Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2000, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
Hagsýni
I>V
Það er gamall og góður íslenskur siður að taka slátur:
Haggis í Skotlandi,
blóðmör á íslandi
- margar aðrar þjóðir þekkja þennan sið og notfæra sér afurðirnar
Lifrarpylsa, blóðmör, svið og
steikt nýru eru gamall og þekktur
matur á íslandi. Innmatur, og þá
sérstaklega lifur og blómör, er blóð-
aukandi og var löngum gefið þeim
er þjáðust af blóðleysi.
í gamla daga voru fjallagrös
stundum mulin og sett saman við
blóðmörinn sem þá var hefðbund-
inn með mör. Engar tölur eru til um
magnið en sé mikið notað af fjalla-
grösum er dregið úr mjölmagninu.
Þetta þótti gefa kraftmikið slátur,
enda fjallagrösin góð og innihalda
talsvert magn fæðubótarefna, svo
nútímamál sé notað.
Mysan var gerjuð og lageruð þar
til hún var orðin vel súr og notuð til
drykkjar og til að sýra í henni mat.
Áður fyrr var notað miklu minna
rúgmjöl í slátur, það var einfaldlega
ekki til í jafnmiklum mæli og nú er.
Jafnvel kom fyrir að aðeins fjalla-
grös voru notuð og þá var blóðið
ekki vatnsblandað heldur hafður
mikill mör og fjallagrös. Seinna þeg-
ar meira rúgmjöl fór að fást óx hlut-
ur þess á kostnað fjallagrasanna en
eftir því sem meira er af rúgmjöli
þarf minna af mysunni eða súrnum
og sé fullt ílátið af blóðmörskeppum
með rúgmjöli er nóg að setja aðeins
vatn því rúgmjölið sýrir vatnið.
Rúsínuslátur og fjallagrös
Sumir vilja fá sætt bragð af blóð-
mömum og setja rúsínur í stað
mörs. Það minnkar um leið fitu-
magnið en rúsínuslátur er heldur
stifara en venjulegur blóðmör.
Hvaðan siðurinn er kominn veit ég
ekki en hann þekkist víða. Yfirleitt
er búið til minna af því en hefð-
bundnum blóðmör og þá notaðir um
2 1 af blóði og á móti því 2,7 kg rús-
ínur. Hlutfóllin af þurrefnum eru
þau sömu og í hefðbundnum blóð-
mör.
Gamaldags lifrarpylsa
Lifrarpylsan var talin ástarréttur á
íslandi í gamla daga og fylgdi
henni sú trú að hún væri náttúru-
aukandi, sérstaklega að borða hana
heita og var kveðið: „Lifrina étur
lastagjam / lungun góðhjartaður."
Eru til margar sögur um slíkar
máltíðir. Lifrin var oft sett í vinstur
en vinstrin er meö langan og mjóan
enda sem kallaður var
„kvennagóði" en pylsan í
endanum þeim var sér-
staklega ætluð kvenna-
mönnum. Gaman væri að
vita hvort einhverjir setja
enn lifrarpylsu í vinstur.
Gömul vísa segir:
Galsapylsu gef ég oft
Geira mínum á kvöldin
áður en förum upp á loft
undir rekkjutjöldin.
(Heimild
Gísladóttir)
Hér kemur
skriftin
Hallgerður
svo upp-
4 kg lifur
3,33 1 mjólk
160 g salt
400 g haframjöl
400 g hveiti
2 kg 400 g rúgmjöl
4 kg mör
Lifrin hreinsuð og hökk-
uð. Þurrefnin sett saman
við og mjólkinni blandað
út í eftir þörfum. Mörinn
skorinn smátt og honum
ýmist blandað út í deigið
eða tekið smávegis og
troðið með í keppinn.
Keppirnir soðnir í um það
bil 2 1/2 tíma. Hægt er að
frysta lifrarpylsu bæði soðna
ósoðna.
Innmatur, og þá sérstaklega lifur og blómör, er blóðaukandi
og var löngum gefiö þeim er þjáöust af blóöleysi.
og
Blóðmör á hefðbundinn hátt
Þessi blóðmörsuppskrift er gömul
og hefur reynst vel áratugum sam-
an. Uppruninn er óljós en sennilega
hefur verið stuðst við matreiðslu-
bók Helgu Sigurðar sem mikið var
notuð á sínum tíma.
3 1 blóð
1.5 1 vatn
75 g salt
200 g hveiti
250 g haframjöl
3,3 kg rúgmjöl
3.6 kg mör
Hrærið saman blóði og vatni og
salti. Þurrefnin sett út i og hrært
vel. Mörinn skorinn vel niður. Sum-
ir vilja blanda mörnum strax saman
við blóðið en aðrir hafa hann sér og
setja hann smám saman með í kepp-
inn. Blóðmörskeppi á að sjóða í um
það bil þrjár klukkustundir. Hægt
er að fyrsta þá soðna og ósoðna eft-
ir atvikum.
Grísk sviðasulta
Ýmislegt fleira er hægt að gera úr
innmat og aðrar þjóðir eiga sínar
uppskriftir líka.
Grikkir eru til dæmis hrifnir af
sviðum eins og við, en þeir krydda
dálítið öðruvísi með hvítlauk, stein-
selju, lauk og sitrónusafa.
Sjóðið tvo hausa á hefðbundinn
hátt og kreistið safa úr einni
sítrónu. Saxið 2-3 hvítlauksrif flnt
og eins og eitt steinseljuknippi. Tak-
ið kjötið af beinunum og leggið í
form með kryddi og sítrónusafa sem
hrært er saman við, malið
ofurlítið af pipar yfir.
Kælið sultuna á venjuleg-
an hátt. Þessi sulta er best
ný og flnt að bera fram
gott brauð með henni.
Öðruvísi innmatur
í stað mörsins í lifrar-
pylsu getur verið gott að
setja eitthvað annað eins
og t.d. beikon eða jafnvel
pepperoni til tilbreyting-
ar.
Hjörtu henta vel í pott-
rétti og gott er að skera
þau í litla bita og láta þá
liggja í grillsósu í ca sólar-
hring. Steikið á pönnu,
sjóðið í smávatni í 20 mín.
og setjið svo rjóma til að
þykkja sósuna sem kemur
af bitunum. í grillsósuna
er ágætt að láta frosið
grænmeti um leið og kjöt-
ið er sett í hana og mat-
reiða það um leið.
Auðvitað hentar vel að
borða grænmeti og brauð
með þessu.
Haggis frá Skotlandi
Skotar hafa löngum
búið til rétt sem líkist lifr-
arpylsu okkar íslendinga.
Þessi réttur heitir Haggis,
borið fram Hag-ish og er
gerður með því að hakka
innmat ásamt lauk, fitu og
haframjöli og troða í maga kindar.
í Skotlandi fer árlega fram mót
þar sem keppt er um bestu upp-
skriftina og margar uppskriftir eru
til allt frá 15. öld. Vegna samkeppn-
innar eru margir óviljugir að deila
uppskriftum sínum með öðrum og
sumir láta þær hverfa með sér þeg-
ar þeir deyja.
Nútíma haggis er búið til á þann
veg að innmatur, lifur, hjarta og
lungu eru þvegin vel og soðin þar til
þau eru mjúk. Þegar kjötið er soðið,
er kjötið saxað fint og blandað sam-
an við það haframjöli, lauk, salti,
pipar og kryddi sem getur verið
negull eða múskat, ásamt mör. Þess-
ari blöndu er rennt í gegnum grófa
hakkavél og sósu blandað saman
við, yfirleitt kjötsósu eða kjötsoði.
Þvi næst er blandan sett í maga eða
annan poka og honum lokað og síð-
an er pylsan soðin í eina til íjórar
klukkustundir eftir stærð.
Sítrónulifur
Sítrónur fara vel með ýmsum mat
og ekki síst lifur. í þennan rétt er
hægt að nota hvort heldur sem er
kálfa- eða lambalifur.
Gott er að krydda með timian,
steinselju, oregano eða einhverri
blöndu af kryddjurtum. Rétturinn
dugar fjórum.
800 g lifur
safi úr tveim sítrónum
1 msk. kryddjurti
pipar, salt
olía
2 laukar, fínt saxaðir
Skerið lifrina í þunnar sneiðar og
blandið safanum saman við jurtirn-
ar og piparinn. Hellið þessu yfir lifr-
arsneiðarnar og látið standa á borði
i 1/2 -1 klst ,eða allt að 12 klst. í
kæliskáp.
Hitið olíu og látið laukinn malla í
henni, gjaman undir loki. Takið
laukinn af pönnunni og steikið lifr-
ina þannig að hún soðni í gegn en
þorni ekki. Hæfilega steikt er hún
mjúk, safarík og ljúffeng. Setjið
laukinn saman við steikta lifrina og
blandið vel saman.
Með þessu er gott að bera fram
hrísgrjón sem bragðbætt eru með
bráðnu smjöri.
Nýru í
hvítlauks/steinseljusósu
1/2 kg af vel hreinsuðum nýrum
eru skorin í bita og steikt í matarol-
íu á vel heitri pönnu, steikt 1 ca. 4-5
mín. Haldið heitum á meðan sósan
er búin til.
Hrærið saman við matarolíuna
á pönnunni eftirfarandi:
1-2 msk. sinnep
1 tsk. worcestershiresósa
svartur pipar
salt
1 tsk. sítrónusafi
1-11/2 dl rjómi
Setjið nýrun saman við og látið
sjóða í 10 mín. Berið fram með hrís-
grjónum eða stöppuðum kartöflum.
Tilboö verslana
Hraðbuöir ESSO
Gildir til 30. september. |
Q Merrild 103, kaffi, 500 g 339 kr.
Q Stjörnupopp, 100 g 75 kr.
Q Stjörnu-ostapopp, 100 g 75 kr.
Q Lindubuff, 40 g 49 kr.
Q Egils Orka, 1/2 1 119 kr.
Q Heyrnartæki 895 kr.
Q Fiesta gasgrill meö hellu 18.900 kr. \
Ö
ö
©
Uppgrip-verslanir Olís 1
Septembertilboö. j
0 Risahraun, 64 g 50 kr.
Q Mentos Mint, 40 g 45 kr.
Q Mentos Fruit, 40 g 45 kr.
Q Mentos lakkrís, 40 g 45 kr.
Q Yankie giant, 80 g 65 kr.
Q Fresca, 1/21, piast 95 kr.
Q Langlokur, Sóma 195 kr.
Q Arinkubbar, 3 Ibs 139 kr.
Q Arinkubbar, 5 Ibs 199 kr.
Q Mottusett 1990 kr.
Þín verslun
Tilboöin gilda til 13. september. 1
Q 1944 sjávarréttasúpa 20% afsl.
Q Heinz bakaöar baunir, 4 ds. 189 kr. i
Q ísblóm. 4 stk. 229 kr.
0 Cheerios, 567 g 229 kr.
Q Holland kruöur, 115 g 69 kr.
0 Kókómjólk, 6 stk. 279 kr.
Q ABT m/músli 65 kr.
Ö
Ö
©
Nvkaup
Tilboöin gilda tll 13. september. j
0 Avocado 199 kr. kg
Q GK nautahakk, 400 g 699 kr. kg
Q Holta kjúklingahlutar, bl. 499 kr. kg
Q Mariachi tortiiia chips 199 kr.
0 Sprite, 21 149 kr.
Q Freska, 21 149 kr.
Q Egils pllsner, 0,51 59 kr.
ö
Ö
©
Tilboöin gilda til 13. september.
0 Aviko franskar, 750 g 149 kr.
Q Holger bruöur 99 kr.
Q Egils orka, 0,5 1 89 kr.
0 Bayonneskinka 799 kr. kg
0 SS pylsur, lkg+ úr/klukka 749 kr.
0 Bananabix, 500 g 269 kr.
Q Oetker búöingar, 2 teg. 59 kr.
0 Rauö epli 119 kr. kg
0 Fílakaramellur, 250 g 199 kr.
0 MS skólajógúrt, 5 teg. 45 kr. stk.
10-11
Tilboöin gilda til 14. september.
0 Eöalgrís, gordon bleu 898 kr. kg
0 Steiktar beikonbollur 749 kr. kg
0 St. hakkabollur í súrsætri 486 kr. kg
0 Roast-beef 998 kr. kg
0 Kjúklingaborgarar og brauö 198 kr.
0 Pepsi, 21 129 kr.
0 Lays fíögur, mexico 189 kr.
0 Lays fíögur, natural 189 kr.
0 Lays fíögur, paprika 189 kr.
0 Buffalóbiti 159 kr.
Nóatún
Tilboöin gilda á meöan birgöir endast.
0 Knorr pastaréttir, bolognese 189 kr.
0 Knorr pastar. lasagne 189 kr.
0 Knorr pastar. mexik. lasagna 189 kr.
0 Knorr mix kryddréttir 169 kr.
Q Knorr spaghettería 129 kr.
ö
o
ö
Ö
©
Nettó ■
Tilboöin gilda á meöan birgöir endast. j
0 Folaldasnitsel 699 kr. kg
0 Folaldagúllas 699 kr. kg
0 Verkuö sviö, frosin 229 kr. kg
0 lceberg 209 kr. kg
0 Gulrófur 98 kr. kg
0 Pringles pizza, 200 g 189 kr.
Q Kexsm. hrískökur m/súkk. 139 kr. \
0 Always Alldays, 64 stk. o © 459 kr.
Beint samband
við neytendasíðu
Lesendur sem vilja ná sam-
bandi við neytendasíðu DV hafa
til þess nokkrar leiðir.
í fyrsta lagi geta þeir hringt í
beinan síma: 550 5821.
Faxnúmerið er: 5505020 og svo
er það tölvupósturinn en póst-
fangið er: vigdis@ff.is
Tekið er á móti öllu því sem
neytendur vilja koma á
framfæri, hvort sem það eru
kvartanir, hrós, nýjar vörur
eða þjónusta - eða spurningar
um eitt og annað sem kemur
upp á í daglegu lífi. Sé
umsjónarmaður ekki við er
tekið við skilaboðum.
Vigdís Stefánsdóttir
umsjónarmaður neytendasíðu