Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2000, Page 8
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000
8 __________________________________________________________________________________________________________
Útlönd
Fjögurra sekúndna koss
Gore hitti í mark er hann kyssti eig-
inkonuna á landsþinginu. Bush fékk
loksins líka tækifæri.
Kjósendurnir
vilja kossa
George Bush, forsetaframbjóð-
andi repúblikana í Bandaríkjunum
og ríkisstjóri Texas, varð örvænt-
ingarfullur á dögunum. A1 Gore,
varaforseta og forsetaframbjóðanda
demókrata, tókst að hitta banda-
ríska kjósendur í hjartastað með því
að kyssa Tipper eiginkonu sína i 4
sekúndur á sviði á landsþingi
demókrata. Kjósendur sáu allt í
einu nýja hlið á Gore.
Tækifæri Bush kom þó að lokum.
Þegar hann birtist í spjallþætti sjón-
varpsdrottningarinnar Oprah Win-
frey, sem milljónir heimavinnandi
húsmæðra horfa á, fleygði hann
sér beint í fangið á henni og smellti
koss á kinn hennar. Það hefur
aldrei verið kysst svona mikið í
kosningabaráttu í Bandaríkjunum.
Áfram mótmæli
gegn bensínverði
Mótmælum gegn háu eldsneytis-
verði var haldið áfram víðs vegar
um V-Evrópu í gær. Vörubílstjórar
og leigubílstjórar hindruðu umferð
um vegi á Spáni, í Grikklandi og í
Belgíu. í Þýskalandi eru ráðgerð
mótmæli í dag.
Hundruð vörubíla og leigubila
hindruðu í gærmorgun umferð um
leiöir að Madríd á meðan sjómenn
héldu áfram mótmælum í Katalón-
íu, Valenciu og Alicante. Mótmæl-
endur reyndu að koma í veg fyrir
flutning á fiski á markaði.
í Þýskalandi er ráðgert að efna til
fjöldamótmæla í dag við fjölfamar
leiðir í Berlín. Búist er við að um
2000 vöruflutningabilar taki þátt í
mótmælunum.
Mikil spenna eftir forsetakosningarnar í Júgóslavíu:
Beðið eftir Slobo
- Bandaríkin segja stjórnarandstöðuna hafa sigrað
Júgóslavía var eins og hengd upp
á þráð i morgun þegar leiðtogar
stjómarandstöðunnar og stuðnings-
menn þeirra biðu eftir því aö
Slobodan Milosevic forseti svaraði
fullyrðingum þeirra um að þeir
hefðu sigrað hann í forseta- og þing-
kosningunum á sunnudag. Vestur-
lönd taka undir þær yfirlýsingar
stjómarandstæðinga.
Þúsundir andstæöinga Milosevics
héldu upp á sigurinn um alla
Júgóslavíu í gær en til þessa hafa
forsetinn og menn hans ekki sýnt
nein merki þess að þeir ætli að við-
urkenna ósigur sinn.
Vesturlönd, með Bandaríkin í
broddi fylkingar, þrýstu mjög á
Milosevic í gær að játa sig sigraðan.
Bandarísk stjómvöld sögðu að
stjómarandstæðingar heföu unnið
sannfærandi sigur og að þau grun-
aði að Júgóslavíustjóm dragi að
kynna úrslitin á meðan hún reyndi
að breyta talningunni Milosevic í
hag.
„Miðað við atkvæðin sem hafa
verið talin til þessa virðist sem þjóð-
Kostunica bíður
Vojislav Kostunica, helsti frambjóö-
andi júgóslavnesku stjórnarandstöö-
unnar, bíöur eftir viöbrögöum
Slobodans Milosevics forseta viö úr-
slitum forsetakosninganna. Kostun-
ica segist hafa sigraö.
in vilji Milosevic úr embætti," sagði
William Cohen, landvamaráðherra
Bandaríkjanna, við fréttamenn í
gær. „Og þjóðir heims myndu svo
sannarlega fagna þeim úrslitum.
Rúmlega sólarhring eftir að kjör-
stööum var lokaö sáust þess engin
merki að opinber úrslit kosning-
anna væru á næsta leiti. Forseti
Júgóslavíuþings sagði að talning
gengi eðlilega og að hann gæti full-
ur bjartsýni sagt aö Milosevic yrði
kjörinn forseti í fyrri umferð kosn-
inganna.
Vojislav Kostunica, helsti fram-
bjóðandi stjómarandstæðinga, sagði
að hann ætti með réttu að taka við
af Milosevic eftir sigur þjóðarinnar.
Samkvæmt talningu stuðnings-
manna Kostunica fékk hann 55 pró-
sent atkvæða en Milosevic 35 til 37
prósent. Sósíalistaflokkur forsetans
sagði aftur á móti að hann hefði
fengið 45 prósent en Kostunica 40
prósent þegar búið var að telja 37
prósent greiddra atkvæða. Úrslit
verða hugsanlega tilkynnt um
miðjan dag í dag.
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Bolholt Gautland Dunhaga
Skipholt 50-64 Geitland Fornhaga
Skeggjagötu Grundarland Hjarðarhaga
Túngötu Álfhólsveg 70-100 Nýlendugötu
Marargötu Tunguheiði Melaheiði Mýrargötu
Leifsgötu Grettisgötu Laugarásveg
Egilsgötu Njálsgötu Sunnuveg
Sendlar óskast
á blaðadr. DV eftir hádegi.
Æskilegur aldur 13-15 ára.
Upplýsingar í síma 550 5000
Rigning á OL í Sydney
Áhugamenn um strandblak létu rigninguna ekki aftra sér frá því aö fjölmenna
á leik Portúgata og Þjóöverja um bronsverölaunin á Bondi-ströndinni í
morgun. Ekki lá Ijóst fyrir hverjir sigruöu þegar blaöiö fór í prentun. Síöar í
dag keppa Bandaríkin og Brasilía um gullverðlaunin.
Landsfundur Verkamannaflokksins:
Tony Blair tilbúinn í
slaginn við íhaldið
Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, viður-
kennir í ræðu sinni á
landsfundi Verkamanna-
flokksins í dag að stjómin
og flokkurinn hafi átt und-
ir högg að sækja undan-
famar vikur. Hann sé þó
reiðubúinn að berjast við
íhaldsflokkinn sem hefur
skotist upp í fylgiskönnun-
um síðustu daga.
Blair ætlar að reyna að
sannfæra almenning um
að hann skilji gremju
borgaranna yfir svimandi háu bens-
ínverði, að því er háttsettur talsmað-
ur í Verkamannaflokknum sagði í
gær.
Blair hefur leitt Verkamannaflokk-
inn á sex landsfundum og oft þurft að
beijast fyrir skoðunum sínum en and-
staðan við hann hefur aldrei verið
jafnmikil og nú. Allt frá því
Verkamannaflokkurinn
komst til valda eftir kosn-
ingamar 1997 hefur flokk-
urinn haft yfirburðastööu í
fylgiskönnunum. En í kjöl-
far mótmælanna miklu
gegn háu eldsneytisverði
hefur dæmið snúist við að
nokkru og mælist íhalds-
flokkurinn nú með meira
fyigi.
Bæði flokksmenn og
kjósendur mimu fylgjast
grannt með Blair á lands-
fundinum til að kanna hvort hann
þoli mótlætið jafnvel og meðbyrinn.
„Hann gerir sér grein fyrir því að
vegna erfiðleika flokksins og ríkis-
stjómarinnar að undanfömu er þetta
mikilvæg ræða,“ sagöi talsmaður
Verkamannaflokksins. „Hann tekur
baráttunni fagnandi."
Tony Blalr
Breski forsætisráö-
herrann heldur mikil-
væga ræöu í dag.
Tugmilljaröabætur
__ Alríkisdómstóll i
sk-serbneski leið-
ur til ættingja fómarlamba þjóðar-
morðsins á múslímum í Bosníu-
Herzegovinu og þeirra sem komust
lífs af úr hörmungunum.
Frjóvguö egg rugluöust
Talið er aö um 80 konur í Bret-
landi hafi gengið með fóstur sem
ekki var þeirra eigiö vegna mistaka
starfsmanns á glasafrjóvgunardeild-
um.
Olíuverö hækkar
Olíuverð hækkaði í morgun á
mörkuðum í Asíu og fór upp í 31,77
doflara á tunnuna.
Arafat og Barak á fundi
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, og Yasser Arafat Palestínu-
leiðtogi hittust í gærkvöld norðan
við Tel Aviv. Var þetta í fyrsta sinn
sem þeir hittust síöan friðarviöræð-
umar í Camp David fóru út um þúf-
ur i sumar.
Yfirdómari víkur
Yfirdómari i kínverska dómstóln-
um, þar sem réttað er vegna gífur-
legs spillingarmáls, hefur hætt
störfum. Sagt er hann hafi fengið
annað embætti. Hundrað opinberra
starfsmanna hafa verið ákærðir fyr-
ir mútur og smygl.
Frægir styðja Nader
Fjöldi frægra
bandarískra tónlist-
armanna, leikara
og menntamanna
hefur lýst yfir
stuöningi við Ralp
Nader, forsetafram-
bjóðanda Græn-
ingja. Samkvæmt
nýjustu könnunum nýtur Nader
fylgis 5 prósenta kjósenda.
Gefast ekki upp
Þrátt fyrir að yfirvöld á Filipps-
eyjum hafi fyrir rúmri viku sent um
4 þúsund hermenn og lögreglumenn
gegn uppreisnarmönnum hefur ekki
tekist að frelsa gísla þeirra. 105 upp-
reisnarmenn hafa þó verið fefldir.
Aukiö eftirlit í Jakarta
Lögreglan í
Jakarta í Indónesíu
ætlar að auka ör-
yggiseftirlit á
fimmtudaginn þeg-
ar réttað verður á
ný yfir Suharto,
fyrrverandi forseta.
Sprengjuárásir hafa
verið gerðar að undanfómu í borg-
inni og hafa stuðningsmenn
Suhartos verið grunaðir um að bera
ábyrgð á þeim. Suharto er ákærður
um að hafa dregið sér stórfé.
Mótmæli í Prag
Hundruð mótmælenda fóra
snemma á fætur í morgun tfl að
safnast saman við fundarstaði full-
trúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
Alþjóðabankans.