Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2000, Side 4
4 MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2000 J3V Fréttir Madeleine Albright horfir til sparnaðar í Keflavík: Sýnum sparnaði skilning - segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra - Albright er hlý kona og dugleg Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra segir heimsókn Madeleine Al- bright, utanrikisráðherra Bandarikj- anna, um helgina hafa tekist afskap- lega vel. Albright sagði á blaðamannafundi á laugardag að ekki væri að vænta mik- illa breytinga á vamarsamstarfi ríkj- anna tveggja þrátt fyrir aö spumingu um kostnaðarhliðina sé ósvarað. Hall- dór segist ekki túlka ummæli banda- ríska utanrikisráðherrans neikvætt. „Það liggur fyrir að Bandaríkja- menn vilja draga úr kostnaði eins og allir aðrir og við þurfum að hjálpa til við að gæta aðhalds í Keflavík. Við höfum verið að auka frjálsræðið og fleiri og fleiri verk fara í útboð og við verðum að sýna skilning á því. Það þýðir þó ekki að það dragi úr þeim vamarmætti sem hér er,“ segir hann. Albright sagði framlag íslendinga til friðargæslu og lýðræðisþróunar vera umfangsmeira en stærð lands og þjóðar gæfi vonir um og að hlutverk íslands í NATO færi vaxandi. „Það hefur orðið mikil breyting í ut- anríkispólitík íslands. Við eram orðin þátttakendur í friðargæslu og eram að auka okkar hlut í þróunarhjálp og þetta verður til þess að meira er tekið eftir íslandi," segir Halldór. Eftir blaðamannafundinn héldu Madeleine Albright og islenskur starfsbróðir hennar til hádegisverðar með þingmönnum í Þjóðmenningar- húsinu. Athygli matargesta beindist að bandaríska utanríkisráðherranum þar sem hún þurfti itrekað að hafa af- skipti af heimsmálunum. „Hún var í tengslum vegna Rúss- lands og ísraels og þurfti einu sinni að bregða sér frá borðum. Þetta sýnir bara hvað álagið sem fylgir því að vera bandariskur utanrikisráðherra er gríöarlegt," segir Halldór. Madeleine Albright fór ásamt ís- lenskum starfsbróður sinum til Þing- valla og gengu þau þar saman í Al- mannagjá. „Samræðumar þar vora á persónu- legum nótum. Við töluðum meðal ann- ars um sögu íslands og þessa staðar og þau táknrænu mörk Evrópu og Amer- íku sem hér liggja. Ég sagöi henni í gríni að íslendingar þyrftu litlar áhyggjur að hafa, þar sem landið er sí- fellt að stækka,“ segir Halldór. Að sögn hans vora samskiptin við Madeleine Albright ánægjuleg og vin- gjamleg í hvívetna. Starfssystkin spásséra Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og íslenskur starfsbróöir hennar spjölluðu um sögu Islands og upphaf byggöar á göngu um Almannagjá á laugardag. „Hún er hlý kona og mjög dugleg. Þrátt fyrir það mikla álag sem er á henni hefur hún sín persónulegu áhugamál. Meðal annars er hún áhugamanneskja um skíði og umræö- urnar snerast um það á tímabili á leið okkar til Þingvalla," segir hann. Auk heimsóknar til starfsmanna vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli og viðræðna viö Davíð Oddsson forsætis- ráðherra í stjómarráðinu keypti Madeleine íslenska minjagripi í mið- borg Reykjavíkur og tók þátt i alþjóð- legri kvennaráðstefnu. Hún fór af landi brott í gærmorgun. -jtr Samningur um vísindasamstarf Utanríkisráðherrarnir undirrituðu samning um vísindasamstarf á blaðamannafundi í Ráðherrabú- staðnum á Tjarnargötu. Davíð og Albright Madeleine Albright hitti Davíö Oddsson forsætisráöherra að máli í stjórnarráöinu á laugardag. DV-MYND ÞÖK Brotlegur við lög Einn mótmælenda við Þjóðmenning- arhúsið var fangaður af lögreglu eftir að hafa rofið línu sem hélt mótmæl- endum frá bandaríska utanríkisráð- herranum. Heimsókn Albright: Mótmælandi handtekinn Nokkrir tugir mótmælenda söfnuð- ust saman á Hverfisgötu þegar Made- leine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og fylgdarlið hennar mættu í hádegisverð í Þjóðmenningar- húsinu í boði utanríkisráðuneytisins. Mótmælendurnir höfðu meðferðis spjöld þar sem meðal annars var kraf- ist brottvikningar bandaríska vamar- liðsins. Einn mótmælandi var fjar- lægður um skeið af lögreglumönnum þar sem hann hafði rofið línu lögregl- unnar sem aðskildi mótmælendur frá svæði í kringum Þjóðmenningarhúsið. Mótmælandanum var sleppt lausum aftur, réttum megin línunnar, eftir að hópurinn hafði kallað slagorðið „sleppið Rúnari" um nokkra stund. Við svo búið hrópaði hópurinn nafn hins lausa ítrekað í fögnuði. Samkvæmt heimildum DV mun Madeleine Albright hafa tekið mót- mælunum vel og sagt þau vera hluta lýðræðisins. -jtr Slagsmál og pústrar Mikill erill var hjá lögreglunni i Reykjavík á laugardagskvöld og að- faranótt sunnudags. Talsverður mann- fjöldi hafði safnast saman í miðborg- inni. Að sögn lögreglunnar vora um 1500 manns þegar mest var. Er það meiri fjöldi en safnast hefur saman þar undanfamar helgar. Mörg útköfl bárast lögreglu vegna hávaða í heimahúsum og víða þurfti að skakka leikinn. Þá var mikið um slagsmál og pústra í miðborginni. -JSS ' Rvolíl SðjaBíaMgur siúv?u+ REYKJAVIK Sólariag í kvöld 18.52 Sólarupprás á morgun 7.43 Síódeglsflóö 21.21 Árdeglsflóð á morgun 3.45 SKýriníiar & voöurtáknurn Jt^VINDÁTT 10°—HIU Víðast rigning Austan 8-13 m/s og rigning en þurrt aö mestu norðaustanlands. Snýst í vestan 5 til 10 og styttir upp sunnan til, en lengst af rigning um landiö noröanvert á morgun. Hiti 4 til 9 stig. -rjómælingar eru geröar í samstarfi láttúrufræöistofnunar íslands og /eöurstofu íslands og fara fram í fimm nánuöi á ári, frá byrjun maí til loka september. Mælingarnar sýna frjótölu ;em er meöalfjöldi frjókorna sem mælist einum rúmmetra andrúmslofts á ólarhring. í Reykjavík er sýnum safnaö í rjógildru í tveggja metra hæö í mælireit /eðurstofunnar. ^51 -io° ^SVINDSTITRKUR VpnncT j metfum á wkúntíu xrrtuði HBÐSKÍRT o O IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ V w RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA 9 == ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA VEÐUR RENNINGUR ■MMIÉ Breytileg átt, 5 til 8 metrar á sekúndu og smáskúrir víöast hvar og léttskýjað. Hiti 4 til 9 stig aö deginum en sums staðar vægt frost aö næturlagi. fVlí$vi>{ aBBgg Vindur: 5-8 m/s Hiti 4° tii 9° Breytileg átt og smáskúrir. sums staöar vægt frost aö næturlagi. Hæg norövestanátt og skúrir á Norðurlandi en léttskýjaö og mildara sunnan og vestantil. festudai Vindun J 4-7 Hiti 3» tii 8” Sunnan og suö- vestan strekkingur og rigning, einkum sunnan og vestantil. Milt í veöri. Usjö/vö u ingkiríj j AKUREYRI BERGSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI súld súld rigning léttskýjaö súld súld skýjaö léttskýjaö 8 7 7 11 10 8 7 9 9 BERGEN rigning 14 HELSINKI alskýjaö 13 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 14 ÓSLÓ rigning 14 STOKKHÓLMUR þokumóöa 17 ÞÓRSHÖFN skýjaö 11 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 13 ALGARVE skýjaö 20 AMSTERDAM skýjaö 19 BARCEL0NA heiöskírt 14 BERLÍN léttskýjaö 22 CHICAGO léttskýjað 9 DUBLIN skúr 15 HALIFAX skýjaö 7 FRANKFURT léttskýjaö 22 HAMBORG léttskýjaö 23 JAN MAYEN rigning 6 LONDON úrkoma 18 LÚXEMBORG léttskýjaö 21 MALLORCA MONTREAL heiöskírt 3 NARSSARSSUAQ skýjaö 0 NEWYORK léttskýjaö 7 ORLANDO éttskýjaö 21 PARÍS alskýjaö 17 VÍN léttskýjaö 21 WASHINGTON skýjaö 8 WINNIPEG heiösklrt 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.