Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Side 5
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
I>V
5
Fréttir
Grenivík - Kaplaskjólsvegur:
Póstkortið var 38
daga á leiðinni
„Pósturinn er alltaf að auglýsa
hvað hann er snar í snúningum.
Mér flnnst hins vegar dálitið langt
þegar póstkort er 38 daga á leiðinni
frá Grenivík og til Hjördisar vin-
konu minnar á Kaplaskjólsvegin-
um,“ sagði Guðrún Angantýsdóttir
á Skagaströnd. Guðrún dvaldi í
haust í sumarbústað á fllugastöðum
í Fnjóskadal og brá sér þá í dagsferð
til Grenivlkur:
„Það var á Grenivík, nánar tiltek-
ið 11. september, sem mér datt í hug
að gaman gæti verið að senda Hjör-
disi vinkonu minni póstkort. Ég
keypti fallegt kort með mynd af Mý-
vatni og skrifaði á það nokkrar lín-
ur um líðan mína og ferðir. Ég
sendi póstkortið svo af stað en Hjör-
dís fékk það ekki fyrr en 18. októ-
ber. Hún var einmitt að hringja í
mig og þakka mér fyrir kortið,“
sagði Guðrún sem er sár út í póst-
þjónustuna.
Hjördís á Kaplaskjólsvegi hafði
þrátt fyrir allt gaman af því að fá
póstkortið, þó seint væri: „Það er
alltaf gaman að fá kort en
mér er það hulin ráðgáta
hvernig það gat verið
svona lengi á leiðinni.
Það hlýtur að hafa farið
víða áður en það rataði
loks heim til mín,“ sagði
Hjördís í gær og þakkaði
sínum sæla fyrir að er-
indið var ekki mikilvæg-
ara en raun bar vitni.
„Ég hef afltaf litið svo á
að fólk verði að geta
treyst Póstinum. í mín-
um huga er hann einn af
homsteinum þjóðfélags-
ins,“ sagði Hjördis á
Kaplaskj óls veginum.
Pálina Armannsdóttir,
fulltrúi í óskilapóstdeild
íslandspósts, stóð á gati
þegar hún var spurð út í
póstkortið sem Guðrún
sendi frá Grenivík:
„Þetta er ótrúlegt. Ég
get engu svarað," sagði
Pálína. -EIR
Kári Stefánsson.
Kári í 60
mínútum
Fjölmennt lið dagskrárgerðar-
manna frá bandaríska sjónvarps-
þættinum 60 Minutes er statt hér á
landi ásamt fréttamanninum Ed
Bradley. Er hópurinn að vinna að
þætti um líftækniiðnaðinn sem
sýndur verður í 60 Minutes á næst-
unni en þar mun Kári Stefánsson
hjá íslenskri erfðagreiningu leika
aðalhlutverkið.
Ed Bradley er einn af þekktustu
fréttamönnum Bandarikjanna og sá
þeldökki í hópi umsjónarmanna 60
Minutes. Samkvæmt heimildum DV
mun hann hafa sent íslenskri erfða-
greiningu blóðsýni úr sjálfum sér
fyrir komuna til landsins og mun
það verða borið saman við blóðsýni
úr Kára Stefánssyni til að sýna fram
á að erfðafræðilega séu þeir næst-
um því eins, þó svo annar sé hvítur
en hinn svartur. Starfsmenn upplýs-
ingadeildar íslenskrar erfðagrein-
ingar neituðu þó að staöfesta þetta
þegar eftir því var leitað.
Starfsfólk 60 Minutes mun dvelja
hér á landi í nokkra daga við verk-
ið. -EIR
DV-MYND PJETUR
A ráðherrafundi
Unnur Sverrisdóttir, talsmaður starfshóps samtaka atvinnubílstjóra, heilsar
Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra á fundi sem hópurinn átti með
þremur ráðherrum í gær.
Samstarfshópur atvinnubílstjóra hitti þrjá ráðherra:
Bensínhækkanir
í ríkisstjórn
- þar sem kröfur hópsins verða ræddar
„Þeir ráðherrar sem við ræddum
við ætla að skoða málið og taka það
upp í ríkisstjóm. Við munum fá svar,“
sagði Unnur Sverrisdóttir, talsmaður
samstarfshóps vegna hækkunar olíu-
og bensínverðs. Fulltrúar samtaka at-
vinnubílstjóra gengu á fúnd Geirs H.
Haarde íjánnálaráðherra, Valgerðar
Sverrisdóttur viðskiptaráðherra og
Sturlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra í gærmorgun. Hópurinn lagði
fram tiflögur sínar vegna undangeng-
inna verðhækkana. Þær vora: lækkun
þungaskatts, lækkun krónutölu vöru-
gjalds á bensíni og hert eftirlit með ol-
íufélögunum við verðmyndun elds-
neytis.
Ástæður fúndarins voru m.a. þær
gríðarlegu hækkanir sem orðið hafa á
heimsmarkaðsverði á olíu siðastliðin
tvö ár og hafa haft í fór með sér mikl-
ar kostnaðarhækkanir fyrir rekstrar-
aðila atvinnubifreiða, að því er segir í
tilkynningu frá hópnum.
Enn fremur segir að einnig hafi
hækkanir á þungaskatti biffeiða yfir
14 tonnum í maí sl. orðið mun hærri,
sem nemur að meðaltali 11-13%, og
enn meiri á stærstu bifreiðunum. Allt
bendi til að heildartekjur ríkissjóðs af
innheimtu þungaskatts fyrir árið 2000
verði 500 til 600 milljónum hærri en
fjárlög gerðu ráð fyrir. Ljóst sé að þessi
skattstofn hafi hækkað óeðlilega mikið
og hratt undanfarin ár, mun meira en
sem nemur auknum akstri. Takmörk
eru fyrir því hversu miklar kostnaðar-
hækkanir þessar atvinnugreinar geta
borið eða sett út í verðlagið.
Það hafi verið sanngimismál þegar
skattheimtu á bensíni var breytt
haustið 1999 með því að taka upp fast
almennt vörugjald í stað 97% vöru-
gjalds. Hins vegar sé það mat hags-
munaaðila að ríkið hafi gengið of
skammt miðað við skatttekjur rikisins
næstu ár á undan. Á því ári sem liðið
er frá þessari breytingu hafi bensíns-
verð á heimsmarkaðsverði hækkað
mjög mikið. Hópurinn hafi bent á að
tekjur ríkissjóðs vegna innheimtu
viröisaukaskatts af bensíni hafi aukist
í samræmi við það. Samstarfshópur-
inn hafi því lagt til að krónutala ai-
menns vörugjalds af bensíni yrði lækk-
uð til muna. -JSS
Bless bursti
AEG Favorit 4231 U-W verð 49.900 stgr
530 2800
www.ormsson.is
RáDIOWAUST
Geislagötu 14 • Sfmi 462 1300
Nú á ég skilið að fá
uppþvottavél
u-w
Vinnur verk sín í hljóði
Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo þurrkun með heitum blæstri
og svo hljóðlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún er gangi. Tekur
12 manna stell, þýr yfir 6 þvottakerfum, er með 6 falt vatnsöryggi
og svona mætti lengi telja - þetta er alvöruvél.
Við vonumst til að geta óskað þér til hamingju með áfangann en
bendum þér samt á að kveðja gamla uppþvottaburstann og -
vettlingana með hæfilegri virðingu.