Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 Fréttir 9 Á röltinu í Kringlunni: Allir að gera góð kaup Um síðustu helgi var líf og fjör í Kringlunni þar sem útsölumar voru að heijast og var talað um að ástandið væri svipað og í jólaösinni. Eitthvað hefur hægst á, sérstaklega að morgni til um miðja viku, en á þeim tíma litu blaðamaður og ljós- myndari inn til að skoða stemning- una. Nokkur slæðingur var af fólki en augljóst var að sumar verslanimar höfðu meira aðdráttarafl en aðrar. Mikil ös var í einstökum verslunum og þá sérstaklega þeim sem hófu út- sölur þann daginn, á meðan aðrar stóðu tómar. Við tókum nokkra við- skiptavini Kringlunnar tali og feng- um að gægjast ofan í pokana hjá þeim. Föt á börnin Rakel Bjömsdóttir var á gangi í Kringlunni með stóran poka fullan af barnafotum úr einni verslun og sagðist hún hafa gert góð kaup á út- sölu. Hún keypti ungbamagalla sem kostaði áður 9.900 kr. en kostaði nú 6.400 kr. Ennig gerði hún góð kaup í bamaúlpu sem var með 2000 kr. af- slætti og kostaði nú 5900 kr. auk þess sem hún keypti húfu og trefll í stll. „Þetta eru góö leikskólaföt og útigallar,“ segir Rakel. „Ég fer yfir- leitt aldrei á útsölur en nú á ég böm i fyrsta skipti og því tilvalið að ná í vönduð föt á góðu verði.“ Hún seg- ist hafa viljað sjá betri afslátt en þar - útsölur í fullum gangi DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR Beöið eftir mömmu Það ergott að hafa með sér félaga, í líki dúkku, á meðan mamma er að skoða í búðunum. Einar, Kristín, Elísabet og Begga Begga tók með sér þrjá vini sína til að aðstoða við val á sundfötum sem hún vonaðist til að finna á útsölu. að úrvalið í nokkrum verslunum og keypt ungbarnaföt í Hagkaupi. Kolfinna sagði að þar væri góður af- sláttur en þó væri það mjög mis- jafnt milli verslana. „Þær em jafn misjafnar og þær em margar." Ósk- ar sagði að þau færu á útsölur þeg- ar þau kæmu því við og þar sem börnin væru orðin þrjú væri gott að geta keypt á þau föt á góðu verði. Peysa og sundföt „Ég var nú bara að kaupa eina peysu,“ segir Svana Sigurgrímsdótt- ir sem hafði keypt sér bleika peysu í versluninni Cosmo. „Ég gerði góð kaup en peysan kostaði bara 1900 krónur,“ segir hún. Svana fer nokk- uö oft á útsölur og var hún búin að skoða i þó nokkrum verslunum. „Verslanirnar eru að gefa allt að 40-50% afslátt og því hægt að gera góð kaup.“ Þau Begga, Elísabet, Kristín og Einar eru öll 17 ára og voru saman á búðarápi en aðeins Elísabet ætlaði að kaupa eitthvað. „Ég er að leita að sundfötum, mig hefur vantað þau lengi,“ sagði hún. Þau segjast oft skoða útsölumar og þá helst í Top Shop og Morgan og segja að oft megi fá flnar flíkur ódýrt. -ÓSB Rakel Björnsdóttir Hún segir að afslátturinn mætti vera meiri en hún var að kaupa vönduð barnaföt. Oskar Birgisson og Kolfinna Njáisdóttlr Þau voru með börnum sínum, Aldísi, Birgi Þór og Árna Birni, í Kringlunni og voru fötin í pokanum á Árna Björn. Svana Sigurgrímsdóttir „Þessi peysa kostaði bara 1900 kr. og ég tel mig hafa gert góö kaup, “ segir Svana og eflaust á hún eftir að taka sig vel út í henni. sem hún kaupir þessa vöru yfirleitt á fullu verði þá sé hún ánægð með afsláttinn sem hún fékk. Jafn misjafnar og þær eru margar Kolfinna Njálsdóttir og Óskar Birgisson voru ásamt bömum sín- um, Aldísi, Birgi Þór og Árna Bimi, að versla í Kringlunni. Þau eru frá Húsavík en sögðust hafa komið í bæinn í öðrum erindagjörðum en notað tækifærið og kíkt á útsölur. Þegar DV hitti þau höfðu þau skoð- Saltfiskur á kartöflubeði Saltfiskur „boulangére" Kartöflurnar og sellerírótarsneiðarnar eru lagöar í eldfast mót og fiskinum raðaö par ofan á. Soðinu er síðan helltyfir og rétturinn bakaður í ofni. Saltfiskur hefur verið á borðum landsmanna um langa hríð. En á síðustu árum hafa matreiðsluað- ferðir hans breyst og íslendingar eru í æ meiri mæli að taka suðræn- ar þjóðir sér til fyrirmyndar í þeim efnum. Þjóðirnar við Miðjarðarhaf líta á saltfiskinn sem herramanns- mat og matreiöa hann sem slíkan. Hér er uppskrift að saltfiski „bou- langére" sem er skemmtileg leið til að nýta sér þetta frábæra hráefni. Gætið þess að nota eingöngu vel út- vatnaðan saltfisk því annars verður rétturinn brimsaltur. í mörgum verslunum er hægt að kaupa fullút- vatnaðan fisk þannig og er það góð- ur kostur fyrir önnum kafna heim- iliskokka. Hráefni 1 kg stór saltfiskur, vel útvatnaður 6 stk. bökunarkartöflur 1/2 stk. sellerírót 1 stk. laukur, meðalstór 1 stk. hvítlauksgeiri 100 g smjör 4 dl kjúklingasoð (eða vatn og kjúklingakraftur) salt og pipar Meölæti 6-6 stk. tómatar 200 g sykurbaunir Sjóðið sykurbaunimar í söltu vatni í tvær mínútur. Berið fram ásamt tómötum í sneiðum. Aöferð Skerið saltflskinn i sex hluta. Af- hýðið kartöflurnar og skerið í 1/2 cm þykkar sneiðar. Saxið laukinn og hvítlaukinn og steikið í smjör- inu ásamt kartöflu- og sellerírótar- sneiðunum, kryddið með salti og pipar. Leggið í eldfast mót og hellið soðinu yfir. Bakið í 45 mínútur við 180° C án blásturs. Steikið saltfisk- inn upp úr smjöri á pönnu og legg- ið ofan á kartöflurnar. Bakið í ofn- inum í fimm mínútur til viðbótar. Borið fram í fatinu ásamt ferskum tómatsneiðum og fint skornum soðnum sykurbaunum. Úr Veislubók Hagkaups IKÉA Nissan Almera SLX '98, ek. 93 þús. km, 4 d., 5 g., rauðsans. Verð 815 þús. Daihatsu Sirion '99, ek. 21 þús. km, 5 d„ ssk., steingr. Verð 980 þús. Ford Mondeo Ghia '97, ek. 60 þús. km, 4 d„ ssk„ vínr. Verð 1.390 þús. Corolla XLi sedan 1300 '95, þús. km, 4 d„ ssk„ dökkgr. Verð 660 þús. Toyota Coroila XLI sedan 1300 '96, ek. 156 þus. km, 5 d„ 5 g„ dökk MMC Lancer GLXI stw '97, ek. 70 þús. km, 5 d„ ssk„ vinr. Verð 860 þús. Grand Sportage '98, ek. 33 þús. km, 5 g„ 5 d„ vinr. Verð 1.480 þús. Kia Sportage '96, ek. 40 þús. km, 5 d„ ssk„ grás. Verð 1.090 þús. Kia Sportage '97, ek. 72 þús. km, 5 d„ 5 g„ vínrauður. Verð 1.090 þús. Suzuki Baleno GL station '98, ek. 66 þús. km, 5 d„ 5 g„ grás. Verð 1.070 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.