Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Blaðsíða 14
14 I>V FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 ______35 Skoðun Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverö 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Leitað verði sátta Harkalega er nú tekist á um skýrslu starfshóps sem rík- isstjórnin skipaði til þess að finna leiðir til að bregðast við dómi Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags íslands og Tryggingastofnunar ríkisins. Ríkisstjórnin byggir ákvarð- anir sínar og frumvarp, sem lagt verður fyrir Alþingi á mánudag, á tillögum starfshópsins. Samkvæmt því mun hluti af 8900 öryrkjum, 1200-1400 manns, sem fengið hafa skerta tekjutryggingu örorkubóta vegna tekna maka, fá greiddar fjárhæðir vegna leiðréttinga á bótum fjögur ár aftur í tímann með 5,5 prósent vöxtum. Þetta sætta talsmenn Öryrkjabandalagsins sig ekki við og njóta í þeim efnum stuðnings verkalýðshreyfingar og stjómarandstöðu á Alþingi. Þá þrýstir almenningsálitið á stjómvöld um sanngjarna niðurstöðu. Ágreiningur er hins vegar um hvernig við dómnum skuli brugðist. Lög- fræðingar takast á og það var beinlínis verkefni starfs- hópsins að kanna hvort leiðrétta þyrfti bætur bótaþega aftur í tímann og þá hversu langt, að hvaða marki þurfi að endurskoða lagaákvæði sem dómurinn fjallar um og loks að huga að mögulegri endurskoðun gagnvart öðrum hópum en þeim sem dómurinn fjallar beint um. Ríkisstjórnin taldi lagasetningu i framhaldi dómsins nauðsynlega. Dómurinn hafi verið viðurkenning á því að tilteknar lagagreinar stæðust ekki gagnvart ákvæðum í stjórnarskrá. Hins vegar hafi ekki legið fyrir hverjum ætti að greiða og hve mikið. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði raunar í DV í gær að útilokað hefði verið að verða við óskum öryrkja um greiðslu eftir dómsuppkvaðningu. Það hefði verið kraftaverk ef Tryggingastofnun hefði get- að greitt eftir dómnum, líkt og mönnum væri gert að greiða reikning með engum tölum á. Talsmenn öryrkja eru á annarri skoðun. Lögmaður þeirra, Ragnar Aðalsteinsson, telur að i uppsiglingu sé nýtt stjórnarskrárbrot. Ríkisstjórnin ætli sér ekki að fara eftir dómi Hæstaréttar. Skilaboðin séu að það hafi enga þýðingu fyrir fólk að leita til dómstóla með réttindamál sín eða brot á mannréttindum. Stjórnin eigi alltaf síðasta orðið. Hann bendir meðal annars á að í skýrslu starfs- hópsins og frumvarpi því sem lagt verður fyrir þingið sé gert ráð fyrir því að bætur verði greiddar fyrir fjögur síð- ustu ár en skerðing bótanna nái sjö ár aftur í tímann. Þá var Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags ís- lands, ósáttur með greiðslu bóta til öryrkja um áramótin og taldi í helgarblaðsviðtali DV að leikur hefði verið að beita ekki hinni ólögmætu skerðingu. Lögfræðingar standa frammi fyrir álitaefnum þegar þessi dómur Hæstaréttar er túlkaður. Málið hefur vakið miklar deilur og um leið heitar tilfinningar með þjóðinni, enda tekist á um bótarétt og mannréttindi öryrkja, þeirra sem hvað lakast eru settir í þjóðfélaginu. Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráðherra lagði á það áherslu, þegar ríkis- stjórnin kynnti fyrirætlanir sínar, að mikilvægt væri að sátt næðist um málið og í góðri samvinnu meðal annars við Öryrkjabandalagið. Ráðherrann kynnti jafnframt að endurskoðun á almannatryggingalöggjöfinni yrði hraðað, enda mikilvægt að komið yrði til móts við þá sem minnst- ar tekjur hafa. Til þess að ná þeirri sátt sem heilbrigðisráðherra vill verður ekki annað séð en breyta þurfi frumvarpi ríkis- stjórnarinnar áður en það verður að lögum, meðal annars um tímalengd endurgreiðslu. Það er æskilegra en að þús- undir öryrkja finni sig knúna til þess að höfða mál gegn ríkinu, líkt og lögmaður þeirra hefur boðað. Jónas Haraldsson Þrír milljarðar fyrir einn - 2,4 fyrir fjöldann Nú er ljóst að ríkisstjórn Davíðs Oddsonar kemst ekki hjá því að greiða til baka skerðingar til öryrkja vegna tekna maka. Nú eru farin að heyrast hljóð úr ýmsum blábörkum að þetta muni nú aldeilis koma við ríkissjóð að þurfa að greiða til baka 2,4 milljaraða til þessara 1- 2000 einstaklinga sem í hlut eiga. Ég minnist þess ekki að þeir hinir sömu hafi rekið upp ramakvein þegar einn einstaklingur tók út til eig- in ráðstöfunar yfir 3 milljarða úr svonefndri þjóðareign vegna kol- rangrar útfærslu fiskveiðistjórnun- arkerfisins. Endurnýjun er nauðsyn Það er ótrúlegt að að þjóðfélagið skuli láta ganga yfir sig á þann hátt sem gert er á mörgum sviðum af sitj- andi ríkisstjórn. Það er orðin brýn nauðsyn að fólk í landinu átti sig á því að það er óhollt að hafa óbreytt stjórnvald í landinu svo lengi eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur ríkt samfellt. Mitt álit er að það þurfi reglulega að skipta nýjum aðilum inn völlinn, nánast óháö því hvaða flokki við- komandi aðilar tilheyra sem fyrir eru. Einstakling- ar með mikil völd í langan tíma gerast svo makráðugir að þeir taka ekki eftir þvi sjálfir hvernig spilling verð- ur til í skjóli valdsins. Menn gera ef til vill hluti í þeirri trú að þeir vinni í anda réttlætis en þeir sjá bara ekki hlutina lengur i réttu ljósi vegna einhæfni og jábræðra. Fiskveiöistjórnunin Dæmi um það sem hér er verið að fjalla um er framkvæmd fiskveiði- stjórnunar á íslandi. Það er alveg ljóst að það verður að takmarka það sem tekið er úr auðlind hafsins en framkvæmdin verður að vera rétt og byggð á jafnræði. Núverandi ríkisstjórn hefur barið hausnum við steininn og lokað aug- unum fyrir augljósum staðreyndum árum saman. Það hefur verið upplýst um brottkast fiskjar sem nemur tugum þúsunda tonna, einnig um ýmiss konar svindl og óheilindi vegna stjórnunar kerfis- ins. En stjómarherrarnir eru svo sannfærðir um flottu fotin sín og eigin veröld að þeir verða ekki varir við nekt sína. Þeir sem eru þannig staddir eiga að hverfa frá völdum, þess vegna verður þjóðin að skynja að nú er komið að því að vinna að því öll- um árum að setja ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar af svo fljótt sem auðið er. Viöbrögð við dómi Öllum landsmönnum má ljóst vera að viðbrögð ríkisstjórn- arinnar eru neikvæð vægast sagt, gagnvart hæstaréttardómi sem felld- ur var 19.des. í mjög svo ræddu máli öryrkja. Þannig hefur verið í fleiri „Nú er Ijóst að ríkisstjóm Davíðs Oddsson- ar kemst ekki hjá því að greiða til baka skerðingar til öryrkja vegna tekna maka. Nú eru farin að heyrast hljóð úr ýmsum blábörkum að þetta muni nú aldeilis koma við rikissjóð að þurfa að greiða til baka 2,4 milljarða til þessara 24000 einstaklinga eða fleiri sem í hlut eiga. “ málum. Mér undirrituðum er óskilj- anlegt hvernig menn gleyma slæm- um viðbrögðum stjórnarherranna við réttlætismálum. Viðbrögð gagnvart bók Stefáns Ólafssonar prófessors, ís- lenska leiðin, voru á sama veg. í þeirri bók er sagt m.a. um tekjutengingu á bls. 273: „Þá er önnur beiting skerðingar- reglna i almannatryggingakerf- inu á íslandi einnig fátíð en það er skerðing lífeyris öryrkja vegna tekna maka þeirra.“ Það sem bent er á er að rík- isstjórn Davíðs Oddssonar er að viðhalda arfleifð gömlu fá- tæktaraðstoðarinnar frá fyrri öldum um að hver og ein fjöl- skylda verði að sjá um fram- færslu sinna og aðstoð ekki veitt fyrr en ljóst var að fátækt aðstandenda væri svo mikil að það yrði að veita umræddum einstaklingi aðstoð sem annars væri á þeirra framfæri. Það á ekki við á íslandi í dag að beita hugsunarhætti gömlu fá- tæktaraðstoðarinnar. Vestrænar þjóðir hafa horfið frá svona hugsun- arhætti, það er grundvöllurinn að dómi Hæstaréttar 19. des. sl. Gísli S. Einarsson Að öðru leyti allt í besta gengi Ummæli ESi Tvöföldun Reykja- nesbrautar Bjartsýni er sögð höfuðdyggð - hoO fyrir sambúð hjóna og magavökvana, örvandi fyrir kynlífið og efnahagslíf- ið. Ekki síst það. Þetta er aOtaf að koma fram. Nú síðast í viðskiptakálfi Morgunblaðsins rétt eftir áramót. Þar er skrifað um „væntingar um þróun á hlutabréfamörkuðum" og því slegið upp í stórri fyrirsögn að það sé „Full ástæða til bjartsýni“. En þegar greinin er betur skoðuð þá sést að málið er snúnara. AOir sem spurðir eru viðurkenna að hagvöxtur sé aö minnka og samdráttur líklegur hér og þar. En það er um leið augljóst að þeir telja það skyldu sína aö snúa talinu upp í bjartsýni: samdráttur er ekki kreppa heldur í mesta lagi „umtalsverður slaki í eft- irspurn", lækkun á verði hlutabréfa er ekki lækkun heldur „verðleiðrétting" og aOir eiga nú von á „hægri lendingu" áður en þeir takast á loft aftur í besta heimi aOra heima. Það er í þessum anda sem sett er fyrirsögn um „fuOa ástæðu tfl bjartsýni" enda þótt ekki sé nema hálf eða lítfl ástæða tfl slíkra hugrenninga. Trúin og vonin Ástæðan fyrir þessari skyldubjartsýni kemur líka fram. í pistlinum seg- ir að „hinir bjartsýnu" telji „aflt tal um kreppu og samdrátt vera ábyrgðar- laust og veiki einungis trúna á markaðinn“. Það er trúin sem ræður hvort verðbréf lifa eða deyja, eða eins og vitrir menn hafa sagt: ef Bandaríkjamenn trúa því að aOt sé í lagi á Wall Street - þá verður allt í lagi. En ef trúin bilar þá er allra veðra von. Við lifum á merki- legum tímum þegar trú á æðri mátt- arvöld og eilíft lif stendur víða höll- um fæti - og þá hafa ábyrgir menn í hagkerfinu fundið upp á því snjaO- ræði að virkja vannýtta trúarþörf mannfólksins í þágu verðbréfavið- skipta. Gef oss í dag daglega hækkun Dow Jones og Úrvalsvísitölunnar. Það er á kaupþingum heimsins sem trúin og vonin blómstra - kærleikann vantar aftur á móti húspláss, eins og margir telja sig verða vara við. Því verða skrif um hlutabréfamarkað einatt lík skemmtOegum söng úr gamaOi rúss- neskri revíu. Þar er verið að segja greifafrú nokkurri frá tíðindum að heiman. í fyrstu vísu hefur uppsker- an sviðnað i þurrkum og pest hlaupið í hrossin. í þeirri næstu er eiginmað- urinn strokinn með sígaunastelpu. I þeirri þriðju hefur ráðsmaðurinn „Fundið var upp á því snjallrœði að virkja vannýtta trú- arþörf mannfólksins í þágu verðbréfaviðskipta: Gef oss í dag daglega hcekkun Dow Jones og Úrvalsvísitölunnar.“ Arni Bergmann rithöfundur hlaupist á brott með aOa peningana - já og reyndar kviknaði i óðalssetrinu og það brann tfl kaldra kola. En á eft- ir hverri hörmungavísu kemur glað- legt og bjartsýnt viðlag sem hljóðar svo: „En að öðru leyti, fagra greifafrú, er aOt í besta gengi.“ Beðiö um dellu Svo er annað. Þegar íslenskir verð- bréfaspámenn skrúfuðu sig í fyrr- greindum pistli upp í bjartsýni þá höfðu þeir mestar áhyggjur af því að jólaverslun i Bandaríkjunum hefði verið minni en búist var við. Og víð- ar má sjá áhyggjur af því sama: Am- ríkanar keyptu ekki nógu mikið inn fyrir jólin. Sumir segja að þeir séu haldnir sjúkdómi sem heitir „neyt- endaþreyta" og merkir líklega að margir í því landi telji sig búna að kaupa meira en nóg af dóti. Aðrir minna á að hugvitsmönnum hafi ekki tekist að finna neitt upp fyr- ir þessi jól sem gat orðið að deOu eða æði. Það vantaði eitthvað á borð við tölvugæludýrin sem aflir foreldrar sem vfldu standa sig í tilverunni urðu að kaupa handa börnum sínum. Þvi brást jólasalan og það gæti sent frá sér keðjuverkanir niöur á við til verö- bréfamarkaða um aUan heim. Hagkerfið er skrýtið og undarlega valt. Ef sérhannað bjartsýnistrúboð bregst, ef meðaljóninn í Amríku ákveður að leggja nokkra aura til hliðar í stað þess að eyða þeim strax og ef dekurböm í ríku landi fá ekki eina delluna enn, þá klofna kaup- þingsgólfin og púkar óvissunnar skjóta upp hausum og glotta herfilega. Árni Bergmann Með og á möti WfJ \r til að leysa öryrkjamálið „Tvöföldun Reykjanesbraut- ar með stefnu- greindum vega- mótum var ákveðin með samþykkt lang- tima vegáætlun- ar 1998. Með vegáætlun fyrir 2000-2004 var ákveðið að tflteknum hlutum henn- ar skyldi lokið innan þess tíma. Nú virðist einhverjir þeirra tefiast þar sem skipulag skortir vegna mikil- vægra og kostnaðarsamra áfanga ... Undirritaður leggur til að tvöfoldun Reykjanesbrautar sunnan Hafnar- fiarðar að Reykjanesbæ verði lokiö 2004. Þaö er raunhæft en meiri flýt- ir gæti skaðað framkvæmdina." Árni Ragnar Ámason alþm. í Mbl. 11. janúar. Aftur til Hæstaréttar Starfshópur, sem ríkisstjórnin skipaði til að fara yfir dóm Hæsta- réttar um tengingu bóta öryrkja við tekjur maka, skilaði í gær af sér skýrslu, sem beðið hefur verið eftir ... Þetta mál er afar flókið og það er erfitt að ræða það vegna þess að það hefur svo sterk tilfinningaleg áhrif á fólk. Engu að síður verða þær að fara fram ... Eins og málið er vaxið er ekki ólíklegt að það komi til kasta Hæstaréttar á ný.“ Úr forystugrein Mbl. 11. janúar. Bankiskoöar sjálfan sig Ekki hægt að gera betur „Ríkisstjórnin hefur farið mjög vel yfir þetta mál og reynt eftir mætti að fara eftir þeirri niðurstöðu sem Hæsti- réttur komst að. í ljósi þeirrar niðurstöðu hafa menn lagt fram frum- varp sem er tfl þess hugsað að mæta þeim ágalla sem Hæsti- réttur telur að hafi verið á lögunum frá 1993. Ég get ekki séð í fljótu bragði að það sé hægt að gera þetta á annan hátt en lagt er til. Auðvitað er hægt að deila um fyrn- ingarrétt og hve langt hlutir eigi að ná aftur í tímann en eftir því sem best veröur séð telur Hæstiréttur sjálfur að þeim fyrningartíma sem er í málinu sé fylgt. Þess vegna er þetta kannski eina niðurstaðan sem menn geta komist að í málinu á þessu stigi. Það sem menn geta svo velt íyrir sér í sambandi við svona dóm er að ekki er tekið á þeim fiölda öryrkja sem ekki eru giftir eða eiga maka. Það er kannski helst þar sem þurft hefur að bæta úr miðað við þá sem hafa verulegar fiölskyldutekjur. En það er ekki tekist á um það í þessum dómi og því ekki ástæða til að gera það að sérstöku umræðuefni hér.“ Kristján Pálsson alþingismaöur Davíð mætti læra af Steingrími „Eg er á móti þeirri leið sem rík- isstjómin hyggst fara vegna þess að hún ætlar áfram að tengja tekjutrygginguna við tekjur maka. Ríkisstjórnin ætl- ar einungis að greiða öryrkjum 4 ár aftur í tímann þrátt fyrir ótviræða niðurstöðu Hæsta- réttar og Héraðsdóms um að tekjutengingin hefði verið ólög- mæt frá 1. janúar 1994. Ég er á móti því siðferði stjómvalda að hundsa úrskurði dómstóla. Til Öryrkjabanda- lags Islands hefur hringt fiöldi fólks sem vill gjarnan leita réttar síns vegna þessa máls. Ég trúi ekki öðm en al- mennir þingmenn virði vilja almenn- ingsálitsins og beri til þess gæfu og skynsemi að hlíta þeim dómsniðurstöðum sem þegar eru fengnar í landinu í þessu máli. Þau stóryrði sem forsætisráðherra hefur látið falla í garð Öryrkjabandalags- ins og Hæstaréttar em honum til vansa. Vonandi ber hann gæfu tfl að eiga einhvem tíma samstarf við Öryrkjabandalag- ið i stað hins eilifa ófriðar sem hann hefur háð árum saman. Frá því að Davíð myndaði fyrri stjórn sína árið 1991 hefur hann ekki talið ástæðu tfl að verða við óskum forystu- manna öryrkjabandalagsins um við- ræður. Hann mætti margt læra af Steingrími Hermannssyni." Arnþór Helgason framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Islands Sátt hefur náðst hjá stjómarflokkunum um að fara að dómi Hæstaréttar í Öryrkjabandalagsmálinu. Bætur verða t.a.m. greiddar fjögur ár aftur í tímann. „Innherjavið- skipti, eða rétt- ara sagt meint innherjavið- skipti, eru mál málanna í dag, efitir að Fjár- málaeftirlitið fór fram á rann- sókn á hluta- bréfaviðskiptum Búnaðarbankans, sem að mati eftir- litsins hefur hugsanlega misnotað innherjaupplýsingar tfl að auðgast á téðum viðskiptum. Eins og við mátti búast kemur Búnaðarbankinn af fiöllum í þessu máli. Bankinn hefur sjálfur lagst í rannsókn á sjálfum sér og eins og við mátti búast kom- ist að þeirra niðurstöðu að hvurgi séu þar maðkar í viðskiptamys- unni.“ Jóhannes Sigurjónsson í Degi 11. janúar. Lítilræði varðandi lýðræði Ein athyglisverðasta fréttin á nýju ári er tvímælalaust mótmæli frétta- manna við ríkissjónvarpið i Prag gegn pólitískri ráðningu sjónvarps- stjóra ásamt pólitískri skipan full- trúa í sjónvarpsráð. Ekki vekur það minni athygli að þar njóta þeir kraft- mikils stuðnings almennings og for- seta landsins, Václavs Havel. Þeim, sem þekkja ekki annaö lýðræði en flokksræði, hlýtur að koma slíkt spánskt fyrir sjónir. Vitræn skýring á brölti Það var því afar gleðilegt að fá loks vitræna skýringu á þessu brölti Tékka í fréttum íslenska ríkissjón- varpsins 4. jan. sl. en þar bætti fréttamaðurinn því við að það staf- aði af því að Tékkar eru svo miklir nýgræðingar á sviði lýðræðis að þeir eru enn ekki farnir að skilja þá galla, sem óumflýjanlega hljóta að fylgja því. Enda talaði þar fréttamað- ur stofnunar sem hefur langa og mikla reynslu af pólitískum stöðu- veitingum. Og auðvitað hljóta einhverjar ann- arlegar hvatir að búa að baki því að Havel styður slíkan misskilning á lýðræði. Honum er aðeins í mun að klekkja á Klaus, fyrrum forsætisráð- herra. Og þá er bara að vona að Tékkum verði sem allra fyrst ljóst, að hið eina sanna lýðræði er einmitt flokksræði. Þetta er ekki síður athyglisvert í ljósi þess að nú nýlega vann sama stofnun það afrek að vekja upp þá tegund samninga- gerðar við starfsfólk, sem fyrri kynslóðum tókst með ærinni fyr- irhöfn og fórnum að útrýma á fyrri hluta nýliðinnar aldar. Þar er vísað til þeirra nauðungarsamninga sem gerðir voru við þýðendur og fóru þannig fram að einn og einn var dreginn út i hom og gert ljóst að ef hann sætti sig ekki við kauplækkun væru dagar hans við slíka iðju hjá stofn- uninni taldir. Þeim var ennfremur, í nafni amerískra dreifiaðila, gert að af- sala sér öllum rétti varðandi frekari nýt- ingu á afurðum sin- um. Það er auðvitað lika gleðilegt, í ljósi alþjóðavæðingar, að amerískir dreifiaðil- ar skuli koma með Jóhanna Þráinsdóttir þýöandi svo afgerandi hætti að rekstri ríkissjónvarpsins, eins og stjórnmálamenn myndu sjálfsagt orða það. Enda sýnir dagskrá stöðvarinnar að hún á mikið undir amerískum dreifiaðilum komið og því eðlilegt að þeir hafi sitt að segja um rekstur hennar. Menning og tunga? Einnig kom í ljós við samningagerð þessa að afkastageta þýðenda haföi verið stór- lega vanreiknuð. Áður hafði veriö talið að eðlileg framleiðslugeta þeirra væri 40 textar á klst., en í ljósi þess að aðalhlutverk stöðvarinnar er að mati yfirmanna að miðla lands- mönnum afþreyingarefni þykir ein- sýnt að þar með sé orðið svo fátt um svonefnt bitastætt efni að hver með- alþýðandi ætti að fara létt með að framleiða 50 texta á klst. Þessi upp- götvun hafði jafnframt þá kosti í för með sér að stöðin gat nú hætt að skipta við seinvirka þýðendur, en áður var hún búin að losa sig viö annan dragbít á framsækinni dag- skrá sinni, málfarsráðunaut. Ekki hefur annað heyrst en að pólitískt skipað útvarpsráð láti sér þá ráðstöfun vel líka, þótt þeim sem enn rámar í aö nauðungaráskrift landsmanna að ríkisrekinni sjón- varpsrás hafi upphaflega verið fóðruð með skyldum hennar við menningu og tungu þyki sem þar sé aðeins enn ein staðfest- ingin á því komin, að þær for- sendur eru brostnar. Fátíður misskílnlngur... Það hvarflar meira að segja að svoleiðis fólki hvort ekki væri réttara aö leggja niður hið pólitiskt skipaða útvarps- ráð og verja fé því sem fer í þann bitlinginn til þarfari hluta, eins og t.d. endurráðn- _____ ingar málfarsráðunautar eða “ eflingar þýðinga í stað niður- rifs á þeim, því að ef kröfur um þýð- ingar miðast eingöngu við meinta há- marksframleiðslugetu þýðenda hlýt- ur það að bitna á vandvirkninni, sama hversu góður þýðandi á annars í hlut. Eða er jafnvel orðið tímabært að landsmenn fái að ráða því sjálfir hvaða afþreyingarstöð þeir kjósa að styðja með áskrift sinni? En kannski flokkast þannig hug- leiðingar aðeins undir enn einn mis- skilninginn á lýðræði, sem er til allr- ar hamingju lika fátiður hér á landi; að almenningi komi baun við á hvaða forsendum ríkisherrar heimta af hon- um gjöld. í stað þess er vitaskuld nær að hugsa til þess með stolti að hér býr þjóð sem ber höfuð og heröar yfir aðr- ar þjóðir hvað varðar réttan og há- þróaðan skilning á hugtakinu lýð- ræði og veit mætavel að í því felst slst af öllu réttur lýðsins tfl að skipta sér af pólitískum ákvörðunum. Jóhanna Þráinsdóttir „Það hvarflar meira að segja að svoleiðis fólki hvort ekki vœri rétt- ara að leggja niður hið pólitískt skipaða útvarpsráð og verja fé því sem fer í þann bitlinginn til þarfari hluta, eins og t.d. endurráðn- ingar málfarsráðunautar eða eflingar þýðinga í stað niðurrifs á þeim ..." - Útvarpsráð fundar um þáttagerðarmann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.