Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2000, Side 11
11
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000___________________________________________________________________________________________
I>V Útlönd
Stuttar fréttir
Að minnsta kosti sjötíu fórust þegar risaþotu hlekktist á í flugtaki á Taívan:
■ - ■
Gæðarúm á
góðu verði
-fc :
Ragnar Björnsson ehf.
Dalshrauni 6, Hafnarflröl, sími 555 0397, fax 565 1740
Haider yfirheyrður
Rannsóknarlög-
I regla hefur yfir-
heyrt Jörg Haider,
fyrrverandi leið-
toga Frelsisílokks-
ins i Austuríki,
vegna meintra
njósna um pólitíska
I andstæðinga. Fyrr-
verandi lögreglumaður hefur greint
frá þvi að lögreglan hafl afhent
trúnaðarskjöl gegn mútugreiðslum.
Skjölin fundust heima hjá fyrrver-
andi lífverði Haiders. Haider neitar
öllum ásökunum.
Tveir drepnir á N-írlandi
Tveir menn voru drepnir í Belfast
á N-Irlandi i gær. Drápin eru talin
tengjast átökum milli stríðandi fylk-
inga mótmælenda.
Fæddi barn og stakk af
Kona, sem var skilríkjalaus en
kvaðst vera frá Litháen, yfirgaf ný-
fædda dóttur sína á fæðingardeild í
Stokkhólmi á mánudaginn.
Flugstjorinn tilkynnti um
aðskotahlut á brautinni
Al Gore herðlr róðurinn
Bandaríski varaforsetinn vandaöi
keppinaut um forsetastólinn sínum
ekki kveöjurnar á fundi í Oregon.
Bush sakaður um
að hygla ríkum
A1 Gore, forsetaefni demókrata,
sakaði andstæðing sinn, George W.
Bush, um að ætla sér að flytja fjár-
muni frá millistéttinni til auð-
manna með skattastefnu sinni.
Gore sagði að áætlanir Bush
væru ekkert annað en stéttastríð
með öfugum formerkjum.
„Hann ætlar að gefa 3000 ríkustu
íjölskyldunum í Bandaríkjunum 25
milljarða dollara,“ sagði Gore á
fundi í Portland í Oregon þar sem
hann ræddi skattamálin.
Björgunarsveitarmenn fjarlægöu
síðustu líkin úr flaki Boeing 747
breiðþotunnar frá flugfélaginu í
Singapore sem fórst í flugtaki á al-
þjóðaflugvellinum í Taipei á Taívan
í gær. Talsmaður flugmálayflrvalda
á Taívan sagði í morgun að 78
manns hefðu týnt lífi í slysinu og að
85 hefðu verið lagðir inn á sjúkra-
hús. Eitt hundrað sjötíu og níu
manns, farþegar og áhöfn, voru í
vélinni.
Þotan, sem var frá flugfélagi
Singapore, var að leggja upp í ferð
til Los Angeles þegar flugstjórinn
hætti skyndilega við flugtak þar
sem vélin hafði rekist á eitthvað á
flugbrautinni. Skipti þá engum tog-
um að þotan brotnaði í sundur og
eldur kom upp í henni. Rok og rign-
ing var þegar slysfð átti sér stað.
Fréttir hermdu að rannsóknar-
menn hefðu fundið hjól á flugbraut-
inni og að það hefði ekki verið úr
þotunni sem fórst.
Flak þotunnar í Talpei
Slökkviliösmenn standa vaktina viö fiak breiðþotunnar frá flugfélaginu í
Singapore sem fórst í fiugtaki á flugvellinum í Taipei á Taívan í gærdag.
Rannsóknarmenn flugslysa fundu
einnig flugrita þotunnar og hljóðrit-
ann úr flngstjórnarklefanum í
morgun. Þeir hafa þegar yfirheyrt
flugmennina og flugleiðsögumann-
inn.
John Diaz, einn farþeganna sem
komust lífs af, sagði að vélin hefði
hrist og runnið til. Hann sagðist
hafa komist út og tekið á rás.
„Það var eldur um allt,“ sagði
John Diaz.
Fjölmennustu hópar farþega voru
frá Taivan, Bandaríkjunum og
Singapore. Farþegar frá rúmlega tíu
öðrum löndum voru um borð.
Illa farin þotan stöðvaðist á flug-
braut sem er samsíða þeirra sem
hún átti að taka á loft frá. Yfirvöld
voru ekki viss um hvort hún reyndi
að fara á loft af vitlausri braut eða
hafi hafnað þar eftir slysið. Þetta
var fyrsta óhapp flugvélar frá Singa-
pore flugfélaginu þar sem manntjón
verður.
Ijósmyndarar sýknaðir
Áfrýjunardómstóll i París hefur
staðfest sýknudóm yfir 10 ljósmynd-
urum sem eltu Díönu prinsessu þeg-
ar hún lést í bílslysi í Paris 1997.
Mohammed Fayed hafði krafist end-
urupptöku málsins.
Tekiö utan af skjaldbökunum
Starfsmaöur dýragarösins í Sofíu, höfuöborg Búlgaríu, tekur utan afsjald-
gæfri skjaldböku sem var í hópi tuga annarra sem reynt var aö smygia inn í
landiö frá Suöur-Afríku. Yfirvöld grunar aö skjaldbökurnar hafi átt aö fara
áfram til landa í Vestur-Evrópu. Skjaldbökurnar fundust á mánudag.
Nýtt gat skorið á Kúrsk
Kafarar hafa skorið nýtt gat á kaf-
bátinn Kúrsk í leit að líkum skip-
verja, að sögn talsmanna rússneska
flotans. Áður var talið að ekki þýddi
að leita fleiri líka. Fréttaskýrendur
telja að kafarar eigi nú að leita
leynibúnaðar sem ekki megi falla í
hendur annarra.
Viðbúnaðar vegna hótana
Bandarískir hermenn við
Persaflóa voru í gær í viðbragðs-
stöðu vegna trúverðugra hótana um
hryðjuverk.
Vill fund um Kosovo
Forseti
Júgóslavíu, Voj-
islav Kostunica,
sagði í heimsókn
sinni til Óslóar í
gær að hann vildi
viðræður við leið-
toga Kosovo um
framtíð svæðisins.
Jafnframt sagði Kostunica að hann
byggist við svari um aðild að Sam-
einuðu þjóðunum innan nokkurra
daga.
Hætta á frekari flóðum
Bretar búa sig nú undir frekari
flóð þar sem spáð hefur verið nýjum
lægðum i kvöld. Óveðrið í Evrópu
undanfarna daga hefur orðið að
minnsta kosti 10 banns að bana.
Sjakalinn yfirheyrður
Sjakalinn, Illich
Ramirez Sanches,
verður yfirheyrður
i Frakklandi um
árásina sem hann
stjórnaði á fundar-
menn oliuútflutn-
ingsríkja í Vín 1975.
Réttað er nú í
Þýskalandi yfir félaga Sjakalans,
Hans-Joachim Klein, og átti að
fljúga með Sjakalann úr fangelsinu í
Frakklandi þangað. Frakkar neit-
uðu að láta flytja fanga sinn.
Hætta á umhverfisslysi í Ermarsundi:
Sökk með 6 þúsund
tonn af eiturefnum
Óttast er að eitur-
efni kunni að leka úr
skipinu Ievoli Sun
sem skráð er á Ítalíu
og sökk á Ermarsundi
í gær. í farmi skipsins
voru 4 þúsund tonn af
stýreni sem er fljót-
andi eiturefni. ífarm-
inum voru auk þess 2
þúsund tonn af efnum
sem notuð eru við
plastgerð.
Fjórtán skipverjum
var bjargað með þyrl-
um á mánudaginn eft-
ir að þeir höfðu sent
út neyðarkall um að
gat hefði komið á
skrokk skipsins í óveðrinu á þess-
um slóðum.
Breska útvarpsstöðin BBC
greindi frá því á mánudaginn að
stýren hefði farið að leka í sjóinn á
meðan verið var að
sigla skipinu til
hafnar. Skipið sökk
19 kílómetrum norð-
vestan við eyna Ald-
erney. í gær sögðu
hafnaryfirvöld að
þau hefðu ekki upp-
götvað mengun á
svæðinu.
Jacques Chirac
Frakklandsforseti
sagði að gera þyrfti
allt sem mögulegt
væri til að koma í
veg fyrir nýtt um-
hverfisslys. Fyrir
um það bil ári sökk
flutningaskipið
Erika, sem skráð var á Möltu, á
svipuðum slóðum. Olíuleki frá skip-
inu olli miklu tjóni. ítalskt eftirlits-
fyrirtæki hafði gefið grænt ljós á
bæði Eriku og Ievoli Sun.
A Ermarsundi i gær
Gat kom á flutningaskipiö í
óveöri á mánudaginn.