Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000 Viö erum fagfolk meö 14 ára reynslu í sölu á unaösvörum ástarlífsins pgtefam t * ii§ 1§@8 Tilvera ÐV Barnastígvél st. 24-33 smáskór sérverslun með barnaskó, í bláu húsi v/Fákafen. SICS' HARSNYRTIVÖRUR C«^.l<j»l'WHI Rakarastofan Klapparstíg Valtarar Allar stærðir og gerðir. Tæknilega fullkomnir með eða án þjöppumælikerfis BOMRG Sími 568 1044 Þór Sigmundsson, ungur steinsmiður, notar fornar vinnuaðferðir daglega: Heggur í harðan stein Við Hesthálsinn í Reykjavík er óvenjulegt verkstæði. Þar beitir Þór Sigmundsson, 26 ára gamall steinsmiður, eldfornum vinnu- brögðum á hverjum degi. Þór var spurður að því hvað hefði leitt hann út í steinsmíðina. Hann segist hafa byrjað að læra skrúðgarðyrkju í Garðyrkjuskól- anum í Hveragerði. Hann var i læri hjá skrúðgarðyrkjufyrirtæk- inu Bimi og Guðna. Þar vann hann m.a. annars vð grjóthleðslu og þurfti að móta steina með hamri og meitli. „Liklega hefur mér þótt svona skemmtilegt að lemja mig á hendurnar," segir Þór. Heillandi grjót Grjótið heillaði, hann fór að langa til að gera eitthvað meira við það en kassalaga hleðslusteina. Hann byrjaði að fondra við að höggva flóknaðri hluti og fór þá að langa til að læra til steinsmiðs eft- ir að hafa útskrifast úr Garðyrkju- skólanum. Með hjálp Grétars Unn- steinssonar, skólastjóra Garð- yrkjuskólans, fann hann skóla I Haslev í Danmörku, þann eina á Norðurlöndum sem kennir stein- smíði með megináherslu á hið foma handverk. Hann leggur mikla áherslu á að grunnurinn að steinsmíðinni liggi í hinu forna handverki. Hins vegar sé afar mik- ilvægt að fylgjast með nýjungum í greininni og það geri hann. í skól- anum i Haslev var nær eingöngu kennt hið foma handverk en stór partur námsins var á samningi hjá starfandi steinsmiðum og þar komust nemamir í kynni við nýrri aðferðir í greininni. „Til að geta gert við gamla steina þarf maður að krrnna að vinna með sömu að- ferðum og menn gerðu fyrir hund- ruðum ára. Vissulega hefur maður aðgang að endingarbetri verkfær- um í dag, auk þess sem maður nýt- ir sér tæknina þegar það á við, en ég hef alltaf mest gaman af þvi að vinna með gamla laginu.“ Steinsmíðanámið er byggt upp sem fjögurra ára nám en Þór lauk öllum námsþáttimum í fyrra og kom þá heim og stofnaði fyrirtæk- ið Steinsmiðurinn ehf. i samvinnu við gömlu garðyrkjumeistarana sína, þá Bjöm og Guðna. í haust fer Þór svo utan til að vinna loka- verkefnið en það verður að upp- fylla ákveðin skilyrði og er oftast stykki í húsþyggingu, svo sem sökkulsteinn eða fótstykki fyrir súlu. „Þetta verður víst aldrei not- Hamar og meitill eru helstu verkfærin Þór Sigmundsson hefur lært fornar aðferöir steinsmiöa í skóla í Danmörku og vinnur nú á verkstæöi sínu viö Hestháls í Reykjavík. að,“ segir Þór. Námið var þyggt þannig upp að nemamir þurftu að útvega sér samning í lok fyrstu lotu námsins og reyndist mörgum það erfitt, einnig er nokkurt faU í skólanum þannig að einungis 5-6 komast áfram á hverju ári. Námið er að mestu verklegt en kennd er teikn- ing, svo sem þrívíddarteikning, leirmótun og gerð afsteypa. Einnig er örlítil stærðfræði i náminu, að- ailega rúmmálsreikningur. Þór er eini íslendingurinn sem hefur gengið í skólann í Haslev og er því meðal fárra steinsmiða á Norðurlöndum sem hafa þennan sterka grunn í hinu forna hand- verki en ailvíða mun vera hægt að læra steinsmíði með nútímaaðferð- Verkefni steinsmiösins Við spurðum Þór hver væru helstu verkefni hans. í ljós kom að þau eru afar fjöl- þreytileg. Hann hefur unnið fyrir listamenn, merkt upp gamla kirkjugarða, unnið að viðgerðum á gömlum legsteinum og endurbót- um á gömlum hlöðnum húsum. Af nýsmiði má nefna altari, predikun- arstól og skímarfont í Grafarvogs- kirkju sem verður vígð í sumar. Síðast en ekki síst má nefna leg- steina. Þór gerði mikið af þeim í náminu og stefnir að þvi að hasla sér þar völl. „Ég ætla þó ekki í samkeppni viö þá sem eru að fjöldaframleiða steina. Mig langar að gera legsteina sem eru einstak- ir og skemmtilegast er ef fólk kem- ur til mín með hugmynd sem við getum unnið úr í sameiningu." Helsti munurinn á handgerðum legsteinum og öðrum er að sá handgerði er höggvinn þar sem hinn er sagaður og skreytingar eru höggnar í stað þess að vara sand- blásnar. „Margir steinsmiðir kjósa að sérhæfa sig í verkefnum og efni- viði en ég vil gjaman koma sem víðast við í verkefnum." Hver er uppáhaldsefniviður Þórs? „Ég held mest upp á harðan stein, tek hann fram yfir mjúkan eða gljúpan stein.“ Sem dæmi nefnir hann basalt, blágrýti og stuðlaberg og síðast en ekki síst granít. „Ég vann langmest með granít í náminu," segir Þór. Rómantískt starf Þór segir að starf steinsmiðsins sé rómantískt. „Það gefur mér lífs- fyllingu að móta steininn og þar með skilja eitthvað eftir mig,“ seg- ir Þór. „Maður dettur svolítið til baka í tíma. Ég var t.d. að vinna skreytingu um daginn eftir nærri hundrað ára gamalli mynd af ung- um dreng sem krýpur. Maður fer ósjálfrátt að hugsa til þeirra steinsmiða sem hafa í áranna rás verið að fást við þessar sömu myndir. Mér fmnst þetta mjög skemmtileg vinna og maður sker sig óneitanlega úr fjöldanum í nú- tímaþjóðfélaginu." Kannski má segja að líf Þórs sé eins og steinn sem höggvinn er með hamri og meitli meðan líf okkar hinna er eins og sagaður og sandblásinn steinn! -ss Leikkonur á forsýningu Þær voru galvaskar, leikkonurnar Kim Cattrall, Kristin Davis, Sarah Jessica Parker og Cynthia Nixon,+ þegar þær komu til forsýningar á tveimur þáttum sjónvarpssyrpunnar Kynlífíö og borgin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.