Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
I>V
9
Fréttir
Þúsund ára kristni minnst á Laugarvatni:
Austurland:
Stórt hlutverk í
Framsókn tapar
forystu til sam-
starfsflokksins
— í skoðanakönnun
DV, EGILSSTODUM:
Fylgið er að hrynja af Framsókn í
Austurlandskjördæmi. Samkvæmt
könnun sem Rannsóknastofnun Há-
skólans á Akureyri gerði í apríl sl.
hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú tek-
ið forystuna i kjördæmi utanríkis-
ráðherra.
Spurt var: Ef kosið yrði til Al-
þingis í dag, hvaða flokk myndir þú
kjósa? í könnuninni mælist Sjálf-
stæðisflokkur með 37% atkvæða,
hefur aukiö fylgi um 11%. Fram-
sóknarflokkur hefur 30%, tapar 8%.
Aðrir flokkar eru á svipuðu róli og
í síðustu kosningum. Karlar styðja
Sjálfstæðisflokkinn fremur en kon-
ur en þær velja fremur Samfylking-
una og Vinstri græna. Þá er og áber-
andi að eldra fólk styður Framsókn
á meðan yngra fólk fylkir sér um
Sjálfstæðisflokkinn. Um þriðjungur
svarenda voru óákveðnir og 10%
neituðu að svara.
Þá var einnig spurt um fylgi við
ríkisstjómina. Ef aðeins eru teknir
þeir sem tóku afstöðu er fylgi við
hana 67% en það er nákvæmlega
fylgið við stjórnarflokkana. Fylgi
var flokkað eftir aldri, menntun og
búsetu og kom í ljós að allir þessir
hópar voru að meirihluta fylgjandi
ríkisstjórninni nema háskólamennt-
að fólk. Þar var andstaða gegn
stjóminni greinileg. -SB
Bíll valt við
Úlfljótsvatn
Fimm Danir sluppu nær ómeidd-
ir úr bílveltu við Úlfljótsvatn i
Grafningi í gærmorgun þegar bíll-
inn fór þar út af veginum.
Bíllinn, sem er bilaleigubíll úr
Reykjavík, er gjörónýtur. Farið var
með fólkið á Heilbrigðisstofnunina
á Selfossi og var ekkert þeirra al-
varlega slasað. -SMK
Nýtt safnahús rís
með ógnarhraða
DV, AKRANESI:
Hafin er bygging nýs safnahúss á
Akranesi sem ætlunin er að hýsi
Steinaríki íslands, Hvalfjarðar-
gangasafn, safn Landmælinga ís-
lands og íþróttasafn/knattspyrnu-
safn.
Auk þess verður í húsinu veit-
ingastofa fyrir öU söfnin. Með þess-
ari byggingu verða 5 söfn innan
Byggðasafnsins og vonast er tU að
með því verði tU sýningarsvæöi
sem getur höfðað tU flestra.
Það eru eigendur Byggðasafnsins
í Görðum sem standa að bygging-
unni en þeir eru Akraneskaupstað-
ur og hrepparnir fjórir sunnan
Skarðsheiðar. Gert er ráð fyrir að
húsið verði opnað almenningi í
september. -DVÓ
Fjöidi fólks staðfesti skírnarsáttmála sinn á hátíðlnni
Hér staöfestir Kristinn Kristmundsson skólameistari skírnarsáttmála
sinn meö vatni úr lauginni i skál úr hendi Úlfars Guömundssonar,
prófasts Árnesinga.
ina sjálfa, hún var könnuð sérstak-
lega og hleðsla hennar var lítiUega
löguð með það í huga að líklega sé
laugin í þeirri mynd sem líklegast
er að hún hafi lengst um verið. Þá
var landslagsarkitekt fenginn tU að
gera tiUögu að hönnun og skipulagi
svæðisins með það í huga að þar
verði góð og faUeg aðkoma. Laug-
vetningar eru vissir um að þessi
sögufrægi staður eigi eftir að draga
að sér ferðamenn í æ ríkara mæli
með sívaxandi umferð innlendra og
erlendra feröamanna. -NH.
Frumsamin Ijóð
Rósa B. Blöndals, skáldkona og fyrrverandi prestsfrú á Mosfelli, flutti tvö
frumsamin Ijóö í tilefni dagsins.
Fögur tónlist
Þaö var ekki komiö aö tómum kofunum hjá ungum Sunnlendingum sem
fluttu fallega kirkjutónlist. Tónlistarlíf í Sunnlendingafjóröungi ergreinilega
meö miklum blóma, efnilegir einleikarar og fallegar söngraddir.
DV-MYND DANIEl V. ÓLAFSSON
Eltthvað við allra hæfi
Unniö viö byggingu nýs safnahúss á Akranesi. Þar veröa fimm söfn undir einu þaki og allir ættu aö finna þar eitthvaö
viö sitt hæfi næsta haust þegar til stendur aö opna söfnin.
kristnisögimni
- skírt í Vígðulaug við upphaf kristni - þar voru lík Jóns biskups Arasonar og sona hans þvegin
DV, SELFOSSI:_____________________
A uppstigningardag var haldin
hátíðarsamkoma við Vígðulaug á
Laugarvatni í tUefni af 1000 ára
kristni á Islandi. Á samkomunni
fluttu Guðmundur Rafnar Valtýsson
og Kristinn Kristmundsson, skóla-
meistari menntaskólans, ávörp í tU-
efni dagsins. Kirkjukór MosfeUs-
prestakaUs söng undir stjórn Mar-
grétar S. Stefánsdóttur. Þá voru
þrjú börn skírð úr vatni Vígðulaug-
ar af séra Rúnari Þór EgUssyni.
Gestir á hátíðarsamkomunni gátu
einnig endumýjað skímarsáttmála
sinn, stærstur hluti samkomugesta
tók boðinu og helgaði sig úr vatni
Vígðulaugar.
Vígðcdaug hefur sterklega komið
við sögu islensku kirkjunnar á þeim
þúsund árum sem kristinn siður
hefur ríkt hér á landi. „í kristni-
sögu, sem öruggt er að hafi verið
skrifuð á þrettánu öld, er sú sögn að
við kristnitökuna árið 1000 hafi,
eins og það er orðað, Norðlendingar
og Sunnlendingar verið skírðir í
Reykjalaug í Laugardal af því þeir
vildu ekki fara í kalt vatn. Og þaö er
öruggt að annarri laug hér í Laugar-
dal er ekki til að dreifa en þessari,
þó að nafnið Reykjalaug hafi ekki
haldist lengi á henni,“ sagði Krist-
inn Kristmundsson, skólameistari á
Laugarvatni.
Að menn létu skírast í lauginni
við kristnitöku er ekki eina aðkoma
hennar að kristnisögu þjóðarinnar.
Þegar lik Jóns biskups Arasonar og
sona hans voru flutt norður í land
vorið 1551 voru þau þvegin úr vatni
laugarinnar.
„Þeir höfðu, eins og kunnugt er,
verið hálshöggnir i Skálholti haust-
ið áður, þann 7. nóvember. Stein-
arnir hjá lauginni heita líkasteinar
og þaö styður þá sögn að líkbörur
þeirra feðganna hafi verið lagðar á
steinana því að við laugina var, eins
DVA1YNDIR NJÖRÐUR HELGASON
Skírn í Vígöulaug
Rúnar Þór Egilsson skíröi þrjú börn úr vatni Vígöulaugar á hátíöarsamkomunni.
og segir í biskupaannálum, búið um
þá til fulls áður en likfylgdin norð-
ur hófst.
Það er einmitt fræg líkfylgd, ekki
síst vegna þess að þegar hún kom
austur í Vatnsskarð og sá til heim
til Hóla þá tók stærsta klukkan í
Hóladómkirkju, Líkaböng, að
hringja sjálf og hún hringdi þangað
til að hún rifnaði að því að sagt er.
Sem sagt laugin kemur inn í þessa
tvo sögulegu stóratburði íslandssög-
unnar, kristnitökunna árið 1000 og
siðaskiptin 1550, þar er hún í aðal-
hlutverki,“ sagði Kristinn Krist-
mundsson.
Umhverfi Vígðulaugar og laugin
sjálf hafa verið lagfærð á síðustu
árum. Samkvæmt tillögum forn-
leifafræðings var lítið átt við laug-