Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Blaðsíða 22
26
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
I>V
Ættfræði__________________
Jmsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára___________________
Sigríður Jónsdóttir,
Garðavegi 5, Hafnarfirði.
85 ára_________________________
Ragnhildur Dagbjartsdóttir,
Lindargötu 61, Reykjavik.
Ólafur Ottósson,
Vesturgötu 7, Reykjavík.
Árnína S. Guönadóttir,
Löngumýri 8, Akureyri.
Anna Jónsdóttir,
Túngötu 5, Eskifirði.
80 ára_________________________
ión Árnason,
iMjörvasundi 34, Reykjavík.
Sigurður Óiafsson,
Boðahlein 12, Garðabæ.
Olaf J.G. Eyland,
Munkaþverárstræti 16, Akureyri.
75 ára_________________________
Anna Pála Sveinsdóttir,
Austurbyggð 21, Akureyri.
70 ára
Stefanía Þóröardóttir,
Eyrargötu 5, Eyrarbakka.
Eiginmaöur hennar er
Eirikur Runólfsson. Þau
taka á móti ættingjum og
vinum í samkomuhúsinu
Staö á Eyrarbakka
sunnud. 22.10. kl. 15-18.
Magnús Jónsson,
Snorrabraut 56, Reykjavik.
Sigurþór Jónsson,
Háaleitisbraut 45, Reykjavik.
Sigurður Björnsson,
Rafnkelsstaöavegi 3, Garöi.
iigrún Clausen,
erkigrund 1, Akranesi.
íuðrún Sigurbjörg Bjarnadóttir,
Spítalastíg 8, Hvammstanga.
30 ára________________________
ingi Hjörleifsson,
Gnoðarvogi 30, Reykjavík.
(ristín Egilsdóttir,
Geitlandi 10, Reykjavík.
Vlargrét Kristjánsdóttir,
Kjalarlandi 21, Reykjavík.
Haukur Sölvason,
Jöklafold 4, Reykjavik.
(ristján Oddgeirsson,
Sefgöröum 18, Seltjarnarnesi.
Rafn Sigurbjörnsson,
Örlygsstöðum II, Skagaströnd.
SO.ára________________________
Nína Nhan Thi Tran,
Kleppsvegi 96, Reykjavík.
Steinunn Guðmundsdóttir,
Rauðási 8, Reykjavík.
Aðalsteinn Þórðarson,
Reykási 2, Reykjavík.
Margrét Bjarnadóttir,
Öldugötu 42, Hafnarfiröi.
Halldóra Lúövíksdóttir,
Hamragarði 3, Keflavík.
40 ára__________________________
Jan Bernstorff Thomsen,
Skildinganesi 25, Reykjavík.
Sigurþór Sigurþórsson,
Keilugranda 4, Reykjavík.
Ólafia Sigrún Helgadóttir,
Kóngsbakka 6, Reykjavík.
Óskar Baldvin Hauksson,
Smárarima 36, Reykjavik.
Bjarni Gunnar Guðmundsson,
Suðurmýri 46a, Seltjarnarnesi.
Ævar Ágústsson,
Lautasmára 43, Kópavogi.
Guðrún Magnea Rannversdóttir,
Brekkubyggð 54, Garöabæ.
Kristján Þröstur Daöason,
Höföabraut 5, Akranesi.
Björn Bjarnason,
Tangagötu 20, ísafirði.
Vigdís Heiðrún Viggósdóttir,
Bankastræti 9, Skagaströnd.
Guðrún Valgeröur Ásgeirsdóttir,
Ægisgötu 19, Akureyri.
Kristjana Hrafnkelsdóttir,
Heiðarbrún 12, Hveragerði.
Sextugur
Grétar Þorsteinsson
forseti ASÍ
Grétar Þorsteinsson, forseti ASI.
Áður en Grétar settist í forsetastól ASl var hann lengi formaður
Trésmiöafétags Reykjavíkur og Sambands byggingarmanna, síöar Samiðnar.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
Brekkustíg 5, Reykjavík, er sextug-
ur i dag.
Starfsferill
Grétar fæddist í Fróðholtshjá-
leigu á Rangárvöllum og ólst þar
upp.
Grétar stundaði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík, lauk sveinsprófi í
húsasmíði 1961. Grétar var síðan
trésmiður í Reykjavík um árabil.
Hann hóf þá strax afskipti af félags-
málum i Trésmiðafélagi Reykjavík-
ur, var varaformaður þess og síðan
formaður 1978-97. Ásamt formanns-
starfi í Trésmiðafélagi Reykjavíkur
var hann síðustu árin formaður
Sambands byggingamanna og síðan
Samiðnar er hún var stofnuð 1993.
Grétar hefur verði forseti ASÍ frá
1996. Hann starfaði mikið með bind-
indishreyfingunni og sinnti þar
mörgum trúnaðarstörfum. Þá var
hann um tíma varaþingmaður fyrir
Alþýðubandalagið.
Á yngri árum æfði Grétar frjálsar
íþróttir hjá Ármanni, lagði stund á
spretthlaup og var um skeið í lands-
liðinu í frjálsum íþróttum.
Fjölskylda
Grétar kvæntist 1.5. 1984 Elízu
Þorsteinsdóttur, f. 28.8. 1946, starfs-
manni hjá Samvinnuferðum-Land-
sýn. Hún er dóttir Þorsteins Kr.
Þórðarsonar, f. 18.3. 1917, d. 30.5.
1960, kennara við Stýrimannaskól-
ann í Reykjavík, og k.h., Guðflnnu
Eyvindsdóttur, f. 3.12. 1921, húsmóð-
ir Vestmannaeyjum.
Böm Grétars eru Jón Gunnar, f.
9.1. 1961, fréttamaður hjá rikissjón-
varpinu, búsettur í Hafnarflrði,
kvæntur Önnu S. Harðardóttur leik-
skólastjóra og eru böm þeirra
Andri, Sandra og Tinna; Nina
Karen, f. 23.7. 1962, deildarstjóri hjá
Landssímanum, búsett í Reykjavík,
gift Gylfa Guðmundssyni trésmið og
er þeirra dóttir Sigrún Elísa; Hjört-
ur Þór, f. 2.10. 1968, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Önnu
Kristínu Pétursdóttur skrifstofu-
manni og eru börn þeirra Dóra,
Ingibjörg Anna og drengur óskírð-
ur; Selma Björk, f. 28.4. 1971, hús-
móðir í Reykjavík, gift Halldóri
Gunnarssyni markaðsstjóra og em
böm þeirra Gunnar Freyr og Grétar
Már en áður átti Selma Lúðvík Þór
Leósson.
Dóttir Elízu, stjúpdóttir Grétars,
er Jódís Jóhannsdóttir, f. 5.2. 1966,
bankastarfsmaður, búsett í Reykja-
vik, gift Haraldi Karlssyni fjöllista-
manni og starfsmanni Listaháskóla
Islands.
Bræður Grétars eru Árni Þor-
steinsson, f. 13.9. 1947, verkstjóri í
Þorlákshöfn, kvæntur Önnu Hjálm-
arsdóttur; Gunnar Þorsteinsson, f.
8.2. 1957, verkstjóri, búsettur í Þor-
lákshöfn, kvæntur Valgerði Stefáns-
dóttur.
Foreldrar Grétars voru Þorsteinn
Sigmundsson, f. 22.4. 1915, d. 13.3.
1992, bóndi í Vestra-Fróðholti á
Rangárvöllum, og k.h., Jónína
Árnadóttir, f. 18.6. 1920, d. 25.9.1992,
húsfreyja.
Ætt
Þorsteinn var sonur Sigmundar,
vinnumanns í Rifshalakoti Þor-
steinssonar, b. í Götu í Landeyjum
Guðmundssonar.
Móðir Þorsteins í Vestra-Fróð-
holti var Filippia Filippíusdóttir, b.
á Klofa á Landi Sæmundssonar, b. á
Fossi Ólafssonar, b. í Húsagarði Sæ-
mundssonar, b. á Hellum Ólafsson-
ar. Móðir Sæmundar var Guðný
Sigurðardóttir, b. í Húsagarði Er-
lendssonar. Móðir Filippusar var
Þórunn Hafliðadóttir, b. í Miðhús-
um í Hvolhreppi Sigurðssonar, b. í
Eystra-Fróðholti Jónssonar. Móðir
Þórunnar var Þórunn Sigurðardótt-
ir, b. á Ægissíðu Ólafsdóttur.
Jónína var dóttir Árna, hálfbróð-
ur Guðmundar, steinsmiðs í Reykja-
vik, föður prentsmiðjustjóranna
Ágústs i Alþýðuprentsmiðjunni og
Hafsteins í Þjóðsögu. Ámi var son-
ur Helga, b. á Grímsstöðum í Land-
eyjum Ámasonar, og Guðrúnar
Hildibrandsdóttur. Móðir Jónínu
var Guðný Gísladóttir, b. í Húna-
koti í Þykkvabæ, bróður Vilhjálms í
Dísukoti, íoður Ingvars útgerðar-
manns, föður Jóns stjórnarfor-
manns. Gísli var sonur Hildibrands,
b. í Vetleifsholti Gíslasonar, b. í
Oddsparti í Þykkvabæ Gíslasonar.
Móðir Gísla var Sigríður Einars-
dóttir, b. á Búðarhóli í Þykkvabæ
Ólafssonar, b. á Seli í Holtum Jóns-
sonar. Móðir Ólafs var Guðrún
Brandsdóttir, b. á Felli í Mýrdal,
bróður Ólafs á Fossi, langafa Odds á
Sámsstöðum, langafa Davíös Odds-
sonar forsætisráðherra. Annar
bróðir Brands var Stefán í Árbæ,
langafi Stefáns í Núpstúni, afa
Brynjólfs Bjarnasonar, heimspek-
ings, ráðherra og formanns
Kommúnistaflokks Islands. Brand-
ur var sonur Bjarna, ættfoður Vík-
ingslækjarættar Halldórssonar.
Móðir Guðnýjar var Margrét
Hreinsdóttir, b. á Sperðli í Landeyj-
um Guðlaugssonar, b. í Hemlu í
Landeyjum Bergþórssonar.
Grétar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Bragi Sigurðsson
lögfræðingur og blaðamaður
Bragi Sigurðsson, lögfræðingur
og blaðamaður, Miklubraut 16,
Reykjavík, lést að heimili sínu
fostudaginn 13.10. sl. Hann verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík i dag, föstudaginn 20.10.,
og hefst athöfnin kl. 10.30.
Starfsferill
Bragi fæddist á Seyðisfirði 3.9.
1926 og ólst þar upp. Hann stundaði
nám við Flensborgarskólann í Hafn-
arfirði, lauk stúdentsprófl frá MR
1947, embættisprófi í lögfræði 1954
og öðlaðist hdl.-réttindi 1964.
Bragi var m.a. lögreglumaður á
Raufarhöfn á sumrin á námsárun-
um, var síðan fulltrúi á Fræðslu-
málaskrifstofunni í Reykjavík 1955,
sveitarstjóri í Ólafsvíkurhreppi
1958-60, sinnti ýmsum lögfræðimál-
efnum i Reykjavík, ásamt bifreiða-
og fasteignasölu, dvaldi i útlöndum,
m.a. á Spáni, Ítalíu, í Þýskalandi,
Danmörku og Svíþjóð 1968-72 við
ýmis störf, s.s. siglingar, garðyrkju,
skipasmíðar og sölumennsku, var
blaðamaður við Alþýðublaðið
1972-75, var einn stofnenda Dag-
blaðsins og blaðamaður við það frá
upphafi og í nokkur ár.
Bragi var formaður Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta 1952-53,
formaður Stúdentaráðs HÍ 1952-53,
sat í stjóm Orators, í stjóm Vernd-
ar, samtaka um fangahjálp, um ára-
bil og sat í stjórn Náttúrulækninga-
félags íslands um skeið.
Fjölskylda
Bragi kvæntist 29.9. 1949 Katrínu
Einarsdóttur, f. 20.11. 1925, skrif-
stofumanni í Reykjavík. Þau skildu
1955.
Bragi kvæntist 31.12. 1955 Sig-
rúnu Sigurðardóttur, f. 28.8. 1929,
húsmóður. Þau skildu 1968.
Bragi kvæntist 1.12.1975 Jóhönnu
Maríu Kristjánsdóttur, f. 18.11. 1946,
húsmóöur. Þau skildu 1983.
Synir Braga og Sigrúnar eru Stef-
án Gunnar Bragason, f. 4.7. 1955,
byggingameistari í Reykjavík; Ólaf-
ur Bragi Bragason, f. 4.9. 1957, bú-
settur í Hollandi; Kristján Ingi
Bragason, f. 19.1.1962, verkamaður í
Reykjavík.
Sonur Braga og Jóhönnu Maríu
er Sigurður Bragason, f. 19.10. 1974,
iðnverkamaður í Reykjavík.
Systkini Braga: Hjördís Sigurðar-
dóttir, f. 1924, húsmóðir á Eyrar-
bakka; Kristján Sigurðsson, f. 1930,
sölumaður í Kópavogi; Amgrímur
Sigurðsson, f. 1933, kennari og rit-
höfundur í Reykjavík.
Foreldrar Braga voru Sigurður
Amgrímsson, f. 28.8. 1885, d. 10.10.
1962, kennari, ritstjóri, bæjarfulltrúi
og kaupmaður á Seyðisfirði, og Ólöf
Kristjánsdóttir, f. 29.9. 1902, d. 6.4.
1981, ljósmóðir og húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Amgríms, b. í
Krossbæ í Nesjahreppi í Austur-
Skaftafellssýslu, síðast á Grímsstöð-
um á Höfn í Homafirði Arasonar, b.
á Austurhóli í Nesjahreppi
Argrímssonar.
Móðir Siguröar var Katrín Sig-
urðardóttir, b. og smiðs í Krossbæj-
argerði Þórðarsonar.
Ólöf var dóttir Guðmundar Níels
Kristjáns, bátaformanns í Garði og í
Reykjavík Sigurðssonar, assistents
hjá Zimsen-verslun í Reykjavík Sig-
urðssonar. Móöir Kristjáns var
Kristín Guðmundsdóttir frá Kala-
stöðum á Hvalfjarðarströnd.
Móðir Ólafar var Ingveldur
Magnúsdóttir, útgerðarmanns í
Garði Þórarinssonar, og Guðrúnar
Einarsdóttur frá Norðurgarði í Mýr-
dal.
Andlát
Sigurbjörg G. Guöjónsdóttir, Dalbraut
27, áöur Skúlagötu 64, lést á
líknardeild Landspítala, Landakoti,
þriðjud. 17.10.
Halldór Jónsson, Grettisgötu 12,
Reykjavík, lést í Landspítalanum
Fossvogi, mánud. 16.10.
Margrét Jóhannesdóttir, Freyjugötu 17,
Sauðárkróki, áöur Þverárdal, lést á
Dvalarheimili aldraöra, Sauöárkróki,
mánud. 16.10.
Smáauglýsingar
irisir.is
Merktr Islendingar
Ingimar Eydal fæddist á Akureyri 20. októ-
ber 1936. Hann var sonur Harðar Ólafs
Eydal, starfsmanns Mjólkursamlags KEA
á Akureyri, og Pálínu Indriðadóttur.
Ingimar lauk kennaraprófi frá KÍ
1957 og stundaði síðar viðbótamám við
KHÍ. Hann kenndi við Tónlistarskól-
ann á Dalvík og um árabil við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri frá 1967.
Ingimar var lengi í hópi þekktustu
og vinsælustu danstónlistarmanna hér
á landi. Hann hóf að spila fyrir dansi
þrettán ára, með Karli Ádolfssyni á Hót-
el Norðurlandi, spilaði í Alþýðuhúsinu á
Akureyri 1952-54, á Hótel KEA 1954-56 og
á Hótel Borg 1956-57. Hann spilaði í Alþýðu-
húsinu 1956-63 og síðan um árabil í Sjallanum
Ingimar Eydal
með eigin hljómsveit sem hann stofnaði 1962.
Ingimar gegndi fjölda trúnaðarstarfa, var
m.a. varabæjarfulltrúi á Akureyri, sat í
stjórn Akureyrardeildar KEA, sat í
Æskulýðsráði, Umhverfisráði og var
formaður Áfengisvamanefnd Akureyr-
ar, var æðstitemplar stúkunnar
Brynju, þingtemplar Eyfirðinga og
lengi formaður stjórnar fyrirtækja
IOGT á Akureyri.
Ingimar var kvæntur Ástu Sigurðar-
dóttur sjúkraliða og eignuðust þau fiög-
ur böm. Hann var bróðir Finns Eydal
hljómlistarmanns sem einnig er látinn.
Ingimar var vinsæll kennari og hvers
manns hugljúfi. Hann lést langt um aldur
fram 10. janúar 1993
Jaröarfarir
Regína Siguröardóttir frá Skógargeröi
veröur jarösungin frá Húsavíkurkirkju
föstud. 20.10. kl. 14.
Pétur J. Kjerúlf, Faxatúni 28, Garðabæ,
veröur jarösunginn frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfiröi föstud. 20.10. kl. 13.30.
Gunnar H. Jósavinsson, Búöarnesi,
Hörgárdal, veröur jarösunginn frá Akur-
eyrarkirkju föstud. 20.10. kl. 13.30.
Ari Jónsson frá Fagurhólsmýri, síöast aö
Langholtsvegi 177, Reykjavík, veröur
jarösunginn frá Langholtskirkju föstud.
20.10. kl. 13.30.
Gunnar Janger veröur kvaddur frá litlu
kapellunni í Fossvogi 20.10. kl. 13.30.
Ragnar Kristín Þóröardóttir, Blöndu-
bakka 5, veröur jarösungin frá Foss-
vogskirkju föstud. 20.10. kl. 15.
Ingibjörg Jóhannsdóttir veröur
jarösungin frá Áskirkju 20.10. kl. 15.