Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2000, Blaðsíða 15
14
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2000
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2000
27
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaéur og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjórí: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoóarrítstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjórí: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númen Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Staftæn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu' og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Met á hvetju ári
Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem er í hvað mest-
um uppgangi hér á landi og svo hefur verið um árabil.
Fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands hefur verið
samfelld öll undangengin ár. Fjöldi þeirra sem sótt hafa
landið heim hefur ríflega tvöfaldast á áratug og í ár stefn-
ir í það í fyrsta sinn að erlendir ferðamenn sem hingað
koma verði fleiri en landsmenn. Gert er ráð fyrir því að
fjöldi þeirra í ár verði yfir 300 þúsund.
Landið hefur upp á margt að bjóða, náttúrufegurð og til-
tölulega ósnortin svæði og víðemi sem lítt eða ekki finn-
ast í nálægum löndum. í slíkt sækir fólk frá þéttbýlum
svæðum, austan hafs og vestan. En náttúrufegurðin og hið
ósnortna land er ekki nóg. Landið og það sem það hefur
upp á að bjóða þarf að kynna og það hefúr verið gert með
markvissari hætti en áður og um leið boðið upp á aukna
og betri þjónustu fyrir þá sem hingað sækja.
En ferðaþjónustan byggir ekki einvörðungu á erlendum
ferðamönnum. íslendingar ferðast í ríkari mæli en áður
um eigið land. Samgöngur hafa batnað og bílafloti lands-
manna er þess eðlis að auðvelt er að komast jafnt um þjóð-
vegi sem torfærur. Þá hefur gististöðum fjölgað, veitinga-
stöðum og vel búnum tjaldsvæðum. Ferðamönnum, inn-
lendum sem erlendum, stendur til boða meiri afþreying,
fræðsla og skemmtun en var fyrir aðeins örfáum árum.
Breytingar hafa orðið á starfi Ferðamálaráðs íslands.
Þar hefur verið tekið tillit til þeirrar þróunar sem átt hef-
ur sér stað. Að ráðinu snýr almennt kynningarstarf og
markaðssetning. Þá sinnir ráðið grunnrannsóknum og
könnunum sem nýtast einstökum fyrirtækjum í atvinnu-
greininni, sveitarfélögum og jafhvel landshlutum. Ferða-
málafulltrúar viða um land vinna að kynningu í héraði en
eðlilega byggist atvinnugreinin upp af þeim einstaklingum
og fyrirtækjum sem þjónustuna veita. Þar er byggt á djörf-
um hugmyndum og framtakssemi sem, ef vel tekst til, skila
sér í ánægðum neytendum um leið og þeir sem að standa
hafa af atvinnu og tekjur og skila arði til þjóðarbúsins.
Ýmislegt má nefna sem dæmi um þetta, jökla- og hálend-
isferðir, hestaferðir og siglingar á gúmbátum niður vatns-
fóll. Hvalaskoðunarferðir njóta sífellt meiri vinsælda. í
þær sækja tugþúsundir innlendra sem erlendra ferða-
manna svo jafhvel er talað um Húsavík sem miðstöð hvala-
skoðunar í Evrópu. Þess var getið í þýska blaðinu Der Spi-
egel í vor, um leið og bent var á mikilvægi hvalaskoðunar
sem atvinnugreinar, að íslendingar væru fyrirmynd frið-
samlegrar nútímastefnu hvað hvalaskoðun í stað veiða
snerti. Vandséð er að hvalveiðar hér við land komi til
greina við þessar aðstæður enda er fjarri lagi að veiðar á
örfáum dýrum gætu keppt við skoðunarferðimar. Loks má
nefna uppbyggingu Vesturfarasafnsins á Hofsósi, safiis
sem ærlega hefur komið byggðarlaginu á kortið og dregur
að sér þúsundir ferðamanna á ári hverju.
Nýjungar i ferðamennskunni eru nauðsyn þótt vinsæl-
ustu ferðamannastaðimir haldi sínu. Um þá þarf vel að
hugsa og þvi ber að fagna rannsókn sem er í gangi á þol-
mörkum níu ferðamannastaða hér á landi. Þolmörk stað-
anna em sá fjöldi ferðamanna sem svæðið þolir áður en
grípa verður til takmarkana eða aðgerða til að forða hnign-
un.
í alþjóðlegri atvinnugrein sem ferðaþjónustu er sam-
keppnin hörð. Greinin er viðkvæm og þolir illa áfóll af
mannavöldum. Þar verða íslendingar að standa sig enda
gengur atvinnugreinin næst sjávarútvegi í öflun gjaldeyr-
istekna.
Jónas Haraldsson
DV
Skoðun
Ríkisstjórn fær falleinkunn
„Ríkisstjóm sem lœtur samfélagsþjónustuna drabbast niður á sama tíma og hún
gortar af góðri afkomu á ekkert skilið annað en falleinkunn. “
Talsmenn ríkisstjómar
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks eru nokkuð
ánægðir með sjálfa sig
þessa dagana. Þeir benda á
nýframkomna ríkisreikn-
inga sem sýna að tekjuaf-
gangur á ríkissjóði sé held-
ur meiri á fyrri hluta þessa
árs en áætlað hafði verið.
Af þessu tilefni kom fjár-
málaráðherrann fram í fjöl-
miðlum og sagði að upp úr
alls kyns fólki hefði staðið
eithvert tal um að ólag væri
á ríkisfjármálunum. Nú vitum við,
sagði ráðherrann, að þetta er rangt
og bætti því við að endanlega fengist
þetta staðfest í pappírum sem væru
væntanlegir.
Alls kyns fólk upp á dekk
Alls kyns fólkið sem Geir H. Haar-
de fjármálaráherra segir að hafi allt
á homum sér varðandi ríkisfjármál-
in og vilja upp á dekk em væntan-
lega talsmenn úr stjómarandstöðu
og samtökum launafólks. Þessir aðil-
ar hafa vissulega talað um ólag á rík-
isfjármálunum og bent á að það
hljóti að teljast áhyggjuefni þegar
verðbólguhraðinn er orðinn
viðvarandi á milli fimm og
sex af hundraði og þegar
stefhir í viðskiptahalla sem
nemur tæpum fimmtíu og
fimm milljörðum króna eða
tæpum 8% af landsfram-
leiðslu. Það er einu pró-
sentustigi meira en á síð-
asta ári.
Óráðstal og varasam-
ar alhæfingar
Mjög mikilvægt er að
greina rétt hvað valdi við-
skiptahallanum því það er forsenda
þess að gripið verði til skynsamlegra
og réttlátra ráðstafana. Flest bendir
til þess að viðskiptahallinn sé til
kominn vegna fjárfestinga þess
hluta þjóðarinnar sem hefur mest
efnin. Þá er ástæða til að hafa það
hugfast að þenslan í þjóðfélaginu er
fyrst og fremst til komin vegna of-
fjárfestingar í einkageiranum. í ljósi
þessa eru fráleitar kröfur sem fram
koma nú nær daglega frá hátekju-
mönnum úr fjármálaheiminum um
niðurskurð hjá hinu opinbera og
sölu rikiseigna.
Að mínum dómi er þetta fullkom-
ið óráðstal. Ekki eru síður varasam-
ar alhæfingar um að draga beri úr
neyslu þjóðarinnar. Hér þarf að
benda á eyðsluklæmar og skapa ekki
skálkaskjól fyrir ríkisstjóm sem hef-
ur sýnt að hún er gjöm á að beita
niðurskurði á láglauna- og milli-
tekjuhópa í stað hinna efnameiri.
Bæta þarf kjörin
Það sem þarf að gerast við þessar
aðstæður er í fyrsta lagi að beina að-
haldsaðgerðum gagnvart efnafólki,
ekki hinum sem búa við litlar tekjur
eða meðaltekjur. Ráðstöfunartekjur
þeirra siðamefndu þarf að bæta en
ekki skerða. Þegar síðan upp er stað-
ið með afgang á fjárlögum á að verja
honum til að greiða niður skuldir
þjóðarinnar og til að styrkja innviði
samfélagsins. Ýmsar stoðir samfé-
lagsins hafa verið að veikjast og
nægir þar að benda á stöðuna í hús-
næðismálum og heilbrigðismálum,
kjör öryrkja, aldraðra og bamafólks
sem á undangengnum íhaldsáratug
hefur verið svipt þriðjungnum af
samfélagslegum stuðningi. Ríkis-
stjórn sem lætur samfélagsþjónust-
una drabbast niður á sama tima og
hún gortar af góðri áfkomu á ekkert
skilið annað en falleinkunn.
Ögmundur Jónasson
Ögmundur
Jónasson
alþingismaöur
Kostir íslenska lífeyriskerfisins
Talsvert hefur verið fjallað um líf-
eyriskerfi íslendinga að undanförnu.
Stefán Ólafsson hefur ritað athyglis-
verða bók um kerfið, bók sem hann
nefnir íslensku leiðina og nýlega var
haldið hér á landi norrænt málþing
þar sem islenska kerfið var meðal
umræðuefna. Það sem einkum vekur
athygli í samanburði við lífeyris-
kerfi annarra landa er styrkur lífeyr-
issjóðanna. íslenska lífeyrissjóða-
kerfið er að miklu leyti hannað með
þaö fyrir augum að geta greitt með-
limum um 57% af meðallaunum eftir
40 ára starfsaldur. Sumir sjóðir geta
greitt meira og undanfarið hafa
„Það er nokkurt umhugsunarefni hvemig lífeyrissjóð-
imir ávaxti best fé sitt. Hrun á erlendum fjármagns-
mörkuðum svipað og varð í Suðaustur-Asíu um árið
getur þannig haft talsverð áhrif á lífeyri íslendinga.“
Með og á móti
Golfvöllur fellur vel í landslagið
kjarasamningar innihaldið
ákvæði um auknar greiðsl-
ur til lífeyrissjóða. Liklega
ná sjóðirnir þessu marki
ekki almennt fyrr en eftir
20 til 30 ár. Ljóst er að líf-
eyrissjóðakerfið er þegar
farið að létta á greiðslum
rikissjóðs til almannatrygg-
ingakerfisins og vera má að
í framtíðinni taki lífeyris-
sjóðimir að miklu leyti við
þessum málaflokki. Þó
verða alltaf ákveðin atriði
utan þeirra.
Samþykktir Alþingis um skatt-
frjálsan viðbótarlífeyrissparnað
styrkja enn lífsafkomu ellilífeyris-
þega. Gera verður ráð fyrir að þessi
spamaður verði almennari í framtíð-
inni.
Endurskoðun almannatrygginga
Forsætisráðherra skipaði ekki alls
fyrir löngu nefnd sem vinnur að end-
urskoðun almannatrygginga. Nefnd-
in starfar undir forsæti Ólafs Davíðs-
sonar ráðuneytisstjóra og skoðar
málin almennt en einnig með tilliti
til skattakerfis og lífeyrissjóðakerfis.
Meðal þess sem skoðað er sérstak-
lega er hvemig megi bæta kjör
þeirra sem lakast búa og hvemig
einfalda megi kerfið. Kerfi eins og al-
mannatryggingakerfi verða oftast
nokkuð flókin. Einfalt kerfi gefur
ekki möguleika á að taka tillit tO sér-
þarfa og séraðstæðna nema að litlu
leyti. Það em því ævinlega tvær hlið-
ar á peningnum ef ekki fleiri.
Almennt séð tekur almannatrygg-
ingakerfi mið af launum í landinu þó
ekki sé bein tenging. Afkoma lífeyr-
Guömundur G.
Þórarinsson
verkfræöingur
issjóðakerfisins er hins veg-
ar mjög háð ávöxtun á fjár-
magnsmarkaði þó iðgjöld
séu háð launum. í vaxandi
mæli virðist fé lífeyrissjóð-
anna bindast á áhættu-
markaði og nú munu yfir
100 milljarðar vera bundnir
á erlendum fjármagns-
markaði. Það er nokkurt
umhugsunarefni hvemig
lífeyrissjóðimir ávaxti best
fé sitt. Hmn á erlendum
fjármagnsmörkuðum svip-
að og varð i Suðaustur-Asíu
um árið getur þannig haft talsverð
áhrif á lifeyri íslendinga.
Traust lífeyriskerfi
Svo virðist sem mörg lönd reyni
að feta sig inn á braut íslenska líf-
eyriskerfisins. íslenska kerfið sker
sig úr og sýnir framsýni þeirra sem
lögðu inn á þessa braut. En ekkert er
alveg einfalt. Aðgerðir stjómvalda
t.d. til þess að halda niðri verðbólgu
eða styrkja gengi með vaxtahækkun
hafa áhrif á kaupmátt og ávöxtun á
fjármagnsmarkaði nokkuð með sitt
hvorum hætti. Þessir tveir megin-
þættir lífeyriskerfisins geta því er
fram líða stundir þróast ólíkt.
íslenska lífeyriskerfið virðist hvaö
sem öðru líður traust og öðmm lönd-
um til eftirbreytni. Sú endurskoðun
sem nú fer fram mun vonandi enn
bæta kerfið, einfalda það, bæta kjör
þeirra verst settu. Sjálfsagt verða
spumingamar eilífar um hvernig
koma megi i veg fyrir örorku- og fá-
tæktargildru og haga kerfinu þannig
að alltaf borgi sig að vinna.
Guðmundur G. Þórarinsson
golfvöll í Viðey?
Slátra síðustu náttúruperlunni?
j „Golfvöllur í
Viðey gæti orðið
■ veruleg lyftistöng
■VBp fyrir eyjuna og um-
hverfið og bætt um
leið úr brýnni þörf fyrir mjög
vaxandi og vinsæla íþrótta-
grein.
Ég tel þó að það þurfi að
fara að öllu með mikilli gát og
fella allar framkvæmdir sem
nauðsynlegar eru að náttúm
eyjarinnar.
Mér er sagt að starfsemi af þessu
tagi falli vel að fuglalífi og þetta hvort
tveggja geti farið saman og ég hef rætt
við fuglafræðinga sem sjá ekki að golf-
völlur í Viðey eigi að geta raskað
fuglalíftnu. Hugmynd um golfvöll í
Helgi
Pétursson
borgarfulltrúi
Viðey er ekki ný, hún hefur
verið á kreiki lengi, svo þetta
er bara spumingin um að at-
huga möguleikana og fram-
kvæma.
Ég held svo fyrst og fremst
að með golfvellinum getum við
slegið nokkrar flugur í höggi,
bætt aðstöðu kylfinga og skap-
að nýja afþreyingarmöguleika
fyrir ferðaþjónustu borgarinn-
ar.
Að lokum má geta þess að nú er
nokkuð um liðið að gerðar vom lag-
færingar á eyjunni, húsakosti og öðru
og svo hefur í raun og veru verið horft
upp á það að aðsókn hefur ekki verið
neitt sérstök."
v -, „Auðvitað á alls
| ekki að taka síð-
ustu náttúruperlu
r borgarinnar og
fræsa hana út fyrir
golfvöll. Miklu nær væri að
gera Viðey að alvöru útivistar-
og friðsemdarsvæði fyrir borg-
arbúa og aðra sem njóta vildu.
Tilvalið væri einnig að koma
upp í eynni vísi að byggða-
safni sem sýndi í máli og
myndum gamla verkþætti,
áhöld og húsagerð. Þannig að það væri
virkileg afslöppunar- og menningar-
ferð að fara út í eyna fyrir þá sem það
langar.
Einnig væri nær að koma upp ein-
hvers konar kaffihúsastemningu úti í
Magnús H.
Skarphéóinsson
náttúruverndarsinni
Viðey þangað sem fólk gæti
leitað til og væri m.a. alveg í
friði fyrir bílaumferðinni þar
og ysnum sem borginni fylgir
annars. - Auk þess er eyjan
slík náttúraperla, og með slíka
stórsögu í þjóðlegu tilliti að
það jaðraði við helgispjöll að
hleypa golíþlágunni lausri þar.
Það er nóg til af miklu betri
stöðum fyrir golfhjörðina en
úti í Viðey. En golfliðið er
harður og skipulagður þrýsti-
hópur sem beitir sínum borgarfulltrú-
um fyrir sig úti um lönd og eyjar og
hefur því miður alltof oft sigur. Nei,
engan golfvöll i Viðey. Það er allt of
einsleit notkun fallegustu borgarpara-
dísarinnar!" -HK
Meðal kylflnga landsins hefur Viðey löngum verið litin hýru auga sem framtíðarstæði fyrir golfvöll, enda landslag slíkt að hægt væri að gera þar golfvöll í
fullri stærð. Helgi Pétursson borgarfulltrúl mun leggja fram tlllögu þess efnis í borgarráði að kannað verði hvort hagkvæmt sé að byggja golfvöll í Viðey.
Ummælí
Verðbólguskrímslið
„Þegar verð-
bólguskrímslið fer
svo af stað vegna
allrar neyslu-
græðginnar og
óráðsíunnar fer í
verra. Allar verð-
tryggðu skuldirn-
ar bólgna í takt
við dýrtiðina, upphæðirnar hækka,
afborganir og vaxtagreiðslur þyngj-
ast og allir hófsömu kjarasamning-
amir riðlast. En það gerir minnst
til því að ríkissjóður græðir og
kjaraaðallinn heldur öllu sínu og
þarf ekki að óttast að hremmingar
þenslu og verðbólgu nái til sin.“
Oddur Ólafsson, Degi, 22. júlí
Tildur og prjál
„Alþingi er
gömul stofnun
sem á sér merka
sögu og erlendum
þjóðhöfðingjmn
væri fullur sómi
sýndur með því
að forseti Alþingis
tæki á móti þeim
við komu þeirra
til landsins i stað
forseta íslands nú. Opinberar heim-
sóknir innan lands og margt annað
tildur og prjál mundi þá leggjast af,
enda engin þörf á því meðal nokk-
urra jafningja að einn maður heim-
sæki annan „opinberlega“.“
Af Vef-þjóöviljanum 24. júlí
Ljóð á kálfskinni
„Vinurinn er hins vegar vís til að
lita venjulegan dag fjólubláan og
gulan með með því að senda þér
ljóð á kálfskinni þó þú eigir ekki af-
mæli, eða 20 siðna handskrifað bréf
bara til að gleðja þig.“
Jóhanna Halldórsdóttir, Degi, 22. júlf.
Skoðanir sem
skipta máli
„Umbamir
Steinar og Ein-
ar rjúka hins
vegar upp til
handa og fóta og
væla eins og
börn yfir skrif-
um fólks eins og
Kristínar og
Áma. Skoðanir
þessa fólks virð-
ast greinilega skipta þá meira máli
en margur hefði ætlað.“
Orri Haröarson tónlistarmaöur,
f Morgunblaðinu 22. júlí.
Bíll - eða gúmmíbolti
Umferðarslys verða
aldrei umflúin og eru ekki
bundin við akandi umferð.
Þau hafa orðið á öllum tím-
um og hver sem ferðamát-
inn er. Þau urðu áður en nú-
tíma samgöngutækni kom
til skjalanna og hvernig sem
fólk ferðaðist, gangandi, ríð-
andi, eða siglandi. Hjólið
var fundið upp nokkuð
snemma og jafn snemma fór
fólk að fara sér að voða með
því á einn eða annan hátt.
Slys verða ekki útilokuð
einfaldlega af því að þau eru slys:
óvæntur, óheppilegur atburður.
Samt megum við ekki láta deigan
síga í baráttunni við að afstýra þeim.
Bilslys eru sú tegund slysa sem
okkur verður starsýnast á um þessar
mundir. Því miður er stutt síðan far-
ið var að rannsaka orsakir þeirra á
íslandi með skipulegum og fagmann-
legum hætti og satt að segja þykir
manni sumt sem sagt er í fjölmiðlum
um orsakir þeirra koma skringilega
fram. Oft er einfaldlega staðhæft að
þau hafi orðið af of hröðum akstri.
Það kann þó oft að vekja spurningar.
Til dæmis: varð hraðinn orsök að
slysinu eða varð það svo alvarlegt
sem raun ber vitni af því að bíllinn
var á þeim hraða sem hann var?
Annað dæmi: í nýlegu rútuslysi
norður i landi er sagt að það hafi orð-
ið af því að hægra afturhjól lenti á
brúarstólpa. Spurningin sem er ósvar-
að í mínum huga þegar þetta er ritað
er þessi: Hvers vegna lenti
afturhjólið á brúarstólpan-
um? Fæli ekki það svar í sér
svarið við orsökum slyssins?
Of hraður akstur?
En ástæðan til þess að ég
sest hér við að skrifa kjall-
aragrein er nýleg lífs-
reynsla sjálfs mín. Ég var
svo heppinn að finna á bíla-
partasölu fallegar felgur
sem pössuðu á bílinn minn,
með sama og nýjum dekkj-
um. Mér var sagt að þær
væru undan mjög nýlegum jeppa
sem hefði oltið og skemmst svo að
honum varð ekki bjargað. Mér buð-
ust felgumar með dekkjunum á góðu
verði svo ég sló til, fór heim með
fenginn og hófst handa um aö máta
hann við minn bfi.
Tvö dekkjanna voru loftlaus,
höfðu affelgast í veltunni eins og oft
gerist. En hin voru svo sannarlega
full af lofti. Annað var með 44 pund
en hitt 45 pund! Samkvæmt bókinni
á loftþrýstingur i dekkjum á bfinum
sem valt að vera 24 pund. Með 45
punda þrýstingi í dekkjunum hefur
þessi bíll verið stórhættulegur. Ég
hef ekki hugmynd um við hvaða
kringumstæöur hann valt, en ég tel
einsýnt að með þennan loftþrýsting
hefur billinn verið ókeyrandi. Ekki
síst ef ökumaðurinn hefur verið
óvanur og allra síst ef hann hefur
verið óvanur að aka á holóttum mal-
arvegi. Bíllinn hefur hreinlega verið
eins og gúmmíbolti sem skoppar til
og frá eftir því á hvaða frákastshomi
hann lendir. Fróðlegt væri að vita
hvað hefur verið gefið upp sem or-
sök þessarar veltu, því væntanlega
hefur verið gerð lögregluskýrsla um
hana. Ætli þar gæti ekki staðið „of
hraður akstur"?
Orsakir skipta máli
Mér þykir ólíklegt að nokkurt
hjólbarðaverkstæði leyfi sér að af-
greiða bíl með svona fráleitan loft-
þrýsting í dekkjunum. Þetta hlýtur
að hafa verið gert af einhverjum sem
eru afar fákunnandi um dekkjabún-
aö og almennt akstursöryggi. En við
hin súpum af því seyðið í minna ör-
yggi í umferðinni - og hækkandi
tryggingaiðgjöldum. Það er alveg
ljóst að tfi þess að geta barist af ein-
hverju öryggi gegn umferðarslysum
þurfum við að vita um orsakir
þeirra. Til þess þurfum við að sam-
einast um raunhæfar og markvissar
rannsóknir á umferðarslysum sem ^
komast fyrir um raunverulega or-
sök. Það er ekki nóg að segja „missti
vald á bílnum" eða „ók of hratt“ eða
eitthvað annað almennt og illa skil-
greint - við þurfum að vita um alla
þætti þess hvers vegna viðkomandi
missti vald á bilnum eöa réö ekki við
hraðann. Þar með talið ástand dekkj-
anna, hvort þau em viðeigandi mið-
að við árstíma og ástand vegar og
ekki síst hvort loftþrýstingur í þeim
er innan viðeigandi marka.
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson
„Það er ekki nóg að segja „missti vald á bilnum“ eða „ók of hratt“ eða eitthvað ann-
að álmennt og illa skilgreint - við þurfum að vita um alla þœtti þess hvers vegna *
viðkomandi missti vald á bilnum eða réð ekki við hraðann.“