Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Qupperneq 32
44
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000
Tilvera DV
lí f iö
Kammersveit
Reykjavíkur leik-
ur í kvöld í Saln-
um, Kópavogi
Sveitin flytur verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, Þorkel Sigur-
bjömsson og ný verk eftir Jónas
Tómasson og Pál Pampichler Páls-
son. Tónleikamir hefjast kl. 20.30 og
eru jafnframt hluti af Tónskáldahá-
tíðinni og Listahátíð.
Krár
■ SVEIFLA Á GAUKNUM Þad er alvörusveifla
á Gaukl á Stöng. Hinn tindilfætti Gelr Ólafs
mun mæta ásamt Furstunum sínum og taka
lagiB. Allir kóngarnir teknir fyrir. Sinatra, Cros-
by, Martin o.fl.
Sveitin
■ GERPUBERGSKÓRINN A BLÖNPUQSI
Geröubergskórinn er mættur til Blönduóss
ásamt danshópi og hljóöfæraleikurum og tekur
þátt í dagskrá í félagsheimilinu í dag.
Leikhús
■ ENGLAR ALHEIMSINS Á DÖNSKU Café
Teatret sýnir leikgerö sína á skáldsögu Einars
Más Guömundssonar, Englum alheimsins.
Áhugavert veröur fýrir íslendinga aö sjá hvaöa
tökum Danir taka söguna í samanburði viö
kvikmynd Frikka Þórs. Sýnt er á Smíðaverk-
stæöi Þjóöleikhússins.
Fund i r
■ NÁMSKEK) OPINS HÁSKÓLA í dag hefst
námskeiö á vegum Opins háskóla, menningar-
borgarverkefnis Háskóla Islands, um tónlist
Jóns Leifs og norræna goöafræöi í tilefni af
heimsfrumsýningu á Baldri, verki Jóns Leifs.
Námskeiöið fer fram frá kl. 20-22 í dag og
næstu tvo daga í hátíöarsal HÍ. Námskeiö Op-
ins háskóla eru öllum opin endurgjaldslaust en
þátttakendur veröa aö skrá sig hjá Endur-
menntunarstofnun í síma 525-4923.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Þau Ingibjörg Stefánsdóttir kynnir og Jóhann
Sigmarsson ræöa landsins gagn og nauðsynjar.
Rebekka Silvía, framkvæmdastjóri
Stuttmyndadaga
Sigga Vaag og Agga Niclasen létu sig ekki vanta.
Dómnefndin, Björn Noröfjörö, Ólafur Torfason og Reynir
Lyngdal, ræöir málin við Jóhann Sigmarsson. Víst er aö valiö
hefur veriö erfitt, enda kepptu margar gðöar myndir um
veröiaun í ár.
Vinkonurnar Steinunn og Kristjana
voru meöal áhorfenda.
Stuttmyndadagar
Það er löngu orðin árleg hefð hjá
mörgum að fara á stuttmyndadaga og sjá
það ferskasta og nýjasta í
kvikmyndageiranum. Stuttmyndadagar
voru settir á laugardaginn en þetta er í
níunda sinn sem þeir eru haldnir. í ár tóku
þátt yfir flmmtíu myndir og var mikil
eftirvænting við setninguna. Fyrir utan
mynd-irnar var margt um að vera, m.a. hélt
Óskar Jónasson fyrirlestur um leikstjórn,
Ingvar E. Sigurðsson leikari um
kvikmyndaleik og Sigvaldi J. Kárason um
klippingar á bíómyndum.
-ingó
DV-MYNDIR INGÓ
Kjartan, Daöi Hall, Arnar, Pétur og Svetozar Niko voru
mættir á Stuttmyndadaga, enda ekki annaö verjandi
því þeir kalla sig Listamafíu Islands.
Ágúst Magnússon, annar leikstjóri
Skugga fortíöar, sem sýnd var á
Stuttmyndadögum, kynnir sér
dagskrána.
Bíógagnrýni
Sam-bíóin -
Polanski í vandræðum
I leit aö sjaldgæfri bók
Johnny Depp í hlutverki bókaspæjarans Dean Corso.
Rétt búinn að jafna sig eftir von-
brigðin með nýjustu kvikmynd
Wims Wenders, Million Dollar Hotel,
þegar annað evrópskt kvikmynda-
goð, Roman Polanski, skilur mann
eftir ískaidan eftir að hafa setið yflr
nýjustu afurð hans, Níunda hliðinu
(The Ninth Gate), sem hlýtur að vera
botninn i hans kvikmyndagerð. Eftir
að hafa flúið Bandaríkin til að kom-
ast hjá fangelsisvist hefur Polanski
ekki náð þeim hæðum sem hann
náði i kvikmyndum á borð við Ros-
emary’s Baby og Chinatown en hefur
þó komið með athyglisverðar kvik-
myndir og sumar býsna góðar,
myndir á borð við Tess, Frantic,
Bitter Moon og nú síöast Death and
the Maiden. Það er Eiftur á móti fátt
eða ekki neitt í Níunda hliðinu sem
minnir okkur á að bak við stjómvöl-
inn er einn af merkilegustu kvik-
myndaleikstjórum samtímans.
Myndin er illa unnin í alla staði og
sú dulúð og djöfladýrkun sem lagt er
upp með hverfur í slöku handriti og
slæmum leik.
Upprunalega átti John Travolta að
fara með aðalhlutverkið. Þegar hann
yfirgaf skútuna eftir að hafa lent upp
á kant við Polanski um einhver at-
riði í myndinni var Johnny Depp
fenginn til að hlaupa í skarðið. Þar
sem Depp er yfirleitt vandlátur á þau
hlutverk sem hann tekur að sér þá
hlýtur það að hafa heillað hann að fá
að vinna með Polanski þvi að hann,
eins og aðrir leikarar í myndinni,
veit í raun ekki hvað hann er að
túlka.
í raun ætti Polanski að vera á
heimslóðum í gerð kvikmynda sem
fjalla um djöfladýrkun. Ekki bara
það að Rosemary’s Baby er sjálfsagt
ein albesta kvikmyndin sem gerð
hefur verið um þetta efni heldur var
eiginkona Polanskis, Sharon Tate,
myrt af djöfladýrkendaflokki
Charles Mansons á sínum tíma. Það
kemur því á óvart hversu Níunda
hliðið er slakt.
I byrjun myndarinnar kynnumst
við bókaspæjaranum Dean Corso
(Johnny Depp) sem fenginn er af for-
ríkum bókasafnara og djöfladýrk-
anda, Boris Balkan (Frank Langella),
til að hafa uppi á tveimur eintökum
af bók sem sagt er að sjálfur djöfsi
hafi skrifað, en þriðja eintakið er í
eigu Balkans. Takist honum að eign-
ast öll þrjú eintökin nær hann beinu
sambandi við myrkrahöfðingjann
svo það er eftir miklu að slægjast.
Þetta veit Corso ekki þegar hann
leggur af stað í leiðangur til að hafa
uppi á bókunum. Hann sannfærist
þó fljótt um að ekki er allt eins og
það á að vera þegar viðmælendur
hans týna tölunni hver af öðrum og
ókunn stúlka, sem eltir hann á rönd-
um, hverfur og birtist á hinum ólík-
legustu stöðum.
Eftir nokkuð forvitnilega og ágæta
byrjun missir Polanski tökin á ótrú-
verðugri sögu og aukinn vandræða-
gangur einkennir myndina eftir það.
Allur þessi vandræðagangur samein-
ast í endi sem svo sannarlega er
hægt að kalla endileysu. Roman Pol-
anski hefði átt að geta gert betri
mynd en það er eins með hann og
leikarana, hann hefur greinilega
ekki haft nægileg trú á því sem hann
var að gera.
Leikstjóri: Roman Polanski. Handrit: En-
rique Urbizu, John Brownjohn og Roman
Polanski. Kvikmyndataka: Darius
Khondji. Tónllst: Wojciech Kilar. Aöalleik-
arar: Johnny Depp, Frank Langella, Lena
Olin og Emmanuelle Seigner.