Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Heilbrigðisráðuneytið hafnar þjónustusamningi við ljósmæðurnar sjö:
Pólitík mengar
heilbrigðiskerfið
- segir Hulda Jensdóttir, fyrrverandi yfirljósmóðir Fæðingarheimilis Reykjavíkur.
„Það var pólitísk ákvörðun að neita
þessum konum um styrk, alveg eins og
það var pólitísk ákvörðun að loka Fæð-
ingarheimili
Reykjavíkur á sín-
um tíma,“ segir
Hulda Jensdóttir,
íyrrverandi yfir-
ljósmóðir Fæðing-
arheimilis Reykja-
víkur.
Á dögunum
hafiiaði heilbrigð-
isráðuneytið til-
lögu 7 ljósmæðra
að þjónustusamn-
ingi til stofnunar
og reksturs fæð-
ingarheimilis í
Reykjavík. Samn-
ingurinn hljóðaði
upp á að heimilið
fengi borgaðar
rúmar 30 milljónir
króna fyrsta árið,
auk sérstakrar
þóknunar fyrir
hverja fæðingu
þar. Að sögn Huldu var ákvörðunin
pólitísks eðlis þar sem ákveðnar
þrýstistofnanir innan heilbrigðiskerf-
Pólitísk
ákvöröun
Hulda Jensdóttir,
fyrrum yfirljós-
móöir Fæöingar-
heimilis Reykja-
víkur, segir höfn-
un heilbrigöis-
ráöuneytisins á
fjárveitingu til
stofnunar og
reksturs fæöing-
arheimilis í
Reykjavík vera
pólitíska.
isins beita sér markvisst gegn fæðing-
arheimilum.
„Fæðingarheimili eru margfalt
ódýrari og sannað er að þau eru síður
en svo óöruggari heldur en tækni-
sjúkrahúsin og því geta rökin gegn
fæðingarheimilunum ekki legið á þeim
vettvangi," segir Hulda.
„Á fæðingarheimilunum er fæðing-
in talin eðlileg en á tæknisjúkrahúsum
er hún meðhöndluð líkt og sjúkleiki.
Tæknisjúkrahúsin hafa neikvæð áhrif
á konumar og þar er ekki lögö nóg
rækt við mannlega þáttinn," segir hún.
Að sögn Huldu er rekinn áróður
gegn fæðingarheimilum í ýmsum þátt-
um heilbrigðiskerfisins og er bamshaf-
andi konum talin trú um að þau séu
ekki jafn ömgg og þau hátæknivæddu.
„Ljósmæður eiga að baki 6 ára nám í
hjúkrun og fæðingarhjálp sem er mun
meira en venjulegur læknir hefur á
þessu sviði og það er ekkert sem bend-
ir til að fæðingarheimilin séu óömgg-
ari,“ segir hún.
Hulda tekur fram að það fyrir-
komulag sem nú er við lýði í fæðing-
um hér á landi sé á undanhaldi í ná-
grannalöndunum. „í Hollandi fæða
tvær af hveijum þremur konum heima
eða á fæðingarheimilum og þar fylgja
Nýburar
Hvítvoöungar í Reykjavík eiga ekki í önnur hús aö venda en fæöingardeild
Landspítalans.
fæðingum hvað minnst vandamál í
heiminum," segir Hulda.
„Við aðeins 20% fæðinga þarf að-
stoð lækna og í flestum tilfellum er
hægt að sjá það fyrir á meðgöngunni,"
segir Áslaug Hauksdóttir sem er ein af
ljósmæðmnum sjö. „Það er ekkert fæð-
ingarheimili á landinu eins og er en
heimurinn er að gera sér grein fyrir
mikilvægi þeirra," segir Áslaug.
„FæðingarheimOi em að rísa víða
um heim og við erum ekkert á því að
gefast upp hér,“ segir Áslaug.
Ekki náðist í heilbrigðisráðherra
vegna þessa máls í gærdag.
-jtr
ísland á heimssýningu í Hannover:
Expo 2000
- sýningin opnuð á fimmtudag
Expo 2000 í utanríkisráöuneytlnu
Á blaöamannafundi í gær kynnti Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra, auk
íslensku verkefnisstjórnarinnar, þátt íslands á heimssýningunni.
ísland tekur nú þátt í heimssýning-
unni í fjórða sinn en þetta mun vera
umfangsmesta sýningin til þessa.
Fyrri sýningar vora í New York 1939,
Montreal 1967 og í Lissabon 1998 en
hún fer nú fram í Hannover í Þýska-
landi og verður formlega opnuð þann
1. júní nk. Sýningin, sem 178 ríki taka
þátt í og áætlað er að 40 milljón
manns sjái, stendur í fimm mánuði.
Búast má við að 10% af heildarfjölda
sæki íslenska skálann heim. Skálinn,
sem er 18 m hár blár femingur og
vatn flóir niður af, hefur nú þegar
vakið mikla athygli, enda tilkomu-
mikill að sjá. Meðal þess sem veröur
í boði em kvikmyndir um íslenska
náttúru og sjávarútveg, íslenskar fjöl-
skyldumyndir og nöfn allra íslend-
inga fyrr og síðar, auk þess sem
margmiðlunarefni skipar veglegan
sess á sýningunni. í tuttugu tölvum á
svæðinu er boðið upp á 35 mismun-
andi efnisflokka og stutta samantekt
um hvem þeirra.
Islenski þjóðardagurinn, dagur
helgaður íslandi, er þann 30. ágúst og
I veglegri menningardagskrá em tón-
list og leiklist í fyrirrúmi. Þjóðleik-
húsið, með Sjálfstætt fólk, Futurice,
Sigur Rós og Kammersveit Reykjavík-
ur em meðal atburða, auk þess sem
íslenski hesturinn leikur stórt hlut-
verk.
Kostnaður er áætlaður rúmar 280
milljónir króna sem er að mestu
greiddur af ríkinu en einnig af einka-
fyrirtækjum. Halldór Ásgrimsson
sagði á blaðamannafundi í gær að
sýningin væri mikilvægur vettvang-
ur til að kynna allt sem íslenskt er,
styrkja ímynd okkar og um leið tæki-
færi til að efla útflutning og viðskipti.
Utanríkisráðherra mun opna skál-
ann viö hátíðlega athöfn á fimmtu-
daginn. Nánari upplýsingar um
heimssýninguna er að finna á slóð-
inni www.expo2000.is. -HH
Óánægja í HÍ:
Skila ekki einkunnunum
- sumir kennarar komnir fjórar vikur fram yfir skilafrest
Háskóll Islands
Margir kennarar viröast ekki geta skilaö ein-
kunnum innan tilskilins frests sem gefmn er í
reglugerö.
Mikil óánægja ríkir í mörgum
deildum Háskóla íslands um þessar
mundir vegna slakra einkunnaskila
kennara. Eftir ítrekaöar kvartanir
nemenda hefur Stúdentaráð tekið
upp á þeirri nýbreytni að setja upp
vefsíðu meö upplýsingum um þá
áfanga þar sem einkunnaskil hafa
verið trössuö hvað mest. Athygli
vekur að það eru einkum fog innan
laga- og læknadeildar sem skera sig
úr hvað varðar seinagang. Á heima-
síðunni er sagt að ljósmóðurfræði
III sé það fag sem komið er hvað
lengst fram yfir tilætlaðan skila-
tíma (3 vikur), eða rúma 30 daga.
Sökum þessa hafa margir nem-
endur ekki enn þá fengið greidd út
námslán sín hjá LÍN. í samtali við
DV sagði Steingrímur A. Arason,
framkvæmdastjóri LÍN, aö lán væru
ekki greidd til nemenda fyrr en upp-
lýsingar um námsárangur lægju
fyrir: „Þeir nemendur sem hafa
fengið fyrirgreiðslu hjá einhveijum
bankanum geta svo verið að borga
eitt og hálft prósent í vexti á mán-
uöi. Það samsvarar líklega um 4500
krónum hjá þeim sem hafa beðiö í
30 daga. Mann munar um minna.“
Sigríður Sía Jónsdóttir,
einn af kennurunum í ljós-
móðurfræði IH, segir að
rangt sé farið með stað-
reyndir. „Þetta próf sem
tekið var 7. apríl var ein-
ungis hluti úr einkunn og
gilti 70%. önnur verkefni
áttu eftir að leggjast saman
við einkunnir nemenda,
eins og t.d. dagbók sem
skilað var um miðjan þenn-
an mánuð, ásamt frammi-
stöðu í umræðutímum.“
Hreinn Pálsson er prófstjóri Hi:
„Þessi töf á að einkunnum sé skilað
er ekki meiri en venjulega. Sam-
kvæmt reglugerð geta nemendur
við skólann farið fram á það við
nemendaskrá að fá aö vita hvort
þeir hafi staðist tilskilið próf hafi
einkunn ekki borist innan þriggja
vikna. Nemendaskrá er síðan skilt
að láta viðkomandi vita innan viku.
Mér vitandi hefur enginn nemandi í
ljósmóðurfræði III fariö fram á
það.“
I Háskólanum á Akureyri gilda
aðrar reglur en í Reykjavík. Þar ber
kennurum að skila niðurstöðum
prófa 11 virkum dögum eftir próf-
dag. Stefán J. Hreinsson, prófstjóri
HA, segir að ekki hafi mikið borið á
kvörtunum og þær niðurstöður sem
hafi tafist mest hafi tafist um þrjá
daga. „Það próf er þó komið inn i
hús núna og niðurstaðna er að
vænta í dag eða á morgun."
Samvinnuháskólinn á Bifröst
styðst við svipaðar reglur og Hí.
Samkvæmt heimildum DV hafa nið-
urstöður ekki tafist á Bifröst og
ávallt tekist að birta einkunnir á til-
skildum tíma. -ÓRV
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
r>v
Vantrú á deCODE
í nýjasta hefti
bandaríska við-
skiptatímaritsins
Barron’s er fiallað
um fyrirhugað hluta-
fiárútboð deCODE
genetics. Barron’s
segir erlenda fiár-
festa ekki mjög upp-
veðraða af deCODE sem fiárfestingar-
kosti sem sakir standa. Þar ráði miklu
sú mikla lækkun sem orðið hefur á
gengi líftæknifyrirtækja síðan í febrú-
ar en jafnframt að langur tími muni ef-
laust líða þar til fyrirtækið muni skila
arðsemi. Viðskiptablaðið sagði frá.
Kristnir í hár saman
Hópur manna hefur ákveðið að
hunsa kristnihátíðina á Þingvöllum 17.
júní nk. og halda eigin kristnihátíð að
Laugarvatni. Ástæðan er óánægja með
framkvæmd hátíðarinnar á Þingvöll-
um. Dagur sagði frá.
500 þúsund í innanlandsflugi
Um hálf milljón farþega nýttu sér
þjónustu innanlandsflugs á íslandi á
síðasta ári. Þetta þýðir að næstum 1400
manns hafa flogið að meðaltali innan-
ár hefur flugfarþegum innanlands
fiölgað samfellt. Vísir.is sagði frá.
Með laskaða skrúfu
skemmda skrúfu. Hafnarvörðurinn á
Húsavík telur að skipstjórinn hafi ekki
siglt rétta leið inn Húsavíkurhöfn en
rannsóknarlögreglan á Akureyri kann-
aðist ekki við það i gærkvöld. Dagur
sagði frá.
Verðlagsmál í rikisstjórn
Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráð-
herra mun leggja
minnisblað fýrir rík-
isstjómarfúnd í dag
um viðræður sem
hún átti með fulltriji-
um Samkeppnis-
___________stofnunar síðastlið-
inn föstudag um verðlagsmál á mat-
vörumarkaði. Mbl. sagði frá.
Munur á ávöxtun er of mikill
Már Guðmundsson hagfræðingur
kynnti á aðalfundi Landssambands líf-
eyrissjóða nýja skýrslu um íslenska líf-
eyriskerfið. Hann segir kerfið gott en
telur að of mikill munur sé á ávöxtun
lífeyrissjóðanna en hann var á bilin,u
2-11% árið 1998. Mbl. sagði frá.
Landssímin ofmetinn
Þórarinn V. Þórar-
insson, forsfióti
Landssímans, segist
telja 42-70 milljarða
króna mat Búnaðar-
bankans Verðbréfa á
virði Landssímans
hátt. Mbl. sagði frá.
Sameiginieg ábyrgð á safni
í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
fiárhagstöðu Þjóðminjasafnsins á sein-
asta ári kemur fram að Þjóðminjavörö-
ur og aðrir sfiómendur beri ábyrgð á
útgjöldunum en menntamálaráðuneýt-
ið og Þjóðminjaráð stóðu sig ekki í eft'
irlitshlutverkinu. Þessir aðilar bera
sameiginlega ábyrgð á fiárhagsstöðu
safnsins. Stöð tvö sagði frá.
Skilar gómlu símaskránni
í tengslum við umhverfisverkefnið
Skil 21, sem utinið hefur verið að undan-
farið ár í tilefiii þess að Reykjavík er ein
menningarborga Evrópu, sýnir Reykja-
vikurborg gott fordæmi og skilar með
táknrænum hætti gömlum símaskrám
sem verða í framhaldinu notaðar tU
uppgræðslu lands í stað þess að verða
að sorpi. Vísir.is sagði frá.
Rafræn skráning hlutabréfa
Verðbréfasalar telja brýnt að hefia
rafræna skráningu hlutabréfa á fe'
landi. Þetta mun auka öryggi í hluta-
bréfaviðskiptum og minnka alla papp'
írsnoktun. -GAR