Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 Fréttir DV Halldór Ásgrímsson í yfirheyrslu DV: Það er ekkert fararsnið á mér Yfirheyrsla Garðar Orn Ulfarsson og Höröur Krisijánsson blaðamenn Rætt hefur verið um að þú flytjir þig um set og bjóðir þig fram í Reykjavík í næstu al- þingiskosningum. Hver væri helsti kostiu* þess? „Það er afar þýðingarmikið fyrir alla stjórnmálaflokka að hafa sterkt fylgi á höfuðborgarsvæðinu. Sumir halda því fram að ég geti kallað það fram. Ég legg ekki dóm á það en held að þetta gerist á lengri tíma og með öðrum hætti. Við erum að byrja að endurskipu- leggja okkur í nýjum kjördæmum og erum ekki farin að ræða um framboð í næstu kosningum. Ég hef verið á Austurlandi síðan 1974 og hef aldrei ætlað mér annað. Nú er komnar upp nýjar aðstæður sem ég hef ekki enn tekið á en ég hef heyrt þessar raddir og er að sjálfsögðu ánægður með aö menn halda að það geti verið eitthvert áframhaldandi gagn í mér í stjóm- málum. Það er hins vegar ekki mitt að taka ákvörðun um fram- boðsmálin í Reykjavík." Stuöningsmaður R-listans Hverjir væru helstu kostir þess fyrir Framsóknarflokkinn að bjóða fram sjálfstæðan lista í næstu borgarstjómarkosning- um? „Með því yrði Framsóknarflokk- urinn sýnilegri í borgarmálum. Ókostirnir eru þeir að flokkurinn hefur staðið af fullu afli í því sam- starfi sem þar á sér stað og mjög margir flokksmenn lagt sig fram í því. Við erum ekki einir í þessu samstarfi og erum ekki þeir einu sem munu taka ákvörðun um framhald þess. Það eru fyrst og fremst framsóknarfélögin í Reykja- vík sem þurfa að vinna úr þessu máli og taka ákvörðun. Ég hef ver- ið stuðningsmaður R-listans og verð það svo lengi sem Framsókn- arflokkurinn starfar með honum og hefur þar þau áhrif sem honum sæmir.“ Fáir snertifletir viö VG öfl á vinstri vængnum hafa áhuga á myndun vinstri stjórn- ar með þátttöku Framsóknar- flokksins. Hvað á Framsóknar- flokkurinn helst sameiginlegt með vinstri-grænum? „Vinstri-grænir hafa nánast ver- ið á móti öllu sem við höfum verið að gera. Það hafa því ekki verið margir snertifletir með þeim. Það hefur ekki verið í utanródsmálum og stefna okkar í iðnaðar- og stór- iðjumálum hefur verið þeim andsnúin. Einnig margt af því sem við höfum verið að gera til að færa ríkisreksturinn nær nútímanum og færa margt sem talið hefur verið sjálfsagt að ríkið Miklir ókostir Evrópusam- bandsins Hver er helsti ókostur þess fyrir íslendinga að ganga ekki í Evrópusambandið? „Spurningin er þessi: Hverra kosta eigum við völ? í stórum drátt- um eigum við kost á því að vera áfram í Evrópska efnahagssvæðinu, með þeim kostum og göllum sem því fylgir, eða að verða fullir þátt- takendur í Evrópsamstarfmu. Báð- ar þessar leiðir hafa mjög mikla ókosti. Stundum er það létt í lifinu að segja að af tvennu illu verði hvorugt valið en þegar upp er stað- ið er það nú ekki leiðin. Þetta er einfaldlega erflðasta og mikilvæg- asta verkefni íslenskra stjómmála á næstu árum og það krefst mikillar umræðu þar sem engin leið er ein- hlít og ekkert svar er einfalt. Sem stjómmálamaður, sem er búinn að vera að í meira en stæði fyrir til einka- Ég er dð sjálfsögðu aldarfjórðung, tel ég aðila. Við höfum að við verðum að lýst því margoft yfir anœ§ður með Clð mentl a við þetta að við viljum taka halda að það geti verið viðfangsefni. Og það að okkur forystu- hlutverk i ríkis- stjóm á nýjan leik. Það gerum við ekki nema hafa til þess afl. Vinstri-grænir hafa kenningu gamla Alþýðu- bandalagsins um þeim mun veikari sem Framsóknarflokkurinn sé, þeim mun betra fyrir þá: Eftir þvi sem Framsóknarflokkurinn sé veikari þeim mun lfklegri sé hann til að vinna með þeim. Þetta er grundvallar misskilningur og á meðan þessi trú þeirra er svona rik held ég að það geti ekki orðið mik- ið samstarf á milli þessara flokka. Þeir verða að vita það að Fram- sóknarflokkurinn verður að hafa afl og styrk til þess að hafa forystu í ríkisstjórn. Ég á ekki von á því að mönnum detti það almennt í hug að þeir muni gera það.“ eitthvert áframhald- andi gagn í mér í stjómmálum. ætlum við að gera í mínum flokki.“ Er þriðja leiðin ekki til? „Að mínu mati er hún ekki fyrir hendi. Nema þá hún verði til í samningum við Evrópu- sambandið. Svisslendingar hafa far- ið þriðju leiðina með beinum samn- ingum um ákveðin mál. Eftir að menn hafa skoðað þá samninga eru allir á því að það sé ekki leið.“ Hagsmuni þjóðarinnar í húfi Er ekki von til þess að EES- samningnum verði breytt svo hann dugi? „Það hefur engin breyting orðið á EES-samningnum frá upphafi og það eru nánast engar líkur á því að það verði miklar breytingar á hon- um. Við höfum reynt að ná fram ýmsum lagfæringum á samningn- um og það hefur gengið Ula. Nú er verið að ræða verulegar breytingar á Evrópusambandinu. Það á sér stað gífurleg þróun sem við erum litlir þátttakendur i en hefur þó áhrif á okkar stöðu. Það liggur til dæmis fyrir að ef sameiginleg mynt nær yfir allt Evrópusambandið, sem ekki er ólíklegt aö verði, þá skapast vandkvæði hjá okkur að standa utan við það samstarf.“ Myndi það ekki skapa vanda við peningastjómun hér á landi að taka upp aðild að þessu mynt- samstarfi? „Jú, en hins vegar kallar það á mjög styrka fjármálastjórn að halda gengi íslensku krónunnar stöðugu í slíku umhverfi og verja hana gagn- vart spákaupmennsku og ýmsum utanaðkomandi áhrifum. Við höfum þegar tekið yfir frelsin fjögur, þar á meðal algjörlega frjálsa fjármagns- flutninga, bæði til og frá landinu, og það hefur að sjálfsögðu áhrif á gengi íslensku krónunnar. Við þurfum að taka ákvarðanir sem tryggja hags- muni okkar sem þjóðar. Sem trygg- ir hagsmuni atvinnuvega okkar og samkeppnishæfni þeirra í þessu nýja umhverfi. En þetta eru ekki spumingar sem við þurfum að svara á morgun. Þetta eru spuming- ar framtiðarinnar og við þurfum að búa okkur undir hana.“ DV-MYNDIR ÞOK Nafn: Halldór Ásgrímsson Staða: Formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra Efni: Framsóknarflokkurinn, Evrópusambandið og Landssíminn Flutningsnetið skiliö frá Símanum Það er meiningarmunur milli stjórnarflokkanna varðandi hvemig skuli standa að sölu Landssímans. Verður hugsanlega ekki af sölunni á þessu kjörtíma- bili? „Ég tel að það verði af einkavæð- ingu Landssímans. Það er komin mikil samkeppni á þessum markaði, bæði innlend og alþjóðleg og hinn rík- isrekni sími verður að svara þessum aðstæðum. Ég veit ekki til þess að það sé neinn ágreiningúr um það að það sé nauðsynlegt að tryggja jafnan aðgang að flutningsnetinu til þess að stuðla þar að eðlilegri samkeppni. Þetta er ekki aðeins spurning um það að fá sem hæst verð fyrir símann heldur líka um það hvemig fyrirtækj- um og fólki í landinu er þjónað. Við viljum átta okkur á þvi áður en þetta skref er stigið til fulls hvort á að aðskilja flutningsnetið algjör- Við höfum lýst því margoft yfir að við viljum taka að okkur lega með því að hafa forystuhlutverk í ríkÍS- miðöldum og það um það sérstakt fyr- , • - - - • 7 •» varð til þess að það irtæki. Við erum að StJÓm á nýjan leik. var ]agt niður." hvemig farið á markað, sem hefur komist hjá því að eiga samvinnu á alþjóðlegum markaði. Ég held að það blasi við að það muni gerast í þessu fyrirtæki." Áttu von á að brjóti á Lands- símamálinu milli stjómarflokk- anna? „Nei, ég sé engar slíkar hindranir í málinu." VIII heyra flelra en já Verður auðlindagjald tekið upp? „Það má vel vera að það verði gert í framtíðinni. Aðalatriðið er það að viðkomandi atvinnugrein geti staðið undir því en fari ekki á hnén. Ég á von á því að einhverjar breytingar verði og að menn nái því sem ég kalla sátt. En sáttin gengur ekki út á það að gera hvern einasta mann glaðan og hrifmn. Þannig hefur lýðræðið þar sem ég þekki til aldrei virk- að. Pólska þingið haföi neitunarvald á ræða hvernig það verður gert og ég tel að það sé allt of snemmt að segja að um það sé ágrein- ingur.“ Erlend aöild blasir vlð Formaðin- einkavæðingamefnd- ar hefur sagt að sala Landssímans geti hugsanlega farið fram í mars á næsta ári. „Ég vil ekki útiloka neitt í því en ég hef ekki nokkra möguleika á að setja dagsetningu á það fýrr en ég hef séð heildarmyndina “ Hann nefhir þátttöku erlendra fjárfesta? „Mér þykir mjög eðlilegt að þegar Landssíminn hefur verið seldur komi erlendir aðilar inn i það vegna hinn- ar alþjóðlegu samkeppni. Ég veit ekki um neitt símafyrirtæki, sem hefur Em flokksmenn þínir órólegir vegna stöðu Framsóknarflokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu? „Stundum er það. En við höfum líka verið í stjómarandstöðu og þá hefur líka verið óróleiki í einhverjum í flokknum. Ég á von á því að það sé í öllum flokkum og held að það sé merki um líf. Ég hef engan áhuga á því að vera í flokki þar sem aldrei er nein hreyfing og aldrei heyrist neitt annað en já. Það er hins vegar ágæt- ur starfsandi og starfsgleði í Fram- sóknarflokknum og viö þurfum á því að halda því við erum heldur fá til að reka þetta nauðsynlega verk okkar í stjómarsamstarflnu. Ég skil það því vel að menn þreytist og auðvitað lát- um við á sjá eins og annað fólk. En það er ekkert fararsnið á Framsókn- arflokknum og það er ekkert farar- snið á mér.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.