Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2000, Síða 23
35
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000_____________
DV Tilvera
Djasskóngurinn
Benny Goodman
I dag hefði einn
mesti djassmaður ald-
arinnar, Benny Good-
man, orðið níutíu og
eins árs hefði hann lif-
að. Goodman fékk
snemma viðurnefnið
King of Swing og var
um skeið með bestu stórsveit Banda-
ríkjanna sem ungaði út mörgum fræg-
um djassleikurum. Benny Goodman
var ekki aðeins mikill djassmaður,
hann lék einnig klassíska tónlist og
var eftirsóttur af helstu sinfóníu-
hljómsveitum.
Gildir fyrir miövikudaginn 31. maí
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.):
Ástarmálin eru í far-
sælum farvegi og ekki
annað séð en þau gætu
verið það áfram. Þú
hittir gamla félaga og
deilir minningum með þeim.
Rskarniri19 fehr.-?0. mars>:
' Þú þarft að sinna
Jöldruðum í fjölskyld-
W unni. Reyndar á heim-
ilislifið og fiölskyldan
hug þinn allan um
þessar mundir.
Hrúturinn (21. mars-19. apríll:
Þú ert mikið að velta
framtíðinni fyrir þér.
Það er ekki einkenni-
legt þar sem þú stend-
ur að vissu leyti á
krossgötum.
Nautið (20. aoríl-20. maí):
Þú ert mjög bjartsýnn
um þessar mundir og
hefur fulla ástæðu til
þess. Það virðist nefni-
lega allt ganga þér í
haginn.
Tvíburarnir 121. maí-21. iúní):
V Fjárhagsaðstaðan hef-
y^h^ur nú ekki verið beys-
_ / f in hjá þér undanfarið
en nú er útlit fyrir að
>. verulega fari að rofa
til í þeim efnum.
Krabbinn (22. iúní-22. iúlít
Þér lætur best að
i vinna einn í dag þar
' sem þér finnst aðrir
bara trufla þig. Þú ferð
út að skemmta þér
með vinum þínum í kvöld.
Liónlð (23. iúlí- 22. áeúst):
Þú ert eitthvað niður-
dreginn. Það er ekki
víst að það sem er að
angra þig sé svo stór-
vægilegt að ástæða sé
til að vera dapur vegna þess.
Mevian (23. ágúst-22. sept.l:
Þú býður heim vinum,
allavega fyllist allt af
fólki hjá þér síðdegis
og í kvöld. Dagurinn
ve'rður allsérstæður
vegna þessa.
Vogln (23. sept.-23. okt.):
Þú átt mjög annríkt
um þessar mundir en
ert vel upplagður og
kemur miklu í verk.
Þér lætur betur að
vinna einn en með öðrum í dag.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
WHSSSS&Í. Láttu ekki á því bera
% þótt þér finnist vinur
\ \\jfcþinn eitthvað ergileg-
\ * ^'ur. Þaö á sínar orsakir
og er best fyrir alla að
láta sem ekkert sé.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.):
®Stjömumar eru þér
einkar hagstæðar um
þessar mundir og allt
leikur í höndunum á
þér. Vinir koma saman
og eiga virkilega glaða stund.
Stelngeltin (22. des.-19. ian.l:
Eitthvað sem hefur
verið að angra þig
undanfarið færist svo
um munar til betri
vegar. Fjármálin
standa ekkert sérlega vel í augna-
blikinu.
Leiðrétting
í myndatexta sem birtist með um-
fjöllun um frumsýningu Svana-
vatnsins í DV í gær var ranglega
hermt í myndatexta að Ali Amous-
hahi væri frændi Jórdaníukonungs.
Þeir munu ekki skyldir. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
^öðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fi.
[ Risotjöld - veisluífai.
^ „og ýmsir fylgihlutir
Cft í0 skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það n
5 marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum
trá 20 - 700 m2.
Leigjum einnig borð
og stóla í tjöldin.
lalelga slcáta
..með skátum á heimavelli
sfmi 562 1390 • fax 552 6377 • bis@scout.is
DV-MYNDIR EINAR J.
Sungið fyrir pabba og mömmu
Nemendur sáu sjálfir um skemmtiatriöi á afmælishátíöinni enda er lögð mikil áhersla á þaö í Mýrarhúsaskóla
að börnin venjist því aö koma fram.
Fjölgar í Hollywood:
Jodie er komin
11 vikur á leið
Gleðitíðindi hafa borist okkur
vestan úr kvikmyndaborginni
Hollywood. Óskarsverðlaunaleik-
konan og leikstýran Jodie Foster
gengur með sitt annað barn, er víst
komin ellefu vikur á leið, að sögn
breska blaðsins Mirror.
„Allir eru í sjöunda himni henn-
ar vegna,“ segir kunningi leikkon-
unnar.
Jodie eignaðist soninn Charlie í
júlí 1998 eftir að hún gekkst undir
tæknifijóvgun með gjafasæði. Barn-
ið sem hún gengur nú með undir
belti mun víst til komið á sama hátt.
„Hún hefur verið Charlie alveg
dásamleg móðir og það var því að-
eins tímaspursmál hvenær hún yrði
ófrisk aftur,“ segir kunningi
leikkonunnar í viðtali við Mirror.
Jodie hefur alltaf gætt þess að
blaðra ekkert um einkalíf sitt við
fjölmiðla og hefur reyndar tekist að
halda því að mestu leyndu. Þó er
vitað að hún nýtur mikillar
virðingar meðal samkynhneigðra,
bæði homma og lesbía.
Jodie á von á sér
Leikkonan Jodie Foster hefur verið
svo ánægö meö soninn Charlie að
hún ákvaö aö veröa ólétt aftur.
Geri galopnaði
budduna sína
Kryddpían fyrrverandi Geri Halli-
well hafði sigur í kapphlaupinu um
forkunnarfagurt demantshálsmenn á
uppboði til heiðurs ilmvatnsdrottn-
ingunni Elizabeth Taylor í London
um daginn. Geri þurfti að galopna
budduna sína og punga út nálægt
tveimur milljónum króna fyrir grip-
inn. Elizabeth var á staðnum og að
sögn kunnugra var hún afskaplega
ánægð með Kryddstúlkuna.
einangrunarglers
fyrir íslenskar aðstæður.
Glerixjrgargler er íramleitt undir
gæðaeftiriiti Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins.
GLERBORG
Dalshrauni 5 220 Hafnarfirði Sími 565 0000
Afmælishátíð Mýrarhúsaskóla
Slakað á
Þessi litli snáöi hallaði sér fram á stólbakiö á meöan
skólahljómsveitin lék nokkur vel valin lög og er ekki ann-
aö aö sjá en aö vel hafi fariö um hann.
Hvar eru börnin?
Einn veggur Mýrarhúsaskóla var þakinn sjálfsmyndum
nemenda og kennara og gerði hann óneitanlega mikla
lukku. Hér skoöa hjónin Hrefna Garöarsdóttir og Kristján
Davíðsson myndirnar en þau eiga tvö börn i skólanum.
Clooney gæti
unnið veðmálið
Mýrarhúsaskóli á Seltjamamesi hélt upp á 125
ára afmœli sitt með skemmtidagskrá fyrir nem-
endur og foreldra á laugardaginn. Veggi skólans
þöktu alls kyns listaverk og handverksmunir
sem börnin höfðu unnið að í vetur og gafst for-
eldmm færi á að virða þau fyrir sér. Nemendum
er þó meira til lista lagt en að mála, smíða og
sauma því að þeir sáu sjálfir um skemmtiatrið-
in og stóðu sig frábærlega, sumir dönsuðu, aðrir
sungu og enn aðrir léku á hljóðfæri.
Veistu hvað?
Hvaö skyldi þessari litlu hnátu á fremsta
bekk hafa legið á hjarta?
Hjartaknúsarinn George Clooney
verður að fara afskaplega varlega í
rúmt ár enn ef hann á að geta rukk-
að leikkonurnar Nicole Kidman og
Michelle Pfeiffer um rúmar sjö
hundruð þúsund krónur hvora um
sig. Stúlkurnar höfðu nefnilega
veðjað að kvennagullið yrði búið að
feðra króga fyrir fertugsafmælið.
Víst er að mörg ung konan vildi
fátt meira en að ala leikaranum
barn. Þessa stundina er hann
kærustulaus og hefur ekki í hyggju
að kvænast. Útlitið fyrir leikkon-
urnar er því slæmt. En hver veit?
íAftnfw.romeo.is
Stórglæsileg netverslun!
Frábært verö!
Ótrúleg tilboö!