Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Blaðsíða 24
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
Tilvera
DV
i í f i ft
Vitleysingarnir
í Hafnarfirði
Hafnarfjaröarleikhúsiö sýnir í
kvöld nýtt leikrit eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Leikritið er
svört kómísk sýn á nútímasam-
félagið, hraða þess og firringu.
Aðalhlutverk leika María Elling-
sen, Gunnar Helgason, Björk
Jakobsdóttir, Dofri Hermanns-
son, Erling Jóhannesson, Jó-
hanna Jónas og Halla Margrét
Jóhannesdóttir. Leikstjóri er
Hilmar Jónsson.
Krár
■ LETTIR SPRETTIR A GULLOLP-
INNI Stórsveitin „Léttir sprettir"
fagnar vetrarkomu með leik sínum á
hverfiskránni Gullöldinni, Grafarvogi.
Tilboð á ölinu til kl. 23:30 alla daga.
■ NELLY'S Dj Le Chef trimmar
stuðið fram eftir nóttu.Aliar veigar á
hálfvirði. Stór+skot á 500 kr.
■ PÉTURS PUB Opiö 15:30 -
03:00. Sýnum Tyson og Golgata
föstudagsnótt. Sýnum boltann alltaf
i beinum útsendingum. Bjórinn alltaf
á sama góða verðinu.
■ VEGAMÓT Skífuþeytirinn góð-
kunni Herb Legowitz leikur á föstu-
dagskvöldið.
■ PUBLINER Fiðringurinn fer ham-
förum á efri hæðinni á Dubliner um
helgina. Djamm og djæf og sveiflan
- svo vitnað sé í gamlan dægurlaga-
texta.
Böll
■ KJALLARINN OPNAR! I kvöld
opnar í húsakynnum Leikhúskjallar-
ans nýrskemmtistaður undir nafninu
Kjallarinn. Tónlistin er-Salsa, R’n’B
og rjóminn af því sem heyrist á FM
95,7 og Mono 87,7. í tilefni af því
að Skjár 1 er eins árs verður gleði
strax aö lokinni útsendingu „Djúpu
laugarinnar" um kl. 23:30. Boðsmið-
ar í boði hjá Skjá 1. 22 ára tak-
mark.
Klassík
V ART-2000 Alþjoöleg raf- ogtölvu-
ónlistarhátíð í fýrsta skipti á Islandi
Salnum í Kópavogi.
Leikhús
■ DRAUMUR A JONSMESSUNOTT
í kvöld hefjast aftur sýningar á
Draumi á Jónsmessunótt í Þjóðleik-
húsinu. Takmarkaður sýningarfjöldi.
■ HÁALOFT Háaloft er einleikur um
konu með geðhvarfasýki eftir Völu
Þórsdóttur. Sýningin hefst kl. 21.00
i.Kaffileíkhúsinu í Hlaðvarpanum.
Örfá sæti laus. Tveir fýrir einn.
■ LÉR KONUNGUR Lér konungur í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.00.
Leikstjóri Guðjón Pedersen.
■ MEP FULLRI REISN Leikritið
IVIeð fullri reisn er sýnt í Tjarnarbíói
kl. 20.30 í kvöld. Miðapantanir í
síma 561 0280.
■ Á SAMA TÍMA AP ÁRI Á sama
tíma að ári veröur sýnt nokkrum
sinnum sem upphitun fýrir framhald-
iö, A sama tíma síðar sem frumsýnt
verður á næstunni. Sýningin í kvöld
hefst kl. 20 og er í Loftkastalanum.
■ HELLISBÚINN Bjarni Haukur er
enn þá Hellisbúinn í íslensku óper-
unni. Sýningin gengur enn fyrir fullu
húsi. Holl lexía fýrir bæöi kynin.
Leikstjóri er Sigurður Sigurjónsson.
Sýning í kvöld kl. 20.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Ingibjörg Sigurðardóttir þyrluflugsnemi
Þaö þarf temja sér vissa einbeitingu og nákvæmni í vinnubrögöum til aö fljúga svona farartæki.
Þyrluflug:
Fékk leikfangaþyrlu í jólagjöf
- kom aldrei neitt annað til greina en að læra að fljúga, segir Ingibjörg Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir er tutt-
ugu og tveggja ára Reykjavíkurmær
og fyrsta íslenska konan sem hljóta
mun réttindi til að fljúga þyrlu.
Ingibjörg byrjaði að læra í haust og
segir að námið sé alveg stórkostlega
skemmtilegt. „Flugið hefur alltaf
heillað mig og í fyrstu ætlaði ég að
læra á venjulega flugvél en eftir að
hafa skoðað möguleikana ákvað ég
að læra á þyrlu.“
Fékk leikfangaþyrlu í jóla-
gjöf
„Það erfitt að útskýra áhuga
minn á þyrlum,“ segir Ingibjörg,
„en ætli helikopter hafi ekki verið
fyrsta loftfarið sém ég kom í sem
Biogagnrýni
bam. Ég man ekki nákvæmlega
hvenær það var en mig minnir að
það hafi verið á flugsýningu fyrir
norðan. Svo fékk ég einu sinni leik-
fangaþyrlu og þyrlupall í jólagjöf og
síðan hefur ekkert annað komið til
greina en að læra að fljúga. Þegar ég
var seytján ára fór ég í kynningar-
flug en ákvað að bíða í nokkur ár og
núna er ég byrjuð að læra.“
Ingibjörg segir að námið sé ansi
dýrt en vill ekki segja hversu mikið
hún borgar fyrir það en á hljómnum
í röddinni má heyra að það er
þónokkuð.
„Stefnan hjá mér er að klára at-
vinnuflugmannspróf en til að byrja
með stefni ég á að vera einkaflug-
maður. Það þarf að ljúka 60 flugtím-
um áður en maður má fljúga með
farþega en 150 tímum til að fá at-
vinnumannsréttindi."
Miklir atvinnumöguieikar
„Ég held að það sé fullt af mögu-
leikum á vinnu eftir að ég lýk námi.
Það eru ekki svo margir að læra á
þyrlu og því ólíklegt að við verðum
eitthvað að þvælast hvert fyrir öðru
í framtíðinni. Vonandi fæ ég vinnu
hjá Gæslunni eða við sjúkraflug til
að byrja með en maður veit svo sem
aldrei hvað gerist. Það er svo ótrú-
lega margt sem er hægt að gera,
eins og að fljúga á Grænlandi."
Að sögn Ingibjargar er námið
þess eðlis að fólk þarf að leggja sig
allt fram. „Það þarf temja sér vissa
einbeitingu og nákvæmni í vinnu-
brögðum til að fljúga svona farar-
tæki. Þyrlan sem ég er að læra á
heitir Schweizer 300C og það eina
sem ég get sagt um flugið er það er
ótrúlega skemmtilegt og spennandi.
Eitt af því sem kom mér á óvart við
námið er hversu mikið maður lærir
í landafræði með fram fluginu. Ég
er farin að þekkja helling af fjöllum
úr lofti. Margir halda að þyrluflug
sé mjög hættulegt en svo er ekki ef
maður veit hvað maður er að gera,“
segir Ingibjörg Sigurðardóttir, til-
vonandi þyrluflugmaður, að lokum.
-Kip
Laugarásbíó/Háskólabíó - Lost Souls: +
Djöfsi reynir yfirráð
Myrkrahöfðinginn er 1 tísku í kvik-
myndum þessa stundina, það sýnir
flóra kvikmynda sem boðið hefur ver-
ið upp á á undanfómum misserum,
má þar nefna End of Days, Stigmata,
Devil’s Advocate og The Ninth Gate. í
öllum þessum kvikmyndum kemur
djöfullinn við sögu og er nánast ein
aðalpersónan þótt hann sé í ýmsum
gervum. Til staðfestingar á þessum
mikla áhuga á Djöflinum er hin sí-
gilda Exorcist. Hún var nýlega tekin
aftur til sýningar í kvikmyndahúsum
vestanhafs og er meðal vinsælustu
kvikmynda þar um þessar mundir.
Nýjasta myndin í þessum hópi mynda
er Lost Souls, sem frumsýnd var sama
dag í Bandaríkjunum og á íslandi. Á
hún það sameiginlegt með Exorcist að
særingarmenn koma mikið við sögu
en þar lýkur samanburðinum því Lost
Souls er nokkrum gæðaflokkum neð-
ar og er satt best að segja illa gerð að
flestu leyti.
í Lost Souls fylgjumst með ungri
stúlku sem hafði eitt sinn verið and-
setinn illum anda og er nú hjálpar-
kokkur eins helsta særingarmeistara
prestastéttarinnar. Hún kemst að því
að ef ekki verði eitthvað gert muni
djöfullinn setjast að í líkama metsölu-
Wynona Ryder og Ben Chaplin.
Rithöfundurinn leitar ráöa hjá særingakonunni.
rithöfundar. Hún fer af stað með að-
stoð presta að telja rithöfundinum trú
um að í náinni framtíð mun hann
verða andkristur á jörðu. Að sjálf-
sögðu verður henni ekki mikið ágengt
í þessari viðleitni sinni í fyrstu en
þegar rithöfundurinn gerir sér loks
grein fyrir alvöru málsins er djöfsi
þegar byrjaður að hreiðra sig um í
sálu hans.
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Engum vafa er bundið um það að
gera mætti ágæta kvikmynd úr þess-
ari sögu, annað eins hefur nú verið
gert að góðri kvikmynd en Janusz
Kaminski hefur ekki sömu hæfileika
sem leikstjóri og kvikmyndatökumað-
ur þar sem hann meðal annars á
ógleymanlegan hátt kvikmyndaði Sav-
ing Private Ryan. Hann vantar til að
mynda innsýn í þá vandvirkni í upp-
byggingu spennuatriða sem síðan
enda á einhverju sem fær hárin til að
rísa, eins má sjá í What Lies Beneath
mun betri mynd sem hefur hkt þema.
Myndir á borð við Lost Souls þurfa
að ná áhorfandanum á sitt vald. Til
þess að svo gerist þarf að ná upp
spennu svo hægt sé að koma á óvart
og þá má sagan ekki vera um of fyrir-
sjáanleg eins og staðreyndin er í Lost
Souls. Myndin fellur því fyrst og
fremst vegna þess að hún nær ekki til-
gangi sínum að ná upp spennu og
hræða í leiðinni.
Leikstjóri: Janusz Kaminski. Handrit: Pi-
erce Gardner. Kvikmyndataka: Mauro
Fiore. Tónlist: Jan A. P. Kaczmarek. Aöal-
leikarar: Winona Ryder, Ben Chaplin,
John Hurt og Elias Koteas.