Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2000, Blaðsíða 8
8
Útlönd
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
DV
Bjargað úr gíslingu
Gabriela Hagger frá Sviss í örmum
grísks strandgæslumanns.
Strandgæslan
skaut til bana
mannræningja
Grískir strandgæslumenn skutu í
gær til bana byssumann sem hafði
hótað að drepa svissnesk hjón, þrjú
börn þeirra og grískan skipstjóra.
Svissneska fjölskyldan og
skipstjórinn sluppu öll ómeidd.
Byssumaðurinn kom um borð í
skútu fjölskyldunnar í Naflpio
snemma í gær. Hótaði hann að
skjóta Svisslendingana og
skipstjórann yrði ekki siglt með
hann til Casablanca í Marokkó.
Fjölskyldan hafði tekið skútuna á
leigu til að sigla á um gríska
eyjahafið. Að sögn strandgæslunnar
fannst fjölskyldan læst í káetum
sínum er björgunarmenn komu um
borð.
Hærri laun draga
úr reykingum
Launahækkanir hafa haft meiri
áhrif á minnkun reykinga en háir
tóbaksskattar og reglugerðir gegn
reykingum. Þetta kemur fram í
könnun sem gerð var fyrir Fraser
Institute-hugmyndabankann í
Kanada.
Þeir sem fá hærri laun eru lík-
legri til að hætta reykingum svo
þeir geti notið aukinna tekna sinna,
er niðurstaða könnunarinnar. Að-
standendur hennar segjast þó ekki
vera að mæla gegn hærri tóbaks-
sköttum og reglugerðum gegn reyk-
ingum. Tóbaksvarnanefnd í Kanada
vísar á bug niðurstöðum rannsókn-
arinnar.
Dick Cheney
Varaforsetaefni repúblikana og
fyrrverandi varnarmálaráöherra.
Kallar Cheney úlf
í sauðargæru
Mannréttindafrömuðurinn Jesse
Jackson i Bandaríkjunum kallaði í
gær Dick Cheney, varaforsetaefni
repúblikana, öfgamann og sagði
augljóst að George Bush, ríkisstjóri
í Texas og forsetaefni repúblikana,
tæki stefnuna lengst til hægri. Þar
með yrðu minnihlutahópar og aðrir
hunsaðir.
„Jesús varaði okkur við úlfum í
sauðargærum," sagði Jackson og
benti á að Cheney hefði meðal
annars greitt atkvæði gegn jöfnum
réttindum fyrir konur og gegn því
að Mandela yrði frelsaður.
Hugsanleg ástæða Concorde-flugslyssins:
Stuttar fréttir
Varahlutur vit-
laust settur í
Flugmálasérfræðingar sögðu í
gær að athygli rannsóknarmanna á
tildrögum Concorde-flugslyssins
skammt frá Charles de Gaulle flug-
vellinum við París i gær, þar sem
113 manns létust, yrði einkum beint
að viðgerðinni á flugvélarmótor nr.
2 sem fram fór skömmu áður en vél-
in fór í loftið. Sögðu þeir einnig að
að grunur léki á að vélarbilunin
tengdist því að nýjar loftbremsur,
eða knývendir, hefðu ekki verið
settur rétt í og þ.a.l. orsakað að
stýrikerfi vélarinnar datt út.
Strax við flugtak var ljóst að eitt-
hvað var að og virðist sem vantað
hafi upp á kraftinn við flugtak.
Flugvirki sem á sínum tíma starfaði
við Concorde-vélamar leiddi líkur
að því að vitlaus ísetning knývend-
is hefði getað orsakað að ógurlegur
hiti frá útblæstrinum átti greiða
leiö að eldsneytistönkum vélarinnar
sem aftur orsakaði brunann.
Hinna látnu mlnnst
Minningarathöfn í Gonesse í gær.
Talsmaður Concorde hjá Air
France-flugfélaginu sagði að flug-
stjóri vélarinnar hefði beðið um að
skipt yrði um varahlut i vélinni
skömmu áður en hún fór í loftið.
Flugmaðurinn hafði veitt því at-
hygli á mánudag eftir komuna til
Parísar frá New York að knývendir-
inn í flugvélarmótor nr. 2 virkaði
ekki sem skyldi en það veldur því
m.a. að vélin á erfiðara með að
hægja á sér við lendingu. Varahlut-
urinn var ekki til taks á mánudag
og samkvæmt mati flugvirkja var
ekki nauðsynlegt að skipta um hann
heldur og flugvélin fullkomlega
flughæf. Skömmu fyrir flugtak tók
flugstjórinn hins vegar þá afdrifa-
ríku ákvörðun að láta skipta um
knývendi en sú viðgerð tók eki
nema um 30 mínútur.
Enn hefur ekki tekist að finna öll
líkin í rústunum en alls hafa 105 lík
fundist.
Herinn burt!
Reiöir mótmælendur í Suöur-Kóreu, þ.á m. bændur sem eru andvígir innflutningi á erlendum landbúnaöarvörum ,
lentu í átökum viö iögregiu í fyrradag er þeir mótmæltu veru Bandaríkjahers á Kóreuskaga.
Speight hnepptur í varðhald
og ófriður á Fídjí magnast
Uppreisnarmenn á Fídjí tóku um
40 indverskættaða Fídjíbúa í bæn-
um Labasa í gíslingu um skamma
hríð fyrr í dag. Róstur á Fídjí í dag
og í gær koma í kjölfar handtöku
uppreisnarleiðtogans George
Speight, að þvi er fram kom í yfir-
lýsingu lögreglu- og hermálayfir-
valda i dag.
„Þeir rændu þeim og fóru með þá
í herbúðirnar,“ sagði talsmaður lög-
reglu en uppreisnarmenn hafa hald-
ið umræddum herbúðum síðastliðn-
ar 3 vikur. Gíslunum var hins veg-
ar sleppt skömmu síðar.
íbúar í Labasa, á annarri stærstu
eyju Fídjí eyja, Vanua Levu, voru
varaðir við því að vera á ferli á göt-
um úti þar sem um 50 vopnaðir
uppreisnarmenn gengu fylktu liði.
Skothljóð mátti heyra á götum úti
og tveir menn flugfélagsins Air Fiji
Upplausnarástand
Hermenn á Fídjí standa vörö.
voru teknir í gíslingu af upreisnar-
mönnum.
Speight ásamt 300 öðrum
fylgismönnum sínum sitja nú í
varðhaldi eftir að herinn handtók
þá síðdegis í gær. Speight hefur að
undanfórnu sett sig upp á móti vali
á nýjum forsætisráðherra eyjanna,
Laisenia Qasare, sem hann telur
hallast um of á sveif með ind-
verskættuðum Fídjíbúum. Eins og
kunnugt er vill Speight auka völd
Fídjíættaðra Fídjíbúa og hefur lagt
á það mikla áherslu að farið verði
að kröfum uppreisnarmanna og
þeir hafðir með í ráðum í vali á
nýrri ríkisstjórn eyjanna.
Hermálayfirvöld tóku hins vegar
ákvörðun um að handtaka Speight
og er hugsanlegt að hann verði
sóttur til saka fyrir landráð en við
þvi liggur dauðarefsing.
Nýjar uppljóstranir
Bresk blöð
greindu frá því i
morgun að sam-
kvæmt nýjum leka
hefði Tony Blair,
forsætisráðherra
Bretlands, og stjóm
hans hallast að inn-
göngu í evrópska myntbandalagið.
Blaðamaður fangelsaður
Herdómstóll í Júgóslavíu dæmdi í
gær serbneskan blaðamann í 7 ára
fangelsi fyrir meintar njósnir og
dreifmgu rangra upplýsinga. blaða-
maðurinn, sem starfaði á óháðu
dagblaði, skrifaði meðal annars um
störf öryggislögreglunnar og mót-
mæli júgóslavneskra hermanna í
Kraljevo í fyrrasumar.
Uðagigt af kaffldrykkju
Finnskir vísindamenn segja að
mikil kaffidrykkja auki hættu á
liðagigt. Finnar drekka mest kaffi
allra í heimi og næstir koma Svíar.
Liðagigt er algengari í Skandinavíu
en annars staðar á Norðurlöndum.
Kaffi verndar hins vegar gegn Park-
insonveiki.
Fjármálafurstar til Pútíns
Háttsettur rússneskur bankamað-
ur sagði í gær að viðræður Vladimirs
Pútíns Rússlandsforseta og fjármálaf-
ursta myndu snúast um hvernig
vernda mætti fyrirtæki gegn ofsókn-
um lögreglu. Búist er við að umræð-
urnar fari fram á morgun.
Fatlaðir í vinnu
Bill Clinton
Bandaríkjaforseti
hvatti í gær alríkis-
stjórnir Bandaríkj-
anna til að veita 100
þúsund fotluðum
atvinnu á næstu
fimm árum. Clinton
flutti ávarp á 10 ára
afmæli samtaka fatlaðra.
Blanda sér í mál Dana
Breski íhaldsflokkurinn var í gær
sakaður um ihlutun í fyrirhugaða
þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna i
Danmörku.
Eldur í jarðgöngum
Frejusgöngunum á milli Ítalíu og
Frakklands var lokað í gær í 9
klukkustundir vegna elds í vöru-
flutningabíl. Enginn slasaðist af
völdum eldsins.
Fallið frá ákæru
Fallið hefur verið
frá ákæru á hendur
rússneska flöl-
miðlakónginum
Vladimir Gusinsky,
að því er talsmaður
hans greindi frá í
morgun. Gusinsky
var sakaður um
fjársvik. Yfirvöld vísuðu þvi á bug
að rannsókn á starfsemi Gusinskys
væri af pólitískum toga.
Viðskiptabanni mótmælt
Fidel Castro Kúbuforseti fór fyrir
göngu 1 milljónar Kúbumanna í
gær sem mótmælti viðskiptaþving-
unum. Castro sagði ekki nóg að
aflétta hluta bannsins. „Hvernig
getur land keypt eitthvað ef það
getur ekki selt neitt,“ sagði
forsetinn í ræðu í gær.