Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000 DV Préttir Landsbyggðarflóttinn: Urræðin duga ekki - segir Hróðmar Bjarnason, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofmm Ástandið er verra nú á öllum svæðum landsbyggðarinnar, fyrir utan Akranes og Dalasýslu, ef bor- in er saman íbúaþróun síðustu fimm ára miðað við fimm árin þar á undan. Fækkun frá 1971 til 1999 er mest í Dalabyggð, Reykhóla- sveit og Strandasýslu þar sem fólk er þriðjungi færra en þegar mest var. I Siglufirði eru íbúar nú fjórð- ungi færri og í Húnaþingi vestra, á Vestfjörðum, í V-Skaftafellsýslu og í N-Þingeyjarsýslu er íbúatala fimmtungi lægri en hún var þegar hún var hæst. Ástæður Dutninganna eru margar, m.a. breyting atvinnu- hátta i landbúnaði og sjávarútvegi og breytt gildismat fólks. Ákveðin búsetuskilyrði þurfa að vera fyrir hendi svo landsbyggðin sé sam- keppnishæf við höfuðborgarsvæð- ið. Þegar hér er komið sögu er eðlilegt að spyrja hvað veldur því. Vissulega er reynt að spoma gegn þróuninni. Skila atvinnuþróunar- verkefni engu þegar tÚ lengri tíma er litið? Er kannski komin þreyta í landsbyggðina og menn sætta sig við orðinn hlut? Þarf meira tll „Úrræðin hafa augljóslega ekki www.romeo.is Stórglæsileg netverslun! Frábært verö! Ótrúleg tilboö! Reykjavíkurborg Höfuöborgarsvæðiö heldur áfram aö laöa til sín fólk af landsbyggöinni. dugað,“ sagði Hróðmar Bjamason, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofn- un. Atvinnuþróunarfélög hafa e.t.v. hjálpað til og hægt á þróun- inni en svo ekki meir, þvi þarf að meta stöðuna upp á nýtt. í ný- gerðri könnun Þjóðhagsstofnunar, sem Hróðmar hefur fjallað um, sést að á meðan eftirspum eftir vinnuafli á höfuðborgarsvæðinu sló öll fyrri met í apríl á þessu ári var eftirspurn eftir vinnuafli á landsbyggðinni í sögulegu lág- marki. Á hinn bóginn gerir þéttriðið samgöngunet og nútimafiarskipti fólki kleift að búa utan borgar og stunda vinnu sína heima. Getspár eru uppi um að byggðaþróun fari að snúast við vegna þessa og að fólk streymi frá borgunum. Þegar öllu er á botninn hvolft er þaö staðreynd að byggðamynstur er breytingum háð, byggð leggst af og önnur rís oft án þess að skýr- ingar liggi í augum upp. -HH Landsvala flytur á Krókinn - suðrænn fugl sem stundar flugnaveiðar af kappi DV, SAUÐÁRKRÖKl: Svölur eru sjaldséðir fuglar hér á landi enda heimkynni þeirra í heitari löndum. Landsvala ein hefur sést á ferli á Sauðárkróki að undanfornu og er talið að hún hafi borist hingað til lands með sunnanáttunum í vor. Sval- an hefur sést á flugi sunnan í Nöfun- um og stundar þar sínar flugnaveiðar. Hún birtist gjaman um hádegisbilið og er að veiðum um sex tíma á dag. Halldór Gunnlaugsson, kennari og vistarvörður við fiölbrautaskólann, sagðist fyrst hafa orðið var við fugl- inn eftir fyrra norðanhretið á dögun- um, þá flögrandi sunnan í Nöfunum. Hann sagðist strax hafa haft samband við Náttúrufræðistofnun, enda alveg viss á því að hér væri um svölu að ræða, þekkti hana frá námsárum sín- um í Danmörku þar sem hann bjó um tíma. „Þetta er fremur lítill fugl, held- ur minni en skógarþröstur og mjög mjósleginn að framan. Hann flýgur mjög hratt og það er nánast ógjöming- ur að ná af honum mynd á venjulega myndavél. En mér tókst þó að taka myndir af honum á vídeómyndavél. Þetta er ákaflega mikill veiðifugl, stundar sínar flugnaveiðar sex tíma á dag og er mjög nákvæmur á tíma - birtist þarna i Nöfunum yfirleitt stundarfiórðung yftr tólf. Ég veit ekki hvar hann heldur sig annan tíma sól- arhrings en grunar að það sé í grennd við húsin hjá bændunum á Nöfunum þar sem í haugunum við húsin er væntanlega talsvert af skordýrum, en á slíkum stöðum halda fuglar sig gjaman, son. segir Halldór Gunnlaugs- -ÞÁ —B—■’TMrara—B——B—■— Hjá okkur kemstu í flott form!!!! 12 tímar í Trimform kr. 7.500 ' 10 tímar í Strata kr. 8.000 Sígrænir bananar í Eden DV. HVERAGERDI: ____ Flestir eru vanir því að neyta banana þegar þeir eru búnir að missa græna litinn eða þegar þeir eru orönir þroskaöir. Þessir ban- anaungar sem sjást hér verða hins vegar aldrei gulir og ekki eins stór- ir og þeir sem við eigum að venjast. Þetta mun vera eina tegundin af þessu bananatré hérlendis en Bragi í Eden flutti fræ inn frá Hollandi. Hann sagði þetta bara gert til gam- ans en þetta bananatré væri miklu skrautlegra heldur en hin. Bragi sagðist aldrei hafa smakkað þessa tegund banana og hlakkaði til að prófa. Hver veit nema aðrir fái að smakka? -eh Opið frá 8.30 virka dagalaugardaga kl. 10-14 ^'rO/'f)l •—/fc—• HEILSUSTUD TRIMFORM - STRATA Hverafold 1, sími 567 8676 /%/fc5 \i> DV-MYND EVA HREINSDÓTTIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.