Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Page 28
44
Tilvera
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2000
DV
Sirkus Agora á
Höfn í kvöld
Norski sirkusinn Agora er
væntanlegur til Hafnar í Homa-
firði í dag. í kvöld verður fyrri
sýning af tveimur á vegum
sirkussins og hefst hún klukkan
19. í sirkusnum starfa á þriðja
tug listamanna sem sýna hinar
ótrúlegustu listir eins og sirkus-
fólki er einu lagið. Sirkusinn hef-
ur verið á hringferð um landið og
er Höfn næstsíðasti áfangastað-
urinn í þetta skiptið en ferðinni
lýkur á Seyðisfirði á á miðviku-
dag.
Myndlist
i GÁLLERÍ ASH. VARMAHL'H)
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir opnaði
grafíksýningu um helgina í Gallerí
Ash, Varmahlíð, Skagafiröi. Sýning-
una nefnir hún Gáttir en myndefnið
er aðallega sótt í innbæinn á Akur-
eyri. Sjónarhornið er gluggar og dyr
(gáttir) sem gefa húsunum svip og
persónuleika. Sveinbjörg stofnaöi og
rekur Gallerí Svartfugl í Listagilinu á
Akureyri. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga og henni lýkur 11.
ágúst.
■ GALLERÍ HLEMMUR Hildur Jóns-
dóttir opnaði sýninguna Hlð góða,
vonda og Ijóta eðli náttúrunnar í
galleri@hlemmur.is í dag kl. 17.
Hún sýnir mjög nákvæmar trélita-
teikningar og vídeóverk af ýmsum
fyrirbærum náttúrunnar. Hildur hefur
á annað ár rannsakað garðinn og
eyðimörkina. Hún kemur fyrir í eigin
verkum sem eins konar sögumaður
eða „prestur" og mun tala á opnun-
inni um hið góða, vonda og Ijóta eðli
náttúrunnar. Hildur stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskólann ár-
in 1991-1994 og hefur verið nem-
andi við Hochschule fúr bildende
Kúnste-Hamburg frá árinu 1994.
Hún er búsett í Hamborg. Sýningin
er opin á sama tíma og galleríið.
■ GALLERÍ SÆVARS KARLS Lista
maðurinn Magnús Tumi Magnússon
opnaði þriðju einkasýningu sína um
helgina. Sýningin er í Galleríi Sæv-
ars Karls við Bankastræti og er oþin
á afgreiðslutíma verslunarinnar.
■ LISTHÚS ÓFEIGS Finnski gull-
smiðurinn, myndlistarmaðurinn og
iönhönnuðurinn Jouni Jápplnen opn-
aði um helgina sýningu á verkum
sínum í Llsthúsi Ófeigs að Skóla-
vörðustíg 5. Jouni er þekktur lista-
maður í heimalandi sínu og hefur
hann tekið sér margt fyrir hendur,
m.a. hönnunarráðgjóf fyrir iðnaðar-
framleiðslu, kvikmyndagerð, kennslu
í silfursmíði, myndlist, iönhönnun og
smíöi báta. Sýningin stendur til 9.
ágúst.
■ HANPRITASÝNING í Stofnun
Árna Magnússonar stendur nú yfir
handritasýning. Sýningin er opin
daglega frá 13 til 17. Unnt er að
panta sýningu utan reglulegs
sýningartíma sé þaö gert með dags
fýrirvara.
■ REYKJAVÍK í BRÉFLIM OG
DAGBOKUM Er yfirskrift sýningar í
Þjóðarbókhlöðu sem nú stendur yfir.
Þetta er sumarsýning þar sem
varpað er Ijósi á Reykjavík á 19. öld
og á fýrri hluta 20. aldar meö
serstakri áherslu á hlutskipti
íslenskra alþýðukvenna og um leiö
veröa kynntar á nýstárlegan hátt
þær heimildir sem varðveittar eru á
handritadeild Landsbókasafns.
Sjá nánar: liflð eftir vinnu á Vísl.is
Tíminn
fyllir hólf
og gólf
- hugsum okkur heim þar sem orsök
og afleiðing eru reikul í rásinni
Tomasar Lemarquis, syn-
ingu Dansleikhússins og
andauglýsingu Andaug-
lýsingafélagsins.
Tíminn er ekki magn
heldur eiginleiki, eins og
næturbjarminn '
yfir trján-
DV-MYND EINAR J.
Leiksýning Dansleikhússins.
Kristjan Leifur
Pálsson „ana-
lyser" og Brekl
Arnason Johnsen
auglýsingabrallarl.
Fjöllistahópurinn \
Hópur fólks var með
maraþoninnsetningu i
gamla ÍR-húsinu við
Túngötu um helgina.
Þar mátti meðal annars
berja augum innsetningu
Hoskuldur Ulfarsson
og Sölvi Blöndal úr Quarashi.
um þeg
ar tunglið er ný
komið yfir trjátopp
ana
Steingrímur Hallgrímsson „bjargvættur"
og Hlynur Pálsson úr Andauglýslngafélaginu ih. smmm
Bíógagnrýni
■
Kringlubíó/Saga-bió - Romeo Must Die: ++
Tölvuvædd slagsmál
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir
Nokkrum sinnum hafa litið dags-
ins ljós einkennilegar kvikmynda-
útgáfur af klassískum leikverkum
Wiiliams Shakespeares, en sjálfsagt
er engin eins langt frá uppruna sín-
um og Romeo Must Die sem að upp-
byggingu hefur Rómeó og Júlíu að
fyrirmynd. í stað Veronu er sögu-
sviðið Oakland í Bandaríkjunum og
segir í myndinni frá stríði tveggja
glæpamannafjölskyldna þar sem
öllu er fórnað til að halda völdum.
Þar með má segja að samlíkingunni
ljúki því það er í raun fátt annað
sem minnir á leikritið annað en
nafn myndarinnar og að það er ást
við fyrstu sýn þegar börn hinna
stríðandi leiðtoga hittast.
Önnur fjölskyldan er skipuð
skúrkum af kínversku bergi brotnu
og í henni eru svartir Ameríkanar.
Það er því fátt sem þessir tveir
flokkar sjá með sömu augum og nú
ætla flokkamir báðir að græða á
lóðabraski. Þegar sonur kínverska
leiðtogans er myrtur er fjandinn
laus, ekki bara í Oakland því í Hong
Kong situr bróðir þess látna i fang-
elsi. Þegar hann fréttir af dauða
bróður síns halda honum engin
bönd og hann brýst út út fangelsinu
og heldur í vesturvíking. Viti menn,
fyrsta manneskjan sem hann hittir
fyrir í Oakland er fögur dóttir hins
svarta leiðtoga og þar með er okkar
Rómeó búinn að finna sina Júlíu.
Segja má að Romeo Must Die sé
vel poppað kung fu. Tónlistin er
Hip-hop og rapp og hinar sérlega vel
útfærðu slagsmálasenur hafa að
hluta orðið til í tölvum. Vel heppn-
uð og skemmtileg atriði - og em
slagsmálin það besta við myndina.
Jet Li, sem fetar i fótspor landa síns
Jackie Chan hefur næga persónu-
töfra til að halda uppi myndinni.
Hann er greinilega mjög góður i
sinni slagsmálalist og fær verðuga
mótherja. Þó má segja að slagsmál-
in taki stundum á sig ballettformið
i þrautþjáifuðum sviðsetningum.
Hversu góður Jet Li er i sjálfs-
varnaríþróttum er erfitt að dæma
um þar sem kvikmyndatæknin eyk-
ur áhrifin. Aðrar persónur í mynd-
inni eru margar vel heppnaðar,
skemmtilegir karakter á borð við
þann feitlagna Maurice (Anthony
Anderson), en kómíkin í myndinni
er mest á hans kostnað.
Romeo Must Die er kannski of
poppuð til að falla hörðustu aðdá-
endum Bruce Lee og Jackie Chan i
geð, en er á köflum ágæt skemmtun.
Lelkstjóri: Andrzej Bartkowiak. Handrlt:
Mitchel Kapner og Eric Brent. Aðalleikar-
ar: Jet Li, Delroy Lindo, Aaliyah og Isaiah
Washinton.