Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
Fréttir DV
Tenórtollarinn fékk laun fyrir skólagönguna en sagði upp eftir útskriftina:
Guðbjörn Guðbjörns-
son var himnasending
- segir fulltrúi sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli
„Guðbjöm Guðbjörnsson söngv-
ari er feikilegur málamaður - talar
itölsku, frönsku, þýsku og ensku og
er með stúdentspróf. Þótt hann sé
tiltlaður tollari var hann í útlend-
ingaeftirlitinu hjá okkur og þar eru
svona menn vandfundnir og við
þóttumst því hafa himin höndum
tekið þegar við náðum í Guðbjörn.
Maður líkir hans menntun ekki
saman við tollskólamenntun," segir
Sævar Lýðsson, fulltrúi sýslu-
mannsins á Keflavíkurflugvelli, um
Guðbjörn Guðbjörnsson óperu-
söngvara sem ráðinn var sem toll-
vörður hjá sýslumannsembættinu á
Keflavíkurflugvelli haustið 1998.
Umboðsmaður Alþingis hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að sýslu-
maður hafi ekki staðið rétt að verki
þegar hann réð Guðbjöm og annan
mann til, húsasmið, og gekk um leið
Kennari vann mál
- um ágreiningsatriði í kjarasamningi
Sveitarfélagið Skagafjörður tapaði
máli er einn kennara grunnskólanna
höíðaði vegna ágreiningsatriðis um
orlofsgreiðslur í kjarasamningi. Á
sveitarstjómarfundi nú nýlega sagði
Snorri Bjöm Sigurðssonar sveitar-
stjóri að vegna þessarar niðurstöðu
yrði kostnaður sveitarfélagsins vegna
kjarasamningsins við kennarana um
þremur milljónum meiri á samnings-
tímabilinu, sem er rúm tvö ár, en því
lýkur um næstu áramót. Það var Sig-
hvatur Torfason sem höfðaði málið
og hefur niðurstaðan fordæmisgildi
varðandi kjör annarra kennara við
grunnskóla í sveitarfélaginu. Þá var
sveitarfélaginu gert að greiða 200.000
krónur í málskostnað ÞÁ
Hitinn hækkar
í Mosfellsbæ
PV, MOSFELLSBÆ:__________________
A síðasta fundi tækninefndar
Mosfeflsbæjar var rædd breyting á
gjaldskrá Hitaveitu Mosfellsbæjar.
Bæjarverkfræðingur gerði grein
fyrir þróun kostnaðar eftir að gjald-
skrá veitunnar var síðast endur-
skoðuð árið 1996. Frá þeim tíma
hafa orðið margvíslegar kostnaðar-
hækkanir. Útsöluverð vatns Orku-
veitu Reykjavíkur hefur hækkað
um 7,9%, byggingarvísitala um
16,6%, launavísitala um 32% og
framfærsluvísitala um 12,5%. Jafn-
framt hefur gjaldskrá fyrir heimæð-
ar tekið miklum breytingum.
Tækninefnd lagði til við bæjar-
stjórn að hafln yrði vinna við end-
urskoðun á gjaldskrá veitunnar og
skoðað hvort ástæða væri til breyt-
inga. Bæjarverkfræðingi og bæjar-
stjóra var falið að vinna að tillögum
að gjaldskrá. -DVÓ
Kassi sem skiptir sköpum!
Neyðarkassinn sem er viðurkenndur af Kanadíska
heitbrigfðiskerfinu hefur reynst einstaklega velí Norður-
Ameríku. Hægt er að sníða kassann að þínum óskum,
hvort sem er við snjóflóða-, jarðskjálfta- eða önnur svæði.
fram hjá tveimur reyndum tollvörð-
um sem lokið höfðu námi við Toll-
skólann.
Guðbjörn sagði hins vegar starfl
sínu lausu aðeins fáum dögum eftir
að hann útskrifaðist úr Tollskóla
ríkisins í maí. Skólann sat hann síð-
astliðinn vetur, á launum frá sýslu-
mannsembættinu á Keflavíkurflug-
velli. Fjórtán nemendur útskrifuð-
ust úr Toflskólanum í vor og voru
þeir hver og einn á launum hjá því
embætti sem þeir höfðu verið ráðn-
ir til.
Sævar staðfesti að Guðbjöm hefði
sagt upp eftir að skólanum lauk.
„Það er slæmt að missa góða menn
en þetta er eins og gengur og gerist.
Annað veifið fara menn í eitthvað
annað þótt þeir séu nýskriðnir úr
skóla,“ segir fulltrúi sýslumanns.
-GAR
Tenórtollarinn
Hefur sungiö sitt síöasta hjá tollin-
um - í bili a.m.k.
Á
DV-MYND ÞÖK
Sjúklingakoddar
myndinni heldur Ingveldur Guömundsdóttir á koddum af þeirri gerö er sjúk-
lingar Ríkisspítalanna sofa á en þetta er eina saumastofa landsins sem
framleiöir þessar sérstöku gerðir svæfla.
Saumastofan í Stórholti í Dalasýslu:
Svæflar fýrir sjúka
Allar upplýsingar og sala í sima
C-JALDFKJÁLST ÞIÓNTFSTUNÚMER
usnir í áfalla-
artilfellum
„Við sjáum til þess að sjúklingar
á spítölum borgarinnar sofi vært á
koddum frá okkur,“ sagði Ingveldur
Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Saumastofunnar í Stórholti í
Dalasýslu, en þar fer fram mikil
starfsemi. Saumastofan er sú eina á
landinu þar sem saumaðir eru
koddar sem fylltir eru með tróði
sem gert er í verksmiðjusal sauma-
stofunnar. Þykja þessir koddar það
góðir að Ríkisspítalar kaupa hvergi
annars staðar kodda fyrir sjúklinga
sína. Einnig hefur saumastofan
hannað hnakktöskur sem eru sér-
hannaðar fyrir hestamenn en þeir
geta pakkað reiðtygjum sínum sam-
an í þær. Á saumastofunni starfa
þrjár konur aflt árið um kring en
stofan framleiðir einnig mikið
magn af undirdýnum og barna-
svefnpokum.
_________Umsjón:
Reynir transtason
netfang: sandkorn@ff.is
Andstæðingar í kirkju
Það var mikið um
dýrðir á laugardag
þegar Sigríður
Hjálmarsdóttir,
blaðamaður og
knattspyrnukona,
og Gunnleifur
Gunnleifsson,
markvörður Kefl-
víkinga, gengu í
hjónaband í Keflavíkurkirkju.
Margt gesta sótti brúðkaupið enda
parið vinmargt. Gunnleifur lék
knattspymu með úrvalsflokki KR
áður en hann gekk til liðs við
Keflavík sem nýverið sigraði þá
röndóttu og sló þá út úr bikamum
auk þess að hafa af þeim efsta sæti
deildarinnar. Fjölmargir gestir,
tengdir bæði KR og ÍBK, mættu og
fyrirfram var talið víst að loft gæti
orðið rafmagnað. Það var faðir
brúðarinnar, alþingismaðurinn
séra Hjálmar Jónsson, sem gaf
þau saman og sagnir herma að
hann hafi gætt fyllsta hlutleysis i
stólræðu sinni til að styggja hvorki
KR né ÍBK. Enda fór brúðkaupið
hið besta fram og KR-ingar eru nú
aftur á sigurbraut eftir að hafa lagt
Stjörnuna á brúðkaupsdaginn...
Skjábræður eyöa
Félagarnir
Kristján Ra.
Kristjánsson og
Árni Þór Vigfús-
son, fjármála-
stjóri og fram-
kvæmdastjóri hjá
Skjá 1, réðust í
fræg fasteigna-
kaup á dögunum
þegar þeir keyptu
tvö stykki penthouse-íbúðir við
Skúlagötu fyrir litlar 20 milljónir
stykkiö. Samkvæmt óstaðfestum
heimfldum þóttu íbúðimar hráar
því félagarnir ku hafa ráðist í
framkvæmdir í þeim fyrir um 10
milljónir til að þær líti sæmilega
út. Skjár einn hefur verið á miklu
flugi undanfarið og er svo að sjá að
tekjur stöðvarinnar leyfl orðið...
Víkingahjónaband
Það verður mikið
um dýrðir í Bratta-
hlíð á Suður-Græn-
landi um næstu
helgi þegar þúsrnid
manns að meðtöld-
um þjóðhöfðingj-
um íslands, Græn-
lands og Danmerk-
ur mæta til að
fagna þvi að þúsund ár em síðan
íslendingar undir forystu Eiríks
rauða námu land meðal inúít-
anna. Unniö er hörðum höndum að
því að fá par til að ganga i hjóna-
band á hátíðinni og er þar nokkuð
horft til þess að þar sé um að ræða
norrænan einstakling og inúíta.
Ekki eru komin úrslit í það mál en
talið er líklegt að skipstjóri íslend-
ings, víkingurinn Gunnar Marel
Eggertsson, og unnusta hans af
norrænu kyni mimi ganga í heil-
agt hjónaband á hátíðinni fyrir
augliti guðs og kóngafólks...
Brúnir og brosandi
Kristnihátíð á,
Þingvöllum hefur
orðið tilefni mik-
ifla umræðna. Til
em þeir sem
halda því fram að
þama hafi orðið
stærsta messufall I
frá því kristni |
var lögleidd á ís-
landi. Aðrir eru ánægðir með
hvemig til tókst og telja að kirkj-
unni sé hinn mesti sómi að hátíð-
inni. Séra Hjálmar Jónsson al-
þingismaður er einn þeirra sem
telja að vel hafi tekist til og hann
orti af því tilefni:
Margur er fölur ogfjasandi enn,
fullur af pexi og relli,
en þaö eru brúnir og brosandi
menn,
sem brugöu sér austur ú Velli.