Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2000, Side 10
10
Athugið. Upplýsingar
um veðbönd og
eigendaferilsskrá
fylgir alltaf við
afsalsgerð.
Tilboðsverð
á fjölda bifneiða
Opið laugardaga kl. 10-17
Opið sunnudaga kl. 13-17
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
<5?
567-1800
Löggild bílasala
Peugeot
g., rafdr. rúður, fjarst. samlæs., álf.
o.fl. Bílalán 900 þús. V. 1.190 þús.
VW Polo 1,41 '97, ek. 42 þús. km, 5
g., 3 d., álfelgur. Fallegur bíll.
V. 650 þús.
M. Benz E 230 ______________________
þús. km, ssk., 16' álf., leður, allt rafdr.
o.fl. Bílalán 2.500 þús. V. 2.890 þús.
Einnig: M. Benz 230E '91, ek. 174
þús. km, ssk., topplúga, rafdr. rúður,
álf., ABS, cruisecontrol.
Bílalán 300 þús. V. 1.090 þús.
Subaru Legacy '98, ek. 57 þus. km,
5 g., rafdr. rúður, fjarst. samlæs., 16'
álf. o.fl. V. 1.590 þús. Einnig: Subaru
Legacy '97, ek. 61 þús. km, 5 g.,
bílalán 900 þús. V. 1.420 þús.
Toyota Corolla XLi HB '97, ek. 76
þús. km, 5 g., rafdr. rúður, samlæs.
V. 750 þús. Einnig: Toyota Corolla
GLi 1600 '93, ek. 145 þús. km.
V. 420 þús.
Toyota HiLux extra cab m/húsi '90,
ek. 160 þús. km, 35’ álf., brettak., (39’
breyt.) talst. o.fl. V. 690 þús.
Peugeot Boxer '96, ek. 75 þús. km,
kemur á götuna 3/97, einn eigandi
frá upphafi, bilalán ca 1 millj.
V. 1.600 þús., ath. skipti.
Hyundai Elantra 1,8 station '97, 5
g., ek. 48 þús. km, samlæs., rafdr.
rúður, vindskeið o.fl.
Tilboðsverð 730 þús.
Toyota Corolla Terra '99, ek. 26 þús.
km, 5 g., rafdr. rúður, samlæs. o.fl.
V. 1.130 þús.
Nissan Almera SLX '96, ek. 60 þús.
km, allt rafdr., spoiler, 1600 vél.
V. 730 þús.
Toyota Avensis Sol 2,0 '98, ek. 40
þús. km., ssk., rafdr. rúður, fjarst.
samlæs. Bílalán 1.200 þús.
V. 1.590 þús. Ath. skipti.
MMC Colt GLXi '92, ek. 143 þús.
km, ssk., rafdr. rúður, 16' álf., spoiler
o.fl. V. 490 þús.
Opel Astra 1,4 GL '96, 3 d., ek. 63
þús. km, 2 dekkjagangar, spoiler.
Tilboð 590 þús.
GMC 1500 SLE 6,5 turbo dfsil picup
'96, ek. 96 þús. km, ssk., rauður.
V. 2.450 þús.
Honda Civic ESi '92, ek. 120 þús.
km, rafdr. rúður, samlæs., álfelgur,
lækkunarkit o.fl. V. 630 þús.
Pontiac Grand Am V-6 '96, ek. 79
þús. km, rafdr. rúður, fjarst. samlæs.,
bílalán 970 þús. V. 1.490 þús.
Citroén XM 2,0 '91, ek. 138 þús. km,
ssk., leður, allt rafdr. o.fl. V. 490 þús.
Einnig: Citroén XM 2,0 turbo, ssk.,
m/öllu '93, V. 1.150 þús.
VW Golf CL '97, 5 g„
bílalán 600 þús. V. 790 þús.
VW Golf Comfortline '98, ek. 40 þús.
km, 1600 cc, ssk., sumar- og
vetrardekk, álf. V. 1.390 þús.
Nissan Terrano II bensin '97, ek. 64
þús. km, 31 ’ dekk m. allt rafdr., sóllú-
ga, dráttark., álf., 5 g. V. 1.790 þús.
Toyota Hi-Lux d. cab, bensín, '95,
ek. 115 þús. km, m/húsi, álf., 33’
dekk o.fl. V. 1.490 þús.
Nissan Vanette 2,3 dfsil '99, ek. 30
þús. km, 5 g„ 2300, 4 cyl„ sæti fyrir
8. V. 1.860 þús. Tilboð 1.700 þús.
Subaru Impreza GT4 turbo '00, 5 g„
ek. 6 þús. km, svartur, rafdr. rúður,
fjarst. saml., leður. Bílalán 1.700 þús.
V. 2.550 þús.
MMC Galloper TDI '98, ek. 80 þús.
km, ssk„ bflalán 1.500 þús.
V. 1.950 þús.
Nissan Micra GX '98, ek. 24 þús.
km, ssk„ 1300 cc, 5 g.
Bílalán 700 þús. V. 890 þús.
Nissan Terrano II SE 2,7 TDi '99, ek.
25 þús. km, ssk„ rafdr. rúður,
samlæs., álf„ krókur o.fl.
Bílalán 2.200 þús. V. 2.490 þús.
Toyota Avensis 1,6 Terra st. 2000,
ek. 5 þús. km, fjarst. samlæs., 5 g.
Bílalán getur fylgt. V. 1.690 þús.
MMC Eclipse 4x4 turbo '95, ek. 53
þús. km, 5 g„ álf„ topplúga, leður
o.fl. V. 1.090 þús. Einnig: Eagle
Taloon 4x4 turbo '95, ek. 99 þús.
km, 5 g„ leðurinnr. o.fl. Bilalán
950 þús. V. 1.190 þús., ath. skipti.
Honda Civic LSi V-TEC '97, ek. 88
þús. km, 5 g„ rafdr. rúður, samlæs.
Bílalán 800 þús. V. 950 þús.
Opel Vectra 1600,16 v., '99, ssk„
ek. 6 þús. km, fjarst. samlæs., álf„
spoiler. V. 1.750 þús.
Nissan Almera SLX '00, 5 g„ ek. 2
þús. km, rafdr. rúður, samlæs., bílalán
getur fylgt. V. 1.280 þús.
Daewoo Lanos SX HB '98, ek. 25
þús. km, rafdr. rúður, samlæs., álf„
þjófavörn, ABS.
Bílalán 580 þús. V. 970 þús.
Ford Escort Ghia 1,6 '97, ek. 31 þús.
km, 5 g„ rafdr. rúður, samlæs., toppl.
Bílalán 720 þús. Listaverð 950 þús.
Útsala 100 þús. út og yfirtaka á láni.
_______________________________________________MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000
Útlönd DV
Kúvending færeysku landstjórnarinnar:
Sjálfstæðisdraum-
um slegið á frest
Sjálfstæðismál Færeyja tóku nýja
stefnu í gær þegar Anfinn Kallsberg
lögmaður tilkynnti að öll áform um
aðskilnað við Danmörku hefðu verið
lögð á hilluna að sinni.
Kallsberg vill nú gera Færeyjar
smám saman óháð ríkisstyrknum frá
Danmörku og þegar það gerist, ein-
hvern tímann í framtiðinni, geti það
leitt til sjálfstæðis eyjanna.
„Við höfum viðurkennt að ekki er
hægt að öðlast sjálfstæði hér og nú af
pólitískum ástæðum. Við höfum því
lögt áformin á hilluna," sagði Kalls-
berg, leiðtogi Fólkaflokksins, í viðtali
við færeyska útvarpið í gær.
Svo virðist sem lögmaðurinn hafi
ekki greint Hogna Hoydal frá Þjóð-
veldisflokknum, ráðherra sjálfstæðis-
mála í færeysku landstjórninni, frá
þessum sinnaskiptum sínum.
Tilkynning Kallsbergs olli mikilli
spennu í færeyskum stjórnmálum en
að sögn færeyska útvarpsins ræddu
Kallsberg, Hoydal og Helena Dam á
Neystabo frá Sjálfstjórnarflokknum
málið og urðu ásátt um að gefa út
sameiginlega yfirlýsingu á fimmtu-
dag.
Kallsberg kom á óvart
Færeyski lögmaöurinn kom á óvart í
gær þegar hann tilkynnti í viötali viö
færeyska útvarpið aö öllum áform-
um um sjálfstæöi frænda okkar
heföi veriö slegið á frest, um sinn
aö minnsta kosti.
Hogni Hoydal sagði í lögþinginu í
gær að áformin um sjálfstæði Færeyja
hefðu á engan hátt verið gefin upp á
bátinn.
Þótt færeyskum jafnaðarmönnum
lítist vel á nýjasta útspil lögmannsins
í sjálfstæðismálunum, ætlar stjórnar-
andstaðan engu að síður að leggja
fram tillögu í lögþinginu um að boðað
verði til nýrra kosninga.
Stóru stjórnarandstöðuflokkarnir
tveir, Jafnaðarmannaflokkurinn og
Sambandsflokkurinn, hafa sameinast
um kosningatillöguna. Að sögn fær-
eyska blaðsins Sosialurin munu þeir
leggja hana fram á þingi í dag.
Flokksleiðtogamir tveir, Edmund
Joensen og Jóannes Eidesgaard, segja
að hreinsa beri loftið eftir að land-
stjómin hefur gefist upp eftir margra
ára starf við að reyna að fá dönsk
stjómvöld til að viðurkenna sjálfstæði
Færeyja.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sagði í gær að
Dariir myndu enn halda dyrunum
opnum fyrir Færeyjar. Hann sagði þó
að bíða þyrfti eftir sameiginlegri yfir-
lýsingu landstjómarinnar.
Skriffinnar mótmæla hryðjuverkum
Starfsmenn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins efndu til mótmælaaðgeröa í Brussel í gær gegn hryöjuverkum
ETA, samtaka baskneskra aðskilnaöarsinna. í nýjasta tilræði sínu drápu skæruliðarnir hæstaréttardómara og tvo
menn aöra í Madríd í vikunni. Spánverjinn Javier Solana, yfirmaöur utanríkismála ESB, var meöal mótmælenda.
Peres og Arafat funda
um leiðir gegn ofbeldi
Shimon Peres, fyrrverandi forsætis-
ráðherra ísraels, og Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, ætla að hitt-
ast 1 þessari viku og ræða um leiðir til
þess að binda enda á ofbeldið á her-
teknu svæðunum og í ísrael. Gert er
ráð fyrir að tilkynnt verði nánar um
fundinn í dag.
í gær létu fimm Palestínumenn lífið
í átökum við ísraelska hermenn á
Vesturbakkanum og á Gazasvæðinu.
Starfsmenn sjúkrahúsa greindu frá
því að 49 hefðu særst, þar á meðal
fréttaritari bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar CNN. Nú hafa 166
manns látið lifið í átökunum undan-
famar vikur, 141 Palestínumaður, 13
ísraelskir arabar og 12 gyðingar.
Peres, sem er höfundur fyrsta
bráðabirgðafriðarsamningsins við
Frelsissamtök Palestínu, PLO, árið
Peres og Barak
Peres fékk leyfi Baraks til þess aö
eiga viöræöur viö Arafat.
1993, kvaðst vilja heyra skoðun
Arafats á ástandinu í kjölfar þess að
Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels,
lét af andstöðu sinni við fundinn.
„ísraelar og Palestínumenn verða að
taka upp samningaviðræður á ný og
stöðva ofbeldið," sagði Peres.
Átökin í gær fylgdu í kjölfar loft-
árása ísraela á bækistöðvar Fatah-
hreyfmgar Arafats á Vesturbakkan-
um og Gazasvæðinu. Arafat skoðaði
skemmdirnar í gær og fordæmdi árás-
irnar. Sagði hann þær ekki fæla
Palestinumenn frá því að mynda sjálf-
stætt ríki með Jerúsalem sem höfuð-
borg.
Aðstoðarvamarmálaráðherra ísra-
els, Ephraim Sneh, sagði árásimar
svar við skæruliðaárásum Palestínu-
manna.