Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2000, Blaðsíða 2
2 Fréttir FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 DV Á áttunda hundrað farþegar með íshestum í sumar Um 1400 hross notuð í útgerðina - fyrirtækið vinnur að mótun eigin umhverfisstefnu DV-MYND GVA Rekiö yflr Sandinn Þessi hópur er nú á leiö yfir Sprengisand. Hann lagöi upp úr S.-Þingeyjarsýslu og var aö fara yfir brúna viö Goöafoss þegar Ijósmyndari DV hitti hann. íshestar hafa ákveöiö aö leggja niöur feröiryfir Sprengisand eftir sumariö i sumar. í sumar eru bókaðir 712 farþegar í lengri ferðir á vegum íshesta. Gif- urlegan hestakost þarf til þessarar þjónustu og er áætlað að um 1400 hestar séu í notkun í sumar í lengri ferðum, að sögn Bryndísar Einars- dóttur hjá íshestum. Þá eru ótalin þau hross sem notuð eru til stuttra útreiðartúra. Fullbókað hefur verið í allar ferð- ir í sumar nema Kjalarferðir þar sem fáein sæti hafa verið laus. Nokkrar breytingar eru fyrirhug- aðar í framtíöinni. Ferðum yfir Sprengisand verður hætt eftir þetta sumar. Þá verða tilteknar ferðir styttar. Að sögn Bryndísar er þetta gert til þess að fólk þurfl aldrei að taka nema eina vinnuviku í frí. Meiri hluti viöskiptavina íshesta eru erlendir gestir. Reynslan hefur sýnt að fyrirkomulag af þessu tagi hentar þeim afar vel. Fyrir þá sem vilja fara lengri ferðir er boðið upp á sérferðir þar sem hægt er að blanda saman nokkrum valkostum. Þær feröir standa yfir í tvær vikur. Auk Sprengisands eru íshestar með ferðir á Mývatn, Landmanna- laugar, Snæfellsnes, Gullna hring- inn, Kjöl, Egilsstaði svo og Leiru- bakka. Þá er boðið upp á svokallaöa sveitasælu og réttarferð, svo dæmi séu nefnd. Sveitasælan felst í því að viðskiptavinir dvelja á Leirubakka í Landssveit þar sem þeir ríöa út, fara i skoðunarferðir o.s.frv. Hestamiðstöð íshesta í Hafnar- flrði er starfrækt í sumar. Bryndís sagði að gifurleg aðsókn væri í styttri reiðtúra. Ishestar vinna nú að því að fjölga samstarfsaðilum úti á landi. Markmiðið er að koma upp stöðvum um allt land í samvinnu við samstarfsaðila íshesta til að hægt sé að bjóða upp á stutta reið- túra líkt og gert er í Hafnarflrði. Slíkt stuðlar bæði að uppbyggingu ferðaþjónustu á viðkomandi lands- svæði og viðskiptavinir íshesta geta brugðið sér á hestbak og treyst á ákveðinn gæðastaðal. „Á næsta ári stefnum við að því að fjölga mest í stuttu ferðunum," sagði Bryndís. „Við erum að setja niður umhverfisstefnu hjá okkur. Hálendiö þolir ekki mikla fjölgun farþega. Við horfum því frekar til þess að hafa góða nýtingu heldur en að fjölga ferðum.“ -JSS Síminn-GSM til Suöur-Ameríku Reikisvæði Símans-GSM í Rómönsku Ameríku og Bandaríkj- unum hefur stækkað til muna eftir samninga Símans við farsímafyrir- tækið Nextel í Bandaríkjunum, Perú og Mexíkó. Með samningum sem slíkum er reiknað með að reikisvæði Símans- GSM stækki til muna en Nextel rek- ur svokallað iDEN-farsímakerfl sem nær til flestra ríkja Bandaríkjanna og fjölda landa í Suður-Ameríku. Sá böggull fylgir skammrifi að til að nýta sér þjónustuna veröa við- skiptavinir Símans-GSM að eignast síma af gerðinni Motorola Í2000 eða leiga slíkan af fyrirtækinu. Reikisamningar Símans eru nú 145 talsins í 69 löndum en nýlega hafa lönd eins og Hvíta-Rússland, Ungverjaland og Moldavía bæst í hópinn. -jtr Lýst eftir vitnum Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir vitnum að árekstri sem varð á bíla- stæði við Skipholt 1 síöastliöinn mánudag. Ekiö var á vinstra aftur- hom ljósgrárrar Toyota Corolla bif- reiðar á milli kl. 14 og 14.30. Þeir sem upplýsingar hafa um árekstur- inn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 569-9000. -SMK Leiðrétting í frétt um námaleyfi Kísiliðjunn- ar við Mývatn á bls. 7 í DV í gær, sem einnig er vísað í á forsíðu, er talað um forstöðumann Náttúru- fræðistofnunar, en þar er að sjálf- sögðu átt við forstöðumann Nátt- úrurannsóknastöðvarmnar við Mývatn. Eru hlutaöeigendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Farþegar Flugleiöa biðu svangir og þyrstir í 12 tíma í Lundúnum eftir flugi: Starfsmönnum virðist vera kennt að Ijúga - segir Halla Amardóttir - óheppni, segir fulltrúi félagsins „Það er ótrúlegt að starfsmönnum Flugleiða virðist vera kennt að ljúga i mann fram og til baka,“ seg- ir Halla Amardóttir en hún beið eft- ir því að geta sótt son sinn sem var að koma með Flugleiðum frá Lund- únum á þriðjudagskvöldið. Þetta er enn ein vélin frá Flugleiðum sem bilar og veldur töfum og óþægind- um á mjög skömmum tíma. „Þeir sögðu mér þegar ég talaði við þá úti i Keflavík að það hefði orðið vélarbilun meö þeim afleið- ingum að það yrði að fresta flugi frá Lundúnum um óákveðinn tíma. Þeir bættu því við að það ætti ekki að koma að sök, öllum hefði verið komið fyrir á hótelum í borginni og væru þeir þar í góðu yfirlæti. Það var síðan ekki fyrr en i gærmorgun sem sonur minn kemur heim - 12 tímum eftir áætlun - og þá segir hann mér það að hann hafi verið látinn bíða í Flugleiðavélinni í fjóra tíma á meöan verið var aö reyna að ræsa hana. Á þeim tíma fengu far- þegar ekkert að borða.“ „Eftir að reynt hafði verið til þrautar að koma vélinni í gang og fyrirséð að þaö myndi ekki hafast, var farþegum sagt að bíða inni í ein- hverjum litlum sal á Heathrow-flug- velli eftir að hægt væri að koma þeim heim. í þessum sal voru engar búðir opnar og farþegum ekki boöið neitt að borða á meðan þeir biðu banhungraðir - sumir hverjir með Ósátt Halla er mjög ósátt viö þaö aö starfsmenn Flugleiöa sögöu henni ekki satt. lítil böm. Það var svo ekki fyrr en í morgun að fólkinu var sagt að ná í farangurinn sinn til þess að hægt væri að „tékka“ hann inn aftur i aðra vél frá Flugleiðum. Þegar loks- ins var tekið á loft meö þeirri vél var farþegum enn ekki boðið neitt að borða né drekka. Þetta er náttúr- lega óforsvaranleg hegðun af Flug- leiðum og að starfsmenn fyrirtækis- ins geti í það minnsta ekki sagt manni satt og rétt frá er ófyrirgefan- legt,“ sagði Halla. Óheppni Þórmundur Jónatansson hjá upp- lýsingadeild Flugleiða staðfestir taf- ir á flugi þeirra frá Limdúnum í gærkvöld. „Reynt var eftir fremsta megni að koma fólki fyrir á hótelum en sökum þess hve seint þetta geröist var það því miður ekki hægt. Við neyddumst til þess að fá fólkið til þess að bíða á flugvellinum á meðan verið var að koma ástandinu í lag. Á þessum tíma var allt lokað á flugvellinum og því ekki hægt að bjóða fólkinu upp á mat né drykk. Það tókst þó um síðir að fá verslun til þess að opna þar sem fólk gat keypt sér eitthvað í svanginn. í gærmorgun sendum við vél frá Dan- mörku til þess að sækja fólkið og ljóst var að ef við myndum reyna að fá mat í vélina myndi hún tefjast enn frekar. Það var því ákveðið að fljúga strax og reyna að koma í veg fyrir frekari taf- ir. Okkur þykir þetta að sjálfsögðu mjög leiðinlegt og munum leitast við að greiða fólki fyrir útlagðan hótel- kostnað og mat. Um aðrar bætur veit ég ekki að svo stöddu en ljóst er að það verður skoðað hvort hægt sé að bæta farþegum okkar þetta atvik á annan hátt.“ Þórmundur bætti því við að tafir þær sem orðið hefðu á vélum Flug- leiöa undanfarið væru einskærar tilviljanir sem ekki hefði fengist ráðið við. „Við höfum verið óheppnir upp á síðkastið og okkur þykir það mjög leiðinlegt," sagði Þórmundur. Sökum vélarbilunar tafðist einnig vél Flugleiða sem fór til Mílanó á Ítalíu í gærkvöld. -ÓRV Sáu þetta fyrir |---• -i Pétur Blöndal al- ||á þingismaður segir það ekki rétt að I flutningsmenn laga- ’Wtémr frumvarps um kjör I - , SLr forseta íslands hafi ekki séð það fyrir k að eftirlaun frú Vig- dísar Finnbogadótt- ur myndu við lagabreytingarnar hækka í um eina milljón króna. Vís- ir. is greindi frá. „Holt og yfirboröskennt" Halldóri Blöndal, forseta Alþing- is, frnnst gagnrýni Péturs H. Blön- dal á Alþingi og störf þess vera dá- lítið hol og ekki í samræmi við raunveruleikann. „Pétur er með mjög sérstakar skoðanir á mörgum málum og því oft í minnihluta og menn verða að sætta sig við það.“ Guðmundur Ámi Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis, hvetur Pétur til þess að segja af sér. Dagur greindi frá. Vígsla Stafkirkjunnar Stafkirkjan í Vestmannaeyjum verður afhent og vigð á sunnudag- inn, en kirkjan er þjóðargjöf Norð- manna til íslend- inga í tilefni þús- und ára kristni- tökuaimælis á íslandi. Athöfnin fer fram á vegum forsætisráðuneytis en Davíð Oddsson forsætisráðherra tekur við þjóðargjöfinni. Dagur greindi frá. Engin áhrif Að sögn starfsmanns hjá fyrir- tækinu X-18 hefur það ekki mikil áhrif á reksturinn að einn af hönn- uðum þess hafl látið af störfum á dögunum, en deildar meiningar hafa verið um hvort atvikið veiki stöðu fyrirtækisins á hlutabréfa- markaði. Vísir.is greindi frá. Sviptur sjálfræöi Hæstiréttur hefur fallist á kröfu um að hálfsextugur maður á Akur- eyri verði sviptur sjálfræði í 6 mán- uði enda sé hann ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum vegna geðsjúkdóms. Dagur greindi frá. Mikiö um íkveikjur Tilkynnt hefur verið um íkveikj- ur á höfuðborgarsvæðinu þrisvar sinnum undanfarna daga. Lögregl- an hefur ekki fundið neinn sem hef- ur viðurkennt að bera ábyrgö á íkveikjunum, en talið er að krakkar beri ábyrgð á tveimur atvikanna. Vísir.is greindi frá. Hlutafjáraukning Hlutafé Landsbankans verður aukið um liðlega 350 milljónir króna á næstunni með útgáfu nýrra hlutabréfa, samkvæmt samþykki hluthafafundar bankans fyrr í dag. Þá hefur einnig veriö ákveðið að gengi nýju hlutanna verði 4,2 og er því markaðsvirði þeirra um 1,5 milljarður. Það fé sem verður aflað með nýju hlutafjárútboöi verður meðal annars notað til að greiða fyr- ir 70% hlut í First Union Bank sem Landsbankinn festi nýlega kaup á. Vísir.is greindi frá. Á batavegi Konan sem slasaðist í alvarlegu bílslysi við Reyðarfjörð á mánudag- inn hefur verið útskrifuð af gjör- gæsludeild og er aö sögn læknis á góðum batavegi. Mbl.is greindi frá. -ÓRV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.