Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2000, Qupperneq 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
Skoðun DV
Stundarðu líkamsrækt?
Sturla Hrafnsson framreiöslunemi:
Eins lítiö og ég mögulega get.
Dabbi Svarti, vinnur í tívolíi:
Nei, ég hef ekki tíma.
Ingþór Eyþórsson, vinnur í tívolíi:
Já, æfi fótbolta.
Anna Jónsdóttir nemi:
Já, svona tvisvar í viku.
Gunnhildur Gylfadóttir nemi:
Já, ég er í fimleikum.
Sigrún ívarsdóttir nemi:
Já, ég er í fimleikum.
Fakeppm
Erum viö virkiiega svona blinduö af neystuhyggjunni í góöærinu sem brátt tekurenda?
Verslum öll við Jónínu,
Jóa, Svövu og Bolla
Torfi
skrifar:__________________________
Ástæða þess að ég brýst fram á
ritvöllinn er að nú er nóg komið.
Hér verður að spyma við fótum.
Mér hefur lengi blöskrað sú þróun
sem verið hefur í gangi lengi í versl-
un og viðskiptum á landinu. Ég er
að tala um þá algjöru fákeppni og
einokun sem á markaðnum ríkir.
Nú er það svo að nær allar verslan-
ir og líkamsræktarstöðvar á Reykja-
víkursvæðinu tilheyra nokkrum
pörum. Vikulega berast fréttir af
sameiningu og kaupum á nýjum og
nýjum fyrirtækjum og alltaf er um
sömu kaupendur að ræða. Þeir ætla
ekki að nema staöar. Mikið vill
meira. Þeir eru löngu hættir að bera
hag neytenda fyrir brjósti heldur er
eitthvað annað sem dregur þá áfram
í kaupæðinu og yfirtökunum.
Tökum sem dæmi þriggja ára
áætlun Jónínu Benediktsdóttur lík-
amsræktarfrömuðar um að eignast
„Finnst einhverjum þetta
eðlilegt eða er öllum sama?
Erum við virkilega svona
blinduð af neysluhyggjunni
í góðœrinu sem brátt
tekur enda?“
allar stöðvar í Reykjavík og reka
undir einu og sama merki. Þetta er
henni að takast enda hafa verð-
hækkanir verið gífurlegar á við-
komandi stöðrnn upp á síðkastið.
Dæmi eru um að verð á líkamsrækt-
arkorti hafi tvöfaldast frá janúar til
júní á þessu ári. Þá er sami eigandi
að um 70% matvöruverslana og nær
allar verslanir með fatnað eru und-
ir sama hatt settar og skila einum
eiganda endalausum gróða. Nú er
svo komið að maður kemst ekki
lengur hjá því að versla við þann
aðila því hann á einfaldlega allt.
Finnst einhverjumþetta eðlilegt eða
er öllum sama? Erum við virkilega
svona blinduð af neysluhyggjunni í
góðærinu sem brátt tekur enda? Og
þá verður líka volæði og kreppa.
Ég er ósáttur viö umfjöllun fjöl-
miðla. Verkefni þeirra á að vera að
gagnrýna og draga hið rétta fram í
dagsljósið. Umfjöllun á að vera
hvöss og þjóna áhorfandanum. Þeir
eiga ekki að segja brosandi, smink-
aðir og sætir frá sameiningu í
upppoppuðum fréttatíma heldur
spyrja hvort þetta auki ekki fá-
keppni og skaði markaðinn. Maður
spyr sig lika hvar Samkeppnisstofn-
un sé og Neytendasamtökin. Eru
þessar stofnanir yfirleitt virkar?
Hafa þær kannski engin afskipti og
fljóta sofandi að feigðarósi, rétt eins
og almenningur? Það kemur að því
að við vöknum upp við vondan
draum þegar verðið rýkur upp úr
öllu valdi og þá veröur of seint að
grlpa í taumana.
Guð er karlkyns og kvenkyns
Guðfræðin deilir
orðið um það hvort
Guð sé karl eða
kona. Þannig held-
ur kvennakirkjan
því fram að Guð sé
kona á móti hinni
hefðbundnu skoð-
un að Guð sé karl
en i gegnum ald-
imar hafa kristnir
menn ávallt talað
um Guð sem
himneskan föður. Til að átta sig á
hinu rétta í málinu þarf fólk að
spyrja sig hvert sé eöli Guðs. Þá sjá-
um við að kvennakirkjan jafnt sem
hinir íhaldssömu þurfa að endur-
skoða kenningar sínar því Guð er
bæð karlkyns og kvenkyns.
„Þá sjáum við að kvenna-
kirkjan jafnt sem hinir
íhaldssömu þurfa að endur-
skoða kenningar sínar því
Guð er bœð karlkyns og
kvenkyns. “
í heilagri ritningu stendur skýrt
að Guð skapaði manninn í sinni
mynd, hann skapaði þau karl og
konu. Eðli Guðs er því tvíþætt (1.
Mósebók 1:27). Maðurinn er orðinn
sem einn af oss, segir í sömu bók.
Mannkynið er bæði karlkyns og
kvenkyns, þ.e. í Guðs mynd.
Þegar Jesús kom til jarðar kom
hann sem fullkominn maður og
ímynd Guðs. Hann kallaðist hinn
síðari Adam, áður en Adam féll. En
bæði Adam og Eva voru þá synd-
laus og áttu að byggja jörðina hrein-
um og guðlegum afkvæmum sem
væru ímynd Guðs.
Eftir fallið fór sú áætlun út um
þúfur þar til Jesús kom sem hinn
annar Adam. Sem fullkominn mað-
ur og fullkominn Guð, eins og guð-
fræðin segir hann vera, átti hann
einnig að uppfylla það hlutverk sem
Adam fékk frá Guði; að uppfylla
jörðina af afkvæmum. Til þess
þurfti hann aðra Evu en honum ent-
ist ekki aldur til þess þar sem hann
var krossfestur. Hefði hann lifað
hér á jörðu með konu sinni hefðu
þau alið af sér fullkomin böm, litla
Guði, ímynd Guðs.
Dagfari
Hákon er ekki um borð
„Mikið er gott að þú ert loksins kominn um borð
til okkar, Konni minn,“ sagði ílugfreyjan á Freydísi
hlýlega við kónginn sem var að fljúga til Islands
íyrir helgina ásamt drottningu sinni. Eða var þetta
um borð í Ásdísi? Ég bara man það ekki, minnis-
leysið er ættgengt í minni ætt, ætt konunga og
keisara samkvæmt nýjustu ættfræðivísindum. En
eins og nánast allir áttu að vita þá er Hákon enn
kóngur í Noregi og auðvitað var hann boðinn inni-
lega velkominn um borð í Flugleiðaþotuna á fóstu-
daginn. Ekki einu sinni, heldur tvisvar sinnum. Og
ekki bara á einu tungumáli, heldur tveimur. Dagfari
var auðvitað um borð í Freydísi, eða var það Védis?
Það fór einhver undarlegur ys og þys um flugvél-
ina þegar flugfreyjan bauð Konna frænda velkominn
um borð. Dagfara setti dreyrrauðan þegar hann
mundi skyndilega að síðasti Hákoninn hefði safnast
til feðra sinna fyrir svo sem fjörutíu árum. En svona
er þetta, maður man ekki nokkurn skapaðan hlut
stundinni lengur. Eða var flugfreyjan að bjóða ein-
hvem annan hinna átta Hákona Noregskonunga vel-
kominn um borð, Hákon Magnússon, Hákon mikla
eða Hákon góða??
Flugleiðir voru auðvitað að bjóða hans hátign, Há-
kon Noregskonung sjöunda, velkominn um borð I
Flugleiðaþotuna Freydísi. Freyjan sagði að hátignun-
um væri boðið í háflug í 40 þúsund feta hæð til ís-
Og ekki bara á einu tungumáli, held-
ur tveimur. Dagfari var auðvitað um
borð í Freydísi, eða var það Védís?
lands og bomar yrðu fram fomar samnorrænar veit-
ingar í trogum að hætti víkinganna á leið til sögu-
eyjarinnar. „Við biðjumst afsökunar á töfinni sem
varð á flugvellinum en hvað er hálfur sólarhringur á
milli vina? Því miður var búið að loka bakaríum i
nágrenni við flugvöllinn og terían í sumarfríi svo
ekki var hægt að bjóða upp á neinar veitingar, sem
var gott fyrir okkur en vont fyrir ykkur en við von-
um að vel hafi farið um ykkur á bekkjunum á Gar-
demoen."
Dagfari getur ekki lýst vandræðasvipnum á far-
þegunum þegar Hákon var enn og aftur boðinn vel-
kominn í kallkerfi vélarinnar, núna á ensku, lík-
lega vegna þess að Maud kona hans var ensk
prinsessa. Dagfari var fyrstur manna búinn að átta
sig á að Hákon frændi hans var ekki um borð. Fyr-
ir framan hann sat nefnilega Haraldur frændi hans
Ólafsson ásamt henni Sonju siiini. Það má Harald-
ur eiga að ekki var hann að erfa þetta við Flugleið-
ir, sat staðfastur, hélt fóstu taki um appelsínglasið
sitt og'lét sem ekkert væri þótt hann væri sagður
vera afi sinn. En ég gat ekki staðist mátið lengur,
reis hratt upp úr sætinu þótt sætisólin ætti að vera
spennt, snaraði mér fram í til flugstjórans og sagði
honum til syndanna. Áhöfnin varð vandræðaleg und-
ir skammaræðu minni. Ættin okkar Haraldar Nor-
egskonungs kann ekki að meta svona mistök.
Ætlun mín var að þegja yfir þessu hneyksli en
gula pressan komst í málið, Mogginn og Verdens
Gang. Það er ekki að spyrja að illgiminni. Það er nú
einu sinni „verdens gang“ að mismæla sig og mis-
minna. Og hvemig áttu flugfreyjurnar að muna hver
var hvað. Hákon Noregskonungur var nú bara
Bauni og konan hans Breti. Og Hákon hét ekkert Há-
kon, hann var danskur prins og hét Karl. Er það nú
fúrða þótt fólk ruglist á okkar góðu ætt.
L&gferi
Afnemum skyldu-
áskrift RÚV
Órn skrifar:
Nú afnemum við skylduáskrift-
ina að ríkisfjölmiðlunum. Þetta er
fyrirkomulag sem á ekki heima í
„nútímalegu“ vestrænu ríki. Ég vil
benda fólki á vefsíöu þar sem er að
finna undirskriftalista. Slóð síðunn-
ar er http://www.ang-
elfire.com/ut/antiruv. Þar gefst
fólki kostur á að tjá skoðanir sínar
á skylduáskrift að RÚV, t.d. með því
að taka þátt í undirskriftalista,
skoðanakönnunum og netspjalli.
Við krefjumst þess að skylduáskrift
sjónvarps- og útvarpseigenda að
Ríkisútvarpinu verði afnumin og að
rekstrarfyrirkomulagi þess verði
breytt þannig að það starfi og afli
sér tekna á sama grundvelli og önn-
ur fyrirtæki á fjölmiðlamarkaði á
íslandi, þ.e. einkavætt. í dag er
þetta tímaskekkja og ekki er um að
ræða sama öryggishlutverk og áður.
Það sýndi sig í nýafstöðnum skjálft-
Yndislegt svæöi
Fyrir göngu-, skauta- og
hjólafólk m.a.
Tóm hamingja
Helga hringdi:
Útivistarsvæðið við Ægisíðu og
úti í Nauthólsvík og þar í kring er til
stakrar fýrirmyndar og mig langar
til að þakka fyrir allt sem þama hef-
ur verið byggt upp að undanfömu.
Sá mikli fjöldi fólks sem þangað leit-
ar á hveijum degi er til marks um
það hve mikil þörf er á útivistar-
svæði sem þessu, með góðum mal-
bikuðum stígum fyrir hjólreiða- og
línuskautafólk, og ég vona að upp-
byggingin haldi áfram í sama dúr.
Tíðar bilanir hjá
Flugleiðum
Bjórn Óli hringdi:
Ég vil bara vita hvaö er að hjá
Flugleiðum. Eru allar þessar bilanir
eðlilegar og eru þær jafnvel fyrir-
boði einhvers enn verra? Ég þarf að
panta flug innan fárra daga og ætla
ekki að skipta við Flugleiðir. Fríinu
mínu eyði ég ekki í flugstöðvarbygg-
ingum svo sólarhringum skiptir.
Ust á Hlemmi
Svona eiga biöstöövar að vera.
Hlemmur bestur
Guórún skrifar:
Ég vildi lýsa yfir ánægju minni
með listsýninguna á Hlemmi. Þetta er
gott framtak, eins og Hlemmur er nú
oft óspennandi. Svona á að nýta hann
til að gera fólki biðina bærilega.
DVI Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyRjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.