Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Blaðsíða 24
36 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 Tilvera I>V lí f iö f r i p y i n n u Tónleikar í , Straumi Tónleikar veröa haldnir í Straumi (litla bóndabænum við stóra álverið) í Hafnarfirði kl. 22.00 i kvöld. Þar verður flutt ný tónlist, islensk og erlend. Þeir sem fremja gjöminginn eru Þórunn Björns- dóttir, blokkflauta og fleira, Kjart- £in Guðnason, slagverk, Paivi Turpeinen, söngur, Valdimar K. Sigurjónsson, kontrabassi, ásamt Karen Maríu Jónsdóttur og Emi Elíasi Guðmundssyni. Flutningur- inn stendur yfir í um klukkustund. Klassík , ■ ÞRIÐJUDAGSTONLEIKAR I LAUGARNESINU I kvöld, kl. 20.30, verða Ijóöatónleikar í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar þar sem fram koma sópransöngkonan Erla Þór- ólfsdóttir og píanóleikarinn William Hancox. Á efnisskrá eru verk eftir Malcolm Williamson, Francis Pou- lenc, Richard Strauss og Hugo Wolf. Myndlist ■ ÞÝSK MYNDLIST Í GERÐAR- SAFNI I Gerðarsafni í Kópavogi er þessa dagana í gangi sýning á graf- íkverkum og skissum eftir 6 þýska 1 myndlistarmenn. Þessir listamenn, Otto Modersohn, Paula Modersohn- Becker, Fritz Mackensen, Hans am Ende, Fritz Overbeck og Heinrich Vogeler, lifðu allir sitt blómaskeiö á mörkum 19. og 20. aldarinnar. Þetta listafólk telst til fremstu lands- lagsmálara og áhugaverðustu lista- manna Þýskalands á þessum tíma. Sýningin er sett uþþ í samvinnu Goethe-Zentrum Reykjavík og Lista- safns Kópavogs. Hún er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 11-17 og henni lýkur sunnudaginn 17. september. ■ MÁLVERK FRÁ MARS Nú er í gangi málverkasýningu Williams K. Hartmanns í Odda. Sýningin er í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu um könnun heimskautasvæða og jökla á Mars sem haldin verður dag- ana 21.-25. ágúst. Sýningin, sem nefnist Rauða plánetan, er opin frá 09.00-22.00. Sýningunni lýkur 28. ágúst. Um sölusýningu er að ræöa. ■ KERAMIK OG LÁGMYNPIR j MAN Margrét R. Kjartansdóttir og Sigurborg Jóhannsdóttir sýna verk sín í listasalnum MAN aö Skóla- vöröustíg 14. Á sýningunni eru ker- amikverk og lágmyndir unnar í tré. Opið er á verslunartíma virka daga og milli klukkan 13 og 17 um helg- ar. Sýningin stendur til 29. ágúst. ■ ANNE KATRINE DOLVEN í 18 Þessa dagana sýnir norska listakon- an Anne Katrlne Dolven málverk og myndbandsverk sín í i8. Sýningin stendur til 10. september. Opið er fimmtudaga til sunnudaga frá 14-18. ■ BEZTI HLEMMUR í HEIMI 9 ÍS- lenskir myndlistarmenn auk erlendra gesta búa til listaverk fyrir sýning- una, sem samanstendur af Ijós- myndum, skúlptúrum, málverkum, Ijósi, hljóöi, gjörningum, vefsvæði og tónlist sem allt hefur tilvísun í um- hverfi og mannlíf Hlemms. ■ PAKKHÚSH) Á HÓFN í HORNAFIRÐI Fjórir listamenn sýna skúlptúr, lágmyndir og málverk dagana 17. ágúst til 3. september. Listamennirnir eru Inga Sigga Ragnarsdóttir, Fellcltas Gerstner, Jockel Heenes og Inga Jónsdóttir. ■ RAUÐAVATN 17 listamenn hafa sett upp útilistaverk við Rauðavatn. Reyndu aö finna þau. ■ LANDSVIRKJUN Tvær myndlistar- sýningar eru í orkustöðvum Lands- virkjunar til 15. seþtember. Annars vegar við Ljósafoss við Sogið og hins vegar í Laxárstöð í Aðaldal. Sjá nánar: Líflö eftlr vinnu á Vísi.is Skúli Nielsen rakari Á nýju rakarastofunni í Bolholti þurfa menn ekki lengur aö ganga í brakandi sloppum. Skúli Nielsen hefur klippt og rakað menn í tæp fimmtíu ár: Kunnu ekki að klippa sítt hár Skúli Nielsen hefur klippt og rakað menn í 47 ár. „Ég ætlaði aldrei að verða rakari. Það var ekki auðvelt að komast í nám og því gripu strákar tækifærið fegins hendi ef þeir komust í nám. Ég var að spá í siglingar og byrjaði því sem messagutti á Esjunni. Þegar ég kom í land eftir fýrsta túrinn fékk ég flensuna. Það var illa þokkað að maður gengi um götumar og gerði ekki neitt. Faðir minn Orla Nielsen, sem þá var rakari, sagði að það væri laus sloppur á rakarastofunni sinni svo ég skyldi bara prófa rakarastarf- ið,“ segir Skúli. Það gerði Skúli og eftir að hann lauk námi gerðist hann síðan meðeig- andi fóður síns, fyrst á Hverfisgötu en síðar opnuðu þeir rakarastofú í Heklu- húsinu inni á Laugavegi. „Við fengum boð um húsnæði þar en það þótti ekki mjög spennandi staður því hann var svo langt út úr. Við vildum því ekki sleppa hinni svo ég byijaði einn upp frá. Ári seinna var þetta orðið fimm manna stofa og önnur stærsta stofa Giftist sömu konunni aftur Hinn ástr- alski Mel Gibson hef- ur löngum haldið tryggð við fjölskylduna og það þrátt fyrir frægð, frama og kvennafans kvikmynda- heimsins. Gibson, sem er sjö bama faðir, veit fátt betra en að knúsa og kjassa bömin sín sem em á aldrin- um 14 mánaða til 19 ára. í nýjustu mynd sinni, The Patriot, lék hann einmitt sjö bama foður en reynslan úr daglega lífinu kom þar í góðar þarfir að eigin sögn. Mel er giftur Robyn Gibson og á síðasta afmælis- degi hennar ákváðu þau að gifta sig í annað sinn frammi fyrir bömun- um. Mel viðurkennir þó að stutt sé í töffarann. bæjarins. Við fluttum svo í Sjónvarps- húsið þegar Hekla þandist út,“ segir Skúli. Sinn eigin herra Þegar faðir Skúla hætti tók síðan við samstarf með öðrum rakara þang- að til í júlí síðastliðnum þegar Skúli ákvað að gerast sinn eigin herra aftur því hann var ekki tilbúinn að leggja skærin á hilluna. Miklar breytingar hafa orðið á faginu síðan Skúli byrjaði fyrst að klippa en ekkert breytti eins miklu og bítlatímabilið þegar karl- menn fóru að safna hári. „Þegar bítla- hárið kom til sögunnar varð að gripa til nýrra ráða og Meistarafélagið brá á það ráð að fá erlenda rakara til að kenna mönnum að klippa upp á nýtt. Menn þurftu að læra að klippa sítt hár. Þetta þjappaði félagsmönnum saman og varð til góða fyrir greinina," segir Skúli og bætir við að það sama hafi gerst þegar menn fóm að klippa af sér bítlahárið. Þeir sem lærðu á meðan tímabilið stóð yflr þurftu að læra að khppa stutt hár. „Herrar em í dag mun meðvitaðri um hártískuna og vilja því meira en klippingu, t.d. strip- ur og litun. Þeir gera líka meiri kröfúr um að hárið sé í lagi,“ segir Skúli. Þá er ekki lengur talað um rakara og hár- greiðsludömur heldur er fagið orðið það eitt og sama. Brakandi sloppar Rakstur var eitt af því sem menn fengu á rakarastofum áður fyrr, eins og nafn þeirra gaf til kynna. „Finir herramenn í bænum komu og létu raka sig tvisvar í viku en aðeins örfá- ir láta raka sig á stofu í dag. Eldri rak- arar kunna að raka en þeir yngri em ekki eins vanir því,“ segir Skúli og bætir þvi við að hann hafi samt ákveð- ið að kalla nýju stofuna rakarastofu. Fram til 1960 urðu rakarar að ganga í hvítum sloppum vegna heilbrigðiseft- irlitsins. „Þeir komu í heimsókn reglu- lega til að athuga með hreinlætið. Sloppamir vom hálfgerð pína, sérstak- lega á mánudagsmorgnum þvi þá komu þeir nýþvegnir og það brakaði í þeim því stífelsið var svo mikið Það var varla hægt að ná þeim í sundur og maður þurfti að fara í góða leikfimi áður til að komast í þá,“ segir Skúli. Hann segir að það sem honum líki best við starfið sé að þjóna viðskipta- mönnum sínum sem fléstir em karl- menn. Skúli á marga fasta kúnna sem hafa fylgt honum lengi og sumir hafa komið í stólinn til hans í fjörutíu ár og hann hefur klippt allt upp í fjóra ætt- liði í einu. „Slikir viðskiptavinir em mjög tryggir. Ég þarf ekki að spyrja þannig menn hvað þeir vilja, því ég veit hvað þeir viija,“ segir Skúh. Rak- arar era heilmiklir sálfræðingar, að mati hans, því mönnum fmnst gott að létta á sínum málum viö þá og tala stundum úm mál sem þeir myndu ekki einu sinni segja eiginkonunni frá.“ Svo opnar rakarinn sig líka stundum fyrir viðskiptavinunum en þegar rætt er um persónuleg mál em þau líka gleymd þegar dymar lokast,“ segir Skúli að lokum. -MÓ C. Zeta Jones á heimleið Velska stjaman Catherine Zeta Jones, unnusta kynlifsfíkhsins Michael Douglas, ætlar th Wales til þess að skira nýfæddan son sinn, Dylan Michael. Að sögn Jones vill hún einnig að amma hennar, sem er 84 ára og á bágt með að ferðast, fái tækifæri til þess að hitta langömmubamið sitt. Skírnin mun eiga sér stað í Clyne-kapehunni í Swansea, en þangað mun Jones oft hafa farið þegar hún var barn að aldri. Einkaþota bíður þess nú að mæðginin verði ferðbúin. mwmk ittMn mUTTJTF HllMli • iu’U il iitilm ■i ■i"iiii'ii. n „'in'j. ... 7!! § //íl(!í íj! ittiíim ■ ■; w mwv KClttJtj •*»»" ' Getur vel viö unaö David Beckham ætti aö geta vel við unaö þessa dagana. Nýveriö fór matvælaframleiöandinn Nestlé fram á þaö viö kappann aö hann myndi auglýsa fyrir þá morgunkornið þeirra, Shreddies. Taki hann tilboöinu mun hann hafa um sjö milljónir punda í árslaun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.