Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Blaðsíða 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 DV Schröder á ferð og flugi Þýskalandskanslari heimsótti skóla- börn viö upphaf feröalags síns um austurhéruö landsins í gær. Schröder segir austrið á eftir Gerhard Schröder Þýska- landskanslari viðurkenndi við upp- haf tveggja vikna ferðar um austur- hluta landsins að hann ætti enn langt í land með að ná þeim vestari, tíu árum eftir sameiningu þýsku ríkjanna. „Allir í vestrinu verða að skilja að það mun líða langur tími áður en við getum jafnað lífskjörin í austri og vestri. Aðstoðar sambandsstjóm- arinnar og samheldni héraðanna er þörf,“ sagði Schröder við frétta- menn. Margir óttast að mikið atvinnu- leysi í austurhluta Þýskalands hafi orðið til þess að hægriöfgamenn njóta þar vaxandi stuðnings. Vilja nýja samn- inga um Thule Sósíalíski þjóðarflokkurinn (SF) í Danmörku krefst þess að samning- urinn um ratsjárstöð Bandaríkja- manna í Thule á Grænlandi verði tekinn upp á nýtt svo heimamenn geti fengið neitunarvald um málefni sem varða utanríkis- og öryggismál. Núverandi samningur var gerður árið 1951. SF og grænlenskur systurflokkur hans, IA, hafa snúið bökum saman til að berjast gegn áformum Banda- ríkjamanna um að gera ratsjárstöð- ina í Thule að hluta væntanlegs eld- ílaugavamakerfis. Sendinefnd danskra og banda- rískra embættismanna kom til Nuuk í gær til að upplýsa græn- lensk stjómvöld um fyrirætlanim- ar. Heimastjórnin vill að leitað verði samþykkis Rússa. Ofbeldisalda ríður yfir N-írland: Breskir hermenn taka sér stöðu Breskir hermenn tóku sér aftur stöðu á götum Belfast í morgun til að koma í veg fyrir frekari blóðsút- hellingar í deilum kaþólikka og mótmælenda. Morð tveggja manna í Belfast í gærdag urðu til þess að gripiö var til þessara ráðstafana af bresku stjórninni til þess að vemda við- kvæmt friðarferli þar i landi. „Öll átök á götum úti hafa bein áhrif á friðarferlið," sagði Mitchel McLaughlin, formaður Sinn Fein, stjómmálaarms írska lýðveldis- hersins. Morðin komu í kjölfar deilna á milli þriggja hópa mótmælenda. Deilt er um landsvæði, stjómmál og persónuleg mál þeirra sem átt hafa í hlut. Talsmaður lögreglunnar í Belfast, Bill Stewart, sagði að mikil spenna væri í N-írlandi, en bjóst þó við því að aukinn fjöldi breskra hermanna á götum Belfast væri „tímabundið Á verði Breskir hermenn hafa nú tekiö sér stööu á götum Belfast til þess aö tryggja friöarferliö. ástand". Um helgina hafa tiu slasast í átökum og fjöldi húsa verið brenndur. Einnig var skotið á höfuðstöðvar tveggja stjómmála- flokka mótmælenda, UPD og PUP. Breski herinn hefur verið minna áberandi eftir undirritun friðar- samningsins sem kenndur er við fóstudaginn langa frá 1998. Herinn var þó kallaður til stuttlega í júlí það ár þegar sló í brýnu á milli deiluaðila. Þá haföi göngumönnum Óraníumanna var meinað að ganga í gegnum hverfl kaþólikka. John White, formaður Ulster- flokksins, sagði í viðtali við blaða- menn að ástandið væri að verða „al- gjörlega stjórnlaust“. Peter Mandelson, ráðherra N-ír- landsmála bresku stjórnarinnar, ræddi við blaðamenn í gær. „Enginn mun vinna og enginn hagnast á þessu (ástandi)," sagði Mandelson. „Við munum binda enda á þetta nú þegar.“ UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stillholti 16-18, Akranesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Akursbraut 22, efsta hæð, Akranesi, þingl. eig. Selma Guðmundsdóttir, Kristrún Guðmundsdóttir, Björgheiður Jónsdóttir og Bettý Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðir Banka- stræti 7, þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14,00,___________________________ Einigrund 13, Akranesi, þingl. eig. Einar Gíslason, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands hf., Akranesi, þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Garðabraut 2, hluti 0102, 73,81% heild- areignar, Akranesi, þingl. eig. Trípolí ehf, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Ferðamálasjóður, þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14,00,__________________ Garðabraut 45, hluti 0101, Akranesi, þingl. eig. Eyrún Sigríður Sigurðardóttir og Hjálmur Þorsteinn Sigurðsson, gerðar- beiðandi Akraneskaupstaður, þriðjudag- inn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Höfðabraut 1, hluti 0201, Akranesi, þingl. eig. Sigurður Þór Mýrdal Gunnarsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Höfðabraut 14, hluti 0402, Akranesi, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Akraness, gerðarbeiðandi lbúðalánasjóður, þriðju- daginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Höfðabraut 16, hluti 0301, Akranesi, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Akraness, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Höfðabraut 16, hlnti 0302, Akranesi, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Akraness, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, þriðju- daginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Kirkjubraut 12, Akranesi, þingl. eig; Mar- ía Jósefsdóttir, gerðarbeiðendur Ibúða- lánasjóður og Vátryggingafélag Islands hf., þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. Sóleyjargata 13, hluti 0102, Akranesi, þingl. eig. Erlingur Birgir Magnússon, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður og Líf- eyrissjóður Austurlands, þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14,00,________________ Vallarbraut 3, hluti 0304, Akranesi, þingl. eig. Bjöm Þór Reynisson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00.______________________ Vallarbraut 5, 1. hæð til hægri, Akranesi, þingl. eig. Tómas Friðjónsson, gerðar- beiðendur Búnaðarbanki fslands hf., Akranesi, og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00.____________________ Vallholt 11, efri hæð, Akranesi, þingl. eig. Þórdís Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, þriðjudaginn 29. ágúst 2000 kl. 14.00,____________ Vesturgata 71, rishæð, Akranesi, þingl. eig. Sigurður Hallgrímsson, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóður sjómanna, þriðjudag- inn 29. ágúst 2000 kl. 14.00. SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI Harry Potter loksins fundinn Ellefu ára breskur piltur, Daniel Radcliffe, sem hér er fýrir miöri mynd, hefur verið valinn til aö fara með hlutverk hins ástsæla Harrys Potters í fýrstu kvik- myndinni sem gerö verður eftir vinsælustu skáldsögum síöustu ára. Meö á myndinni eru þau sem fara meö hlutverk Rons og Hermione. George W. Bush vill styrkja her BNA: Herinn illa búinn A1 Gore, forsetafram- bjóðandi Demókrata í Bandaríkjunum (BNA), hefur nú tekið forystu í kosningaslagnum. Gore hefur nú forystu með 44 prósentustig, en George W. Bush, frambjóðandi repúblikana nýtur stuðnings 41 prósents kjósenda. Bush hefur deilt hart á Gore undanfama daga og segir hann bera ábyrgð á því að her Bandaríkjamanna sé nú verr búinn en nokkurn tíma fyrr. Bush telur herinn vera í niður- níðslu. Komist Bush til valda ætlar hann að beita sér fyrir því að her- menn fái launahækkun sem nemur 750 dollurum á ársgrundvelli. „Ég mun endurreisa ameríska herinn,“ sagði Bush þegar hann ávarpaði samtök hermanna í Milwaukee-fylki í gærkvöld. „Ég mun efna loforð okkar og verja vini okkar fyrir árásum. Ég mun ekki senda menn okkar í óvissuferðir, heldur þaulskipulagð- ar hernaðaraðgerðir," bætti Bush við. Talsmenn Gores segja að Bush muni ekki koma til með að hafa efni á þvi að hækka laun her- manna svo mikið. Samkvæmt útreikn- ingum þeirra munu skattalækkanir þær sem Bush hyggst beita sér fyrir hafa étið upp það sem eftir verður af tekjuafgangi rikis- sjóðs. Varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, William Cohen, sagði í gær að hann teldi herinn vera á uppleið, ekki niðurleið eins og Bush hefúr haldið fram. „Aldrei hefur verið jafn vel menntað fólk í hernum og nú. Þessu fólki á eftir að fjölga í framtíðinni," sagði Cohen. Sterkan her George W. Bush vill styrkja herinn til muna. Stuttar fréttir Aznar meðal syrgjenda José Maria Azn- ar, forsætisráð- herra Spánar, fór fyrir þúsundum syrgjenda í gær sem minntust sið- ustu tveggja fómar- lamba drápsher- ferðar ETA, sam- taka aðskilnaðarsinna Baska. Sam- tökin hafa verið sökuð um sex morð og fjölda árása frá miðjum júlí. Flugvélar saknað Svissnesk yfirvöld sendu tvær þyrlur í gær til að leita að smáflug- vél sem óttast er að hafi farist í Ölp- unum með fimm manns um borð. Flugvélin var á leið frá Ítalíu til Þýskalands. Óveður í aðsigi íbúar Taívans hafa margir hverj- ir lokað sig inni á heimilum sínum og búa sig undir komu fellisbylsins Bilis upp að suðausturströndinni. Ákveðnir að friðmælast Dennis Ross, sendimaður Banda- ríkjastjómar í Mið-Austurlöndum, sagði í gær að hann teldi að bæði ísraelar og Palestínumenn væru staðráðnir í að semja um frið en við- urkenndi að enn væri skoðanaá- greiningur milli þeirra. Þrír létust í rútuslysi Þrír létu liflð og sjö slösuðust mikið þegar langferðabíll og flutn- ingabíll lentu í árekstri nærri bæn- um Peterborough á Bretlandi í nótt. Del Ponte pirruð Carla del Ponte, aðalsaksóknari stríðsglæpadóm- stólsins fyrir fyrr- um Júgóslavíu, lét hafa eftir sér í gær að hún væri pirruð yfir því að hersveit- ir NATO hefðu ekki enn haft hendur í hári Radovans Karadzics, fyrrum leiðtoga Bosníu- Serba sem hefur verið ákærður fyr- ir stríösglæpi. Misnotað hryssur Dómstóll í Kaliforníu hefur dæmt mann í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðislega áreitni við hryssur. Maðurinn hafði atvinnu af því að selja hrossaeigendum gulrætur. Hættið að veiða hvali Fulltrúar fimmtán landa hafa hvatti Japani, sem borða þjóða mest af hvalkjöti, að hætta öllum hval- veiðum í vísindaskyni. Suharto fyrir rétt Hforseti Indónesíu, ir rétt í næstu viku til að svara til saka fyrir ásakanir um spillingu á áratuga- löngum harðstjóm- arvaldatíma sínum. Suharto hefur lýst yfir sakleysi sínu af öllum ákærum. Góðir strákar Bandaríska utanrikisráðuneytið og leyniþjónustan CIA hafa sýnt vilja til að aflétta leynd af skjölum um kúgun á valdatíma Augustos Pinochets, fyrrum einræðisherra í Chile, að sögn embættismanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.