Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Side 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 Menning Umsjón: Silja Afialsteinsdóttir Hœfileikarík ungmenni Þau voru glæsileg, sjálfsörugg og svo fær að hvergi bar skugga á, ungliðar Listahátíðar á sunnudagskvöldið i Salnum. Ari Þór Vilhjálms- son (19 ára) lék, svo dæmi sé tekið, largokafla úr són'ötu nr. 3 í C dúr eftir Bach af næmri tilfinn- ingu. Víkingur Heiðar Ólafsson (16 ára) var svo fimur að varla festi auga á fingrum hans þegar þeir æddu niður eftir hljómborði pianósins i frægri etýðu Chopins opus 25 númer 11. Árni Björn Árnason (18 ára) réðst á Rússana og var vel við hæfl að varpa eldrauðum bjarma á bak- sviðið þegar hann gekk að píanóinu. Hann lék prelúdíu eftir Rachmaninoff og Sónötu númer 7 op. 83 eftir Serge Prokofieff - og það var „mjög ásættanlegur ProkofiefT, eins og einn tónleika- gesta sagði á eftir og beitti stílbragði úrdráttar sem frægt er úr íslendingasögum. Eina stúlkan í hópnum var hin 23 ára Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir. Hún átti verulega erfitt með að hemja hrifningu tónleikagesta í fyrstu syrpunni sinni, Sígaunaljóðum op. 103 eftir Brahms. Við ætluðum aftur og aftur að klappa henni lof i lófa milli laga og söngkonan varð að lyfta hendi til að stöðva lófatakið. Þá syrpu söng hún á þýsku, síðan söng hún lög á ensku og end- aði á frönsku kvæði, Youkali, sem sungið er við lag eftir Kurt Weill. Þetta var hennar glæsileg- asta númer, afar fallegt lag um landið sem við þráum og þar sem hamingjan býr, en - það er bara ekki til, því miður. Verður einstaklega gaman að fylgjast með þessum ungmennum á næstu árum. DV-MYND TEITUR Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur „Þaö er óhugnanleg staöreynd aö ákvæöi í dönskum recess frá 1576 um aö engan galdramann megi af lífi taka nema vísa máli hans til æösta dómstóls var ekki virt hér á landi í rúm hundraö ár. “ Ólína Þorvarðardóttir varpar nýju ljósi á óhugnað 17. aldar: Við brenndum fólk lifandi „Ég hef alltaf verid fom, alveg frá því ég var harn, enda var ég alin upp í þjóðsögum og rímnakveðskap ..." Þetta er ekki úr viðtali við hundrað ára afmœlisbam heldur Ólínu Þor- varðardóttur þjóðfrceðing sem á laug- ardaginn kemur ver doktorsritgerð sína um hina myrkustu af öllum myrkum öldum: öldina sautjándu, brennuöldina. Ritgerðin er komin út hjá Háskólaútgáfunni undir því nafni: Brennuöldin. „Svo vildi þannig til,“ heldur Ólína áfram skýringunni á áhuga sínum á þessu efni, „að í meistaraprófsritgerðinni minni tók ég fyrir galdur í íslenskum þjóðsögum og rataði þá inn í þessa fjölkynngisveröld sem ég hef síðan dval- ið í.“ - Trúirðu á galdur? spyr blaðamaður forvit- inn. „Það fer eftir því hvaða skilningur er lagður í hugtakið," segir Ólína hiklaust. „Galdur í minum huga er tilraunir mannsins til að hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður, og það hefur hann reynt á öllum timum. Ef fólk hefði ekki stundað fjölkynngi fyrr á öldum þá væru senni- lega hvorki til náttúruvísindi né læknavísindi. Margt af því sem fólk var sakfellt fyrir var eðli- leg viðleitni þess til að bæta líf sitt - leggja grös við sár og beita bænhita með, hvort sem hann fólst í ákalli á einhverja krafta eða tákni á blaði sem lagt var við sárið. Þetta er til enn. Ég þekki lækna sem signa sig áður en þeir ganga með hnífmn að skurðarborðinu.“ • Hefurðu reynt að galdra? „Nei,“ svarar Ólina og örlar á dapurleika í röddinni. „Ég hef beðið mínar bænir, lagt mín- ar spilaspár eins og önnur hver kona í landinu og kíkt í bolla, en þar lýkur minni Qöl- kynngiskúnst." Brennuöld hófst fyrr Ólína tekur talsvert til í hugmyndum Is- lendinga um brennuöldina i bókinni og aflífar nokkrar goðsagnir. Meðal þess sem hún leið- réttir eru tölur um fjölda brenndra. „Galdramálin hafa í raun og veru ekki ver- ið rannsökuð í hundrað ár,“ segir hún, „og ég endurmet ýmsar túlkanir og staðhæfmgar í bókinni, staðhæfingar sem hafa gengið mann fram af manni og byggja nánast allar á aldar- gamalli rannsókn Ólafs Daviðssonar. Galdra- málin voru fleiri en fram kemur hjá honum. Fjöldi brenna er þó nánast sá sami og hann tUgreinir en ég hef kastað út brennum sem hann telur með hjá sér fyrir misskilning en fmn aðrar í staðinn. Svo færi ég brennuöldina líklega fram um 45 ár. Fyrsta brenna galdra- aldar hefur venjulega verið tímasett árið 1625 þegar Jón Rögnvaldsson var brenndur á Mel- eyrum en ég fann óljósar heimildir um að kona hafi verið brennd, sökuð um tilberagald- ur, árið 1580. Þetta kemur m.a. fram í Islands- lýsingu Resens. Svo var kona brennd á báli árið 1608 fyrir að sjóða barn í potti. Hún var ekki sökuð um galdur, en sú brenna vekur samt óþægileg hugrenningatengsl við hug- myndafræði sem var haldið fram í Evrópu á 15. öld og birtist m.a. í Nornahamrinum, al- ræmdu riti sem Rannsóknarrétturinn notaði við rannsókn og meðferð galdramála. Þar er sett fram hugmyndin um nornina og samræði hennar við djöfulinn og galdur sem trúarlega athöfn, þar sem mannát, barnasuða og fleira ófagurt kemur við sögu. Nornahamarinn var í bókakosti guðfræðinema við Hafnarháskóla þar sem islenskir valdsmenn fengu sina menntun." Ekki starfi sínu vaxnir - Þarna eru komnar tvær brenndar konur sem ekki var vitað um áður. Voru íslendingar kannski helsti fúsir til að brenna fólk? „íslendingar höfðu í rauninni engar réttar- heimildir til að brenna fólk á báli,“ segir Ólína. „Það er óhugnanleg staðreynd að ákvæði í dönskum recess frá 1576 um að engan galdra- mann megi af lífi taka nema visa máli hans til æðsta dómstóls var ekki virt hér á landi í rúm hundrað ár, og vissu íslendingar þó vel af því. Sýslumenn áttu það tO að brenna fólk i héraði áður en riðið var til þings. Aska fórnar- lambanna var löngu fokin á haf út þegar Al- þingi lagði blessun sína yfir dómana. Danir virðast hafa virt þetta ákvæði en mín niður- staða er sú að íslendingar hafi haldið meira en þeir vissu um það sem stóð í lögunum. Svo brenndum við fólk líka lifandi á báli,“ heldur Ólína áfram. „Það var ekki aflífað fyrst eins og víða tíðkaðist. Ég verð eiginlega að taka undir með Áma Magnússyni og Páli Vídalín í úttekt þeirra á réttargæslu 17. aldar að margir íslenskir valdsmenn hafi ekki verið starfi sínu vaxnir.“ Ólína skoðar líka i ritgerðinni þjóðsögur og munnmæli um þessa atburði. Galdrasögur em stór þáttur i islenskri þjóðtrú og henni kom á óvart hve sárafáar sögur segja frá einstakling- um sem raunverulega voru brenndir á báli. „Þeir sem fá um sig sögur eru prestar og fólk sem á ýmislegt undir sér en hafnaði aldrei á bálinu fyrir galdur. Þessar frásagnir hafa tilhneigingu til þess að upphefja fjöl- kunnugt fólk,“ segir Ólína, „það skín annað viðhorf gegnum munnmælin en gegnum dóm- skjölin. Yflrvöld eru greinilega undir sterkum áhrifum frá áróðri kirkjunnar en almenning- ur var mun umburðarlyndari gagnvart galdramönnum. Fyrir alþýðu manna voru þeir hetjur sem höfðu tök á tilveru sinni, menn eins og Sæmundur fróði og Þormóður í Gvendareyjum voru settir á stall fyrir kunn- áttu sína. Þeir lentu heldur ekki í galdramál- um en það gerði fjöldinn allur af ónafn- greindu fólki sem ratar yflrleitt alls ekki inn í þjóðsögur. En í yngri sögrnn má greina hvernig umburðarlyndið gagnvart galdra- mönnum minnkar, þá hverfa nafnkenndar hetjur en við taka nafnlausir einstaklingar sem viðhafa andstyggilegt athæfi, vekja upp lík og fleira þess háttar." Ljósiö í myrkrinu Ólína segir réttilega í bók sinni að þetta hafi verið myrkir tímar þegar „Helvíti var meira ráðandi en Guðsríkið", eins og hún orð- ar það. En fann hún eitthvert ljós í öllu því myrkri? „Já, á Suðurlandi voru menn sem létu lítið bifast af þessu galdrafári. Veraldlegur valds- maður þar var Gísli Magnússon sýslumaður, kallaður Vísi-Gísli, og þar var Brynjólfur biskup Sveinsson i Skálholti, önnum kafinn við að forða sínum skólapiltum undan ásök- unum um galdra. í þessu héraði komu upp fæst galdramál og enginn maður var brennd- ur á báli. Þar sjáum við vel hvernig sá veldur sem á heldur. Andstæðan var vestur á fjörð- um þar sem Páll í Selárdal er andlegt yfirvald og Þorleifur Kortsson hið veraldlega og þeir leggja saman krafta sina i fáheyrðu ofstæki sem þó átti hliðstæður annars staðar í Evrópu á þessum tíma. Ljósið í þessu er að sjá að menn geta fundið til í stormum sinnar tíðar en samt sýnt stillingu og yfirvegun eins og virðist hafa gerst á Suðurlandi. Það er viss huggun að sjá að sóttarfárið gegnsýrði ekki heilt samfélag; menn gátu staðið upp úr og stemmt stigu við ofbeldinu." Doktorsvörn Ólínu er á laugardaginn í há- tíðarsal Háskóla íslands og hefst kl. 14. And- mælendur verða Dr. Bo Almquist og Dr. Sverrir Tómasson. „Ég kvíði fyrir - en ég hlakka líka til,“ seg- ir Ölína glaðbeitt. „Ég veit ekkert hvað bíður mín en kem bara með mínar harðsperrur eft- ir þessa miklu vinnu og vona að allt gangi vel. En ég mun sjálfsagt ákalla einhverja krafta til að aðstoða mig þegar þar að kemur...“ Hógvœr stjarna Hún tók af hjartans lítillæti við lofi frumsýn- ingargesta hún Yuan Yuan Tan, stjarna Helga Tómassonar í Svanavatninu, á fóstudagskvöldið var. Allir vildu taka í hönd hennar og strjúka eldspýtugranna handleggina sem þó voru svo nautsterkir - ef leyfilegt er að nota svo ruddalegt orð um svo finlega líkamshluta. Hve sterkir þeir voru sást vel í atriðunum þegar svanurinn líður út af sviðinu eins og hann syndi á vatni. Það var eins og hún hreyfðist fyrir afli handleggja sinna sem bylgjuðust með yndisþokka frá öxl fram i fmgurgóma. Hún sagðist vera frá Kína, fædd þar og upp alin, en hafði líka verið við ballettnám í Þýska- landi. Þegar hún var sextán ára tók hún þátt í ballettkeppni í París og þar sá Helgi hana. Tæp- um tveimur árum síðar skrifaði hann henni og bauð henni að dansa á galakvöldi í San Francisco. „Ég varð alveg brjáluð af gleði,“ viðurkenndi hún fúslega, „henti öllu frá mér og flaug til Am- eríku. Þar dansaði ég eins og umbeðið var og á eftir réð hann mig sem dansara við ballettinn." Þá var Yuan Yuan Tan átján ára og síðan eru liðin fimm ár. Nú er hún skærasta stjaman í flokki hans en í sumarleyfinu sínu verður hún gestadansari í Þýskalandi og Japan. Dansmærin Yuan Yuan Tan. 111. meðferð Þegar æstir aðaáendur höfðu haldið ballerín- unni uppi á snakki um hrið kom þar aðvífandi kona nokkur og bað Yuan Yuan að koma nú með sér og borða svolítið. Dansmærin hlýddi en hin umhyggjusama kona útskýrði fyrir aðdáendun- um að ballettdansararnir fengju ekkert að borða þá daga sem sýning væri. Ekkert nema vökva! Líkaminn má ekki slaka á við meltingu á undan hinum ofurmannlegu þrekvirkjum á sviðinu. En eftir sýningu mega þeir líklega borða eins og þá lystir. Einnig berast fregnir af blóðugum tám bak- sviðs í Borgarleikhúsinu, teygðum vöðvum og mörðum eftir atganginn. Fegurðin er ekki tekin út með sældinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.