Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2000, Blaðsíða 28
Opel Vectra FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 Harður árekstur: Ökumaður ölvaður Ökumaður, sem er sterklega grunaður um ölvun við akstur, olli hörðum tveggja fólksbíla árekstri um klukkan 20 í gær- kvöldi á Suðurlandsveginum til 0- móts við Rauðhóla. Maðurinn, sem er fertugur, var á austurleið eftir veginum þegar hann beygði inn á afleggjara í veg fyrir bifreið fimmtugrar konu á vesturleið. Konan missti meðvitund viö áreksturinn en var komin til meðvitundar er lögregla og tækja- bíll slökkviliðsins mættu á stað- inn. Hún var með áverka á öxl- um, hnjám, mjöðm og baki og var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Hún var ekki talin í lífshættu. Hinn ölvaði var ekki í bílbelti og skall höfuð hans í framrúðu bíls hans við áreksturinn. Maður- inn gerðist mjög æstur eftir áreksturinn og var leiddur brott í ~*handjárnum af lögreglu sem flutti hann á slysadeild vegna höfuðá- verka hans og til þess að mæla áfengismagn í blóði mannsins. Báðir bilarnir voru óökufærir eftir atburðinn. Lögreglan í Reykjavík stöðvaði þrjá ökumenn í viðbót í nótt, grunaða um ölvun við akstur. -SMK Islenski draumurinn í Fókusi sem fylgir DV á morgun er að finna allt sem þú þarft að vita um verslunarmannahelgina og miklu meira til. Þórhallur Sverris- son ræðir um kvikmyndina ís- lenska drauminn sem byrjað er að sýna úr í bíói og ljósmyndarinn Magnús Unnar segir frá meikinu í London. Rut Reginalds er farin að vinna með stórstjömum úti í heimi og birt er kort af myndlistarsýning- unni á Hlemmi. Lífið eftir vinnu er blaðauki með Fókusi og þar finn- urðu allt sem þú þarft að vita um menningar- og skemmtanalífið og miklu meira til. DV-MYND INGÓ Haröur árekstur til móts viö Rauöhóla Ökumaöur, sem er grunaöur um ölvun, var handtekinn eftir aö hafa oröiö valdur að slysi á Suðurlandsveginum um áttaleytiö í gærkvöld. Ók hann bílnum sem er fjær og má sjá aö hann hefur lent meö höfuöiö í rúöunni. Bensínlækkun: Akvorðun i lausu lofti - óvænt hækkun á heimsmarkaði Verð á 95 oktana bensíni hækkaði óvænt um 7 dollara tonnið á Rotter- dammarkaði í gærkvöld. Þessi sveifla gerir það að verkum að ákvörðun um lækkun á bensínverði hér er í lausu lofti, að sögn Magnús- ar Ásgeirssonar, vörustjóra elds- neytis hjá Essó. Magnús sagði við DV í morgun að bensín myndi þó örugglega lækka i verði 1. ágúst nk. Bensinverð i nágrannalöndunum hefur farið hríðlækkandi á síðustu vikum. 95 oktana bensín í Svíþjóð hefur lækkað fimm sinnum í þess- um mánuði. Búist var við enn einni lækkuninni í dag. Þetta stafaði af því að verð á 95 oktana bensíni á Rotterdammarkaði hefði hrapað í verði úr 400 dollurum tonnið þegar það var hæst niður í 285 dollara í fyrradag. Bensínverð hjá danska Shell hef- ur lækkað þrisvar í þessum mán- uði. „Skýringin á þessum öru verð- breytingum í Svíþjóð og Danmörku eru að þeir eru svo nálægt olíu- hreinsunarstöðvum og þurfa að halda birgðir til miklu skemmri tíma,“ sagði Magnús. „Við kaupum inn hingað einu sinni í mánuði og byggjum birgðaverð á meöaltali mánaðarins. -JSS Vonbrigði vegna lokunar íslenskrar miðlunar á Vestfjörðum: Höldum áfram að berjast - forráöamenn fyrirtækisins gefa sér 2-3 vikur „Við höfðum væntingar um að auðveldara yrði að afla verkefna, en við munum halda áfram að berjast," sagði Óðinn Gestsson, einn stjómar- manna íslenskrar miðlunar eftir fund forráðamanna fyrirtækisins í gær vegna lokunar íjögurra útibúa á Vestfjörðum vegna vangoldinna vörsluskatta. Um er að ræða útibú- in á Þingeyri, Isafirði, Bolungarvík og Suðureyri. Óli Lúðvík Magnús- son, skrifstofustjóri sýslumanns- embættisins á ísafirði, kvaðst ekki vilja gefa upp um hve háar upphæð- ir væri að ræða. Lokunin hefur valdið miklum vonbrigðum á um- ræddum stöðum. „Við munum halda áfram að hnýta þessa hnúta sem á eftir að hnýta,“ sagði Óðinn. „Við gefum okkur 2-3 vikur til þess að klára það. Miðað við þær viðtökur sem við höfum fengið hjá þeim aðilum sem við skuldum peninga, þá er full ástæða til þess að vera nokkuð bjartsýnn." Óðinn sagöi að í dag lægju fyrir undirritaðir samningar sem tryggðu að 12 störf væru nú við dag- vaktir fyrir vestan. Kvöldvinna hefði verið næg. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á ísafirði, sagði útibúin á norðan- verðum Vestfjörðum hefðu mest tekið við 40-50 manns. Það hefði hjálpað til því álíka fjöldi hefði á þeim tíma verið að missa vinnu í frystihúsum. „Fólk lagði í þetta hlutafé. Við skildum þetta þannig að það lægi fyrir mikið af verkefnum sem þyrfti að vinna,“ sagði Halldór. „Okkur hefur raunar skilist það að enn séu þama verkefni fyrir hendi og að þeim muni fjölga. Ég er ekki búinn að gefa upp vonina. Ég hef fulla trú á því að þetta sé hægt, hvaða form sem verður á því.“ -JSS Enn færir Jónína Ben. út kvíarnar: Risalíkamsrækt í Austurstræti - i staö 700 manna skemmtistaðar Líkamsræktarfrömuðurinn Jón- ína Benediktsdóttir opnar innan skamms nýja líkamsræktarstöð í nýbyggingu þeirri í Austurstræti sem átti að hýsa einn stærsta skemmtistað landsins. Þær fyrir- ætlanir hafa verið slegnar af og í staðinn kemur Jónína og bætir þar með sjöttu líkamsræktarstöðinni i safn sitt. „Ég er einnig að opna nýja stöð í Skipholti 50 þar sem Máttur var áður til húsa og Sóknarkonur æfðu leikfimi," sagði Jónína Benedikts- dóttir í gær. „Sú stöð kemur til með að heita Planet Pulse heilsu- skólinn og veröur fyrir fólk með sérþarfir, of þung böm, svo og sjúkraþjálfun." Alþingi hefur sem kunnugt er leigt efri hæðir nýbyggingarinnar í Austurstræti, sem einnig snýr út að Austurvelli, fyrir skifstofur þingmanna en Jónína yfirtekur allt það svæði sem ætlað hafði verið fyrir skemmtistað. Opnun þessara tveggja líkamsræktarstöðva er lið- ur í þriggja ára áætlun Jónínu um að eignast 15 líkamsræktarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og sameina þær í rekstri undir heitinu Planet Pulse. -EIR Jónína Ben. Hún er á leiö í Austurstrætiö. Sleipnisdeilan óleyst Fundað var í Sleipnisdeilunni frá klukkan 10 til 15 í gærdag en enginn árangur náðist. Næsti fundur hefur verið boðaður 1. ágúst klukkan 10 en verkfalli Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis var frestað til 12. ágúst fyr- ir rúmri viku til bjargar ferðaþjón- ustunni en lítið hefur gengið í samningaviðræðum félagsins við Samtök atvinnulifsins síöan þá. ____________________jtr Bílvelta á Vest- urhópsvegi ítölsk hjón voru flutt á sjúkrahús- ið á Akranesi í kjölfar bílveltu eftir að ökumaðurinn missti stjóm á bíl þeirra á Vesturhópsvegi við Grund- ará skammt frá Breiðabóli í gær- morgun. Fólkið reyndist ekki mikið slasað en bíllinn er óökufær og var fluttur af slysstað með dráttarbif- reið. -SMK .. Selfoss: Olvaður maður ók rútu Lögreglan á Selfossi hafði af- skipti af ölvuðum manni sem hafði uppi ólæti í rútu skömmu eftir klukkan sjö í gærmorgim. Tókst að komast í bílstjórasætið og bakka rútunni nokkra metra. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, fór inn í rút- una þar sem hún var á bílastæði á Selfossi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru farþegar rútunnar fólk á leið til vinnu sinnar og átti maðurinn ekki samleið með því. Stympingar upphófust er bílstjór- inn og farþegarnir reyndu að koma manninum út úr rútunni. Það fór ekki betur en svo að maðurinn settist í bílstjórasætið og bakkaði rútunni stuttan spöl. Bílstjóranum og farþegum tókst þá að koma manninum út úr rútunni og hand- tók lögreglan hann á götu á Sel- fossi síðar sama morgun. Hann var vistaður í geymslum lögreglunnar þar til af honum rann. -SMK Tveggja vikna gæsluvarðhald Víðir Þorgeirsson, sem handtek- inn var á Keflavíkurflugvelli með um 5000 e-töflur í farangri sínum síðastliðinn mánudag, var úr- skurðaður í tveggja vikna gæslu- varðhald til 8. ágúst. Hann er 34 ára gamall Reykvíkingur. Þetta er annað mesta magn e-taflna sem fundist hefur á íslandi. Töflumar fundust við reglubundið flkniefna- eftirlit Tollgæslunnar i Leifsstöð. Pantið í tíma dajaiíÞjóíháM ú 8 FLUGFÉLAG ÍSLANDS 570 3030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.