Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
Fréttir I>V
Óvenjuhá tíðni manndrápa - eitt í mars, annað í apríl, þriðja í maí og fjórða í júlí:
Fjögur morð í rannsókn
Þrír rúmlega tvítugir karlmenn og
38 ára kona blða þess að lögregLu- og
dómskerfíð taki fýrir eða ljúki rann-
sóknum á fjórum aðskildum morðmál-
um á árinu sem öll beinast gegn við-
komandi fólki. Meintir verknaðir voru
framdir á tímabilinu frá 18. mars til 23.
júlí. Hér er um óvenjuhátt hlutfall
manndrápsmála að ræða hér á landi
enda höfðu slík afbrot verið framin að
meðaltali annað hvert ár á síðustu
tveimur áratugum. Á árinu 1999 voru
tvö manndráp framin, það fyrra á
Leifsgötu en hið síðara í Espigerði, og
er þeim báðum lokið með dómi.
Sonur grunaður um að
banaföður
Þann 5. september tekur Héraðs-
dómur Norðurlands fyrir mál ríkissak-
sóknara gegn Þórði Braga Jónssyni, 21
árs. Honum er gefið að sök að hafa orð-
ið valdur að þvi að faðir hans lést á
heimili þeirra að Bláhvammi í S-Þing-
eyjarsýslu þann 18. mars síðastliðinn.
Ljóst þótti liggja fyrir í málinu að á
bænum hafði verið tekist á um rifiil og
skot hlaupið úr honum. Búist er við að
dómur geti gengið i þessu máli i októ-
ber. Hinn grunaði hefúr setið í gæslu-
varðhaldi nánast afian tíman frá því
að atburðurinn átti sér stað.
Keflavíkurmál á lokastigi
Tæpum mánuði eftir hið voveiflega
mannslát í Þingeyjarsýslunni var 19
Bláhvammur í S-Þingeyjarsýslu
Grunur leikur á aö sonur hafi banaö
fööur á bænum þann 18. mars.
ára stúlku banað á heimili hennar í
Keflavík, Áslaugu Óladóttur. Hún og
sambýlismaður hennar voru gengin til
hvilu þegar hinn grunaði i málinu,
Rúnar Bjarki Ríkharðsson, réðst inn í
húsið og annar maður á eftir honum.
Að sögn yfirlögregluþjóns i Keflavík
er rannsókn málsins á lokastigi. Búist
er við að annað sakamál þar sem um
annan brotaþola var að ræða, nauðg-
unarmál sem lögreglan hefur einnig
rannsakað og beindist gegn Rúnari
Bjarka, verði afgreitt hjá ríkissaksókn-
araembættinu samhliða manndráps-
málinu og síðan einnig fyrir dómi
verði gefm út ákæra í kynferðisbrota-
málinu.
Erfitt er að segja til um dómsmeð-
ferð í þessum málum enda á ríkissak-
sóknari algjörlega eftir að taka afstöðu
til þeirra og afgreiða þau með viðeig-
andi hætti. Þeir sem DV hefur rætt við
telja þó að ekkert ætti að vera því til
fyrirstöðu að réttarhöld í þessum mál-
um fari fram á haustmánuðum.
Skólavegur í Keflavík
Rúmiega tvítugur maöur ergrunaöur
um aö hafa banaö 19 ára
stúlku í húsinu.
Leifsgata 10
47 ára karimaöur fannst látinn í íbúö
og er 38 ára konuö grunuö um aö hafa
ráöiö honum bana.
Rúnar hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 15. október.
Þriðja manndrápið
á 3 mánuðum
Hjá lögreglunni í Kópavogi fengust
Engihjalli í Kópavogi
Ungur maöur situr í gæsluvaröhaldi
grunaöur um aö hafa átt þátt í aö ung
kona féll fram af 10. hæö og lést
þær upplýsingar að verið sé að biða
niðurstöðu DNA-rannsóknar sem fer
fram í Noregi vegna máls sem hefur
verið rannsakað sem manndrápsmál
og átti sér stað í Engihjalla í maímán-
uði, rúmum mánuði eftir manndráps-
málið í Keflavík. Þar var um þriðja
manndrápsmálið að ræða á þremur
mánuðum sem er einstakt hér á landi
hvað tíðni slíkra mála varðar.
I Kópavogsmálinu er 23 ára gamall
maður, Ásgeir Ingi Ásgeirsson, grun-
aður um að hafa átt þátt í dauða Ás-
laugar Perlu Kristjónsdóttur, 21 árs,
sem lét líflð eftir að hafa fallið niður af
10. hæð fjölbýlishúss við Engihjalla.
Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 2. október. Búist er
við að ef Norðmenn senda niðurstöður
sínar innan næstu vikna geti ákæru-
meðferð farið fljótlega fram eftir það
og réttarhöld siðan í október eða nóv-
ember.
DNA-rannsókn vegha
Letfsgötumálsins
Rétt um mánuður er liðinn frá því
að Hafigrímur Elísson, 47 ára, fannst
látinn að Leifsgötu 10. Sterkur grunur
hefur reynst um að honum hafi verið
ráðinn bani.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík er töluvert eftir af
rannsókn þess máls, t.a.m. hvað varð-
ar lífsýnatöku og það að senda gögn
utan í DNA-rannsókn. Bergþóra Guð-
mundsdóttir, 38 ára, hefúr verið úr-
skurðuð í gæsluvarðhald til dagsins í
dag en lögreglan í Reykjavík fer fram
á að það verði framlengt. Vart er að
vænta dómsmeðferðar í þessu máli
fyrr en í lok árs. -Ótt
Leikfélag íslands sópar til sín stjörnum:
Hálf Spaugstofan og Bibba á Brávallagötunni
- meðal fastráðinna leikara
Leikfélag íslands hefúr gengið frá
samningum og fastráðið fjölmarga af
helstu leikurum þjóðarinnar. Má þar
nefna hluta Spaugstofunnar, þá Sigurð
Sigurjónsson og Öm Ámason og Eddu
Björgvinsdóttur sem vann hug og
hjörtu landsmanna sem Bibba á Brá-
vallagötunni fyrir nokkrum misserum.
Aðrir fastráðnir leikarar Leikfélags ís-
lands em Jakob Þór Einarsson, Frið-
rik Friðriksson og Hilmir Snær
Guðnason. Meðal annarra leikara sem
Vigdís Finnbogadóttir
starfa munu hjá Leikfélagi íslands í
vetur má nefna Hafidór Gylfason, Stef-
án Jónsson, Eddu Björgu Eyjólfsdótt-
ur, Áma Tryggvason, Tinnu Gunn-
laugsdóttur, Ólafiu Hrönn Jónsdóttur,
Guðrúnu Ásmundsdóttur, Halldóm
Geirharðsdóttur og Sigrúnu Eddu
Bjömsdóttur. Þá hefur Jón Ólafsson
verið ráðinn tónlistarstjóri Leikfélags
íslands og Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
um forseti íslands, hefur fafiist að vera
vemdari leikfélagsins. -EIR
Sigrún Edda Bjömsdóttir Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Voðriö i kvolil
Rigning um mestallt land
Suðvestlæg eða breytileg átt, 5 til 8 m/s og
rigning veröur um mestallt land í kvöld.
Solartiamíur bg i||
REYKJAV
Sólariag í kvöld 21.18 21.14
Sólarupprás á morgun 05.44 04.59
Síödegisflóð 23.30 04.03
Árdegisflóö á morgun 12.11 16.44
Skýringar á veáuiiáknum
^viNDArr 151 «10° 'J\viNDSTYRKUR ' VnjflST í nietríun á sckándu ' ri Ú HEIOSKÍRT
o o
trrrsKVjAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
v,v Ö
RIGNING SKÚRiR SLYDDA SNJÓK0MA
S? ~\r :
ÉUAGANSUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Ástand fjallvega
Vegur F88 enn lokaður
Helstu þjóðvegir landsins eru
greiðfærir. Hálendisvegir eru flestir
færir stærri bílum og jeppum.Vegur F88
í Herðubreiöalindir er enn lokaður við
Lindaá vegna vatnavaxta. Þá er
vegurinn I Hrafntinnusker líka lokaður.
'T’. • ./ i, V* >; Xt*, •A\l' A. * ,■»
-tT \v "I
M ■
.. .. : '■/ 'aifddwf'
Vofllr á skyogðum «v»öum
oru lokaölr þar tll annab
www.vagag.is/faerd
Hlýjast suðaustanlands
Vestlæg átt, 5 til 8 m/s, skúrir og hiti veröur á bilinu 10 til 19 stig,
hlýjast suðaustanlands á morgun.
Sunnan og suövcstanátt
og súld eóa rlgnlng sunnan
og vestan tll en stöku
skúrlr á Noröurlandl. Hitl
10 tll 20 stlg, hlýjast
austan til.
Vindur: J
8—13 m/o—.
Hiti 9” tii 17°
wsms&im
..S
Vindur:
5-8 m/s
Hiti 7° til 14° éV*
Spáö er suövestanátt og
skúrum sunnan og vestan
tll en léttskýjuöu á
Noröausturlandi.
Norölæg eöa breytileg átt
og rignlng veröur viöa um
land. Hægt kólandi veöur.
■JdpiIV jUu u
AKUREYRI léttskýjaö 10
BERGSTAÐIR
B0LUNGARVÍK alskýjaö 13
EGILSSTAÐIR 7
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 9
KEFLAVÍK súld 11
RAUFARHÖFN alskýjaö 8
REYKJAVÍK skýjaö 11
STÓRHÖFÐI súld 10
BERGEN léttskýjaö 10
HELSINKI hálfskýjaö 16
KAUPMANNAHÖFN skýjað 13
OSLÓ léttskýjaö 12
STOKKHÓLMUR 13
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 9
ALGARVE heiöskírt 16
AMSTERDAM þoka 12
BARCELONA heiöskírt 20
BERLÍN rigning 14
CHICAG0 skýjað 21
DUBLIN
HALIFAX léttskýjaö 11
FRANKFURT léttskýjaö 12
HAMBORG léttskýjaö 14
JAN MAYEN léttskýjaö 10
LONDON alskýjaö 6
LÚXEMBORG skýjað 12
MALLORCA léttskýjaö 11
MONTREAL léttskýjaö 24
NARSSARSSUAQ léttskýjað 17
NEW YORK alskýjaö 8
ORLANDO heiöskírt 21
PARÍS þokumóöa 26
VÍN lágþokublettir 11
WASHINGTON léttskýjaö 22
WINNIPEG skýjaö 14