Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2001, Page 2
18
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2001
Sport
DV
Árþúsundamótið á Indlandi:
Klassamunur
- á íslenska liðinu og því indverska, sagði Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu
íslenska landsliðið í knattspymu er öruggt
með sæti í 8-liða úrslitum Árþúsundamótsins í
Indlandi eftir að liöið lagði heimamenn, 3-0, á
Nehroleikvanginum í Cochin fyrir framan 23
þúsund áhorfendur á laugardaginn. Tryggvi
Guðmundsson fór mikinn í leiknum og skoraði
öll mörk íslendinga, tvö eftir undirbúning Guð-
mundar Benediktssonar. íslendingar mæta ann-
aðhvort Chile eöa Japan í undanúrslitum en
það kemur í ljós eftir leik Úrúgvæa og Indverja
á mánudaginn.
Kaflaskipt
íslenska landsliðið byrjaði hörmulega í leikn-
um og voru Indverjar sterkari aðilinn í leikn-
um lengst af fyrri hálfleik. Það var því nokkuð
gegn gangi leiksins sem Tryggvi Guðmundsson
kom íslendingum yfir á 41. mínútu með skoti af
stuttu færi eftir aukaspymu Guðmundar Bene-
diktssonar.
Við markið jókst sjálfstraust íslensku leik-
mannanna og tóku þeir öll völd á vellinum í
síðari hálfleik. Tryggvi Guðmundsson kom ís-
landi í 2-0 með góðu skoti fyrir utan vítateig
eftir sendingu Guðmundar Benediktssonar á 53.
mínútu og Tryggvi var síðan aftur að verki tíu
mínútum síðar þegar hann innsiglaði sigur ís-
lands og þrennu sína með því að skora auðveld-
lega eftir að hafa fengið boltann á silfurfati frá
indverskum varnarmanni. íslendingar hefðu
getað bætt við fleiri mörkum það sem eftir lifði
leiks en höfðu ekki heppnina með sér.
Byrjunarlió íslands: Fjalar Þorgeirsson,
Sverrir Sverrisson, Gunnlaugur Jónsson (Valur
Fannar Gíslason, 74.), Bjarni Þorsteinsson, Ind-
riði Sigurðsson, Gylfi Einarsson, Þórhallur
Hinriksson, Sigurvin Ólafsson, Ölafur Örn
Bjamason, Tryggvi Guðmundsson (Hreiðar
Bjamason, 70.), Guðmundur Benediktsson
(Helgi Valur Daníelsson, 70.).
Léleg byrjun
„Við byrjuðum ömurlega í leiknum. Leik-
menn voru á hálfri ferð, sjálfstraustið var lítið
og það var eins og menn væra taugaveiklaðir.
1. riðill
Bosnía-Bangladess_...........2-0
Júgóslavla-Bangladess ..
Bosnía 1 1 0 0 2-0 4
Júgóslavía 1 0 1 0 1-1 1
Bangladess 1 0 0 1 0-2 0
2. riðill
Úrúgvæ-ísland 2-1
Indland-fsland 0-3
ísland 2 1 0 1 4-2 3
Úrúgvæ 1 1 0 0 2-1 3
Indland 1 0 0 1 0-3 0
3. riðill
Jórdanía-Rúmenía . .. 1-0
Rúmenía-Hong Kong . 4-2
Rúmenía 2 1 0 1 4-3 3
Jórdania 1 1 0 0 1-0 3
Hong Kong 1 0 0 1 2-4 0
4. riðill
Japan-Úsebekistan . . 2-0
Úsebekistan-Bahrain . 5-0
Chile-Japan 1-0
Úsebekistan 2 1 0 1 5-2 3
Japan 2 1 0 1 2-1 3
Chile 1 1 0 0 1-0 3
Bahrain 1 0 0 1 0-5 0
Við fengum eitt eða tvö færi í hálfleiknum og
síðan tókst Tryggva að skora undir lokin en ef
satt skal segja þá spiluðum við alltof aftarlega i
fyrri hálfleiknum og leyfðum Indveijunum að
ráða ferðinni. Liðið var sundurlaust og leik-
menn voru að reyna að setja Indverjana undir
pressu hver í sínu homi og það segir sig sjálft
að slíkt er aldrei vænlegt til árangurs. Það er
með ólíkindum að við skyldum leyfa jafn slöku
liði og Indland er að eiga svona mikið í einum
hálfleik," sagði Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari Islands, í samtali við DV-Sport eftir leikinn
á laugardaginn.
Nýtt liö í seinni hálfleik
„Það var ekki fyrr en markið kom undir
lok fyrri hálfleiks sem menn virtust fá trúna
á það sem þeir voru að gera. í hálfleik töluð-
um við um það að selja indversku leikmenn-
ina undir almennilega pressu í stað þess að
standa hjá þeim eins og raunin var í fyrri
hálfleiknum. Það varð til þess að við fóram
að vinna boltann framarlega á vellinum í
stað að við horfðum á þá spUa boltanum á
mUli sin í fyrri hálfleik og það þýddi að
marktækifærin urðu mikið tU muna fleiri.
Tryggvi skoraði síðan tvö mörk á stuttum
tíma og við hefðum getað skorað fleiri mörk
ef lánið hefði leikið við okkur.“
Klassamunur
„Indverska liðið er ekki mjög sterkt. Það
er reyndar oft erfitt að koma og spUa á úti-
veUi við framandi aðstæður í miklum hita.
Menn vora smeykir tU að byrja með og
værakærir en þegar leikmenn komust yfir
það var aldrei spuming að það er klassa-
munur á þessum tveimur liðum. Við eram
með mun sterkara lið, Þótt þeir séu fjöl-
mennir er lítU knattspyrnuhefð hjá þessari
þjóð og það sýndi sig í þessum leik,“ sagði
Atli.
Jafnt liö
„Það var enginn sérstakur leikmaður sem
stóð upp úr í leiknum. í fyrri hálfleik náði
enginn sér á strik en í seinni hálfleik var aUt
annað upp á teningnum. Liðið spUaði sem
ein heUd og þannig vannst leikurinn. Leik-
menn létu boltann ganga, sjálfstraustið kom
upp og þá sýndu menn hvað i þeim býr.
Þessir leikir eru gífurlega mikUvægir fyr-
ir aUa leikmenn liðsins, ekki bara þá sem
eru að stíga sín fyrstu skref í landsliðinu
heldur líka þá sem hafa spUað áður og fá
tækifæri tU að festa sig í sessi sem leiðtogar
hópsins. Mótið fær mikla athygli um
gjörvaUa Asíu og leikurinn í dag (á laugar-
dag) var góð landkynning fyrir ísland."
Nýtt verkefni fram undan
„Það ræðst á mánudaginn hvort við spU-
um í Kalkútta eða Cochin í 8-liða úrslitum.
Mér fmnst líklegt að Úrúgvæ vinni Indland
og það þýðir að við þurfum að fara tU
Kalkútta og spUa gegn ChUe. Ég kviði því
ekki en núna er aðalmálið fyrir okkur að
hvUast eftir erfiðan leik sem tók mikla orku
frá leikmönnum og byrja síðan að hlaða batt-
eríin fyrir næsta verkefni," sagði AUi Eð-
valdsson, landsliðsþjálfari íslands, í samtali
við DV-Sport eftir leikinn gegn Indverjum á
laugardaginn. -ósk
Þrenna Eyjapeyjans Tryggva Guömundssonar:
1035 mínútna bið á enda
Tryggvi Guðmundsson varð átt-
undi leikmaður íslenska knatt-
spyrnulandsliðsins til að skora
þrennu í landsleik þegar hann gerði
þrennu á 22 mínútna kafla gegn Ind-
verjum á Árþúsundamótinu á Ind-
landi um helgina. Tveir af þessum
átta gerðu reyndar einu marki betur
og skoruðu fjögur mörk.
Það má með sanni segja að mörk-
in hafi verið langþráð því þegar
Tryggvi horfði á eftir boltanum í
netið í fyrsta markinu hafði strákur
mátt bíða 18 landsleiki og 1035 min-
útur eftir marki með íslenska lands-
liðinu. Tryggvi byijaði landsliðsferil
sinn af miklum krafti með því að
skora þrjú mörk í fyrstu flmm lands-
leikjum sínum en eftir þrjú mörk á
fyrstu 172 landsliösmínútunum sín-
um var biðin orðin ansi löng.
Fyrsta þrennan í alvöruleik
Þrenna Tryggva var einnig sér-
stök því aldrei áður hafði leikmaður
landsliðsins skorað þrennu í leik í
keppni, allar hinar sjö þrennumar
höfðu komið í vináttulandsleikjum.
Þá hefur enginn þeirra sex leik-
manna sem hafa skorað þrjú mörk í
leik verið jafnfljótir að skora mörk-
in þrjú en það tók eins og áður sagði
Tryggva aðeins 22 mínútur. Rík-
harður Jónsson (1951) og Arnór
Guðjohnsen (1991), sem báðir gerðu
femu, voru þó fljótari að skora þrjú
mörk. Ríkharður gerði þrjú á 16
mínútum og Amór þijú á 19 mínút-
um. Enginn þeirra leikmanna sem
hafa skorað þrennu í landsleik byrj-
að seinna í leik en fyrsta mark
Tryggva kom á 41. mínútu. Helgi
Sigurðsson skoraði fyrsta mark sitt í
þrennu sinni gegn Möltu í fyrra á 36.
mínútu. -ÓÓJ
Þrennur landsliðsins
frá upphafi
1951 Rikharður Jónsson, fjögur mörk
gegn Svíum á Melavellinum.
1975 Teitur Þórðarson, þrjú mörk
gegn Færeyingum á Laugardalsvelli.
1985 Ragnar Margeirsson, þrjú mör
kgegn Færeyingum i Keflavík.
1991 Amór Guðjohnsen, fjögur mörk
gegn Tyrkjum á Laugardalsvelli.
1994 Þorvaldur Örlygsson, þrjú mörk
gegn Eistlendingum á Akureyri.
1996 Bjarki Gunnlaugsson, þrjú
mörk gegn Eistlendingum í Tallinn.
2000 Helgi Sigurðsson, þrjú mörk
gegn Möltubúum á Laugardalsvelli.
2001 Tryggvi Guðmundsson, þrjú
mörk gegn Indverjum í Kochin.