Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2000
11
Fréttir
Góð afkoma Sparisjóðs Ólafsvíkur:
Fé veitt úr menningarsjóði
— veittir voru styrkir í ár fyrir 550.000 krónur
DV, ÓLAFSVÍK:
Aðalfundur Sparisjóðs Ólafsvíkur
var haldinn fyrir skömmu í himun
nýju og glæsilegu húsakynnum Hótel
Höfða í Ólafsvík. I máli Kristjáns
Hreinssonar sparisjóðsstjóra kom
fram að hagnaður sjóðsins á árinu
1999 nam 16,3 milljónum króna en
árið áður nam hann 6,9 miiljónum.
Arðsemi eigin fjár var því 15,2%,
samanborið við 8,3% arðsemi árið
áðim. Eigið fé Sparisjóðs Ólafsvíkur
nam 123,8 miiljónum króna í lok árs-
ins 1999 og hafði aukist rnn 22,4 millj-
ónir á einu ári.
Veittir voru styrkir úr Menningar-
sjóði Sparisjóðsins í ár fyrir 550.000 kr.
Brimilsvallakirkja fékk kr. 200.000
til viðhalds og endurbóta kirkjunnar.
Veronica Osterhammer söngkona
fékk kr. 50.000 til tónleikahalds, Fær-
eyskir dagar í Ólafsvik kr. 60.000,
Héraðssamband Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu kr. 40.000 vegna
þátttöku í unglingalandsmóti UMFÍ á
Tálknafirði í sumar og Áhugahópur
um fiskasafn í Ólafsvík fékk kr.
100.000. Þá fékk sameiginleg umsókn
Rotaryklúbbs Ólafsvíkur, Lions-
klúbbs Ólafsvikur, Lionsklúbbsins
Ránar, Kvenfélags Ólafsvíkur,
Kiwanisklúbbsins Korra og Skóg-
ræktarfélags Ólafsvíkur kr. 100.000 til
trjáræktar í Ólafsvík.
Styrkþegum var síðan boðið i
kvöldkaffi af stjórn Sparisjóðsins á
Hótel Höfða fyrir stuttu þar sen
styrkimir voru afhentir. Þetta er
fjórða árið sem styrkimir em veitt-
ir og upphæðin er alls um fiórar
milljónir króna. Styrkþegar þökk-
uðu stjóm sjóðsins þann góða hug
til þeirra sem vinna að hinum ýmsu
menningar- og framfaramálum í
Snæfellsbæ. Framlag þeirra spari-
sjóðsmanna í Ólafsvík er virðingar-
og þakkarvert og féð hefur víða
komið sér vel. -PSJ/HH
Utanborðsmótorar
YAMAHA
Stærðir: 2-250 Hö.
Gangvissir, öruggir
og endingargóðir
YAMAHA l$pi
Sími 568 104.4
Frá Húsafelli
Ferðaþjónustan á Húsafelli vill tryggja að ólætin, sem urðu á svæðinu fyrstu
helgina í júlí, endurtaki sig ekki.
Húsafell:
Aöeins fyrir fjolskyldur
- reynt að fyrirbyggja ólæti
Aðgangur að tjaldstæðunum í
Húsafelli verður takmarkaður um
verslunarmannahelgina. Þetta er
liður í viðleitni Ferðaþjónustunnar
á Húsafelli að tryggja að ólætin
sem urðu á svæðinu fyrstu helgina
í júlí endurtaki sig ekki. Eingöngu
þeir sem hafa pantað fyrir fram fá
aðgang að svæðinu og lögð verður
áhersla á að fá fiölskyldufólk til að
eyða verslunarmannahelginni í
Húsafelli. Til viðbótar við þá að-
stöðu sem fyrir var fyrir fiölskyld-
ur með böm er kominn svokallaður
hoppkastali á svæðið, auk þess sem
böm og unglingar undir 16 ára
aldri í fylgd með fullorðnum fá frítt
inn á tjaldstæðin. í samvinnu við
lögreglu og björgunarsveitina Ok
verður hliðgæsla allan sólarhring-
inn og samkvæmt upplýsingum frá
Ferðaþjónustunni á Húsafelli verð-
ur strangt tekið á brotum á um-
gengnisreglum á tjaldstæðunum.
I afsláttur
1 af allfl
30-40%
\&i
00ÍS33
Bæjarlind 6 • 200 Kópavogi • Sími: 554 6300