Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000 Fréttir i>v Stefnir í metsumar í höfnum landsins: Skemmtiferðaskipum fjölgar Von er á fleiri skemmtiferöaskipum hingað til lands í ár en áður hefur þekkst. Almenn bjartsýni ríkir meðal forsvarsmanna þeirra hafna sem skip- in koma til. Skemmtiferðaskipið Maxim Gorki kom til Reykjavíkur á laugar- dagsmorguninn, fyrst skemmtiferða- skipa í sumar. Að sögn Ágústs Ágústs- sonar, markaðsstjóra Reykjavíkur- hafnar, koma nokkru fleiri skemmtiferða- skip til Reykjavíkur í sumar en undanfarin sumur, eða 49 i stað 137 skipa í fyrra. Hann gerir ráð fyrir að samanlagður fjöldi farþega á þess- um skipum verði á milli 25 og 26 þúsund sem er heldur meira en tíðkast hefur, en mestur fjöldi farþega hingað til hefur verið 21 þúsund. Ágúst vill þakka þessa aukn- ingu almennri aukn- ingu í smíði skemmtiferðaskipa en sí- fellt fleiri skemmtiferðaskip eru í smíðum. Á ísafirði er von á fyrsta skemmti- ferðaskipinu 11. júní og er það skipið Victoria frá Bretlandi sem ríður á vaðið. Hermann Skúlason, hafnar- stjóri á ísafirði, segir að von sé á 13 komum í sumar en alls er um að ræða 10 skemmtiferðaskip sem sum koma oftar en einu sinni. Hann segist verða var við umtalsverða aukningu síðast- liðin fimm ár, eða frá því að ísafjarð- Fleiri farþegar Ágúst Ágústs- son, markaös- stjóri Reykjavík- urhafnar, býst við fleiri far- þegum. - um 25 þúsund farþegar til Reykjavíkur Victoria kemur Victoria veröur fyrst skemmtiferöaskipa til aö koma til ísafjarðar ogAkureyrar. ,í llli l«|«»*tlll 4 \ arhöfn hóf að markaðssetja sjálfa sig ásamt öðrum höfnum. Farþegar tefli við innfædda Sama skip, Victoria, er einnig fyrsta skemmtiferðaskipið sem heim- sækir Akureyri í ár og er áætlaður komudagur þangað 12. júní. Pétur Ólafsson, markaðsstjóri Akureyrar- hafnar, fullyrðir að 120% aukning hafi orðið í komum skemmtiferða- skipa síðustu 10 ár en í ár er von á alls 33 skipum á móti einungis 27 i fyrra. Á Akureyri er mikil áhersla lögð á að laða að skemmtiferðaskip og sem dæmi má taka að efnt verður til hafnarskákmóts þann 21. júlí þar sem stefnan er að fá farþega til að tefla við innfædda, auk þess sem síðasta stóra skipið í ár verður kvatt með veglegri flugeldasýningu á hafnarbakkanum. í Vestmannaeyjum er ekki gert ráð fyrir nema um 14 skipum sem er svip- að og verið hefur og telur hafnsögumað- ur, Björgvin Magnús- son, að sökum þess hve erfitt er fyrir stór skip að komast í Vestmannaeyjahöfn sé ólíklegt að hægt verði að fjölga skemmtiferðaskipum Göð markaös- setning Hermann Skúlason, ha/h-a næstunni. arstjóri á ísa- firöi, telur aukna mark- aössetningu undanfarinna ára skila sér. Hjá Hafnarsamlagi Suðurnesja er von á 7 skipum i sumar en ekki eru nema 3 ár síðan farið var að taka á móti skemmti- ferðaskipum í Kefla- víkurhöfn. Pétur Jóhannsson hafnar- stjóri segir að unnið sé að því að markaðssetja hafnirnar á Suðumesj- um fyrir skemmtiferðaskip en skipin sem koma í ár eru öll í minni kantin- um, enda komast stór skip ekki inn í Keflavíkurhöfn. í Helguvík má hins vegar koma að stærri skipum og er stefnan að fá þangað stærri skip á komandi sumrum. Svo virðist því sem í heild sé um töluverða fjölgun skemmtiferðaskipa að ræða í ár og er von á að farþegar hinna ýmsu skemmtiferðaskipa eigi eftir að skila þeim bæjarfélögum sem við þeim taka umtalsverðum hagnaði, auk þess að þeir lífga upp á bæjarlif- ið. -hds Ruslahaugur í hjarta bæjarins DV. HVERAGERDI:_______________________ Það hefur vakið furðu margra að ruslahaugar hafa verið látnir mynd- ast á mesta ferðamannasvæði bæjar- ins, beint á móti Eden og Listaskálan- um, í hjarta Hveragerðis, og blasir við þeim sem eiga leið um Suðurlandsveg. Þetta þykir víst flestum einkennileg og ófógur sjón. Lesendur höfðu sam- band við DV og báðu um að leitað yrði skýringa og sýnt á ljósmynd hvemig ferðamannastaður gerir ekki. Bæjar- stjóri, Hálfdán Kristjánsson, sagði að brotajárns- og ruslahaugarnir yrðu fluttir á föstudag. Bragi Einarsson i Eden sagði að leiðsögumenn erlendra ferðamanna hefðu hótað að koma ekki lengur við í Hveragerði ef þetta viðgengist áfram. -eh DV-MYND EVA HREtNSDÓTTIR Merkilegur staður fyrir drasl Ruslið viö framhliö Hverageröis, rétt viö Suöurlandsveginn og gegnt Eden og Listaskálanum, hefur vakiö furöu margra. Bæjarstjóri lofaði aö bregöast viö og hreinsa svæöiö. Komið og semjið!!! MMC Pajero, langur, V6, skr. 1992, ekinn 132 þús. km, blár/hvítur, ssk., toppl. allt rafdr. Verð 1.470 þús. Plymouth Voyager ,2,4, skr. 1996 ekinn 43 þús. km, skráður 7 manna, ssk., samlæs., hraðastillir. Verð 1.780 þús. Nissan Sunny SR skr. 1994 ekinn 113 þús. km, rauður, 5 g., álfelgur, spoiler, allt rafdr. Verð 770 þús. 100% lán. Nissan Sunny SLX, skr. 1992,ekinn 145 þús. km, brúnn, ssk., álfelgur. Verð 470 þús. 100% lán. Dodge Stratus, skr. 1998,ekinn 50 þús. km, gullsans., ssk., álfelgur, áhvílandi bílalán 1.350 þús. Verð 1.770 þús. Nú 1.550 þús. Suzuki Sidekick 1800, skr. 1997,ek. 102 þús. km, rauður, 5 g., allt rafdr. Verð 1.680 þús. Nú 1380 þús. Suzuki Sidekick JXi, skr. 1995,ekinn 85 þús. km, vínrauður, 5 g. Verð 980 þús. Toyota Corolla XL sedan, skr. 1992,ekinn 140 þús. km, hvítur, 5 g., Verð 390 þús. 100% lán. Dodge Grand Caravan SE, 3,3, langur, skr. 1997,ekinn 96 þús. km, hvítur, ssk., 4 stólarog bekkur. allt rafdr. Verð 2.380 þús. Chrysler New Yorker, skr. 1994,ekinn 119 þús. km, vínrauður, 3500 cc, ssk., allt rafdr. Verð 1.880 þús. 100% lán til 5 ára. Dodge Caravan 2,4, skr. 1997,ekinn 90 þús. km, dökk- grænn, ssk., ABS, samlæs., litað gler, hraðastillir. Verð 1.830 þús. Chrysler Cirrus LXi 2,5,24 v, skr. 1997,ekinn 86 þús. km, blásans., ssk., með öllu. Verð 1.670 þús. 100% lán til 5 ára. Opel Astra GL 1400 stw, skr. 1994,ekinn 112 þús. km, blár, ssk., Verð 630 þús. 100% bílalán. SuMATTHÍASAR MIKLATORGI VIÐ PERLUNA Ford Bronco II XLT, skr. 1987,ekinn 145 þús. km, brúnn tvílitur, 5 g., 33“ dekk, upphækkaður. Verð 360 þús. 100% lán. Nissan 100 NX, skr. 1992,ekinn 59 þús. km, gulur, 5 g., álfelgur, T- toppur, allt rafdr. Verð 750 þús. 100% lán. Heimasíða: www.billinn.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.