Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Qupperneq 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
DV Fréttir
Auður Guðmundsdóttir veitir Grími Hákonarsyni DV-verðlaun fyrir bestu
mynd að mati áhorfenda. Ingibjörg Stefánsdóttir fylgist spennt með á milli
þelrra.
Stuttmyndadagar voru í Tjarnarbíó um helgina
Georg: Lifandi lag
bar sigur úr býtum
Stuttmyndadagar fóru fram um
helgina í Tjarnarbíó og var þar
margt athyglisverðra mynda.
Auk íslensku myndanna var nokk-
ur fjöldi erlendra mynda sem
kepptu i sérstökum flokki. M. A.
Numminen Tums Rabbit frá Finn-
landi reyndist hlutskörpust en í 2.
og 3. sæti voru myndirnar Sind sie
Luigi (Þýskaland) og Into the Night
(Finnland).
Þegar kom að íslensku
myndunum hafði Ólafur H. Torfa-
son, formaður dómnefndar, á orði
að valið hefði verið einkar erfitt.
Þriðja sætið hlaut vönduð teikni-
mynd Gísla Darra Halldórssonar,
Gogh syndrome-Technoballet í E-
dúr. Ólafur Jóhannesson leikstýrði
hinum ljóðræna Engli no. 5503288
sem lenti í öðru sæti en það var
kvikmyndin Georg: Lifandi lag,
háðsk „heimildamynd" um nokkra
karaoke-söngvara í Kaupmanna-
höfn, sem bar sigur úr býtum en
hún er samvinnuverkefni Hafsteins
G. Sigurðssonar, Halldórs V. Sveins-
sonar og Kristjáns L. Pálssonar sem
kalla sig Lort. Þá voru veitt áhorf-
endaverðlaun DV og hlaut Grímur
Hákonarson þau fyrir myndina,
Efnisleg ást, og er þar um að ræða
nýja sýn á skyndikynni í Reykjavík-
urborg. Að endingu var sigurmynd-
in sýnd á ný og var klappað vel og
duglega að henni lokinni.
Kristján L. Pálsson, Hafstelnn G. Sigurðsson og Halldór V. Sveinsson voru
að vonum ánægðir með fyrsta sætiö.
Ragnar Santos og Olafur Johannesson hlutu 2. verðlaun fyrir myndina Engill
no. 5503288.
Ómar Öm Hauksson og Gísli Darri Halldórsson taka vlð verðlaunafé fyrir
þrlðja sætið úr hendi Ingibjargar Stefánsdóttur.
Samvöröur 2000:
Umfangsmikil fjölþjóð-
leg almannavarnaæfing
Almannavamaæfingin Samvörður
2000, undir stjórn Almannavama Rík-
isins, fer fram 7.-12. júní. Þetta er í
annað sinn sem haldin er æfing undir
nafninu Samvörður en sú fyrsta fór
fram árið 1997. Æfðar verða björgun-
araðgerðir úr hafsnauð en skólaskipið
Sæbjörg, sem margir muna eflaust eft-
ir sem gömlu Akraborginni, verður í
hlutverki skemmtiferðaskips. Ætlun-
in er að bjarga 300 manns frá borði og
hlynna að þeim í landi eftir þörf-
um. Æfingin kemur inn á ýmis
atriði, svo sem slökkvistarf,
reykköfun, aðhlynningu og um-
önnun slasaðra, varúðarráðstaf-
anir vegna eiturefna og fleira.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem æfð er björgun úr skemmti-
ferðaskipi hér við land en hingað
til lands koma árlega um 60
skemmtiferðaskip.
í þágu friðar
Samvarðaræfingarnar eru
friðarsamstarfsæfingar og haldn-
ar undir merkjum Samstarfs í
þágu friðar en markmiðið er að
bæta og styrkja samstarf á milli
herja og borgaralegra stofnanna
ríkja Atlantshafsbandalagsins og
samstarfsrikja þess. Alls er gert
ráð fyrir þátttöku 17 ríkja í Sam-
verði 2000 en það eru Belgía,
Bretland, Danmörk, Eistland, Egypta-
land, Grikkland, írland, ísland, Ítalía,
Króatia, Noregur, Litháen, Pólland,
Rússland, Svlþjóð og Þýskaland. Æf-
ingunni verður skipt niður í þrjá
hluta. Fyrst verður svokölluð mál-
stofa en þar fara fram umræður um
björgun til sjós og er aðgangur að mál-
stofu ókeypis og öllum heimill. Næst
er sjálf vettvangsæfingin þar sem
björgunaraðgerðir munu æfðar og
loks verður svokallaður lærdómsdag-
ur þar sem farið verður yfir aðgerðir
og skoðað hvað hefði mátt fara betur.
Þau lönd er taka þátt í sjálfri vett-
vangsæfingunni eru ísland, Bandarík-
in, Danmörk, Eistland, Litháen,
Pólland og Rússland.
Varpað úr flugvél
Þann 7. júní gefst aknenningi kost-
ur á að líta augum hluta af þeim
tækjabúnaði er notaður verður
í æfingunni en hann verður til
sýnis á Hafnarbakkanum í
Reykjavík og í skýli Landhelgis-
gæslunnar við Reykjavíkurflug-
völl. Meðal þess tækjabúnaðar
sem aðrar þjóðir leggja til verða
þyrlur, herflugvélar, léttabátar,
30-50 fermetra sjúkratjöld, með
fullkominni aðstöðu til skurðað-
gerða, og fleira. Ýmislegt
óvenjulegt mun bera fyrir augu
í æfingunni og sem dæmi má
nefna að laugardaginn 10. júní
mun rússneskum neyðarspítala
varpað úr herflugvél, bæði
starfsliði og búnaði.
AIls taka tæplega 1400 manns
þátt í æfingunni og þar af verða
um það bil 800 íslendingar en
aðrir frá varnarliðinu og hin-
um þátttökulöndunum.
DV-MYND TEITUR
Fer meö æfingarstjórn
Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Aimanna-
varna, mun stjórna æfingunni Samvöröur 2000.
Þetta fjölþjóðalið er allt til sölu
fyrir EM 2000.
Liðið er þannig samsett að hvert
tæki er öðru betra og þau
bestu er búin þvílíkri tækni að
SHARR
70ES04 28" 49.900 kr. stgr.
70ES16 28" 100Hz 69.900 kr. stgr.
£u OR
unun er að horfa á.
ffií'.
74F89 29" 100HZ 99.900 kr. stgr
Komið þið bara og sjáið hvað þau ger< i
Þetta eru allt topptæki - það er enginn
þetta vel.
afgangur af því.
Pizzaveisla fylgir öllum
sjónvarpstækium
meðan EM 2000
stendur yfir
Little Caesars
EKD
14“ 14.900 kr. stgr
20" 19.500 kr. stgr
21" Nicam 25.900 kr. stgr
28" Nicam 36.500 kr. stgr
LOEWE.
Planus 29" 149.900 kr. stgr
Planus 32" 188.900 kr. stgr
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is