Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2000, Blaðsíða 20
36
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_____________________________
Stefán Ásbjarnarson,
Sundabúð 1, Vopnafirði.
85 ára_____________________________
Lilja Guðmundsdóttir,
Valiargötu 9, Rateyri.
75 ára_____________________________
Siguröur Gunnar Bjarnason,
Ástúni 12, Kópavogi.
Þuríöur Jónsdóttir,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
Gunnlaugur Magnússon,
Hornbrekkuvegi 12, Ólafsfirði.
70 ára_____________________________
Ingibjörg Johannessen,
Barmahlíð 36, Reykjavík.
Helga Kristjánsdóttir,
Hraunbæ 53, Reykjavík.
Þóröur Helgason,
Suöurgötu 96, Hafnarfirði.
60 ára ____________________________
María Erna Óskarsdóttir,
Vesturbergi 30, Reykjavík.
Anna Albertsdóttir,
Hlaðbrekku 6, Kópavogi.
Birgir Jónsson,
Hraunbrún 25, Hafnarfiröi.
Gígja Símonardóttir,
Akursbraut 17, Akranesi.
Ragnar Hallvarösson,
Einigrund 6, Akranesi.
Birgir Steindórsson,
Bakkahlíð 13, Akureyri.
50 ám______________________________
Halldór Runólfsson,
Fjölnisvegi 14, Reykjavík.
Bryndís D. Björgvinsdóttir,
Sólheimum 14, Reykjavík.
Ragna Þórhallsdóttir,
Sörlaskjóli 54, Reykjavík.
Kristín Snæfells Arnþórsdóttir,
Fannarfelli 6, Reykjavík.
Kristbjörg Sveinsdóttir,
Jórufelli 6, Reykjavík.
Ragnhildur Ragnarsd. Engsbraten,
Fannafold 46, Reykjavík.
Birgir Óttar Ríkarösson,
Álfhólsvegi 89, Kópavogi.
Philip Filippus Vogler,
Dalskógum 12, Egilsstöðum.
Ástríður Sveinbjörnsdóttir,
Silfurbraut 13, Höfn.
40 ára_____________________________
Fríöur Birna Stefánsdóttir,
Vöivufelli 44, Reykjavík.
Hörður Gunnarsson,
Lyngheiði 16, Kópavogi.
Þóra Einarsdóttir,
Hraunbrún, Garðabæ.
Einar Ragnarsson,
Hjailabraut 1, Hafnarfirði.
Guömundur Leifsson,
Lækjarbergi 14, Hafnarfirði.
Lárus Hallfreösson,
Ögri, Stykkishólmi.
Sigrún Guömundsdóttir,
Hrauntjörn 5, Selfossi.
Smáauglýsingar
DV
Allt til alls
►I550 5000
Andlát___________j
Guðmundur Halldórsson, Lagarfelli 21,
Fellabæ, andaðist á Sjúkrahúsinu á
Egilsstööum miövikud. 27.9.
Kjartan Guöjónsson, Háeyrarvegi 1,
Eyrarbakka, lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands miðvikud. 27.9. Útförin fer
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Margrét S. Pálsdóttir frá Túni í
Vestmannaeyjum, síðast til heimilis í
Foldahrauni 40, lést á Sjúkrahúsinu í
Vestmannaeyjum föstud. 29.9.
Ágúst Þór Þórsson lést af slysförum
sunnud. 1.10.
Brynhildur Sigtryggsdóttir, Hávegi 15,
Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlið laugard. 30.9.
Vignir Vignisson, Borgarhlíö 3a,
Akureyri, lést sunnud. 1.10.
Magnús Ágústsson bifvélavirki,
Dvergabakka 24, lést föstud. 30.9.
DV
FóllPí íi fréttuim
Runólfur Ólafsson
framkvæmdastjóri FÍB
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, telur að íslendingar greiði
aukagjald á bensín fyrir utan bens-
ínskatt sem nemur 60 prósentum af
verðinu. Þetta kom fram í DV-frétt í
gær um bensínverð og samanburð
við ýmis önnur Evrópulönd.
Fjölskylda
Runólfur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann var í Melaskóla
og Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá
MR 1979 og lauk BA-prófl í sagn-
fræði við HÍ 1985.
Runólfur starfaði á sumrin á
námsárunum við bensínafgreiðslu
og í smávörudeild Skeljungs, starf-
aði við sölu og viðgerðir á hjólhýs-
um og tengivögnum í Svíþjóð 1987,
kenndi við Valhúsaskóla á Seltjarn-
amesi 1987-88, var framkvæmda-
stjóri AVIS bílaleigu í Reykjavík
1988-90 og hefur verið fram-
kvæmdastjóri FÍB frá 1991.
Runólfur æfði knattspymu hjá
KR í æsku og hefur leikið knatt-
spymu með karlafélaginu Árvakri
um árabil. Þá sinnir hann ýmsum
nefndarstörfum sem tengjast starfi
hans.
Fjölskylda
Eiginkona Runólfs er Anna Dag-
ný Smith, f. 9.6. 1963, hjúkrunar-
fræðingur. Hún er dóttir Arnar
Smith og Guðbjargar E. Lárusdóttur
sem búsett era erlendis.
Synir Runólfs og Önnu Dagnýjar
eru Gunnar Öm Runólfsson, f. 23.2.
1988, nemi; Róbert Már Runólfsson,
f. 8.5. 1991, nemi.
Systkini Runólfs eru Frímann
Ólafsson, f. 10.5. 1953, kaupmaður í
Reykjavik; Kristín Ólafsdóttir, f.
15.5. 1954, starfrækir veitingarekst-
ur í Reykjavik; Ólafur Haukur
Ólafsson, f. 1.2. 1962, starfsmaður
hjá Pökkun og flutningi í Reykjavík;
Kjartan Ólafsson, f. 14.6. 1963, fram-
reiðslumaður í Reykjavík.
Foreldrar Runólfs eru Ólafur
Helgi Frimannsson, f. 10.1. 1931,
fyrrv. bankaútibússtjóri í Reykja-
vík, og Guðlaug Kristín Runólfsdótt-
ir, f. 6.9. 1931, húsmóðir.
Ætt
Ólafur er sonur Frímanns, for-
stjóra Hampiðjunnar í Reykjavík,
Ólafssonar, kaupmanns og gestgjafa
í Stykkishólmi, Ólafssonar.
Móðir Ólafs Helga er Jónína Guð-
mundsdóttir, trésmiðs í Stykkis-
hólmi, bróður Sigurðar, skólastjóra
Hvitárbakkaskóla, föður Kristínar
Lovísu alþm.: Þorgríms, prófasts á
Staðastað; Önnu, sagnfræðings og
forstöðumanns Kvennasögusafns-
ins;Ásberg borgarfógeta, og Val-
borgar skólastjóra, móður Sigurðar,
hagfræðings við Seðlabankann, og
Árna fréttamanns Snævarr. Guð-
mundur var sonur Þórólfs, b. á
Skriðnafelli á Barðaströnd, Einars-
sonar, skipstjóra og b. á Hreggstöð-
um á Barðaströnd, Jónssonar, b. á
Hreggsstöðum, Einarssonar.
Guðlaug er dóttir Runólfs, skipa-
smiðs í Vestmannaeyjum, Jóhanns-
sonar, b. á Gamla-Hrauni, bróður
Jóns, föður Guðna prófessors, föður
Bjama prófessors og Bergs, föður
Guðna knattspymumanns. Systir
Jóhanns var Guðríður, langamma
Helgu Hjörvar framkvæmdastjóra,
móður Helga Hjörvar, forseta borg-
arstjómar. Jóhann var sonur Guð-
mundar, formanns á Gamla-Hrauni,
Þorkelssonar, formanns í Munda-
koti, Einarssonar, spitalahaldara í
Kaldaðamesi, Hannessonar. Móðir
Guðmundar á Gamla-Hrauni var
Guðrún Magnúsdóttir, formanns í
Mundakoti Arasonar, b. í Neista-
koti, Jónssonar, b. á Grjótlæk,
Bergssonar, ættföður Bergsættar
Sturlaugssonar. Móðir Jóhanns var
Þóra Símonardóttir, smiðs á Gamla-
Hrauni, Þorkelssonar, hreppstjóra á
Gamla-Hrauni, Jónssonar. Móðir
Símonar var Valgerður, systir
Magnúsar í Mundakoti. Móðir Run-
ólfs var Guðrún Runólfsdóttir, b. á
Arnkötlustöðum i Holtum, Þor-
steinssonar, b. þar, Runólfssonar.
Móðir Guðlaugar var Kristin
Skaftadóttir, b. á Suður-Fossi i Mýr-
dal, Gíslasonar, b. í Norður-Götum,
Einarssonar. Móðir Skafta var Sig-
ríður Tómasdóttir. Móðir Kristínar
var Margrét, dóttir Jóns
Guðmundssonar og Sigurlaugar
Þorleifsdóttur.
Ferfctrgtrr
Björn Guðmundsson
rennismiður
Bjöm Guðmundsson rennismið-
ur, Viðarrima 32, Reykjavík, er
fertugur í dag.
Starfsferill
Bjöm fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Á árunum 1979-84 bjó
Bjöm í Sandgerði og stundaði nám
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavik. Hann lærði rennismíði
hjá Njarðvíkurslipp 1981-84, var í
tvö ár í Noregi og starfaði þar sem
línumaður, kom aftur heim til ís-
lands og settist að í Reykjavík 1987
og gerðist meistari í rennismíði
1989.
Bjöm var rennismiður hjá Vél-
smiðjunni Héðni 1987-90, hjá Njarð-
vikurslipp 1990-92, hjá Steypustöð-
inni 1992-94 en frá árinu 1994 hefur
Bjöm unnið hjá Véla- og skipaþjón-
ustunni Framtaki i Hafnarfirði og
er þar yfirmaður renniverkstæðis.
Fjölskylda
Eiginkona Björns er Eydís Eyj-
ólfsdóttir, f. 17.3. 1970, rekstrar-
stjóri. Foreldrar hennar eru Anna
Sigmarsdóttir, verslunar- og sauma-
kona í Vestmanneyjum, og Eyjólfur
Eðvald Konráðsson smiður, búsett-
ur í Svíþjóð.
Bjöm og
Eydís hófu
sambúð 1989
og giftu sig 1995.
Dætur Bjöms og Eydísar eru
Fjóla Bjömsdóttir, f. 6.9.1992; María
Björnsdóttur, f. 17.7. 1996.
Systkini Bjöms eru Guðmundur
Jón Guðmundsson, f. 8.8. 1954,
bóndi í Eyjafjarðasveit; Hjördís
Guðmundsdóttir, f. 16.11. 1955, hús-
móðir í Reykjavík; Sigurgeir Guð-
mundsson, f. 9.8. 1957, háspennu-
línumaður í Reykjavik; Guðmundur
Sævar Guðmundsson, f. 17.8. 1963,
iðnaðarmaður í Danmörku; Gunn-
jóna Guðmundsdóttir, f. 25.7. 1965,
húsmóðir í Hafnarfirði; Bjami S.
Guðmundsson, f. 26.1. 1971, húsa-
smiður í Njarðvík.
Foreldrar Björns eru þau Guð-
mundur Vigfússon, f. 30.3. 1927,
verkamaður, og Guðveig Fjóla Guð-
mundsdóttir, f. 1.6. 1935, húsmóðir.
Guðmundur og Guðveig Fjóla
hafa lengst af búið i Sandgerði en
eru nú bæði búsett að Þórastíg 14,
Njarðvík.
Leíðréfcfcirtg
Vignir Sveinsson
framkvæmdastjóri fjármála og reksturs FSA
í afmælisgrein um
Vigni Sveinsson, fram-
kvæmdastjóra fjármála
og reksturs Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akur-
eyri, sem birtist í helgar-
blaði DV 30.9. sl„ féh nið-
ur kafli um félags- og
trúnaðarstörf afmælis-
barnsins en ranghermt
var um Rotaryklúbb sem
Vignir starfar með.
Kaflinn um starfsferil og trúnað-
arstörf er því birtur hér í heild og
Vignir beðinn velvirðingar á þess-
um mistökum sem eru af tæknileg-
um rótum runnin.
Vignir var fæddur og uppalinn að
Þverá í Skíðadal.
Hann stundaðin nám í barna- og
unglingaskólanum að Húsabakka í
Svarfaðardal, lauk landsprófi frá
Dalvíkurskóla 1965, lauk prófum frá
Samvinnuskólanum að Bifröst vor-
ið 1971, stundaði framhaldsnám á
vegum Samvinnuskólans til ársloka
1972, þ.m.t nám í Viöskiptafræði-
deild HÍ.
Vignir stundaði nám í Norræna
heilsuháskólanum i Gautaborg 1995,
og hefur sótt ýmis námskeið í
rekstri og stjómun fyrir-
tækja.
Vignir vann á bernsku-
og skólaárum ýmis störf
við landbúnað og fisk-
vinnslu. Hann var bókari
hjá Kaupfélagi Árnesinga
1973-74, bæjarritari á Dal-
vík 1974-78, var búsettur í
Noregi 1978-79, ásamt fjöl-
skyldunni og vann þar
ýmis störf.
Vignir var framkvæmdastjóri Bú-
stólpa hf. 1979-80, deildarstjóri Fóð-
urvörudeildar KEA og KSÞ 1980-82,
og starfsmaður hjá Endurskoðun
Akureyri hf. 1982-86.
Vignir hóf störf sem skrifstofu-
stjóri hjá Fíórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri í 1986 og hefur starfað þar
síðan Hann gegnir nú starfi fram-
kvæmdastjóra fjármála og reksturs
sjúkrahússins.
Vignir var félagi í Rotaryklúbbi
Eyjafjarðar 1991-92, situr í stjórn
Skógræktarfélags Eyfirðinga frá
1987 og er formaður þess frá 1991,
situr í stjóm Skógræktarfélags ís-
lands og Landgræðslusjóðs frá 1991
og er varaformaður Skógræktarfé-
lags Islands frá 1999.
Merkír fsfendíngar
Guðmundur Danielsson rithöfundur
hefði orðið níræður í dag. Hann fædd-
ist að Guttormshaga i Holtum, sonur Dan-
íels Daníelssonar, bónda þar, og Guðrún-
ar Sigríðar Guðmundsdóttur húsfreyju.
Guðmundur var í Héraðsskólanum á
Laugarvatni, lauk kennaraprófi 1934,
og stundaði framhaldsnám við Lærer-
hojskolen í Kaupmannahöfn 1948-49.
Hann var skólastjóri á Suðureyri
1938-43, kennari á Eyrarbakka 1943-44,
skólastjóri þar 1945-68 og kennari við
Gagnfræðaskólann á Selfossi 1968-73.
Guðmundur stundaði ritstörf með
kennslu og skólastjómun og síðan ein-
göngu frá 1973 en hann var einn afkasta-
mesti skáldsagnahöfundur hér á landi.
Guðmundur Daníelsson
Meðal skáldsagna hans má nefna Brœö-
urna í Grashaga, 1935; Á bökkum Bolafljóts,
I. og H. bindi, 1940; Blindingsleik, 1955;
Húsiö, 1963; Járnblómiö, 1972, og Vatniö,
1987. Hann samdi sögulegu skáldsög-
umar Sonur minn, Sinfjötli, 1961, og
Bróðir minn, Húni, 1976, samdi smá-
sögur og leikrit og sendi frá sér ljóða-
bækur, ferðalýsingar, endurminning-
ar og viðtalsbækur. Hann naut heiður-
launa listamanna frá 1974.
Guðmundur var ritstjóri Suöurland
1953-73 og náinn vinur Ingólfs á Hellu.
Hann sat í hreppsnefnd Selfoss, var for-
maður Félags íslenskra rithöfunda 1970-72
og sat í rithöfundaráði 1974r-78.
Guðmundur lést 6. febrúar 1990.
Jarðarfarir
Jóhannes Eiríksson, Víöilundi 20, fyrrv.
starfsmaður á Kristneshæli, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju 6.10.
Albert Stefánsson skipstjóri, Miðgarði,
Fáskrúðsfirði, verður jarðsunginn frá Fá-
skrúðsflarðarkirkju 5.10. kl. 14.00.
Þórir Ágústsson frá Blálandi, Skaga-
strönd, verðurjarðsunginn frá Hólanes-
kirkju á Skagaströnd 7.10. kl. 14.00.
Hulda Helgadóttir, Skólabraut 3, Sel-
tjarnarnesi, áður til heimilis á Seftjörn,
Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Sel-
tjarnarneskirkju 4.10. kl. 13.30.
Hjördis Þorbjörg Guðjónsdóttir frá Bæ í
Lóni, verðurjarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtud. 5.10. kl. 15.00.
Jónína Antonsdóttir, Ægissíðu 4, Sauð-
árkróki, verðurjarðsungin frá Sauöár-
krókskirkju laugard. 7.10. kl. 14.00.