Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
DV
Fréttir
Þjóöin eldist:
Stuttar fréttir
100 ára fjölgað
um 48 prósent
- á tíu árum og þróunin heldur áfram
íslendingar sem náð hafa 100
ára aldri eru nú 46 talsins en voru
31 fyrir tíu árum. Fjölgunin nemur
48,4 prósentum og er hin mesta frá
þvi land byggðist. Jón Snædal
öldrunarlæknir segir að þessi þró-
un haldi áfram og við eigum eftir
að sjá enn fleiri verða enn eldri:
„Þetta er ekki tilviljun því ár-
gangamir sem nú eru að verða
gamlir era svo stórir. Sjálfar ævi-
líkumar aukast hægt en þó eitt-
hvað. Það hefur verið reiknað út
að 85 ára og eldri á eftir að fjölga
um 50 prósent á næstu 15 árum.
En ég vissi ekki að svona margir
væra orðnir hundrað ára,“ sagði
Jón Snædal.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni er augljóst að kon-
ur verða eldri en karlar. Af
þeim 46 sem náð hafa hundrað
ára aldri er 31 kona á móti 15
DV- MYND G. BENDER
Oldruöum fjölgar
Fyrir áratug voru hundraö ára karlar aöeins 6 talsins en hundrað ára
konur voru 25.
karlmönnum. Fyrir áratug
voru hundrað ára karlar að-
eins 6 talsins en hundrað ára
konur voru 25.
„Vegna stórra árganga á
hundrað ára fólki og eldra
eftir að fjölga með sama
hraða næstu 10 árin,“ sagði
Jón Snædal, þannig að árið
2010 verða hundrað ára og
eldri líklega orðnir hundrað.
Jón sagðist taka vel eftir því
hversu sjötugt fólk væri
hressara í dag en fyrir áratug
og það sama ætti við um átt-
ræða:
„Ég geri ráð fyrir að það
sama gildi um hundrað ára
fólk en spurningunni hvenær
fólk fer að verða 150 ára get
ég ekki svarað,“ sagði Jón
Snædal sem sjálfur er fimm-
tugur. -EIR
Brennisteinslykt í Þrengslum:
42 jarð-
skjálftar í
Mýrdalsjökli
- innan eðlilegra marka
Ökumaður sem leið átti um
Þrengslaveg um miðjan dag í gær
varð var við mjög megna brenni-
steinslykt. Kannaðist hann ekki við
að hafa fundið slíkt á þessum slóðum
áður. DV hafði samband við skjálfta-
vakt Veðurstofu íslands vegna þess.
Þar hafði fólk ekki orðið vart við
neitt óvenjulegt sem tengst gæti
þessu svæði. DV hefur upplýsingar
frá fleiri aðilum um gufustróka og
megna brennisteinslykt á þessu
svæði að undanfórnu. Nokkrir
skjálftar höfðu mælst í Þrengslunum
að undanfömu, en ekkert óvenjulegt
virtist vera þar á ferðinni.
Virknin á Suðurlandsundirlend-
inu síðastliðna viku var að mestu
bundin við Holta- og Hestfjalls-
sprungumar, en minni en næstu vik-
ur á undan. Þá mældust 42 jarð-
skjálftar sem staðsettir voru í vestan-
verðum Mýrdalsjökli. Stærð þeirra
var 0,7-2,5 stig á Richter. Þá vora
tveir skjálftar staðsettir í sunnan-
verðum Eyjafjallajökli. Sex skjálftar,
1,6-2,1 stig, áttu upptök sín í
Hofsjökli vestanverðum. Þá varð
jarðskjálfti skammt austan Hamars-
ins í Vatnajökli. -HKr.
DV-MYND INGÓ
Suede komin til landsins
Breska rokkhljómsveitin Suede mun skemmta ísiendingum í Laugardalshöll annaö kvöld. Hér eru hljómsveitarmeðlim-
ir á blaöamannafundi á Hótel Sögu í gær, en þeir voru þá nýkomnir til landsins. Söngvarinn og forsþrakkinn, Brett
Anderson, er lengst til vinstri.
Bæjarstjórnin í Þorlákshöfn rausnarleg:
Öllum bænum boðið
á heimsbikarkeppni
- heimamenn á toppnum í DV-sport-torfærimni
Bæjaryfirvöld í Þorlákshöfn hafa
ákveðið að bjóða öllum bæjarbúum
á síðustu umferð DV-sport-heims-
bikarmótsins í torfæru á laugardag-
inn. Að sögn Ragnars Sigurðssonar,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Þor-
lákshöfn, er ástæðan sú að tveir
efstu mennimir í keppninni, Gísli
G. Jónsson og Haraldur Pétursson,
eru búsettir í Þorlákshöfn og ná-
grenni. Búist er við hörkukeppni
um helgina.
„Viö viljum gefa bæjarbúum kost
á að koma á keppnina og styðja okk-
ar menn og ætlum því að gefa öllum
sem vilja miða á keppnina," segir
Ragnar. Miðana verður hægt að
nálgast á bæjarskrifstofunum í ráð-
húsinu í Þorlákshöfn í dag til klukk-
an fjögur og segir Ragnar að það
eigi að vera nóg til af miðum handa
öllum. „Við vonumst eftir að sem
flestir komi til að fá sér miða og
mæti síðan á keppnina," segir Ragn-
ar. Bæjarbúar eiga von á spennandi
keppni því það er ekki nema eitt
stig sem skilur heimamennina fyrir
lokaumferðina. -MA
DV-MYND JAK
Rausnarlegur bæjarstjóri
Sesselja Jónsdóttir bæjarstjóri Ölfus mátar Arctic Trucks Toyotuna hjá Gísla
G. Jónssyni torfærukaþþa í Þorlákshöfn en bæjarstjórn Ölfus ákvaö á fundi
sínum í vikunni aö bjóöa öllum íbúum sveitarféiagsins á úrslitaviðureign DV-
Sþort Heimsþikarmótsins í torfæru sem fer fram í Bolöldu í
minni Jósepsdals á morgun.
Afgangur 26,3 milljarðar
Samkvæmt ffum-
varpi til fjárauka-
laga, sem iagt var
fram á Alþingi í gær,
eykst tekjuafgangur
ríkissjóðs um 9,6
milljarða og verður
26,3 miiljarðar á
þessu ári. Hreinn
lánsijárjöfnuður verður samkvæmt
frumvarpinu 27,5 milljarðar.
NATO vill æfa í Bláfjöllum
Utanríkisráðuneytið og bandaríski
herinn á Miðnesheiði hafa óskað eftir
þvi við Bláfjallanefnd að fá a&ot af hús-
næði fyrir 50 manns á Bláfjallasvæðinu.
Skiptar skoðanir era um þessa beiðni í
borgarkerfinu og hefur málinu verið
vísað til umsagnar framkvæmdastjóm-
ar vatnsvemdarsvæða á höfuðborgar-
svæðinu. - Dagur segir frá.
FÍB í biðstöðu
Tryggingafélagið FÍB trygging er
hætt að taka við nýjum umsóknum um
bílatryggingar, í það minnsta um
stundarsakir. Skýringin er sú að trygg-
ingafélagið er búið með kvótann sem
það samdi um við Lloyd’s í London fyr-
ir þetta ár og þarf því að semja við þá
aftur. Vonast er til þess að samninga-
ferlið taki einungis nokkra daga, - Vís-
ir segir ffá.
Miðlun trygginga ekki hætt
I tilkynningu frá FÍB tryggingu
kemur fram að ekkert sé hæft í þeim
fféttum að miðlun ökutækjatrygginga
hjá félaginu hafi verið stöðvuð, likt og
fullyrt var í fféttum tveggja fjölmiðla í
gærkvöldi.
Hækkanir eða sveigjanleiki
Lítill árangur hef-
ur náðst í kjaradeilu
ffamhaldsskólakenn-
ara og ríkisins að
undanfómu. Samn-
inganefhd kennara
krefst leiðréttingar á
dagvinnulaunum frá
1. nóvember, að byrj-
unarlaun kennara hækki á næstu
tveimur árum í 190 þús. kr. og meðal-
laun kennara í 240 þúsund. - Mbl. seg-
ir frá.
Hallarekstur í áratug
Samspil rekstrarörðugleika vegna
tekjulækkunar í sveitarfélögum þar
sem fólki fækkar og nauðsyn kostnað-
arsamra stofnframkvæmda í þeim
sveitarfélögum sem fólkið flytur til er
meðal ástæðna fyrir stöðugt versnandi
fjárhagsafkomu sveitarfélaganna að
mati nefndar um tekjustofna sveitarfé-
laga. - Dagur segir frá.
Vinnuslys í Vatnsfelli
Karlmaður fékk 20 millímetra
þykkt steypustyrktarjárn í gegnum
lærið á sér er hann hrapaði fjóra og
hálfan metra í vinnuslysi við Vatns-
fell i gærdag. Maðurinn var að
vinna á byggingarsvæði er slysið
varð, skömmu eftir hádegið í gær.
Vanræksla á hrossum
Lögreglan í Reykjavík var kvödd
að hesthúsi í Víðidal í fyrradag
vegna meintrar vanrækslu á hross-
um. Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var um að ræða þrjú
trippi. Dýralæknir var kvaddur á
staðinn. Hrossunum var komið í
hús og gefið. - JSS
Klæjar í aö skera niður
H„Þetta er nú ekki í
fyrsta skipti sem við
heyrum svona frá
Sturlu Böðvarssyni
samgönguráðherra,
sem klæjar greini-
lega mjög í finguma
að skera niður hér í
höfuðborginni,"
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri vegna ummæla sam-
gönguráðherra á þingi í gær. - Dagur
segir frá. -HKr./JSS/SMK