Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2000, Qupperneq 8
8
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000
I>V
Núverandi og fyrrverandi
William Hague og John Major á leið
inn á flokksþings íhaldsins breska.
Hague í skugga
Portillos á þingi
íhaldsflokksins
William Hague, leiðtogi breska
íhaldsflokksins, féll í skugga
Michaels Portillos, hugsanlegs
keppinautar síns, á landsfundi
ílokksins í Bournemouth í gær.
Ræða Portillos, sem er fjármála-
ráðherra í skuggaráðuneyti ihalds-
ins, vakti mikla hrifningu við-
staddra. Þar fann hann meðal annars
evrunni, sameiginlegum gjaldmiðli
Evrópusambandsins, allt til foráttu.
Portillo sagði aö Danir hefðu sýnt
það og sannað með því að hafna evr-
unni í síðustu viku að hrokafullir
stjórnmálamenn gætu ekki gabbað
heilu þjóðimar eöa þvingað fram
fram vilja sinn gagnvart þeim.
Margir telja að Portillo geti orðið
Hague skeinuhættur í baráttunni
um leiðtogasætið gangi íhaldinu
ekki vel í næstu þingkosningum,
sem verða hugsanlega á næsta ári.
Díana prinsessa
var glannaleg
með eigið öryggi
Díana prinsessa var allt að því
glannaleg þegar hennar eigið öryggi
var annars vegar og það kann að
hafa átt þátt í dauða hennar í París
árið 1997. Þetta kom fram í viðtali
sem Patrick Jephson, fyrrum að-
stoðarmaður hennar, veitti banda-
rísku sjónvarpskonunni Barböru
Walters. Jephson hefur skrifað bók
um ár sín í starfi hjá Díönu.
Jephson sagði í viðtalinu að
sennilega heföi bílslysið í París ekki
orðið ef Díana hefði enn haft líf-
verði sina frá Scotland Yard. Hún
lét þá hins vegar róa þremur árum
fyrir dauða sinn.
Hann sagði að lífverðimir hennar
hefðu aldrei leyft henni að fara upp
í bílinn hjá Henri Paul.
„Á því skeiði var hún orðin allt
að því glannaleg gagnvart sjálfri
sér,“ hafði breska blaðið Daily Mail
eftir Jephson i viðtalinu sem verður
sýnt vestra á fóstudagskvöld.
Hann sagði að stundum hefði bor-
ið á löngun Díönu til að vera ein-
hvers konar fórnarlamb, eða í það
minnsta löngun hennar til að njóta
samúðar annarra.
Góöur meö sig
Al Gore, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni demókrata, var ánægöur með sig aö loknum fyrsta kappræðufundin-
um með George W. Bush, ríkisstjóra í Texas og frambjóöanda repúblikana. Kjósendur telja aö Gore hafi staðið sig
betur og um það snýst jú máliö, aö ná hylli kjósenda. Með Gore á myndinni eru dæturnar Kristin og Karenna.
Fyrstu kappræður Als Gores og Georges W. Bush í gærkvöld:
Gore talinn hafa
staðið sig betur
DV. BOSTQN _______________________
Fyrstu kappræður forsetafram-
bjóðenda demókrata og repúblikana
í Bandaríkjunum (BNA), Als Gores
og Georges W. Bush, fóru fram í
íþróttasal Massachusetts-háskóla í
Boston í gærkvöld. Gríðarleg örygg-
isgæsla var við háskólann og tölu-
verður fjöldi mótmælenda, flestir
stuðningsmenn forsetaframbjóðand-
ans Ralphs Naders, hrópuðu slagorð
gegn stórfyrirtækjum og kröfðust
þess að þeirra maður fengi að taka
þátt.
Um 20 manns voru handteknir.
Nader hugðist fara inn í salinn þar
sem kappræðumar áttu að fara fram
en var vísað í burtu og hótað hand-
töku yrði hann ekki við beiðninni.
Eldri borgarar afskiptir
Gore og Bush deildu helst um heil-
brigöiskerfi BNA og þær mismun-
andi leiðir sem þeir ætla að nota til
þess að útfæra kerfið. Gore sakaði
Bush um að 95 prósent eldri borgara
í BNA fengju enga aðstoð við kaup á
lyfseðilsskyldum lyfjum í þeirri
áætlun sem hann hefur lagt fram.
Að sama skapi sakaði Bush Gore
um að hafa ekki mætt þörfum eldri
borgara á þeim átta árum sem hann
hefur gegnt embætti varaforseta
Bandarikjanna.
Frambjóðendurnir deildu líka um
hvemig nota ætti tekjuafgang ríkis-
sjóðsins. Bush sagði að hann vildi
skila tekjuafgangi ríkissjóðs til skatt-
greiðenda með gríðarlegum skatta-
lækkunum.
Gore hélt því fram að næði Bush
kjöri fengju aðeins þeir sem eru með
yfir eina milljón dollara í árslaun
umrædda skattalækkun.
Ekki var að sjá hvor hefði unnið
kappræðumar í gærkvöld og vom
flokkslínur mjög skarpar.
George E. Pataki, ríkisstjóri New
York-ríkis, var ekki á því að Gore
hefði staðið sig betur, eins og
blökkumannaleiðtoginn og klerkur-
inn Jesse Jackson heldur fram í
stuttu spjalli við fréttaritara DV á
baksíðu blaðsins.
„A1 Gore og hans stjóm hefur
fengið tækifæri til þess að standa
sig síðastliðin átta ár og það hefur
ekki tekist hingað til. Það er tími
til þess kominn að menn með
breyttar áherslur komi til Was-
hington, menn sem hafa sýnt það
og sannað hvers þeir eru megnug-
ir," sagði Pataki og vísaði til vel-
gengni Texas á síðastliðnum árum.
Hann neitaöi því þó að hann efað-
ist um heilindi Als Gores.
Ekkl sannað síg
„Ég efast ekki um að hann vilji vel
en hann hefur sýnt það og sannað í
gegnum tíðina að hann er þess ekki
megnugur.“
í sama streng tók Tommy
Thompson, ríkisstjóri Wisconsin-
ríkis, og bætti við að fylgi Bush
myndi líklegast aukast um fjögur
prósent í beinu framhaldi af þess-
um kappræðum.
Sjónvarpsáhorfendur sem fylgdust
með kappræöunum töldu að Gore
hefði haft vinninginn. Samkvæmt
skyndikönnun CBS sjónvarpsstöðv-
arinnar töldu 56 prósent aðspurðra
að Gore hefði staðið sig betur en 42
prósent sögðu að Bush hefði veriö
betri.
-ÓRV
Störf hjá Leikskólum
R-eykjavíkur
• Leikskólakennarar, starfsmenn með aðra menntun og/eða reynslu óskasttil
starfa við eftirtalda leikskóla:
• Leikskólann Overgastein við Seljaveg
Upplýsingar veitir Elín Mjöll Jónasdóttir, leikskóiastjóri i síma 551-6312
• jLeikskólann Austurborg við Háaleitisbraut
Upplýsingar veitir Erna Jónsdóttir, leikskólastjóri í síma 553-8545
• iLeikskólann Sólhlíð við Engihlið
Upplýsingar veitir Elísabet Auðunsdóttir, leikskólastjóri i síma 551-4870
Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum
leikskóla, á skrifstofu Leikskóla Reykjavikur og á
vefsvæði, www.leikskolar.is.
I iLel
Leikskólar
Reykjavíkur
Spretti upp kvið
ófrískrar konu
Bamshafandi 23 ára kona, Ther-
esa Andrews, fannst látin í fyrradag
í bænum Ravenna í Ohio í Banda-
ríkjunum. Búið var að spretta upp
kvið hennar og barnið, sem hún
gekk með, var horflð.
Theresa, sem var komin rúma 8
mánuði á leið, hvarf sporlaust fyrir
viku. Lik hennar fannst í bílskúr 39
ára konu sem bjó ekki langt frá.
Bamið var á lifl f húsi konunnar.
Rannsókn á sjúkrahúsi leiddi 1 ljós
að þaö var viö góða heilsu. Talið er
að bamið, sem er drengur, hafi
fæðst sama dag og Theresa hvarf.
Konan hafði verið yfirheyrö fyrr
vegna málsins. Þegar lögreglan kom
aftur í fyrradag heyrði hún skot-
hvell og fann konuna látna á efri
hæð hússins.
Ekki er talið útilokað að konan
hafi misst fóstur og truflast á geði
við fósturmissinn.
Ekki á móti stækkun ESB
Poul Nyrup
Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dan-
merkur, sagði i
stefnuræðu sinni á
þingi í gær að þrátt
fyrir að Danir hefðu
hafnað evrunni
þýddi það ekki að
þeir hefðu snúið baki við Evrópu-
sambandinu, ESB, og væru á móti
stækkun þess.
Ellefu ára rændi banka
Lögreglan í Flórída handtók í gær
11 ára dreng og kærði hann fyrir til-
raun til að ræna banka. Piltinn
vantaði fé til að komast á McDon-
ald-veitingastað. Hann yfirgaf bank-
ann með hnefafylli af dollurum en
gafst upp fyrir manni sem bað hann
mn að láta frá sér hnífinn er hann
var með.
Fékk ekki heilablóðfall
Forseti Indónesíu, Abdurrahman
Wahid, neitaði I morgun vangavelt-
um um að hann hefði fengið heila-
blóðfall er hann var í utanlandsferð
á dögunum. Kvaðst Wahid vera viö
góða heilsu.
Ellilífeyrisþegar mótmæla
Um 50 sænskir ellilifeyrisþegar
hafa síðan á fimmtudaginn setiö um
skurðdeild á sjúkrahúsi í bænum
Mariestad í Svíþjóð. Eru ellilífeyris-
þegamir að mótmæla fyrirhugaðri
lokun deildarinnar.
Samvinna við Rússa
Indverjar og Rússar undirrituðu í
gær samkomulag um samvinnu
gegn hryðjuverkum.
Nýr forsætisráðherra
Chang Chun-hsi-
ung, aðstoðarfor-
sætisráðherra Taí-
vans, var i morgun
útnefndur forsætis-
ráðherra landsins.
Fyrirrennari hans,
Tang Fei, sagði af
sér í gær af heilsu-
farsástæðum. Talið er að ástæðan
hafi þó verið deilur um fyrirhugað
kjarnorkuver sem forseti landsins,
Chen Shui-bian, er andvígur.
Tilboð um brjóstastækkun
Kvennasamtök í Svíþjóð réðust i
gær harkalega á útvarpsstöð sem
boðið haföi brjóstastækkun sem
fyrstu verðlaun í keppni. Stækkun-
ina átti sú að fá sem gæfi upp bestu
ástæðuna fyrir þörf á henni.
Chapman áfram í steini
Mark David
Chapman, morðingi
bítilsins Johns
Lennons, verður að
dúsa áfram í fang-
elsi. Náðunarnefnd
New York hafnaði
því í gær að láta
Chapman lausan,
eins og hann hafði farið fram á.
Tuttugu ár eru liðin frá því Lennon
var drepinn við heimili sitt á Man-
hattan.
Sameinlngarhátíð
Bæði innlendir og erlendir leið-
togar fögnuðu í gær í Dresden sam-
einingu þýsku ríkjanna ásamt
hundruðum þúsunda Þjóðverja.
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari,
tók ekki þátt í opinberum hátíðar-
höldum.