Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 9
Föstudaginn 9. júní hefst starfsemi Verðbréfaskráningar íslands,
sem mun annast rafræna skráningu og vörslu verðbréfa. Rafræn
skráning verðbréfa mun hafa í för með sér mikla hagræðingu,
lækkun kostnaðar og aukið öryggi í verðbréfaviðskiptum.
I rafrænni skráningu verðbréfa felst að verðbréf eru ekki lengur
gefin út á pappírsformi, heldur sem rafræn færsla í tölvukerfi
Verðbréfaskráningar Islands. Með rafrænni skráningu verðbréfa
munu verðbréfaviðskipti færast í nútímalegt horf og í takt við það
sem þekkist erlendis.
Öryggi í viðsla'pfum með verðbréf eykst
• Öruggari vistun verðbréfa
Viðsldpti með verðbréf vera bæði auðveldari og hraðari
Öruggara uppgjör viðskipta á verðbréfamarkaði
Nútímalegri verðbréfamarkaður og auknir möguleikar á fjárfestingu
erlendra aðila
• Rafbréf glatast ekki
Creiðslur á arði, vöxtum og afborgunum berast á greiðsludegi
Öruggari og hraðari uppfærsla á hlutaskrá
Kynntu þér bæklinginn
Bæklingur með ítadegri uppfýsingum um rafræna
skráningu verðbréfa liggur frammi í bönkum,
sparisjóðum og hjá
verðbréfafyrirtækjum. Þessir aðilar
veita einnig nánari upplýsingar.
Einnig er hægt að fá
upplýsingar á heimasíðu
Verðbréfaskráningar Islands,
www. verdbrefaskraning. is.
Þótt rafræn skráning verðbréfa sé stórt skref á
íslenskum verðbréfamarkaði krefst jbað nánast
engrar fyrirhafnar afhálfu verðbréfaeigenda.
Ávinningurinn er augljós fyrir alla aðila og mun
koma íslenskum verðbréfamarkaði til góða í
framtíðinni.
VERÐBRÉFASKRÁNING ÍSLANDS HF
The Icelandic Securities Depository Itd.
Hafnarhvoli . Tryggvagötu 1 1 . sími 540 5500 . www.verdbrefaskraning.is