Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
r>v
7
Fréttir
Skattakóngur ársins neitaði að skjóta söluhagnaði undan skattinum:
Vildi borga og vera frjáls
- segir Guðni Helgason, áttræður rafvirkjameistari
DV-MYND EINAR ÖRN JÓNSSON
Skattakóngurinn
„Ég er kominn meö krabbamein og á aö liggja á spítalanum en ég fór hingaö
heim því ég vil vera hjá mínu fólki, “ segir Guöni Helgason.
„Þetta eru engar tekjur heldur sölu-
hagnaður sem kom óvænt upp í hend-
umar á mér. Ég seldi húseign sem ég
hef barist við í áratugi og sem hefur
ekkert gefið af sér. Það hefur verið af-
skaplega erfitt að leigja hana og ekki
viðlit að selja hana þar til nú,“ segir
Guðni Helgason, rafvirkjameistari og
skattakóngur í Reykjavík að þessu
sinni.
Guðna, sem er áttræður að aldri og
berst nú við krabbamein, er gert að
greiða alls 49,8 miiljónir króna i tekju-
og eignaskatta, ríflega 17 milljónum
króna meira en sá sem næstur honum
kemur. Guðni segir tekjumar í fyrra
hafa verið vegna sölu húseignarinnar
og lóðarinnar að Borgartúni 25 til 27.
Hann segir söluhagnaðinn hafa verið
mikinn enda hafi eignin að mestu ver-
ið afskrifúð og fasteignaverð í há-
marki.
Vandræðagripur skilar arðl
Þótt Guðni hafi átt von á að honum
yrði gert að greiða áðumefhda upphæð
í opinbera sjóði segir hann það hafa
komið sér á óvart að skipa efsta sæti
skattakóngalistans. Margir reyndu að
forða fjármunum hans frá ríkissjóði en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
„Það var alltaf verið að segja við
mig að það væri ekkert vit í að vera að
borga þetta í skatta heldur ætti ég að
setja peningana í aðra eign og sleppa
við skattana. Þetta leika aðrir sér að
því að gera og það var reynt að inn-
prenta mér að það yrði ég að gera en
ég sagði bara nei. Ég hef verið með
þessa eign síðan 1967 og hún hefúr oft-
ast verið til vandræða. Það hefur verið
erfitt að leigja hana og oft hafa leigj-
endumir ekki borgað og kostað allra
handa vesen. Það er mannskemmandi
að standa f slíku. Ég varð áttræður í
janúar og þó ég eigi einhver ár eftir lif-
andi fer ég ekki að eyða þeim ölium í
að glíma við þá vitleysu sem ég er bú-
inn að standa í öll þessi ár - ég vil
heldur borga skattana og vera laus.
Rikið fær peningana og ég held að þeir
megi vera ánægðir þar. Ég fæ engin
ellilaun og ekki neitt. Ég er kominn
með krabbamein og á að liggja á spít-
alanum en ég fór hingað heim því ég
vil vera hjá minu fólki. En þetta er lífs-
ins lögmál og þýðir ekkert að tala um
það,“ segir Guðni.
Alltaf í skilum
Guðni vill ekki upplýsa hver keypti
eignir hans í Borgartúni. „Það er með
ólíkindum hvað byggt er og hvað æðið
er mikið í þjóðfélaginu og menn bjóða
hátt. En það er aðallega lóðin sem ver-
ið er að sækjast eftir og ég hugsa að
þeir brjóti allt hér niður og byggi
nýtt,“ segir hann.
Samkvæmt heimildum DV er það
Ingimundur hf. sem keypti af Guðna
en forráðamaður þess félags er Ár-
mann Friðrik Ármannsson.
„Fyrir örfáum árum voru menn að
tapa fasteignum út úr höndunum til
bankanna því það komu engar tekjur
inn á þær og þeir gátu ekki staðið í
skilum. En ég hef sem rafvirkjameist-
ari verið með menn í vinnu og haft
mjög góða viðskiptavini og það hefur
gengið vel alla tíð. Þannig að þó eignin
stæði ekki undir sér gat ég alltaf bjarg-
að málunum og hef reyndar ætíð stað-
ið í skilum við alla. Ég er ánægðastur
þegar ég er að borga mína reikninga
og er frjáls," segir Guðni Helgason,
skattakóngur höfuðborgarinnar í ár.
-GAR
Borgartún 25-27
„Þaö er aöallega lóöin sem veriö er aö sækjast eftir og ég hugsa aö þeir
brjóti allt hér niöur og byggi nýtt, “ segir skattakóngurinn sem vildi ekki
vera húseigandi lengur.
Skattakóngar í Reykjavík 2000 ÍTT^
- í þúsundum króna --------
Nafn tieuaargjoia Tdquskattur og sérst tekjuskattw Útsvar
1. Guönl Helgason 49.797 35.717 12.844
2. Jón Þór Jónsson 32.383 23.317 8.290
3. Hinrik Thorarensen 14.877 10.451 4.044
4. Sverrir Ólafsson 12.500 9.024 3.319
5. Svavar Björnsson 12.489 8.656 3.297
6. Kjartan Gunnarsson 12.169 10.518 779
7. Guömundur A. Birgisson 11.378 10.270 144
8. Ásberg K. Pétursson 11.201 10.040 356
9. Indriöi Pálsson 10.941 8.029 2.377
10. Ólafur Jónsson 10.300 9.237 382
11. Höröur Sigurgestsson 10.278 7.156 2.675
12. Kári Stefánsson 10.012 7.282 2.710
13. Sveinn Eyjólfsson 9.669 6.701 2.241
14. Kristinn Björnsson 9.330 6.595 2.277
15. Skúli Jóhannsson 9.310 6.537 2.407
16. Stefán Sigurkarlsson 8.966 6.413 2.239
17. Guömundur Júlíusson 8.744 6.092 2.239
18. Geir Magnússon 8.627 5.997 2.396
19. Þóröur Magnússon 8.612 6.989 1.215
20. Ágúst Baldursson 8.485 5.978 2.328
21. Þórarinn V. Þórarinsson 8.323 6.286 1.642
22. Gunnlaugur Geirsson 8.153 5.081 1.881
23. Sveinn Valfells 8.136 5.783 1.615
Skattakóngar Vestf jaröa:
Útgerðarmaðurinn efstur
- ljósmóöir hærri en yfirlæknir
Hinrik Vagnsson, útgerðarmaður í
Hnífsdal, greiðir hæstu skatta Vest-
flrðinga á þessu ári, samtals 7,5 millj-
ónir króna.
Næstur á eftir Hinriki er Marteinn
Gíslason, sjómaður í
Tálknafirði, með 5,9
milljóna króna heild-
arskatta.
Ásta Sigríður Gísla-
dóttir ljósmóðir á Pat-
reksfirði, greiðir 5,3
milljónir króna og Þor-
steinn Jóhannesson, yf-
irlæknir á ísafirði,
greiðir 4,9 milljónir.
í fimmta sæti er Ólafur Magnús-
son, skipstjóri á Patreksfirði, en hon-
um er gert að greiða 4,8 milljónir
króna í heildarskatta. -GAR
Skattakóngar á Vestfjörðum 2000 - í þúsundum króna
Nafn HeSdara'öld Útsvar
1. Hinrik Vagnsson 7.487 2.121
2. Marteinn Gíslason 5.934 1.699
3. Ásta Sigriöur Gísladóttir 5.332 1.565
4. Þorsteinn Jóhannesson 4.913 1.358
5. Ólafur Magnússon 4.798 1.373
10,0 mllljónlr
Kári
Stefánsson.
9,3 millljónlr
Kristinn
Björnsson.
8,6 milljónir
Geir
Magnússon.
8,3 milljónlr
Þórarinn V.
Þórarinsson.
Skattakóngar Reykjavíkur:
Rafvirki borgar mest
- múrari, brunavöröur og forstjórar stórfyrirtækja minna
Guðni Helgason raf-
virkjameistari greiðir 49,8
milljónir króna í opinber
gjöld og er skattahæsti ein-
staklingurinn í Reykjavik
samkvæmt nýrri álagning-
arskrá.
Næstur Guðna er Jón
Þór Jónsson, verslunar-
stjóri i Nóatúni, en honum
er gert að greiða 32,4 millj-
ónir króna. í þriðja sæti er
Hinrik Thorarensen fram-
kvæmdastjóri, sem greiðir
14,9 milljónir. Þá fylgir Sverrir Ólafs-
son rafmagnsverkfræðingur með 12,5
milljónir og í fimmta sæti listans yfir
skattakónga Reykjavíkur er Svavar
Bjömsson, en hann greiðir sömuleiðis
12,5 miUjónir.
32,3 mllljónlr
Jón ÞórJónsson
í Nóatúni.
í sjötta sæti listans er að
finna Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóra Sjálfstæð-
isflokksins, en hann á að
greiða 12,2 milljónir. í sjöunda
sæti er Guðmundur A. Birgis-
son, kenndur við Núpa i Ölf-
usi, með 11,4 miiljónir króna. I
áttunda sæti Ásberg Kristján
Pétursson, múrari og kvóta-
greifi úr Hnífsdal, meö 11,2
milijónir. Níundu hæstu
skatta ársins í Reykjavík
greiðir Indriði Pálsson, fyrr-
verandi stjómarformaður Eimskips og
fyrrverandi forstjóri Skeljungs, en
hann greiðir samtals 10,9 milljónir.
Fast á hæla Indriða
fylgja Ólafúr Jónsson
brunavörður og Hörður
Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, meö
10,3 milljónir í skatfa hvor en tólfta
sæti skattalistans skipar Kári Stefáns-
son, forstjóri íslenskrar erfðagreining-
ar, með 10,0 milljónir í skatta. Neðar á
listanum má m.a. annars firma olíufor-
stjórana Kristin Bjömsson hjá Skelj-
ungi með 9,7 milljóna skatta í 13. sæti
og Geir Magnússon hjá Esso með 8,6
milljónir í skatta í 18. sæti listans.
Að lokum má nefna að Þórarinn V.
Þórarinsson, forstjóri Landssímans,
greiðir 8,3 miRjónir króna í skatta og
skipar 21. sæti listans yfir mestu skatt-
greiðendur Reykjavíkur að þessu
sinni. -GAR
Skattar á Reykjanesi:
Apótekari borgar mest
Róbert Melax, lyflafræðingur í Kópavogi, greiðir hæstu
skatta einstaklinga í Reykjaneskjördæmi að þessu sinni en
álögð gjöld hjá honum eru 21 milljón króna.
Næstur á eftir Róbert er Stefán Þorvaldur Tómasson úr Hafn-
arfirði með 19,2 milljóna króna skatta en María Tómasdóttir úr
Garðabæ greiðir 16,4 milljónir,
Guðmundur Sævar Lárusson, sjómaður úr Grindavík, greið-
ir 12,4 milljónir króna og Eiríkur Sigurðsson á Seltjarnamesi á
að borga 11,2 milljónir. -GAR
Skattakóngar á Reykjanesi 2000
- í þúsundum króna
Nafn Heðdargjöld
1. Róbert Melax, Kópavogl 21.086
2. Stefán Þorvaldur Tómasson, Hafnarfirði 19.221
3. Maria Tómasdóttir, Garöabæ 16.376
4. Guðmundur Sævar Lárusson, Grindavík 12.332
5. Eiríkur Sigurðsson, Seltjarnarnesi 11.203
6. Pétur Björnsson, Garðabæ 11.117
7. Marta Sigriöur Björnsdóttir, Garöabæ 10.760
8. Benoný Þórhallsson, Grindavík 10.350
9. Jón tsfeld Karlsson, Garöabæ 10.124
10. Siguröur V. Sigurösson, Reykjanesbæ 9.744