir einhverja leik-
stjóra, þjóðlönd eða einhverjar kvik-
myndategundir svo eitthvað sé
nefnt. Fyrsta þemað hjá okkur verð-
ur Pedro Almodovar og munum við
sýna um það bil fimm myndir eftir
hann eina helgi og vonumst við til
að geta verið með fyrsta þemað í
maí. Fyrsta kvikmyndin sem við
sýnum er svo Ghost Dog: The Way
of the Samurai og er hún ein þeirra
kvikmynda sem verður tekin til al-
mennra sýninga síðar og síðan
munum við sýna breska kvikmynd,
East is East, mynd sem vakið hefur
mikla athygli og Jour de féte, eftir
Jacques Tati, frá árinu 1948.“
Þorbjöm segir að hann og aðrir
aðstandendur kvikmyndaklúbbsins
hafi fengið góð viðbrögð: „Það er
greinilegt að þetta hefur vantaö. í
mínum félagahópi hefur mikið ver-
ið rætt um kvikmyndaklúbb og nú
er hann loksins að líta dagsins ljós
og þess má geta að hann veröur rek-
inn á ársgrundvelli, ekkert sumar-
frí. Við reynum að gera öllum til
geðs ekki bara þeim sem helst vilja
listrænar myndir heldur einnig
þeim sem fara í bíó til að skemmta
sér. Filmundur er meðlimaklúbbur
og við munum selja meðlimakort á
1000 kr. og innifalið í því eru tveir
miðar og þar sem við seljum inn á
450 krónur miðann, þá kostar árs-
kortið aðeins 100 hundrað krónur.“
-HK
Grænlenskir dagar í Reykjavík hefjast í dag:
Sleðahundar og sauðnaut
DV-MYND RT
Grænlensk menning veröur í hávegum höfö á næstu dögum
Fjöldi fyririesara mun stíga á stokk í Norræna húsinu um helgina, græn-
lenskur dægurlagasöngvari heldur tónleika og margt fleira veröur í boði.
Grænlenskir dagar í Reykjavík
hefjast formlega í dag með dagskrá i
Norræna húsinu. Tilgangurinn er
að kynna grænlenska menningu,
tónlist, myndlist, sögu, náttúru og
mat. Dagskráin er fjölbreytt og á að
vera við allra hæfi. í kvöld mun
Denis Arndorf Pedersen stíga á
stokk og halda fyrirlestur um störf
sín í hinni frægu eftirlitssveit, Siri-
us, sem hefur það hlutverk að vakta
norðaustanvert Grænland sem jafn-
framt er stærsti þjóðgarður jarðar.
Sveitin starfar við erfið skilyrði
fjarri mannabyggðum og notast við
hundasleða til að komast á milli
staða.
Einn þekktasti dægurlagasöngv-
ari Grænlands, Rasmus Lyberth,
heldur tónleika í Norræna húsinu
annað kvöld. Um helgina gefst fólki
síðan kostur á að kynna sér Græn-
land frá ýmsum hliðum í Norræna
húsinu. Ferðakynning verður í and-
dyri og sýning á grænlenskum mun-
um fer fram í fundarherbergi.
Grænlensk matarhefð verður í há-
vegum höfð í kaffiteríunni og meðal
rétta má nefna náhval, sauðnaut,
lamb, hreindýr, rækju, grálúðu, lax
og urriða. Þá verða grænlenskir
sleðahundar til sýnis við Norræna
húsið á laugardag.
Um heigina verður röð fyrirlestra
í Norræna húsinu. Á laugardag
verða meðal fyrirlesara verða Har-
aldur Ingi Haraldsson sem fjallar
um grænlensku þjóðsagnaveruna
Túpílak, Kristín Bragadóttir fjallar
um grænlensk sérkenni í íslend-
ingasögum og Sveinn Fjeldsted
heldur fyrirlestur um eftirgerð húsa
norrænna manna í Brattahlíð. Á
sunnudag mun Sigfús Bjartmarsson
lesa úr þjóðsögum Inúíta, Þorsteinn
Hannesson rekur sögu kajaksins,
Baldvin Kristjánsson fjallar i máli
og myndum um ferðir sínar á Suð-
ur-Grænlandi.