Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2000, Blaðsíða 36
Frábær kjör
á bílaleigu-
bílum
Sími: 533 1090
Fax: 533 1091
E-mail: avis@avis.is
Dugguvogur10
AVIS
FR ETTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
Sameinaði lífeyrissjóðurinn stefndi Hafnarfjarðarbæ:
Bærinn dæmdur til
að greiða ábyrgðir
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt Hafnarfjarðarbæ til að greiða
Sameinaða lífeyrissjóðnum 4,7 milij-
ónir króna vegna tveggja skulda-
bréfa sem engin greiðsla kom upp í
vegna fasteignarinnar við Strand-
götu 30 í Hafnarfirði.
Málið varðar tvö skuldabréf í
eigu lífeyrissjóösins sem Miöbær
Hafnarfjarðar hf. gaf út í apríl 1994
- hvort að fjárhæð 2 milljónir
króna. Bréíin voru tryggð með 2.
veðrétti í fasteigninni Strandgötu
30.
Þorsteinn Steinsson, fyrrum bæj-
arritari Hafnarfjarðarbæjar, áritaði
bréfin þannig að hann tækist „á
hönd f.h. Bæjarsjóðs Hafnarfjarðar
einfalda ábyrgð á greiöslum þessa
bréfs ásamt kostnaði er af vanskil-
um kann að leiða". Þorsteini var
stefnt fyrir dóm sem „varastefnda".
Hvað er tíska?
í Fókusi, sem fylgir DV á morg-
un, er tískan tekin fyrir frá hinum
ýmsu sjónarhomum. M.a. er tíska
götunnar skoðuð, sem og snjó-
brettatískan. Gefnar eru hugmyndir
að nýjum klippingum og talað við
fólk sem hefur farið sínar eigin leið-
ir hvað tískuna varðar. Einnig er
talað við vinningshafa Músíktil-
rauna, þrjár lögreglukonur,
Eurovisionstjörnuna Telmu og
fréttakonuna Aðalheiði Þorsteins-
dóttur sem er nýjasta fréttastimið.
Ráðleggingar Dr. Love em að sjálf-
sögðu á sínum stað sem og Lífið eft-
ir vinnu sem er nákvæmur leiðar-
vísir um skemmtanalífið í landinu.
Hafnarfjarðarbær var „aðalstefndi“.
Eignin var seld nauðungarsölu í
september 1998. Samkvæmt úthlut-
unargerð uppboðsandvirðis kom
engin greiðsla upp í veðkröfur á 2.
veðrétti. Lífeyrissjóðurinn ákvað
síðan að stefna Hafnarfjarðarbæ til
greiðslu skuldabréfanna.
Niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
ness var á þá leið að Hafnarfjarðar-
bær væri dæmdur til að greiða lif-
eyrissjóðnum 4.722.176 krónur með
vöxtum frá 11. apríl 1996. Bærinn er
jafnframt dæmdur til að greiða líf-
eyrissjóðnum 600 þúsund krónur í
málskostnað. Þorsteinn Steinsson
er sýknaður af kröfu lífeyrissjóðs-
ins en stefnandi er dæmdur til að
greiða honum 600 þúsund krónur í
málskostnað. -Ótt
íslendingar í Lilleström:
Dýnur fyrir glugga
Tvær íslenskar fjölskyldur úr
Kópavogi og Hafnariirði, átta manns,
settu dýnur fyrir gluggana þar sem
þær sváfu í íbúð 700-800 metra frá
þeim staö sem flutningalestirnar
tvær rákust saman á í Lilleström í
fyrri-nótt. Ólöf Ásgeirsdóttir, sjúkra-
þjálfari í Lilleström sem dvelur í
íbúðinni, sagði við DV í morgun að
ástandið í bænum væri óbreytt frá í
gær.
„Það logar enn þá í vögnunum.
Norðmennirnir eru að reyna að
halda logandi gastönkunum köldum
til að minnka hættu á sprengingum.
Þeir eru búnir að fá fleiri tankbíla
frá flugvellinum í Ósló,“ sagði Ólöf.
Hún og maður hennar, Reynir
Björnsson læknir sem er í sérnámi
ytra, og tvö böm þeirra búa rétt við
lestarstöðina í Lilleström. Þau höfðu
þurft að flytja inn á hjónin Kristin
Þorbergsson og Kristínu Ólafsdóttur
sem einnig eiga tvö böm en búa á
jaðri hættusvæðisins.
Ólöf sagðist telja að aðrir Islend-
Sprenglhætta
Mikill viöbúnaöur er í Lilleström.
ingar í bænum hefðu það ágætt, sum-
ir hefðu þurft að yfirgefa heimili sín.
Hún kvaðst t.a.m. hafa hitt Rúnar
Kristinsson knattspymumann hjá
Lilleström og konu hans í gær - þau
hefðu fært sig yfir á hótel.
„Við bíðum bara eftir tilkynningu
um að við megum flytja heim. Við
reiknum með að þetta taki 3-4 daga,“
sagði Ólöf. Hún sagði að snjór væri
mikill í Lilleström sem er skammt
frá Ósló. Hún sagði að í garðinum
heima hjá sér hefði nýlega verið um
60 sentimetra snjór. -Ótt
Bátum bjargað
Tveir bátar vom dregnir til hafnar
í Þorlákshöfn í morgun en bátamir
vom reyndar nýfamir þaðan þegar
upp kom vélarbilun í öðmm þeirra
sem ber heitið Skálafell.
Fjöldi báta var á útleið á sama tíma
og næsti bátur við SkálafeO, sem var
Sæfari, kom tO aðstoöar. Ekki vOdi þá
betur tO en að hann fékk í skrúfuna.
AOs vom 11 manns á bátunum tveim-
ur og um tíma var óttast að bátana
kynni að reka að landi. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var því komin í við-
bragðsstöðu, en áður en hún fór í loft-
ið komu nærstaddir bátar tO aðstoðar
og drógu þá tO hafnar. -gk
Haraldur Örn fór 13 km í gær
Haraldur Öm Ólafsson pólfari
gekk 13 kílómetra í erfiðu færi í
gær. Bakvarðasveit leiðangursins
telur þetta góðan árangur en menn
bíða þess nú að færið fari að skána
hjá Haraldi Emi.
Búist er við aö hann fái „nesti og
nýja skó“ með flugvél dagana 17.
eða 18. apríl. -Ótt
DV-MYND GVA
Járnklætt llstasafn
Listasafn Reykjavíkur mun opna nýja aöstööu sína í Hafnarhúsinu viö
Tryggvagötu þann 19. þessa mánaöar. Af því tilefni veröa opnaöar tvær nýjar
sýningar en enn hefur ekki veriö tilkynnt um hverjar þær verða. Veriö er aö
ieggja lokahönd á fráganginn þessa dagana og eru allirgangar þvert í gegn-
um húsiö klæddir meö þriggja millímetra þykku lagi af járni.
Austurveggurinn kvaddi í morgun:
Gafl Glaumbars hrundi
Austurgafl veitingastaðarins
Glaumbars við Tryggvagötu brotn-
aði niður síöla nætur og féU niður
í grunn sem grafinn hefur verið
milli veitingastaðanna Glaumbars
og Gauks á Stöng, en fyrirhugað er
að stækka Gaukinn í vestur að
Glaumbar.
Ljóst virðist að grafið hafi verið
heldur mikið undan undirstöðum
Glaumbars og þrátt fyrir að settar
hafi verið sperrur til að halda við
vegginn dugði það ekki til. Tíma-
setning falls veggjarins gat þó
varla verið betri, enginn að vinna
DV-MYND S
Opið húsl
Austurgaflinn í Glaumbar „sagöi
bless“ og féll niöur í grunninn.
í grunninum og gestir Glaumbars
sem e.t.v. hafa setiö rétt fyrir inn-
an vegginn í gærkvöldi og i nótt
voru famir heim. Einhverjir
starfsmenn munu þó hafa verið á
Glaumbar þegar veggurinn kvaddi
samkvæmt heimildum DV, en þeir
voru ekki nálægt honum þegar
hann hrundi.
Ljóst viröist að talsvert tjón hafi
orðið þama og ekki annað að sjá
en að starfsemi Glaumbars muni
liggja niðri í einhverja daga, nema
boðið verði upp á „opið hús“ á
kvöldin. -gk
txother P-touch 9400
Stóra merkivólin sem þolir álagið
10 leturgerðir
margar leturstaerðir
16 leturstillingar
prentar í 10 línur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i