Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2000 Skoðun I>V Myndir þú nota öryggisbelti í rútu/strætó? Inga Jóhannesdóttir: Já, aö sjálfsögöu. Guðbjörg Halldórsdóttir: Já, þaö finnst mér sjálfsagt. Brynhildur Baróadóttir: Já, mér finnst aö þaö eigi aö gilda þaö sama um rútur og bifreiöar yfirhöfuö. Guðmundur Ólafsson: Mér finnst kominn tími á þetta öryggi. Evald Hansen: Mjög tímabært og ekki spurning, ég myndi nýta mér þetta. Guðmundur Bjarnarson: Kannski ekki í strætó en ég myndi nota öryggisbelti í rútu. Farsímar Get ég fullyrt aö ökumenn meö farsímann viö eyraö eru ekki allsgáöir ökumenn. Farsímafíklarnir Einar Ingvi Magnússon skrifar: Þegar ég tók bíl- próf fyrir 24 árum var ökunemum kennt að sá sem ekur ökutæki þurfi óskipta athygli við aksturinn. Honum bæri að vera ails- gáður undir stýri. í dag sjást öku- menn hins vegar ■■“■■■■“ með farsíma í annarri hendi og sígarettuna i hinni. Svo er gosdósin á milli fótanna og músíkin á fullu. Það er varla að þeir megi vera að því að keyra. Þar sem ég hef atvinnu við akstur strætisvagna hef ég ekki komist hjá því að kynnast umferðarmenning- unni í höfuðborginni til hins ýtrasta. Get ég fullyrt að ökumenn með farsímann við eyrað eru ekki allsgáðir ökumenn. Með farsímann í hendinni hef ég séð þá aka óvilj- „Með farsímann í hendinni hef ég séð þá aka óviljandi og í hugsunarleysi upp á gangstéttir, skrafa stoppaðir á grœnu Ijósi og aka síðan yfir á rauðu, lulla í hœga- gangi á Miklubrautinni með langa bílalest á eftir sér, keyra á og stansa úti á miðjum gatnamótum. “ andi og í hugsunarleysi upp á gang- stéttir, skrafa stoppaðir á grænu ljósi og aka síðan yfir á rauðu, lulla í hægagangi á Miklubrautinni með langa bílalest á eftir sér, keyra á og stansa úti á miðjum gatnamótum. Þeir eru stórvarasamir enda alls ekki með hugann við aksturinn. Eru þessi atvik einungis lítið brot af slíkum tilfellum sem eiga sér stað á hverjum degi i horginni. Það hefur lengi varðað við lög að aka bifreið undir áhrifúm áfengis af skiljanlegum ástæðum. Allsgáðir eiga menn að aka bifreið. En öku- menn með farsímann í hendinni eru ekki allsgáðir. Þeir eru hættulegir í umferðinni því þeir hafa oft ekki hugmynd um hvað þeir eru að gera. Ef menn vilja fá sér glas af góðu víni er ekki rétt að gera það undir stýri. Á sama hátt eiga símafiklam- ir að bíða með fíkn sína þar til þeir em búnir að aka sínu vélknúna ökutæki, ekki síður en áfengisunn- endur láta sopann bíða uns heim er komið. Fæst þessara símtala myndu teljast svo mikilvæg og aðkallandi að þau geti ekki beðið. Farsímafíkn- in er ekki ósvipuö drykkjusiðum ís- lendinga. Notkunin er eins og hjá verstu alkóhólistum. Gullegg forsetans B. Birgisdóttir skrífar: Mér hlýnaði um hjartarætumar þegar ég las um úrskurð Kjaradóms í blöðunum í morgun - gott til þess að vita aö forseti vor getur haldið áfram að lifa i vellystingum prag- tuglega, á meðan hinn almenni launþegi, sem má þakka fyrir að fá sem nemur 1/10 af launum forset- ans i brúttólaun, berst um á hæl og hnakka í örvæntingarfullri tilraun til þess að framfleyta sér og sínum. Þessi sami launþegi er oftar en ekki kominn í átthagafjötra skulda sem virðast vaxa hægt og bítandi. Per- sónulega þykir mér strembið að halda á floti einu heimili (síðan 22. júlí hefur ekki verið króna í budd- unni) en við lestur fréttarinnar skil „Þó svo að Ólafur taki við launum 10 til 15 íslenskra verkamanna einu sinni í mánuði efast ég ekki um að hann er sér vel meðvitandi um íslenskan raunveru- leika og mun þegar þar að kemur og vinna vel fyrir okkur hin..“ ég betur hvemig fyrrverandi forseti getur búið sér vegleg heimili í tveimur löndum. Núverandi forseti höndlaði (sem og fyrirrennarar hans) gulleggið þegar hann tók við embættinu því að hann fékk ekki bara vinnu sem hann hefur ánægju af (skyldi maður ætla - hann viil fjögur ár í viðbót) heldur varð hann sér úti um fjár- hagslegt öryggi og lúxus fram á síð- asta dag. Þó svo aö Ólafur taki við launum 10 til 15 íslenskra verka- manna einu sinni í mánuði efast ég ekki um að hann er sér vel meðvit- andi um íslenskan raunveruleika og mun þegar þar að kemur vinna vel fyrir okkur hin sem lesum heima í eldhúsi (með sultardropa í nefmu) um launin, ferðalögin og veitingam- ar í elítuveislunum. Óska ég honum gæfu og velfamaðar í framtíðinni og megi hann aldrei þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur (ég veit af eigin raun hversu slítandi það er). Dagfari Vandræði í góðæri Þetta er gáfulegt. Svona eins og að skipta á rjómatertu og rúnstykki. Dagfari er rétt búinn að ná sér eftir fréttimar af kvótahjónunum í Skeijafirði sem rifu 25 mllljóna króna einbýlishús vegna deilna við erfingja arkitekts hússins þeg- ar annað reiðarslag dynur á hon- um. Framkvæmdasljóri heilbrigð- iseftirlits Kópavogs er í standandi vandræðum með bíla sem fólk er að henda tvist og bast um bæinn. Klippir fólkið númerin af bílim- um og skilur þá eftir á bílastæð- um fjölbýlishúsa, við sundlaugar, strætisvagnaskýli eöa þá bara úti í hrauni. Framkvæmdastjórinn segir að þessir bílar skipti hund- ruðum og séu að verða eins og órjúf- anlegur hluti landslagsins í Kópavogi. Eins og var nú fallegt þar áður. Dagfari skilur svo sem vel erfingja arkitekts- ins sem teiknaði húsið sem rifið var í Skerja- firði. Eigendumir vildu sefja kínverskan hatt á upprunalegt þak hússins sem var flatt og breyta þar með hugverki arkitektsins sem aldrei hafði teiknað hús með kínversku þaki. Ekki vill Dag- fari að konunni sinni verði breytt i Kínverja eöa reiðhestinum sínum i belju. Dagfari skilur hins vegar alls ekki fólkið sem hendir bílunum sínum til að rýma fyrir nýjum í bílskúmum, sérstak- lega ekki eftir að hann sá myndir af bílunum í blööunum. Þama stóðu þrír eðalvagnar, númera- lausir, á bílastæði hjá aUs ókunnugu fólki: tveir amerískir Dodge og einn BMW. Þeir virtust í ágætu ásigkomulagi nema hvað á þá vantaði númerin. Nú veit Dagfari af eigin reynslu að amerískir bílar, og þá sérstaklega Dodge, duga í 20 ár ef þeir em bónaðir reglulega. Og frænka Dagfara segir honum að BMW dugi í 30 ár fái hann nóg af bensíni. Þessi sóun bílaeigenda í Kópa- vogi veldur að sjálfsögðu þenslu í þjóðfélaginu því um leið og búið er að henda bílunum em keyptir nýir, líklega litlar blikkdollur frá Asíu sem kosta 2 milljónir stykk- ið og duga í 3 ár. Þetta er gáfúlegt. Svona eins og að skipta á rjómatertu og rún- stykki. En svona er góðærið þegar allir eiga nóg af peningum. Dagfari er farinn að hlakka til kreppunnar þeg- ar fólk hættir að rífa einbýlishús og henda amer- ískum og þýskum eðalvögnum í tómstimdum sínum. Kvótaeigendur í Skeijafirði og bílaeigend- ur í Kópavogi verða að muna að það era ekki alltaf jólin. Sá dagur mun koma aö menn þiggja með þökkum einbýlishús með Dodge í heimreið- inni. En þá er það kannski of seint. Dagfari Ekki tyggjó heldur nammi Svana Guðmundsdóttir á Su&ureyri hringdi: Mig langaði að benda á í sam- bandi við fréttina um tyggigúmmíið sem breyttist í froðu uppi í baminu að ef þetta er Sorbits eins og er selt úti í Bandaríkjunum þá er þetta ekkert tyggigúmmí. Þetta eru bara töflur sem eiga að breytast í froðu, þetta virkar ekki ósvipað Alka- Seltzer. Þetta er bara gotterí og það er til meö allrahanda bragði, eins og tyggjó. Ef þetta er þannig þá er þetta bara misskilningur því þá er þetta ekki gallað tyggjó heldur nammi sem á að breytast í froðu. Tuðruspark í skylduáskrift Haraldur Guðnason skrifar: Á dögunum mddi „sjónvarp allra landsmanna", sem þeir þar á bæ nefna svo af alkunnu lítillæti, af dagskrá fréttum og öðra efni en sýndi þess í stað maraþontuðru- spark. Þótt yfirtuðrari RÚV segi að kannanir sýni að fólk sé ekki á móti þessum yfírgangi er lítt takandi mark á slíku. Hvemig fór sú könn- un fram? Skrifari hefur varla opnað ríkisimbann í mánuð en horft á fréttir Stöðvar 2 á besta fréttatíma. Þar gerðu fréttamenn jarðskjálftun- um sérlega góð skil. Maður hefur jafnvel saknað Söm og broshýra piltsins í „bamatímanum“. Nú er ekki spuming: Verði boltamafían látin ráða for í sjónvarpi RÚV þá verður að afnema skylduáskriftina. Styrki til háskólanáms Guðrún hringdi: Nú þegar styttist í að skólar hefj- ist á ný langar mig að benda há- skólanemum á að námslán em haggi sem þarf að borga til baka með himinháum vöxtum ámm sam- an. Hvemig væri að við háskóla- nemar gerðum nú almennilegar kröfur og krefðumst styrks sem ekki þarf að endurgreiða. Alls stað- ar á Norðurlöndum eiga háskóla- nemar kost á styrkjum af einhveiju tagi og mér flnnst út í hött að ísland sé svona eftir á. Góð sending Jóhanna hringdi: Það var óvænt en ánægjuleg sending sem mér barst kvöld eitt um daginn. Þá renndi pósturinn í hlað með pakka. í honum reyndist vera lítil taska með helsta skyndi- hjálparbúnaði sem nota þarf ef slys ber að höndum í heimahúsum. Þessi litla taska var send frá Trygg- ingamiðstöðinni til viðskiptavina. Ekki veit ég hvað öðrum kemur en hitt veit ég að þetta kemur í góðar þarfir á mínu heimili þar sem hvorki var til plástur né grisja, hvað þá annað. DVl Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa OV, Þverholti 11,105 Reykjavik. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.