Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2000, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2000, Blaðsíða 21
4 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 DV 37 Tilvera Heston 76 ára Sá ágæti kvik- myndaleikari, Charlton Heston, verður sjötíu og sex ára i dag og ber hann aldurinn vel. Á sjötta, sjöunda og í byijun áttunda áratug- arins var hann ein helsta kvikmyndastjama í Hollywood og lék í hverri stórmyndinni á fætur annarri. Heston hefur ekki legið á skoð- unum sínum. í fyrstu skipaði hann sér i hóp róttækustu leikara en sneri síðan við blaðinu og er einna lengst til hægri af leikurum og er í dag forseti hins um- deilda félagsskapar manna sem vilja vemda rétt allra til að eiga skotvopn. Gildir fyrir fimmtudaginn 5. október Vatnsberinn (20. ian,-18. febr.l: I Nú er gott tækifæri til að koma hugmyndum þínum á framfæri, sér- staklega varðandi nýj- ungar. Happatölur þínar eru 7,13 og 34. Fiskarnlr (19 febr-20. marsl: ■Einhver persóna, sem hefur verið þér ofar- lega í huga, kemur þér mjög á óvart. Það verður Dreyting á einhverju heima fyrir. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): , Dagurinn verðiu- I skemmtilegur og þú tekur þátt í áhugaverð- um umræðum. Eitt- hvað sem þú hefúr beðið eftir lengi gæti gerst í dag. Nautið (20. apríl-20. maíl: / Morgunninn verður V f annasamur og þú átt fullt í fangi með að V J ljúka verkefhum semþér eru fengin. niuiuiiini ui ÖPI Tvíburarnir 121. maí-21. iúníi: Viðskipti ættu að * ganga vel og þú ert heppinn í samningum. Andstæðingur þinn ber mikla virðingu fyrir þér. Tvíburarnir (2 /vi -x' ber míkla v: Krabblnn 122. iúní-22. iúiíi: Vertu á verði gagnvart I manneskjum sem eru þér ósammála. Þær ____ gætu reynt að beita brögðúm til að fá sínu framgengt. Uónið (23. iúlí- 22. éeúst): f^~\ Fjölskyldan kemur M J mikið við sögu í dag. Þú ættir að eyða meiri tíma með henni og huga að íoforði sem þú gafst fyrir stuttu. Mevlan (23. áeúst-22. seot.i: íi*. Þú færð efasemdir um ' VlM heiðarleika eða ein- ^^^Llægni einhvers. Þú átt - r rétt á að fá skýringu á þvi sem þú áttar þig ekki á. Vogin (23. sent.-23. oktJ: Það verður mikið um að vera fyrri hluta dagsins. Láttu ekki freistast þó að fólkið í krlngum þig sé kærulaust. Haltu þig við áætlun þína. Sporðdrekl (?A. nkt.-?1. nnvJ: Ákveðin manneskja gerir eitthvað sem þér , gremst og þú átt erfitt I = <i með að sætta þig við. Astandið batnar með kvöldinu. Bogamaður (22. nóv.-2i. des.): iÞér finnst ailt ganga r hægt í byxjun dagsins en það borgar sig að vera þolinmóður. Kvöldið verður ánægjulegt. Steingeltin (22. des.-l9. ian.): Þú færð einhveijar óvæntar fréttir og veist líklega ekki alveg hvernig þú átt að túlka þær. Þú ættir bara að bíða og sjá hvað verður. Einleikurinn Háaloft verður frumsýndur í kvöld: Geðhvarfasýki í návígi í einleiknum Háalofti upplifa áhorfendur veröld Karítasar Ólafsdóttur, sem er geðhvarfasjúklingur, á afar náinn hátt. Kaffileik- húsið er lítið og persónu- legt leikhús og áhorfendur eru því í miklu návígi við Karítas og upplifa upp- og niðursveiflur hennar sterkt. Vala Þórsdóttir er bæði höfundur og leikari í leik- ritinu Háalofti sem verður fumsýnt i Kaffileikhúsinu í kvöld. Það er þriðji einleik- urinn í einleikjaröð Kaffi- leikhússins, í öðrum heimi. Vildi kynna geð- hvarfasýki Vala hefur lengi haft á prjónunum að skrifa verk til að opna umræðuna um geðhvarfasýki sem svo lít- ið er talað um. „Ég missti vinkonu mína úr þessum sjúkdómi árið 1986 og dán- arorsök flestra gerðhvarfa- sjúklinga er sjálfsmorð. Sjúkdómnum skaut seinna upp í fjölskyldunni minni og þá varð ég alveg stað- ráðin í að gera eitthvað í málinu," segir Vala. Tvö ár eru liðin síðan hún ákvað að skrifa verkið en fjár- mögnun uppsetningar lán- aðist ekki í fyrstu atrennu. Hún lagði því hugmyndina á hilluna þar til leiklistar- hátíð sjálfstæðu leikhús- anna, Á mörkunum, aug- lýsti eftir hugmyndum að leikritum. „Þá henti ég hugmyndinni inn og hún var svo valin inn á hátíð- ina.“ Vala gekk svo inn í einleikjaröð Kaffileikhúss- ins með verkið og leitaði samstarfs við Geðhjálp. Hún tekur þátt í verkefn- inu Geðrækt sem er þriggja ára átak til kynn- ingar á geðsjúkdómum sem Geðhjálp stendur að ásamt Vala Þórsdóttir Er bæði höfundur og leikari í leikritinu Háalofti sem verður fumsýnt í Kaffíleikhúsinu í kvöld. öðrum. Vala sýnir leikrit- ið í tengslum við átakið, bæði á alþjóðlega geðheil- brigðisdeginum og á Geð- veikum dögum í háskól- anum. Skemmtileg vinna Þótt tvö ár séu liðin síð- an Vala ákvað aö skrifa leikritið byrjaði hún ekki fyrr en í vor. „Ég vildi ekki ekki fara að taka við- töl við fólk, sjúklinga, aö- standendur, lækna o.fl. fyrr en tryggt væri að af sýningunni yrði vegna þess að ég vildi ekki vera að róta í tilfinningum fólks fyrr.“ Ágústa Skúladóttir leik- stýrir Völu, Rannveig Gylfadóttir gerir leik- mynd og búninga, Jóhann Bjami Pálmason hannar lýsingu og Pétur Hall- grímsson sér um tónlist- * ina. Sýningarstjóri er Kol- brún Ósk Skaftadóttir og hljóðfæraleikarar eru Dean Ferrel og Úlfur Eld- járn. „Einleikjaformið get- ur verið mjög einmana- legt,“ segir Vala en svo er þó ekki með uppsetningu Háalofts vegna þess hversu margir koma að sýningunni og samstarfið segir hún hafa verið alveg einstaklega skemmtlegt. „Hópurinn hefur smollið 'm' einstaklega vel saman og það hefur komið á daginn að allir hafa einhverju að miðla í sambandi við geð- hvarfasýki, ailir þekkja til sjúkdómsins þótt svona lítið sé talað um hann.“ Geðhvarfasýki er gríð- arlega algengur sjúkdóm- ur og aukin þekking al- mennings á honum er því brýn. Einleikurinn Háa- loft gefur lifandi mynd af sjúkdómnum og á því brýnt erindi við alla. -ss Bíógagnrýni Onegin - Tilbrigöi við ást ~~ um kvikmyndir. Það er vetur í Pétursborg, vindur- inn er eins og éljadrífa í andlitið á þeim sem úti eru. Inni í hitanum eru nokkrir aðalsmenn aðm skemmta sér, aðallega yfir því hversu ljót og leiðinleg dans- og söngkonan á sviðinu er. Sá sem læt- ur mest níðandi setningar falla er Evgení Onegin (Ralph Fiennes), lífs- leiður ungur maður sem er með hjartahita á við veturinn úti. í fram- haldi fylgjumst við með andhetju okkar þegar honum berst bréf um að frændi hans sé að deyja. Eina ástæðan fyrir því að hann fer á fund frændans er sú að hann á von á arfi. Þegar Onegin kemur á leiðarenda er frændinn dáinn og Onegin hefur ekki aðeins erft herrasetur og pen- inga heldur einnig yfirráðin yfir bændum. Onegin er byggð á klassísku ljóði sem raunar er heil bók eftir Alex- ander Pushkin, ljóði sem ópera og ballet hefur verið samið upp úr. Sagan er eins og við mátti búast þungt rússneskt drama og sýnir Martha Fiennes talsverðan kjark að ráðast inn á lendur rússneskrar klassískur í fyrstu kvikmynd sinni. Henni hefur samt að mörgu leyti tekist að gera athyglisverða kvik- mynd sem hefur góða stígandi. Onegin er köld persóna, svo ekki sé meira sagt, og þegar Tatjana (Liv Tyler), nágranni hans, feúur fyrir honum þá er það meðal annars vegna þess að í sakleysi sínu heldur hún hann byltingarkenndan hug- sjónamanh. Staðreyndin er að það sem hún sér sem hugsjón er hroki, áhugaleysi og skeytingarleysi gagn- vart þeim sem hann umgengst. Hrokinn kemur best fram þegar hann skilar Tatjönu ástarbréfi, sem hún hafði skrifað honum, með þeim orðum að ást sé eitthvað sem hann viti ekki hvað er og að hann sé ekki gerður fyrir hjónaband. Kaflaskiptin í lifi Onegins verða þegar eini vinur hans skorar hann í einvígi. Þessi vinur hans er heitbund- inn systur Tatjönu, og hafði Onegin gert sér dælt við hana ásamt því að fara ófógrum orðum um hana við vin sinn. Onegin verður vini sínum að bana í flottu atriöi þar sem kuldi og þoka spilar inn í. Yfir líki vinar síns gerir Onegin sér grein íyrir gjörðum sínum og hverfur á brott, birtist sex árum síðar í Pétursborg, hittir Tatjönu sem nú er gift prinsi og sér að sjálf- sögðu of seint af hverju hann hefúr misst. Það er kuldalegur blær en um leið heillandi yfir Onegin og einstaka atriði eru mjög vel gerð. Áður hefur verið minnst á einvígið en vert er einnig að minnast á atriðið þegar Tatjana opnar dymar á danssalnum og í einu vet- fangi eru sex ár liðin. Þetta er kvik- myndalist eins og hún gerist best. Helsti gallinn við myndina er að kuldalegt yfirúorð myndarinnar nær inn leik flesta leikarana og þá sérstak- lega Ralphs Fiennes sem einhverra hluta vegna passar ekki í persónuna. Ég hefði ég viljað sjá Jeremy Irons túlka Onegin. Lyv Tyler, sem fyrir fram hefði mátt telja of reynslulausa1 til að túlka Tatönju, sýnir í leik sínum óvæntan tilfinningahita, sérstaklega í lokin. Hilmar Karlsson Leikstjóri: Martha Fiennes. Handrit: Michael Ignatieff og Peter Ettedgui. Kvlk- myndataka: Remi Adafarasin. Tónllst: Magnus Fiennes. Aöalleikarar: Ralph _ Fiennes, Liv Tyler, Lena Headey og Toby T Stephens.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.