Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
DV
Fréttir
Fimm sem voru sakfelldir í stóra fíkniefnamálinu áfrýjuðu dómum sínum:
Gæsluvarðhald
rennur út í dag
Gífurlegt magn fikniefna
Lagt var hald á mikið af eiturlyfjum i stóra fikniefnamáiinu svokallaöa en upp
komst stórfellt smygl í gámum skipafyrirtækis í september í fyrra.
Fimm af hinum 14 sakfelldu sem
hlutu dóm í stóra fíkniefnamálinu
svokallaða áfrýjuðu dómum sínum
til Hæstaréttar. Gunnlaugur Ingi-
bergsson, Júlíus Kristófer Eggerts-
son, Sverrir Þór Gunnarsson, Val-
garð Heiðar Kjartansson og Ingvar
Árni Ingvarsson áfrýjuðu dómum
sínum. Gunnlaugur var dæmdur í
fjögur og hálft ár í fangelsi og upp-
töku á tæpum 12 milljónum króna;
Július Kristófer var dæmdur í fimm
og hálfs árs fangavist og upptöku á
átta milljónum; Sverri Þór var gert
að sæta sjö og hálfs árs fangelsisvist
og upptöku á rúmri 21 milljón; Val-
garð Heiðar var dæmdur í þriggja
ára fangelsi og upptöku á 245 þús-
undum króna; og Ingvar Ámi var
dæmdur í tveggja og hálfs árs fang-
elsi.
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari
lagði fram gagnáfrýjun á þessa fimm
menn en áfrýjaði ekki öðrum dóm-
um. Hinir níu sem sakfelldir voru
eru byrjaðir að afplána dóma sína.
Alls voru 32 ákærðir í tengslum
við stórfellt fikniefnasmygl til ís-
lands í gámum Samskipa sem upp
komst í september í fyrra en þrír
hinna ákærðu voru starfsmenn
skipafélagsins. I næsta mánuði hefst
aðalmeðferð seinni hluta stóra
fíkniefnamálsins fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem héraðsdóms-
lögmaður og tannlæknir, ásamt 11
öðrum, hafa verið ákærðir fyrir
peningaþvætti og eiturlyfjamisferli
i tengslum við þetta sama mál.
Þrir af þeim sem áfrýjuðu dómum
sínum sitja enn í gæsluvarðhaldi.
Það rennur út í dag og sagði Kol-
brún í samtali við DV í gær að
áframhaldandi gæsluvarðhalds
verði krafist yfir þeim. Hinir tveir
biða ákvörðunar Hæstaréttar áður
en þeir byrja að afplána dóma sína.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
mál mannanna fimm verða tekift
fyrir í Hæstarétti en verið er að
undirbúa meðferð þeirra.
Andrés Ingibergsson kærði
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sér til
Mannréttindadómstóls Evrópu en
sætti sig við 15 mánaða fangelsis-
dóm og upptöku á 300.000 krónum
sem hann hlaut fyrir þátttöku sína í
eiturlyfjasmyglinu. Að sögn lög-
manns Andrésar er gæsluvarðhalds-
úrskurðurinn nú til meðferðar hjá
Mannréttindadómstólnum en ekki
hefur verið ákveðið hvenær aðal-
meðferð málsins fer fram. -SMK
„ Jarðskj álf tahús“:
Tilboð opnuð
í dag
Tilboð í 30 íbúðarhús, svokölluð
,jarðskjálftahús“ sem Fram-
kvæmdasýsla rikisins bauð út fyrir
hönd forsætis- og fjármálaráðuneyt-
isins, verða opnuð í dag. Húsin, sem
verða færanleg, á í upphafi að stað-
setja á þeim svæðum á Suðurlandi
sem harðast urðu úti í jarðskjálftun-
um þar í júni.
Þráinn Sigurðsson, deildarstjóri
hjá Framkvæmdasýslu ríkisins,
sagði við DV í gær að um væri að
ræða 75-80 fermetra heilsárshús og
svokallað „óhannað útboð“. Húsin á
að taka í notkun í nóvember og
vissulega finnst mörgum þau tíma-
mörk vera býsna þröng.
Þráinn viöurkenndi aö svo kynni
að vera, en hann sagði að óvíst væri
að öll tilboðin sem bærust mundu
innihalda boð um smíði allra hús-
anna, menn gætu allt eins boðið í
eitt hús.
Hann sagði að þegar á allt væri
litið ættu tímamörkin sem sett
heföu verið að standa.
Um það hvort smíði húsanna
hefði þurft að bjóða út á EES-svæð-
inu sagði Þráinn svo ails ekki vera,
til að svo væri þyrfti upphæð þess
sem verið væri að bjóða út að nema
um 500 milljónum króna eða þar um
bil og húsin þrjátíu yrðu ekki nærri
svo dýr. -gk
Riða kemur upp
í Skagafirði
DV. SKAGARRDl:
Riða hefur greinst í einni tveggja
vetra gamalli kind á bænum Mikla-
bæ í Óslandshlíð. Á þessum slóðum
hefur ekki komið upp riða í mörg
ár.
Síðast var fargað vegna veikinn-
ar í þessari sveit árið 1993. Því eru
mikil vonbrigði að veikin skuli
koma upp nú þar sem yfir tíu ár eru
síðan fjárbúskapur hófst á Miklabæ
eftir niðurskurð vegna veikinnar.
Að sögn Ólafs Vagnssonar, hér-
aðsdýralæknis á Norðurlandi, er
ekki farið að ræða um neinar sér-
stakar aðgerðir á þessu svæði en
ljóst er að öllu fé verður fargað á
Miklabæ í haust eins og raunar er
ávallt gert þar sem riðuveiki kemur
upp. -ÖÞ
DV-MYND KK
Viöeyjarsund
Fimm lögreglumenn syntu frá Viöey til lands í gær.
Hlunnfarnir viðskiptavinir fjárglæfrafyrirtækis fá óvæntan glaðning:
54 milljónir greiddar
- úr sjóðum Ávöxtunar eftir þrot fyrirtækisins
Fyrrverandi viðskiptavinir íjár-
festingarfyrirtækisins Ávöxtunar
hf. hafa nú óvænt fengið samtals 54
milljónir króna úr búi fyrirtækisins
tíu árum eftir að það komst i þrot.
Þar með hefur búið greitt ijárfestun-
um um tvo þriðju hluta nafnverðs
þess fjár sem þeir höfðu sett inn í
fjárglæframyllu fyrirtækisins á sin-
um tíma.
Viðskiptavinir Ávöxtunar hf.
fengu greiddar samtals 100 milljónir
króna á árinu 1990 af sérstakri
skilanefnd sem sett var á fót til að
gera fyrirtækið upp. Endanlegt
heildartap viðskiptavinanna mun
vera um 100 milljónir króna, miðað
við innborgað nafnverð. Segja má
að rauntapið sé þó miklum mun
meira vegna þeirrar ávöxtunar sem
viðskiptavinirnir hefðu ella geta
fengið á fé sitt hefði það verið fest í
tryggari eignum.
Málaferli og fasteignabasl
Þegar skilanefndin greiddi út áð-
umefndar 100 milljónir króna með
sérstöku láni frá Landsbanka ís-
lands á sínum tíma voru viðskipta-
vinum Ávöxtunar hf. ekki gefnar
vonir um frekari greiðslur og þeim
Ármann Símon Á.
Reynisson. Gunnarsson.
raunar ráðlagt að afskrifa þann
hluta fjárfestingar sinnar sem eftir
stóð. Það kom þvi mörgum af hin-
um um það bil eitt þúsund aðilum,
sem lýst höfðu kröfum í þrotabúið,
þægilega á óvart þegar þeim barst
ný greiösla fyrir skemmstu.
Símon Á. Gunnarsson er einn
þriggja manna sem eiga sæti í skila-
nefndinni.
Hann segir að þegar nefndar-
menn tóku til starfa hafi þeir veriö
svartsýnir á að eignir þrotabúsins
myndu standa undir ööru en Lands-
bankaláninu.
„Frá þessum tíma höfum við ver-
ið að breyta eignum og kröfum og
staðið í alls kyns stappi, meðal ann-
ars dómsmálum, til að gera sem
mest verðmæti úr þessu félagi. Það
sem hefur kannski teygt mest á mál-
inu voru málaferlin á sínum tíma
við sameignarfélagið Ávöxtun og
eins höfum við verið í basli með að
losa okkur viö fasteignir sem við
sátum uppi með,“ segir Simon.
Loforðin voru húmbúkk
Símon segir að þó að hann vilji
ekki meta hve raunverulegt heildar-
tjón viðskiptavina Ávöxtunar hafi
verið mikið hafi strax í upphafi ver-
ið ljóst að það yrði gríðarlegt.
„Menn geta skoðað þetta í sam-
hengi við lofaða ávöxtun sem var
auðvitað húmbúkk og á brauðfót-
um.
Peningamir höfðu farið inn í alls
kyns farvegi sem svona peningar
eiga aldrei að fara í, til dæmis í
rekstur bakarís í Keflavík og mat-
vöruverslun í Garðabæ. Það er ljóst
að bara af nafnverðinu tapast yfir
100 milljónir,“ segir Símon.
Fyrir utan að fá hina óvæntu
greiðslu geta fyrrverandi viðskipta-
vinir Ávöxtunar huggað sig við að
peningagreiðslan nú er að minnsta
kosti ekki skattlögð, enda fá menn
þar minna til baka en þeir lögðu
fram í upphafi. -GAR
Stuttar fréttir
Óska eftir lögreglurannsókn
Lögreglurann-
sókn mun fara fram
á flugslysinu í
Skerjaflrði, þar sem
fjórir fórust, að ósk
aðstandenda ann-
ars piltsins sem
liggur þungt hald-
inn eftir slysið.
Krafa um það verður samkvæmt
heimildum Dags lögð fram hjá
Böðvari Bragasyni, lögreglustjóra í
Reykjavík, í dag. Dagur greindi frá.
Nóg af kennurum
Vel gengur að ráða kennara til
starfa við flesta skóla á Norður-
landi. I Skagafirði er 10% aukning á
hlutfalli réttindakennara frá því á
síðasta skólaári. RÚV greindi frá.
Japönsk heimildamynd
Japanskir kvikmyndagerðar-
menn ætla að gera heimildamynd
um göngur á Víðidalstunguheiði.
í kvikmyndagerðarhópnum eru
þrír Japanir, túlkur og bílstjóri. Rú-
vak greindi frá.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út í nótt til aðstoðar við að
flytja sjúkling á sjúkrahús í Reykja-
vík. Kona á Höfn í Hornafirði fékk
hjartaáfall og ekki fékkst flugvél til
að flytja hana og því var kallað til
Gæslunnar. Mbl. greindi frá.
Stórfelld stækkun álvers
Einn af forstjórum Norsk Hydro
og stjómarformaður Reyðaráls
segja að stórfelld stækkun eins af ál-
verum fyrirtækisins í Noregi hafi
engin áhrif á áform Hydro um þátt-
töku í smíði nýs álvers í Reyðar-
firði. RÚV greindi frá.
Háskólanám á Suðurnesjum
Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum opnaði starfsemi sína í nýju
húsnæði í gamla bamaskólanum að
Skólavegi 1 í Keflavík, Reykjanes-
bæ, fyrir helgi. Háskólanám á Suð-
urnesjum er hafið. Víkurfréttir
greindu frá.
Aldamótaveisla við Arnarhól
Útgjöld vegna almennrar stjómar
ríkisins fyrstu sjö mánuði ársins
voru 21% hærri i ár en á sama tíma
í fyrra eða 6,6 milljarðar í stað 5,4
milljarða á sama tíma í fyrra. Dóm-
gæsla og löggæsla hafa einnig
hækkað drjúgum, um 12,5% milli
ára eða um hálfan milljarð í 4,4
milljarða. Dagur greindi frá.
Líkamsleifar af jökiinum
Tiu manna leiðangur hélt um há-
degisbil í gær að flaki breskrar
sprengjuflugvélar sem fórst á há-
lendinu milli Öxnadals og Eyjafjarð-
ar í maí árið 1941. Mbl. greindi frá.
Aka frekar til Reykjavíkur
Ekki virðast enn þá hafa risið há-
værar óánægjuraddir á landsbyggð-
inni í kjölfar hækkunar Flugfélags
íslands á fargjöldum í innanlands-
flugi en hins vegar virðist sem að
bíllinn veiti fluginu sífellt meiri
samkeppni. Þróunin á ísafirði er sú
að fólk keyrir sífellt meira til höfuð-
borgarsvæðisins. Mbl. greindi frá.
Reglur brotnar
Guðlaugur Þór
Þórðarson, einn
borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins,
hefur óskað eftir
því að borgarlög-
maður kanni hvort
Alfreð Þorsteins-
son, einn af borgar-
fulltrúum Reykjavikurlistans, hafi
brotið stjórnsýslulög þegar hann
vék ekki sæti á fundi stjómar Inn-
kaupastofnunar þar sem málefni
Línu.Nets voru til umræðu. Mbl.
greindi frá.