Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2000, Qupperneq 28
NISSAN MICRA
alltafkát!
Ingvar
Holgason hf.
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í stma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
Ökumaður á flótta:
Með byssu í
aftursætinu
•f Ölvaður ökumaður á þrítugsaldri,
með haglabyssu í aftursætinu,
reyndi að stinga lögregluna af með
þvi að aka á ofsahraða vítt og breitt
um Akraneskaupstað aðfaranótt
síðastliðins sunnudags. í hita leiks-
ins ók ökumaðurinn niður umferð-
arskilti og ýmsa lausamuni sem
urðu á vegi hans. Þegar lögreglu
loks tókst aö króa bifreiðina af lagði
ökumaðurinn á flótta á tveimur
jafnfljótum en var yfirbugaður af
lögreglumönnum á hlaupunum.
„Hann beitti bysunni aldrei gegn
okkur og skildi hana eftir í aftur-
sætinu þegar hann reyndi að stinga
okkur af á hlaupum,“ sagði varð-
stjóri lögreglunnar á Akranesi í
' gær. „Maðurinn gat hins vegar ekki
'gefið neina viðhlítandi skýringu á
hvað hann var að gera með byssuna
í bílnum." -EIR
Framleiöendur aö veröa briálaöir.
Björk klippt
Allar upptökur með Björk Guð-
mundsdóttur hafa verið klipptar út
úr heimildamynd sem gerð var til
kynningar á kvikmyndinni Dancer
in the Dark þó svo að Björk leiki að-
alhlutverkið í myndinni. Er þetta
** gert vegna stöðugra kvartana Bjark-
ar yfir myndskeiðum sem notuð
voru og sýndu söng- og leikkonuna
ærast við upptökur á myndinni.
Danska dagblaðið Berlingske
Tidende greinir frá þessu og hefur
eftir Carsten Holts, framleiðanda
heimildamyndarinnar: „Við erum
að verða brjálaðir á Björk. Við höf-
um reynt að semja við hana aftur á
bak og áfram en án árangurs."
Heimildamyndin um Dancer in
the Dark, sem hlaut Gullpálmann í
Cannes, verður því sýnd án allra
innskota af Björk Guðmundsdóttur
á tökustöðum. Þess í stað verða
sýnd brot úr sjálfri kvikmyndinni
þar sem leikstjórinn, Lars von Tri-
,<* er, greinir frá hlut Bjarkar við gerð
myndarinnar. -EIR
Hverjum klukkan glymur dv-mynd e. ól
Starfsmenn Sjónvarps fluttu í gær. Meöferöis höföu þeir tvær fyrrverandi „íslandsklukkur“ sem landsmenn þekkja af
langvarandi kynnum á sjónvarþsskjánum.
Lok, lok og læs
Bjarni Guömundsson, framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins, sá um aö læsa
hinsta sinni aö Laugavegi 176.
Ríkissjón-
varpið flutt
Ríkissjónvarpið flutti í gær starf-
semi sína af Laugavegi 176 í útvarps-
húsið við Efstaleiti. Þar með lauk ríf-
lega þrjátíu ára kafla í sögu sjónvarps
á íslandi.
Flutningurinn fór fram með viðhöfh
eftir sérstaka kveðjuathöfn í sjón-
varpsstúdíói í hinum gamla mið-
punkti íslenskra sjónvarpsútsendinga.
Starfsmenn Sjónvarpsins freistuðu
þess að fanga sál byggingarinnar að
Laugavegi 176 í sérstaka skjóðu sem
tekin var með á nýjan staðinn. Ekið
var í opnum bU upp í Efstaleiti þar
sem tekið var á móti hópnum með
veitingum.
Starfsemi Ríkisútvarpsins og Ríkis-
sjónvarpsins er nú loks undir einu
þaki. Við breytingamar eykst rými
fýrir starfsemi Sjónvarpsins tU muna,
auk þess sem starfsaðstaða er öU betri
í Efstaleitinu. -GAR
Alzheimersjúk kona lá í þrjá sólarhringa bjargarlaus í háu grasi í Breiðholti:
Kraftaverk að hún skuli lifa
„Það er hreint með ólikindum að eig-
inkona mín skuli hafa legið hjálparlaus
á þessu óræktarhomi í Breiðholtinu í
þijá sólarhringa þar sem þúsundir fara
fram hjá á degi hveijum. Það er krafta-
verk að hún skuli hafa lUað af og þar
má þakka mUdu veðri og svo hinu að
Aifa var mikU útivistarkona hér áður
fyrr og þama bjó hún aö því,“ sagði
Gísli Ásmundsson, framkvæmdastjóri
og eiginmaður Ölfu Hjálmarsdóttur
sem björgunarsveitarmenn leituðu
stöðugt að um og fyrir siðustu helgi.
Aifa fannst á sunnudagskvöldið liggj-
andi í háu grasi á mótum Reykjanes-
brautar og Breiðholtsbrautar, rétt fyrir
ofan kvikmyndahúsin í Mjódd. Að sögn
Þarna var Alfa
Ein og yfirgefin lá hún í háu grasinu
í miöri Mjóddinni þar sem þúsundir
fara fram hjá á hverjum degi.
Gísla var eiginkona hans tiltölulega
hress þegar björgunarsveitarmenn
fundu hana þrátt fyrir að hún hefði leg-
ið matarlaus á víðavangi í þijá sólar-
hringa. „Hún gat strax talað við björg-
unarsveitarmennina og var vel mál-
hress en máttfarin," sagði Gisli.
Alfa Hjáimarsdóttir, sem er rúmlega
áttræð að aldri, er sem kunnugt er
alzheimersjúklingur og bámst nokkar
visbendingar um ferðir hennar eftir aö
hún yfirgaf heimUi sitt í Álandinu í
Fossvogi á fimmtudagskvöldið. Fólk
þóttist hafa séð hana á Bústaðavegin-
um, rétt austan við Grímsbæ, og lítið
bam hitti hana við göngin undir
Reykjanesbrautina skömmu síðar:
„Þaðan virðist Alfa hafa gengið upp
með Reykjanesbrautinni og upp í
Mjódd. Þaðan bárust vísbendingar um
konu sem var að tína strá í óræktinni
þama í Mjóddinni en ég er á þvi að
Alfa hafi fremur verið að reyna að
styðja sig við hátt grasið og failið við.
Eftir það faU hefur hún ekki getað stað-
iö á fætur aftur, enda er hún hreyfi-
hömluð aö hluta. Það er ótrúlegt tU
þess að hugsa að eiginkona mín skuli
hafa legið þama í grasinu aUan þennan
tíma með iðandi umferðina aUt í kring-
um sig,“ sagði Gísli Ásmundsson sem
vUdi sérstaklega þakka björgunarsveit-
armönnum fyrir þeirra þátt í björgun
eiginkonu sinnar sem nú dvelur á
Landspítalanum í Fossvogi og er óðum
að ná sér. -EIR
Banaslysum á íslandi hefur fækkað á síðustu áratugum:
Sjórinn tekur færri en áður
- Slysavarnaskóli sjómanna virðist hafa haft áhrif
Þegar tölur yfir ýmis banaslys á
íslandi síðustu fjóra áratugina eru
bornar saman kemur í ljós að
banaslysum á sjó hefur fækkað mik-
ið.
„Það hefur orðið sú stórkostlega
breyting að dauðaslysum til sjós hef-
ur fækkað alveg gífurlega frá því
Slysavamaskóli sjómanna var stofn-
aður,“ sagði Þórir Gunnarsson,
starfsmaður Slysavamafélagsins
Landsbjargar. „Banaslys til sjós
voru svo tíð hér á árum áður. Slysa-
vamaskóli sjómanna byrjar í maí
1985 og maður getur náttúrlega
aldrei sagt að það sé þess vegna en
ég held að það sé ekki hægt að sjá
annað út úr þessu en að skólinn hafi
haft áhrif.“
Hann bætti því við að öryggismál
sjómanna hefðu einnig lagast mikið
að öðra leyti síðustu árin, með til-
komu farsima og annars öryggis-
búnaðar.
Þórir útskýrði að tölur Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar yfir
látna í umferðarslysum væra hærri
en sambærilegar tölur Umferðar-
ráðs vegna þess að starfsmenn
Landsbjargar teldu vélsleðaslys til
umferðarslysa og einnig telja þeir ís-
lendinga sem látast í umferðarslys-
um erlendis með.
Athygli vekur að þrátt fyrir grið-
arlega aukna bílaeign og -notkun
Fjöldi látlnna í slysum á Islandi 1960 til 1999:
Heildarfjöldi látinna í slysum hefur fariö minnkandi, aöallega vegna þess
hversu mikil fækkun hefur oröiö á banastysum á sjó. Undirýmis slys falla til
dæmis snjófióö, banaslys á fólki viö iandbúnaöarstörf og fleira.
landsmanna hefur banaslysum í
umferðinni ekki fjölgað í samræmi
við það. -SMK
7”
Sérhæfð
fasteignasala
í atvinnu- og
skrifstofuhúsnæði
STÓREIGN
FASTEIGNASALA
Austurstræti 18» Sími 55 12345