Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
I>V
Fréttir
Aukin þátttaka Sam-
herja í fiskeldi
DV, AKUREVRI:_________________________
Samherji hf. hefur fest kaup á
helmingi hlutafjár í íslandslaxi hf. í
Grindavík og 85% hlutafjár í Víkur-
laxi ehf. í Eyjafirði. Fjárfesting
Samherja i þessum félögum nemur
samtals um 215 milljónum króna.
Fyrir er Samherji næststærsti hlut-
hafinn í Fiskeldi Eyjafjarðar, með
um 11% hlutafjár.
íslandslax hf. rekur strandeldis-
stöð við Grindavík og er fram-
leiðslugeta hennar um 1.000 tonn á
ári. Þá rekur félagið seiðaeldisstöð
við Grindavík og eru núver-
andi afköst stöðvarinnar
um ein milljón seiða á ári.
Þá hefur íslandslax nú fest
kaup á seiðaeldisstöð að
Núpum í Ölfusi af Guð-
mundi A. Birgissyni. Fram-
leiðslugeta stöðvarinnar er
tvær milljónir seiða á ári.
Vikurlax ehf. er með fisk-
eldiskvíar í Grýtubakka-
hreppi i Eyjaflrði og hefur
verið með laxeldi i sjó þar
síðustu 11 ár.
Þorsteinn Már
Baldvinsson
- Höfum trú á
fiskeldinu.
„Það hefur verið mikill
vöxtur í fiskeldi í heimin-
um síðustu misseri og við
höfum trú á að sú þróun
haldi áfram.
Aðstæður til fiskeldis hér
eru góðar og öll skilyrði fyr-
ir hendi til að atvinnugrein-
in eflist til muna í náinni
framtíð," segir Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja.
Hann segir að margt
bendi til þess að á komandi
árum muni æ stærri hlutur þess
fisks sem fer á markað koma úr
fiskeldisstöðvum. „Það er yfirlýst
stefna Samherja að fylgjast ávallt
sem best með þeirri þróun sem á sér
stað í sjávarútvegi og svara kalli
tímans. Aukin þátttaka félagsins í
fiskeldi er liður í þvi. Samherji hef-
ur að undanfömu verið með um-
fangsmikla starfsemi í Grindavík og
með kaupunum á hlut í íslandslaxi
eykur félagið þátttöku sína í at-
vinnurekstri á svæðinu enn frek-
ar,“ segir Þorsteinn Már. -gk
Vinnuslys í lyftu á Akureyri:
Rúmar 12 millj-
ónir í bætur
DV, AKUREYRI:
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt Kaupfélag Eyfirðinga til
að greiða fyrrum starfsmanni sínum
rúmlega 12 milljónir króna í bætur
vegna vinnuslyss sem maðurinn lenti
í árið 1996. Maðurinn er rafvirkja-
meistari og hafði starfað hjá Kaupfé-
lagi Eyfirðinga um árabil og vann
m.a. við viðgerðir á rafmagni og raf-
lögnum. í júní árið 1966 var maður-
inn kallaður í verslunina Hrísalund í
eigu KEA, vegna bilunar á lyftu þar.
Aðgengi að lyftunni þótti sannarlega
ábótavant en maðurinn komst þó inn
i lyftuna en lyftan féll við það með
manninn og klemmdist hann við það
og fótbrotnaði m.a. Orsök slyssins er
talin sú að lyftuspil slakaði út vír eft-
ir að lyftan hafði stöðvast.
Maðurinn, sem fyrir slysinu varð,
var 62 ára þegar það átti sér stað og
var metinn 40% varanlegur öryrki.
Hann krafðist tæplega 12,4 miiljóna
króna og var gangið að kröfu hans að
fullu þrátt fyrir kröfu KEA um
sýknu. -gk
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND
I fjós vísaö
Þessi óvenjulegi vegvísir er við Voga í Mývatnssveit og verður aö teljast mjög frumlegur og táknrænn þar sem staður-
inn sem vísað er á er kaffistofa í nýju fjósi sem búið er öllum tilheyrandi búnaði og kannski er hægt að fá þar spen-
volga mjólk ef þjónustufólk er beöið vel.
Fallegir garðar í Fjarðabyggð:
Gróðursæld eftir sólríkt sumar
DV, NESKAUPSTADÍ ~~
„Hér er nóg af fallegum görðum
og þeir eru gróðursælir eftir hlýtt
og gott sumar. Eiginlega hefur verið
of mikill þurrkur hjá okkur en þeir
sem eiga fallega garða eru duglegir
að vökva þá,“ sagði Petrún Jóns-
dóttir, æskulýðs- og íþróttafulltrúi
Fjarðabyggðar, í samtali við DV.
Umhverfismálanefnd Fjarðabyggðar
var sannarlega í erfiðum sporum að
velja fegurstu garðana og ýmsa aðra
sem viðurkenningu áttu skilið, en
þau voru veitt á Hótel Öskju á Eski-
firði á þriðjudaginn. Valinn var fal-
legasti garðurinn í hverjum byggð-
arkjarna, eitt fyrirtæki og land-
græðslufrumkvöðull.
Fallegustu húsagarðarnir voru
hjá Guðrúnu Guðmundsdóttur,
Hlíðargötu 18, Norðfirði, Öldu Pét-
Flskvinnsla með stæl
Sporður framleiðir landsfrægan harðfisk - en ekki vita allir að fyrirtækið sýnir
gott fordæmi meö fallegu umhverfi og snyrtimennsku.
DV-MYNDIR REYNIR NEIL
Fegurö í Neskaupstaö
Hér er Guðrún Guðmundsdóttir aö Hlíöargötu 18 i Neskaupstað í fallegum
garði sem hún hefur nostraö við.
ursdóttur og Hreini Péturssyni,
Brekkugötu 5, Reyðarfirði, og Auði
Valdimarsdóttur og Guðjóni Björns-
syni, Bleiksárhlíð 58, Eskifirði.
Landsbankarnir í Fjarðabyggð
fengu allir umhverfisverðlaun fyrir-
tækja, hver á sínum staö, en viður-
kenning fyrir landgræðslu fór til
Hálfdáns Haraldssonar, fyrrum
skólastjóra í gamla skólanum á
Kirkjumel í Norðfirði.
Eftirtaldir fengu líka sérstaka
viöurkenningu umhverfismála-
nefndar fyrir lofsvert framtak til
fegrunar á umhverfinu: Sjóhús við
Egilsbraut 22, Norðfirði, eign Hjart
ar Arnfinnsonar og Kristins Hjart
arsonar. Sjóhús við Strandgötu 17
Norðfirði, eign Halldórs Gunnlaugs
sonar. Blómsturvellir 1, Norðfirði
eign Sylwester Jan Myszak. Mána-
gata 4, Reyðarfirði, eign ÞórhaUs
Jónassonar.
. Hús harðfiskverkunarinnar
Sporðs hf. við Strandgötu, Eskifirði,
en það fyrirtæki hefur löngum þótt
góð fyrirmynd fyrir fiskvinnsluhús
í landinu, svo þrifalega er þar að
verki staðið. -RN
f Urnsjón:
Gylfi Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.ls
Viðbjóðurinn
Það hefur ekki
farið hátt að undan-
förnu að „dauða-
sveitirnar" svoköll-
uðu hafa verið að
störfum í íslensku
laxveiðiánum en
i þar er átt við
\ maðkveiðihollin óg-
urlegu sem engu
lífi þyrma og koma til veiða eftir
hefðbundinn fluguveiðitíma ár
hvert. íslendingar eru e.t.v. loksins
famir að skammast sín fyrir þetta
dráp á laxastofni sem virðist í út-
rýmingarhættu, a.m.k. fara sögurnar
af drápinu ekki eins hátt og áður.
Þó höfum við áreiðanlega sögu úr
þeirri frægu á, Víðidalsá, en fyrsta
maðkahollið þar drap 70 laxa af
þeim 90 sem þaulvanir leiðsögu-
menn sögðu að hefðu verið í ánni.
Veiðimennirnir voru frá Finnlandi
og sögðu leiðsögumennimir, sem
eru ýmsu vanir, að drápið hefði ver-
ið viðbjóðslegt upp á að horfa.
Rottara í Vatnsdalnum
Þeir verða því
ekki margir, lax-
arnir, sem hrygna í
Víðidalsá í haust
og enn eitt árið
mun áin skila af
sér fáum seiðum
til framtíðarinnar.
í næstu á við hlið
Víðidalsár, sem er
Vatnsdalsá í samnefndum dal, er
hins vegar annað upp á teningnum.
Þar hefur aliur fiskur verið veiddur
á flugu undanfarin ár og honum öll-
um sleppt í ána aftur að því loknu.
Þetta hefur farið fram undir styrkri
stjórn Péturs Péturssonar, leigu-
taka og fyrrverandi kjötsala. I ný-
legri seiðatalningu var útkoman
þannig að Vatnsdalsá bar höfuð og
herðar yfir aðrar ár þar sem seiða-
magn var mælt. Menn bíða nú
spenntir eftir því að „veiða-sleppa“-
aðferðin i Vatnsdalnum skili árangri
í veiðinni sem á að gerast strax
næsta sumar og í enn meira mæli
sumarið 2002. Á meðan drepa menn
síðustu fiskana í nágrannaánum.
Bogi flottur
Bogi Ágústsson,
Eréttastjóri Sjónvarps-
ins, hefur slegið í
gegn að undanfórnu,
enda þykir mönnum
ljóst að Bogi hafi far-
ið á námskeið og
lært þar nýja „skjá-
tækni“. Þannig þykj-
ast vanir menn sjá
að Bogi fitli nú geysifimlega við gler-
augu sín, komi við skyrtuermarnar af
og til og handleiki penna sinn af mik-
illi fimi. Þessa nýju takta fréttastjór-
ans segja menn greinilegt að hann
hafi sótt í smiðju einhvers ráðgjafar-
fyrirtækisins en hvers þeirra er ekki
vitað. Hitt er ljóst að mörgum þykir
Bogi flottur með nýju taktana og sér-
staklega þykir „gleraugnafitlið" vera
tilþrifamikið.
Og víst...
Orrahríðin um
gölda þeirra sem
sóttu Þingvallahá-
tíðina í sumar
heldur áfram og
þykir ljóst að
blessaður bisk-
upinn okkar, faðir
hans, biskupinn,
og Júlíus Haf-
stein, framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar, ætli ekki að gefa tommu eftir og
halda því fram hvað sem á gengur
að á Þingvöllum hafi verið 30 þús-
und manns. Framkvæmdastjórinn
hefur m.a. sagt að starfsmaður ein-
hvers ónefnds fyrirtækis hafi staðið
fyrir óformlegri skoðanakönnun og
talið um 30 þúsund manns á Þing-
völlum eða helmingi fleiri en aðrir
töldu, ef biskupinn og faðir hans,
biskupinn, eru undanskildir. Þykja
þeir feðgar reyndar svo heitir í
þessu máli að með ólíkindum er
talið en er ekki alltaf hitinn mestur
og „djöfulgangurinn" þar sem trúin
er annars vegar?